Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1990
m8%adurinn
Nóatúni 17, gengið inn frá Hátúni
26933 Opið ídag kl. 1-3 26933
Nýlendugata. 2ja herb. 50 fm
íb. í kj. (ósamþ.).
Laugavegur. 3ja herb. íb. á efri
hæð í steinh. Góð greiðslukj.
Vitastfgur. 3ja herb. íb. á efri
hæð í steinh. Mikið endurn. íb.
Laus.
Hrfsmóar. Nýl. 3ja herb. 85 fm
íb. á 4. hæð í lyftuh. Stæði í
bílskýli. Gott útsýni.
3 millj. v. samning. Þurf-
um að útvega góða 3ja
herb. íb. gjarnan í lyftub-
lokk.
Vantar. Þurfum að útvega
50-100 fm húsnæði í
nánd við Skólavörðuholt.
Allskonar eignir koma til
greina.
Kjarrhólmi. Góð 4ra herb. 100
fm íb. Þvottah. og búr í íb. Suð-
ursv. Laus. Ákv. sala.
Álftamýri. 4ra herb. íb. á 4.
hæö. Parket á stofu Tvennar
svalir. Bílskúr. Skipti á 2ja herb.
íb. koma til greina.
Dalsel. Óvenjuglæsil. 4ra-5
herb. endaíb. á 2. hæð. Stæði
í bílskýli.
Rauðihjalli. Raðh. á tveimur
hæðum með innb. bílsk. samt.
210 fm.
Ósabakki. Glæsil. raðh. með
innb. bílsk. samt. 210 fm.
Hafnarfj. - hagst. kaup. Til
sölu nýendurb. einbhús
(steinh.) hæð og ris samt. 191
fm. Mjög hagst. langtlán áhv.
I smiðum
Parhús til afh. strax. Einl.
parhús m/innb. bílsk. samt. 161
fm. Vel staðsett við Fannafold.
Fannafold. Parh. á tveimur
hæðum með innb. bílsk. samt.
192 fm.
Fannafold. Parh. á tveimur
hæðum með innb. bílsk. samt.
142 fm.
Viðarás. Raðhús á einni hæð
með áföstum bílskúr. Óvenju
skemmtileg teikning selst fok-
helt en frágengið að utan.
Dalhús. Fokh. raðh. á tveimur
hæðum með sérbyggðum bílsk.
samt. 190 fm.
Vesturbrún - eignask. mögul.
Parh. m/innb. bílsk. Samt. 264
fm. Skipti mögul. á minni eign.
Selst fokh., frág. utan.
Álftanes. Einl. einbhús klætt
Steni-plötum 170 fm auk 39 fm
bílsk. Selst fokh. eða lengra
komið.
Ártúnsholt. Fokh. einbhús
með sérbyggðum bílsk. samt.
205 fm.
Atvinnuhúsnæði
{ Vesturhöfninni. Nýtt fullb.
atvinnuhúsn. á tveimur hæðum
samt. um 800 fm. Mögul. að
selja húsið í þrennu lagi. Eigna-
skipti mögul.
Örfirisey. Fokh. hús á tveimur
hæðum samt. um 1000 fm. Til
afh. strax. Góð kjör. Eignask.
mögul.
Hafnarfjörður. Verslunar- og
iðnaðarhúsn. samt. um 2500
fm. Leitið nánari uppl.
Fyrirtæki
Veitingarekstur. Einn vinsæl-
asti samlokustaður og nýl. lítill
veitingastaður eru til sölu. Mjög
góðir tekjumögul.
Annað
Hesthús. Til sölu nýl. 10 bása
hesthús við Hlíðarþúfur í Hafn-
arfirði.
Skúli Sigurðsson, hdl.
Einimelur-einbýli
Vorum að fá þetta glæsilega einbýlishús í einkasölu.
Það skiptist m.a. í 3 samliggjandi fallegar stofur, 4
svefnherb. o.fl. Innbyggður bílskúr. Góður garður.
Húsið er samtals um 280 fm.
Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofunni.
í Öskuhlíð
L
' Q n ! Ei
T| inm n Q ffirS
\
Vorum að fá til sölu 185 fm einbhús við Háuhlíð. Húsið
er m.a. 2 góðar, saml. stofur, 3 herb. o.fl. Glæsil. útsýni.
