Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 18

Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 18
(?i n 18 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR Bn|-'é;*4Ífc. M /SJS' W t ;í I •* * j J * ( ! ' : •• ' : : j SUNNUDAGUR 7. JANUAR 1990 MIWISBI.AI) SILII\IHR ■ SÖLUYFIRLIT — Áður en heimilt er að bjóða eign til sölu, verður að útbúa söluyfirlit yfir hana. í þeim tilgangi þarf eftirtalin skjöl: ■ VEÐBÓKARVOTTORÐ — Þau kostar nú kr. 500 og fást hjá borgarfógetaembættinu, ef eignin er í Reykjavík, en annars á skrif- stofu viðkomandi bæjarfógeta- eða ^ýslumannsembættis. Opnunartím- mn er yf irleitt milli kl. 10.00 og 15.00 Á veðbókarvottorði sést hvaða skuldir (veðbönd) hvíla á eigninni og hvaða þinglýstar kvaðir eru á henni. ■ GREIÐSLUR — Hér er átt við kvittanir allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem á að af lýsa. ■ FASTEIGNAMAT — Hér er um að ræða matsseðil, sem Fast- eignamat ríkisins sendir öllum fast- eignaeigendum í upphafi árs og menn nota m. a. við gerð skatt- framtals. Fasteignamat ríkisinser til húsa að Borgartúni 21, Reykjavík sími 84211. ■ FASTEIGNAGJÖLD — Sveit- arfélög eða gjaldheimtur senda seð- il með álagningu fasteignagjalda í upphafi árs oger hann yfirleitt jafnframt greiðsluseðill fyrir fyrsta gjalddaga fasteignagjalda ár hvert. Kvittanir þarf vegna greiðslu fast- eignagjaldanna. ■ FASTEIGNAGJÖLD — Selj- andi greiðir fasteignagjöld fram að afhendingardegi. Þegar afhending eignarinnar fer fram ber að gera upp fasteignagjöld og endurgreiðir \__________________________ þá kaupandi seljanda það sem hann hefur ofgreitt. Þetta uppgjör annast. fasteignasalan ef beðið er um. Utan Reykjavíkur er brunabótaiðgjald ekki innifalið í fasteignagjöldunum. Varðandi aðrar tryggingar eru þær viðskiptunum óviðkomandi og fylgja tryggingartaka. ■ BRUNABÓTAMATSVOTT- ORÐ — í Reykjavík fást vottorðin hjá Húsatryggingum Reykjavíkur, Skúlatúni 2, II. hæð, en annars staðar á skrifstofu þess tryggingar- félags, sem annast brunatryggingar í viðkomandi sveitarfélagi. Vottorð- in eru ókeypis. Einnig þarf kyittan- ir um greiðslu brunatryggingar. í Reykjavík eru iðgjöld vegna bruna- trygginga innheimt með fasteigna- gjöldum og þar duga því kvittanir vegna þeirra. Annars staðar er um að ræða kvittanir viðkomandi tryggingafélags. ■ HÚSSJÓÐUR — Héreru um að ræða yfírlit yf ir stöðu hússjóðs ogyfirlýsingu húsfélags um vænt- anlegar eða yfirstandandi fram- kvæmdir. Formaður eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að útfylla sérstakt eyðublað Félags fasteignasala í þessu skyni. ■ AFSAL — Afsal fyrir eign þarf að liggja fyrir. Ef afsalið erglatað, er hægt að fá ljósrit af því hjá við- komandi fógetaembætti og kostar það nú kr. 130. Afsalið er nauðsyn- legt, því að það er eignarheimildin fyrir fasteigninni og þar kemur fram lýsing á henni. ■ KAUPSAMNINGUR — Ef lagt er fram ljósrit afsals, er ekki nauð- synlegt að leggja fram ljósrit kaup- samnings. Það er því aðeins nauð- synlegt í þeim tilvikum, að ekki haf i fengist afsal frá fyrri eiganda eða því ekki enn verið þinglýst. ■ EIGNASKIPTASAMNINGUR — Eignaskiptasamningur er nauð- synlegur, því að í honum eiga að koma fram eignarhlutdeild í húsi og lóð og hvernig afnotum af sam- eign og lóð er háttað. ■ UMBOÐ — Ef eigandi annast ekki sjálfur sölu eignarinnar, þarf umboðsmaður að leggja fram um- boð, þar sem eigandi veitir honum umboð til þess fyrir sína hönd að undirrita öll skjöl vegna sölu eignar- innar. ■ YFIRLÝSINGAR—Efsér- stakar kvaðir eru á eigninni s. s. forkaupsréttur, umferðarréttur, viðbyggingarréttur o. f 1. þarf að leggja fram skjöl þar að lútandi. Ljósrit af slíkum skjölum fástyfir- leitt hjá viðkomandi fógetaembætti. ■ TEIKNINGAR — Leggja þarf fram samþykktar teikningar af eigninni. Hér er um að ræða svo- kallaðar byggingarnefndarteikn- ingar. Vanti þær má fá Ijósrit af þeim hjá byggingarfulltrúa. ■ FASTEIGNASALAR — í mörgum tilvikum mun fasteignasal- inn geta veitt aðstoð við útvegun þeirra skjala, sem að framan grein- ir. Fyrir þá þjónustu þarf þá að greiða samkvæmt Viðmiðunar- gjaldskrá Félags fasteignasal'a auk beins útlagðs kostnaðar fasteigna- salans við útvegun skjalanna. Híbýli/Garður IIALOGFA: Tísknbóla eöa ný