Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 8
SKIÐI
Örnólfur Valdimarsson.
r
ÖmóKúr
áttundi
í Noregi
Omólfur Valdimarsson, skíða-
kappi úr Reykjavík, varð í 8.
sæti í stórsvigi á móti i Noregi á
sunnudag. Alls voru 104 keppendur
sem tóku þátt í mótinu.
íslenska liðið, sem í eru auk Örn-
ólfs, Kristinn Bjömsson, Haukur
Arnórsson og Haukur Bjarnason,
hefur verið við æfingar í Noregi að
undanfömu og keppti tvívegis í
stórsvigi í Haakdal um helgina.
Á laugadaginn komst enginn
þeirra niður, enda mikið fall í braut-
inn og voru aðeins 21 keppandi af
120 sem skiluðu sér í mark.
Á sunnudaginn var Örnólfur eini
íslendingurinn sem komst klakk-
laust í gegnum báðar umferðirnar.
Hann var í 11. sæti eftir fyrri um-
ferð, en Kristinn Björnsson var þá
í 9. sæti en datt í síðari umfeðr-
inni. Ömólfur endaði i 8. sæti með
um 60 Fis-stig og var tæpum tveim-
ur sekúndum á eftir Norðmannin-
um, Tom Stensen, sem sigraði.
Islenska liðið æfir nú í Sondalen
í Noregi fram að næstu helgi. Þá
verður keppt í tveimur stórsvigs-
mótum áður en haldið verður heim
til íslands.
KNATTSPYRNA / ENSKA BIKARKEPPNIN
Misjafnt gengi
þekktra liða
SigurðurJónsson eini íslendingurinn sem eftirer í bikarkeppninni
MÖRG óvænt úrslit litu dagsins
Ijós í 3. umferð ensku bikar-
keppninnar um helgina. Tott-
enham, Nottingham Forest,
Coventry, Wimbledon og Luton
voru á meðal þeirra liða, sem
féllu úr keppni, en bikarmeist-
arar Liverpool, Everton og As-
ton Villa gerðu jafntefli og fá
annað tækifæri eins og fleiri.
Coventry, sem féll úr keppni á
sama tíma í fyrra eftir tap
gegn Sutton, mátti þola 1:0 tap á
útivelli gegn Northampton, sem
leikur í 3. deild. „Þetta er óafsakan-
legt. Við lékum illa, sendingar þvert
og aftur — hrein hörmung," sagði
John Sillett, stjóri Coventry, sem
sigraði í keppninni 1987. „Eg hef
átt margar ánægjustundir í knatt-
spyrnunni, en þetta er toppurinn,“
sagði Steve Berry, sem gerði sigur-
markið.
Guðni Bergsson og samheijar í
Tottenham fengu skell á heimavelli
— töpuðu 3:1 gegn Southampton.
Þorvaldur Örlygsson leikur heldur
ekki meira í bikarkeppninni að
þessu sinni eftir 1:0 tap Nottingham
Forest heima gegn Manchester
United, en Sigurður Jónsson _er énn
með eftir 1:0 sigur í Stoke. íslend-
ingarnir léku allir með sínum liðum.
Wimbledon, sem sigraði WBA í
3. umferð fyrir tveimur árum og
SL
Reuter
Mark Robin skoraði sigurmark Manchester United gegn Nottingham Forest.
Hér fagnar hann markinu.
stóð uppi sem sigurvegari í keppn-
inni um vorið, tapaði nú 2:0 fyrir
sama liði. Þetta var fyrsti sigur
WBA í keppninni í sex ár, en
Brighton, sem hafði ekki sigrað
heima í þijá mánuði og aðeins unn-
ið einn af síðustu 12 leikjum, lagði
Luton 4:1.
Paul Hirons kom inná hjá Tor-
quay, skoraði í sinni fyrstu snert-
ingu og West Ham tapaði 1:0. Lind-
en Jones hjá Reading gerði mistök
og Sunderland skoraði, en Jones
bætti um betur og skoraði tvisvar
eftir hlé.
Bikarmeistarar Liverpool gerðu
markalaust jafntefli í Swansea, þar
sem Lee Bracey, markvörður 3.
deildar liðsins, var í aðalhlutverki.
Norwich og Chelsea sluppu með
skrekkinn, en Crystal Palace og
Sheffíeld Wednesday tvíefldust við
mótlætið í sínum leikjum, voru und-
ir, en sigruðu.
Urslit/ B7
SPANN
Þrettán spjöld í Madrid
Real Madrid heldur fimm stiga forskoti sínu í
spænsku 1. deildinni í knattspyrnu eftir.sigur
á Atletico Madrid í hörkuleik, 3:1. Lítil vinsemd
er með þessum nágrannaliðum og í Ieiknum fengu
12 leikmenn gul spjöld og einn rautt, bakvörðurinn
Oscar Ruggeri í liði Real.
Miðvörðuinn Martin Vazquez kom Real í 2:0 á
fyrstu sjö mínútum leiksins en Egenio Bustingorri
minnkaði muninn á 49. mínútu. Bernd Schúster
átti síðasta orðið, á 75. mínútu, eftir að hafa geng-
ið í gengum vörn Atletico.
Valencia er í 2. sæti eftir sigur á Celta, 2:0,
með mörkum Fernedo Gomez og Eloy Olaya.
Terry Venables.
faárn
FOI_K
■ MARK Robins, sem gerði sig-
urmark Manchester United gegn
Nottingham Forest, lék sinn
fímmta leik með United. Liðið hafði
leikið átta leiki í röð án sigurs.
