Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 1

Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 1
HEIMILI SUNNUDAGUR 7. JANUAR 1990 BLAÐ Húsnæði 50-60% (lýi ai íi í Reykjaúk Ameðfylgjandi súluriti kem- ur glögglega f Ijós sá mikli munur, sem er á fasteignaverði milli Reykjavíkur og nokkurra valinna kaupstaða úti á landi. Miðað við þá staði, sem hér eru valdir, er fasteignaverð á landsbyggðinni um 30-40% lægra en í Reykjavík. Ef saman- burðinum er snúið við má segja, að fasteignaverð f Reykjavík sé 50-60% hærra en á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í nýút- komnu riti eftir Arsæl Guð- mundsson hagfræðing, sem Byggðastofnun hefur gefið út. Þar segir ennfremur, að ör fólksfjölgun á höfuðborgar- svæðinu muni vafalaust hafa mikil áhrif á fasteignaverð á svæðinu. Þar með bendir flest til þess, að munur fasteigna- verðs komi frekar til með að aukast en hitt. Það er því fyrir- sjáanlega mjög erf itt fyrir að- flutta að eignast þak yfir höfuð- ið, einkum í Ijósi þess, hve treglega gengur að selja eignir úti ílandsbyggðinni. Ef fram heldur sem horfir, munu þeir erfiðleikar aukast frekar en hitt. Samanburöur á fasteignaverði í Reykjavík og á landsbyggöinni 1988 Verð á ferm. í atvinnuhúsnæði Verð á ferm. í einbýlishúsi (Staðir valdir af handahófi) Verð á ferm. í fjölbýlishúsi Sleypu- skemmdJr Steypuskemmdir eru enn mikið vandamál hér á landi, enda þótt margir haldi þvífram, að mikil famför hafi orðið bæði ísteypugerð og niðurlagningu steypu. I viðtali hér í blaðinu í dag er rætt við tvo sérfræðinga um steypuskemmdir og varnir við þeim. Það eru þeir Ríkharðui Kristjánsson verkfræðingur og Oddur Hjaltason bygginga- tæknifræðingur. Þar kemur fram, að athygli manna hefur fyrst og fremst beinzt að steypu- skemmdum á höfuðborgar- svæðinu. — Fólk á stöðum eins Egils- stöðum skilur ekki alla þessa umræðu um steypuskemmdir, segir Ríkharður. — Það er eins og annar heimur. Málningar- menn á Akureyri skilja t. d. ekki heldur alla þessa umræðu um flagnandi málningu. Þetta er að þakka allt annarri veðráttu, því að þessir staðir eru að mestu lausir við sunnlenzka slag- regnið. 10 Halogen- lýsing Arkitektarog hönnuðir hafa í auknum mæli not- fært sér þá möguleika, sem halogentæknin býur upp á. Hugmyndaflugið hefur verið látið ráða ferðinni og árang- urinn orðið ótrúlegur fjöldi lampa, þar sem góð hönnun og glæsilegt útlit hefur verið útkoman. Þetta kemurfram íþætt- inum Híbýli/Garður ídag. Þar segir höfundurinn, Helgi Kr. Eiríksson lýsingarhönn- uður, að á síðustu fimm árum hafi orðið bylting í gerð lampa og Ijósgjafa til heimilisnota. Halogentækn- in, sem við þekkjum frá bílljósunum, hafi þróazt og haldið innreið sfna bæði inn á heimilin og vinnustaðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.