tíska í Ijósum Á SÍÐUSTU fimm árum hefur orðið bylting í gerð lampa og ljós- gjafa til heimilisnota. Halogentæknin, sem við þekkjum frá bílljósum hefur þróast og hafið innreið sína inn á heimilin og vinnustaðina. Af þeim mikla fjölda Iampa sem kemur á markað árlega má sjá ‘iiversu halogenperan skipar sér veglegan sess og hversu halogen- lampar hafa orðið vinsælir á tilltölulega skömmum tíma. Það er orðin staðreynd að halogenlampar eru komnir til að vera, þeir eru ekki bara tiskubóla. Þetta sannast best á því að þeir lampaframleiðendur sem hvað lengst hafa þijóskast við að viðurkenna tilvist halogensins, hafa orð- ið að gefast upp og byrjað að firamleiða halogenlampa samhliða gló- perulömpunum. Þetta hafa þeir orðið að gera til þess að þóknast hinum harða markaði og þeirri miklu samkeppni sem er í dag. Halogenlamparnir hafa náð miklum vinsældum meðal almennings, þótt enn séu deildar meiningar um kosti þeirra og galla. Helstu kostir halogenlampa eru í fyrsta lagi hversu miklu minni þeir eru heldur en gömlu glóperu- lamparnir. Þetta býður uppá mikla möguleika í hönnun lampanna. Arkitektar hafa gripið þetta tæki- færi fegins hendi og hafa nú hannað fjöldan allan af lömpum sem hafa bæði mikið nota- gildi og eru einnig fallegir gripir. I öðru lagi er eitt aðalsmerki halogenlampa að þeir gefa miklu meira Ijós þótt þeir séu minni, með öðrum orðum “meira Ijós í minni lampa“. í þriðja lagi gefa lamparnir frá sér hvítara Ijós, litur ljóssins kemur nær litnum á dagsljósinu. Þetta leiðir af sér að hlutir sem halogenljósið fellur á gefa frá sér miklu betra litaendur- kast, m.ö.o. augað greinir hlutina skýrar, þetta hefur gert halogen- lampana vinsæla í verslunum og útstillingum. En halogenlampar hafa líka okosti, í fyrsta lagi myndast mikill hiti í námunda við peruna. Þessi mikli hiti getur verið hættulegur, sé ekki um vandaðan lampa að ræða. Annar galli við lampana er sá að það þarf spennubreyti, sem brejlir spennunni úr 220V niður í 12V. Við þessa breytingu myndast líka hiti. Spennubreytirinn getur verið tölvert stór og því ekki alltaf auðvelt að koma honum fyrir. Til þess að koma í veg fyrir vandamál við uppsetningu halogenlampa er æskilegt að ráðfæra sig við fag- menn. Að lokum er það galli á ha- logenlömpunum hve dýrir þeir eru. Þetta hefur tafíð útbreiðslu lamp- anna. Hvað er halogen? Halogen er nafnið á gasinu í perunni. Halogen peran sem er mest notuð í dag er í aðalatriðum byggð upp eins og gamla glóperan, sem við könnumst svo vel við. í halogenperunni er halogengas sem brennur við mikinn hita og þrýsting. Við það myndast mikið Ijós. Þetta kallar á sterkari peru. Þess vegna er mikið notað sérstakt kvarts-harðgler við gerð perunnar. Þetta gerir peruna miklu dýrari heldur en gömlu glóperuna, eftir Helgo Kr. Eiríksson en í staðinn fáum við meira (jós sem eyðir minna rafmagni. Halogenperurnar hafa aðra lög- un%eldur en gömlu perurnar og þær er ekki hægt að nota í gömlu lampana okkar, nema með tölverð- um breytingum. Halogenperunar halda sínum ljósstyrk út lífstíma sinn, en aftur á móti missa glóper- urnar 10% af sínum ijósstyrk á fyrstu stundunum. Halogenperur má ekki snerta með berum höndum. Fingraförin brenna sig inní kvartsefnið í glerinu og þegar peran hitnar getur hún sprungið. Þess vegna er nauðsyn- legt að hafa pappa eða bréf utanum peruna þegar hún er sett í lamp- ann. Komi maður við peruna skal hún hreinsast með spritti áður en hún er kveikt á ný. Þegar halogenlampar eru notaðir á heimilum eru gjarnan notaðir ljós- deyfar. Þeir skapa þá möguleika að hægt er að fá lítið ljós eða mik- ið frá sama lampanum. Við ljós- deyfingu gulnar ljósið og verður hlýrra og líkara því ljósi sem kemur frá gömlu glóperunni. Við dimmingu á 12V halog- enlömpum fyrir spennubreyti þarf að nota sérstaka ljósdeyfa til að koma í veg fyrir að spennubreytir- inn sem fylgir lampanum eyðilegg- ist ekki. Arkitektar og hönnuðir hafa í auknum mæli á síðustu árum notfært sér þá möguleika sem ha- logentæknin býður uppá. Hug- myndaflugið hefur verið látið ráða ferðinni og árangurinn orðið ótrú- legur fjöldi lampa þar sem góð hönnun svo og glæsilegt útlit hefur verið útkoman. Höfundur er lýsingarhönnuður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.