■ WAYNE Clarke er farinn frá
Leicester til Manchester City,
sem greiddi 150.000 pund og lét
David Oldfield að auki.
H TERRY Venables hélt upp á
47 ára afmælið á laugardag, en
Southampton eyðilagði daginn og
sigraði Tottenham.
■ IAN Porterfíeld sá menn sína
í Reading slá Sunderland úr
keppni, en Porterfield gerði ein-
mitt sigurmark Sunderland árið
1973, er liðið vann Leeds óvænt
1:0 í úrslitum bikarkeppninnar.
B COLIN Harvey, stjóri Ever-
ton, var í gær sektaður um 1.500
pund fyrir að láta dómarann heyra
það eftir 1:0 tap gegn Nottingham
Forest í deildarbikarnum í nóvem-
ber.
■ JOHN Bird, stjóri York, var
sektaður um 1.000 pund og Ray
McHale hjá Scarborough fékk 800
punda sekt, en þeim lenti saman á
leik liða sinna í nóvember. Stjórarn-
ir mega að auki ekki vera á bekkn-
um í þijá mánuði.
H HARVEY Redknapp hjá
Bournemouth og Terry Mancini
hjá Luton voru einnig sektaðir
vegna ummæla við dómara.
■ NAPÓLÍ vann Ascoli 1:0 í
ítölsku keppninni, en efsta lið deild-
arinnar lék illa og áhorfendur létu
leikmenn sína heyra það. „Áhorf-
endur hafa rétt til að gagnrýna,“
sagði Maradona, sem lagði upp
markið. „Þetta var okkar versti
leikur á tímabilinu," bætti hann við.
■ ROBERTO Baggio skoraði
fyrir Fiorentina í 2:0 leik gegn
Bari og er markahæstur ásamt
Salvatore Schillaci hjá Juventus,
en hvor hefur gert 10 mörk.
■ BARCELONA vann Bilbao 2:1
á útivelli í spænsku deildinni —
fyrsti sigur liðsins þar í fimm ár.
SKIÐI / KONUR
Auslurrískar
stúlkur sterkar
Schneider hefur ekki sagt sitt síðasta
Heimsbikarhafinn frá í fyrra,
Vreni Schneider frá Sviss,
sannaði enn einu sinni yfirburði
sína á Iaugardaginn er hún sigr-
aði í stórsvigi í Hinterstoder í
AustuiTÍki. Sigur hennar verður
að teljast frábær þar sem hún
gekkst undir uppskurð vegna hné-
meiðsla rétt fyrir jól og var þetta
fyrsta mót hennar eftir þá aðgerð.
Austurrískar stúlkur röðu sér í
næstu þijú sætin á eftir Schneid-
er, Monika Maierhofer varð önn-
ur, Claudia Strobl í þriðja sæti
og Anita Wachter í fjórða.
Þær Austurrísku gerðu enn
betur í stórsvigskeppninni á sama
stað í gær því þá nældu þær í tvö
efstu sætin. Petra Kronberger
sigraði, vann þar með annað
heimsbikarmótið á tímabilinu og
Anita Waehter varð í öðru sæti.
Michaela Gerg frá Vestur-Þýska-
landi varð þriðja og er nú efst í
stigakeppninni samanlagt með
148 stig.
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN I ALPAGREINUM
Nilsson sigraði með minnsta mun
Furusedt hefur enn forystu í heimsbikamum samanlagt
Sænski heimsmeistarinn í svigi,
Jonas Nilsson, sigraði í svig-
keppni heimsbikarsins sem fram fór
í Kranjska Gora í Júgóslslavíu á
laugardaginn. Hann varð fjórði í
svigi á sama stað á sunnudag, en
þá sigraði Armin Bittner frá Vest-
ur-Þýskalandi. Norðmaðurinn, Ole
Kristian Furusedt, hefur enn for-
ystu í heismbikarkeppninni saman-
lagt.
Nilsson var með áttunda besta
tímann eftir fyrri umferð og því
fáir sem reiknuðu með honum í
efsta sæti. Hann náði lang besta
brautartímanum í síðari umferð og
náði að vinna með minnsta hugsan-
lega mun, 0,01 sekúndu. Hubert
Stolz frá Austurríki varð annar og
landi hans, Michael Tritscher, þriðji
0,39 sek. á eftir Nilsson.
„Ég var of varkár í fyrri um-
ferð,“ sagði Jonas Nilsson. „í síðari
umferðinni tók ég áhættu því ég
hafði engu að tapa. Ég vissi fyrir
keppnina að ég var í góðri æfingu
og það var mjög mikilvægt fyrir
mig að sigra,“ sagði Nilsson sem
ekki hefur náð að sigra í svigi síðan
á HM 1985.
Fimmti sigurinn hjá Bittner
Armin Bittner frá Vestur-Þýska-
landi, sem sigraði í svigkeppni
heimsbikarsins í fyrra, sigraði í
svigi á sama staða á sunnudaginn.
Hann var fjórði eftir fyrri umferð
en var hálfri sekúndu á undan
næsta besta manni í síðari um-
ferðinni og vann þar með sinn
fimmta heimsbikarsigur í svigi.
Bernhard Gstrein frá Austurríki
varð annar og Paul Accola frá Sviss
þriðji.
■ Úrslit/ B6
GETRAUNIR: X11 22X X22 212
LOTTO: 1 3 6 33 34 + 37