EICNAMDllNIN
2 77 11
P I N G H 0 L T S S T R Æ T I 3
Sverrir Kristinsson, sölusfjóri - Þorleifur Guðmundsson, sölum.
bóróllur Halldórsson, lögfr.-Unnsteinn Beck, hrl., sími 12320
Viöhald sleypli’ii
niiiiiiiviiiija
MARGIR halda því fram, að nú séu byggð mun betri hús hér á landi
en áður. Bylting hafí orðið í steypugerð og niðurlagning á steypu
sé betri en áður. Fólk sé líka farið að leggja miklu meira upp úr
gæðum húsa en áður, enda búum við við erfitt veðurfar og þær við-
miðanir, sem kunna að vera góðar og gildar erlendis, duga einfald-
lega ekki hér.
Vona verður einnig, að alkaliskemmdirnar tilheyri liðinni tíð. Að
margra áliti voru þær ekki bara alkaliskemmdir heldur líka frost-
skemmdir, sem áttu rót sína að rekja til þess, að loft vantaði í steyp-
una. Þetta hefði mátt koma í veg fyrir og á ekki að eiga sér stað
nú með meiri þekkingu og bættum vinnubrögðum.
Afundi í Steinsteypufélaginu
snemma í desember fluttu þeir
Ríkharður Kristjánsson, verkfræð-
ingur hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Línuhönnun hf. og félagi hans,
Oddur
Hjaltason byggin-
gatæknifræðing-
ur, sem starfar hjá
sama fyrirtæki,
erindi um steypu-
skemmdir og við-
gerðir á þeim. Fyr-
irtæki þeirra,
Línuhönnun, var
stofnað 1979 til að
hanna raflínur, en upp úr 1980 hóf
fyrirtækið viðhaldsráðgjöf, sem hef-
ur vaxið jafnt og þétt síðan. Jafn-
framt sinnir Línuhönnun almennri
byggingaverkfræði og hefur m. a.
hannað nýju brýmar tvær á Bú-
staðavegi í Reykjavík og séð um
burðarþolshönnun ýmissa húsa í
borginni t. d. Tæknigarðs, stjórn-
stöðvar Landsvirkjunar o. fl.
Það vakti athygli, hve fundurinn
í Steinsteypufélaginu, sem var í
alla staði fróðlegur og athyglisverð-
ur, var lítt sóttur af almenningi.
Þarna var samt verið að ræða um
mikið vandamál, sem valdið hefur
fjölda manns miklum erfíðleikum
og fjárútlátum.
Þeir Ríkharður og Oddur voru
teknir tali nú í vikunni, þar sem
varnir gegn steypuskemmdum og
viðgerðir á þeim voru gerð að um-
talsefni svo og viðhald húsa al-
mennt. — Skemmdir í húsum eru
langt frá því að vera nokkuð nýtt
hér á landi. Þannig þurfti að endur-
byggja hvern bóndabæ á einum
mannsaldri hér áður fyrr, sem þýddi
í raun, að hver bóndi þurfti að
byggja sinn bæ, sagði Ríkharður í
upphafí viðtalsins. — Samt eru til
frásagnir um hús, sem stóðu lengi.
Auðun rauði hóf að hlaða dóm-
kirkju að Hólum á fyrri hluta 13.
aldar og límdi hleðsluna með kalk-
múr, sem entist í margar aldir.
Eggert Ólafsson telur, að kalkið
hafí jafnvel verið unnið úr skeljas-
andi hér á landi.
Vönduð vinnubrögð í fyrstu
— Þegar bytjað var að steypa
hús á íslandi um síðustu aldamót,
var gengið til verks með undra-
verðri nákvæmni og beitt faglegum
og ströngum vinnubrögðum, segir
Ríkharður ennfremur. — Húsin voru
búin til úr mjög þurri steypu. Hún
mátti ekki vera blautari en svo, að
ekki kæmi fram vatn, þegar hún
var barin saman. Slík steypa endist
alltaf vel. Þá var einnig mjög vel
vandað til vals á fylliefnum. Þannig
mátti t. d. ekki taka sjávarefni,
heldur varð að taka mulið gijót.
Lýsingar frá þessum byijunartíma
eru því af steypu, sem er ein sú
bezta, sem hér hefur verið búin til.
• Síðan var farið að slaka aðeins
á. Til eru blaðagreinar frá 1920-
1930, þar sem kvartað er mjög
undan vinnubrögðum á þessu sviði.
Þá er þegar orðið talsvert til af
steyptum húsum, sem eru illa farin
og tekin að gefa sig. Orsök þessa
er sú, að upp úr 1920 koma til
breyttar aðferðir við blöndun og
niðurlögn steypunnar. Þá er farið
að blanda hana meira vatni og
leggja hana niður á fljótvirkari hátt.
Hætt er að velja fylliefni en farið
að nota sjávarefni og alls konar
önnur efni notuð, sem áður höfðu
verið bönnuð.
Fyrir nokkrum árum stjómuðum
við hjá Línuhönnun viðgerð á
Kristskirkju (Landakotskirkju),
sem byggð var á þessum tíma.
Þessi kirkja var steypt í þremur
áföngum. Af þeim var miðáfanginn
verst farinn og nánast ónýtur. Það
varð því að endursteypa hann að
stórum hluta. Orsökin var sú, að
skipta varð um fylliefni, á meðan
verið var að byggja þennan hluta
kirkjunnar. Heimild fékkst ekki til
að taka fylliefni, þar sem það hafði
verið tekið áður. Seinna fékkst svo
aftur leyfí til að fara í sömu námu
og í upphafi og því er ástand þess
hluta kirkjunnar, sem steyptur var
eftir það, mun betra.
Ríkharður bendir ennfremur á,
að miklar viðgerðir hafa farið fram
á mörgum húsum frá því um 1930
eins og Sundhöll Reykjavíkur og
fleiri húsum, sem byggð voru um
það leyti. — Það er því óhætt að
segja, að steypuskemmdir eru ekki
nýjar af nálinni hér á landi. Þær
verða hins vegar mjög umfangs-
miklar á vissum tíma og þá bæði
frostskemmdir og alkalískemmdir.
Varla er hægt að kenna sérfræð-
ingunum um þetta. í raun eigum
við mjög fá sérfræðinga í steypu-
tækni og sá eini, sem við áttum í
þeim efnum 1964, varaði við þess-
ari hættu. En þessi steypa var ódýr-
ari og það ræður ansi oft. Verk-
tæknin skipti ekki höfuðmáli held-
ur. Alkalískemmdir koma eins fram
í handhrærðri steypu og steypu úr
steypustöð.
Ástandið verst á
höfiiðborgarsvæðinu
— Athyglin beinist einkum að
vandamálinu hér á höfuðborgar-
svæðinu, heldur Ríkharður áfram.
Við þurfum þó ekki að fara annað
en hér rétt út fyrir höfuðborgar-
svæðið t. d. út á Reykjanes. Þar
er ástandið allt annað og betra.
Samt eru húsin steypt úr sama se-
menti og veðráttan jafnvel verri en
hér í Reykjavík. Þar eru aftur á
móti notuð önnur fylliefni.
Austur á Egilsstöðum þurfi að
leita lengi til að finna steypu-
skemmdir. Þær megi hins vegar
fínna á Hornafirði, því að þar er
dælt upp sjávarefni og notað með
íslenzku sementi. — Þar kemur
fram mjög mikið af steypuskemmd-
um, enda er þar við sama vanda-
mál að glíma og hér í Reykjavík,
segir Ríkharður.
A Akureyri var unnið með alkal-
ívirk fylliefni á þessum tíma og með
sama sementið. En veðráttan þar
. er þannig, að þar eru þessar
skemmdir tiltölulega sjaldgæfar.
Akureyringar eiga hins vegar við
miklu meiri pússningarvandamál að
glíma en Reykvíkingar vegna veðr-
áttu sinnar, sem þurrkar pússning-
una miklu hraðar. Þar eru skemmd-
ir því allt öðru vísi og aðallega
sprungunet í pússningu, þó að frost-
skemmdir finnist þar líka.
Að mati Ríkharðs hefur umræð-
an um steypuskemmdir fyrst og
fremst beinzt að þeim vandamálum,
sem fólk hefur átt við að glíma á
höfuðborgarsvæðinu. — Fólk á
stöðum eins og Egilsstöðum skilur
ekki alla þessa umræðu um steypu-
skemmdir, segir hann. — Það er
eins og annar heimur. Málningar-
menn á Akureyri skilja t. d. ekki
eftir Mognús
Sigurðsson
Frostskemmdir í svölum í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði