Morgunblaðið - 23.01.1990, Page 2
MMKð
2 B
MORGUNBLAÐIÐ
, . *rrost<
IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1990
John McEnroe fór yfir strikið.
McEnroe
úr leik
Vísað úr keppni fyrir
slæma hegðun
John McEnroe er úr leik á opna
ástralska meistaramótinu í tenn-
is eftir mikið uppistand um helgina.
McEnroe var vísað úr keppni fyrir
slæma hegðun, ósæmilegt orðbragð
og að bijóta spaðann sinn. Hann
hafði yfirhöndina í leik gegn Svían-
um Mikael Pemfors en leikurinn
var stöðvaður og Pernfors dæmdur
sigur.
Ekki voru allir sáttir við þessa
ákvörðun og Boris Becker tók upp
hanskann fyrir McEnroe. „Það er
ekkert grín að hlaupa í fjóra tíma
í steikjandi sólinni. Menn geta misst
stjóm á sér, enda erum við engin
vélmenni," sagði Becker. Margir
sögðust þó fagna þessum dómi en
McEnroe hefði þó oft verið verri.
Aðalleikurinn í 8,-manna úrslitum
er viðureign Boris Beckers og Mats
Wilanders. Becker hefur fengið erf-
iða leiki og í 16-manna úrslitum
sigraði hann Miloslav Mecir. í hin-
um leikjunum mætast Stefan Ed-
berg og David Wheaton, Ivan Lendl
og Andrei Tsjerkasov og Yannick
Noah og Mikael Pemfors.
Leikið verður í 8-manna úrslitum
í dag í kvennaflokki. Þar mætast
Steffi Graf og Patty Fendick, Mary
Joe Femandez og Zina Garrison,
Helena Sukova og Katarina Maleva
og Angelicá Gavaldon og Claudia
Porwik.
Gabriela Sabatini, helsti keppina-
utur Steffi Graf, varð að hætta
keppni vegna meiðsla og það þykir
auka möguleika Graf á sigri.
Éfóm
FOLX
■ BELGÍSKA knattspyrnuliðið
Beveren rak í gær þjálfara sinn,
Rik Pauwels í kjölfar fjögurra
ósigra liðsins í deildinni. Greinilegt
' er að miklar kröfur em gerðar til
þjálfara í Belgíu því Pauwels er
sá áttundi sem rekinn er í vetur.
■ ÍRSKI Iandsliðsmaðurinn John
O’Neil hefur farið í mál við John
Fashanu hjá Wimbledon vegna
brots sem átti sér stað í leik
Wimbledon og Norwich í desemb-
er 1987. O’Neil, sem lék áður með
Leicester og QPR, var að leika
sinn fyrsta leik með Norwich er
hann fékk spark í hnéð frá Fash-
anu. O’Neil hefur ekki getað leikið
knattspyrnu síðan og hefur nú kraf-
ið Fashanu um skaðabætur.
■ FRAKKAR unnu Kuwait, 1:0,
i vináttulandsleik í knattspymu í
Kuwait á sunnudaginn. Laurent
Blanc skoraði sigurmarkið á 73.
mínútu með kollspyrnu. Þrír
Frakkar léku sinn fyrsta landsleik
í Kuwait; Gilles Rousset, mark-
vörður, Remi Garde, miðvallarleik-
maður og útherjinn, Pascal Va-
hirua.
KÖRFUKIMATTLEIKUR / ÚRVALSDEILD
Haukar komnir á mikinn skrið
HAUKARNIR eru nú komnirá
mikinn skrið í úrvalsdeiidinni í
körfuknattleik en helsttil seint
til þess að komast í úrslita-
keppnina. í fyrradag unnu þeir
góðan sigur, 94:82, á íslands-
meisturum Keflvíkinga ífjörug-
um og skemmtilegum leik. í
hiéi höfðu meistararnir 6 stiga
forystu, 46:40, en Haukarnir
léku af ofurkrafti í seinni hálf-
leiknum og slökktu fljótt sigur-
vonir Keflvíkinga.
Leikur beggja liða var lengstum
mjög hraður og góður. Hauk-
amir höfðu forystu framan af en
um miðjan fyrri tókst Keflvíkingum
að loka vel vörn
sinni. Haukar fundu
á henni fáar glufur
og langskot þeirra
rötuðu ekki í körf-
una. Samtímis vora ívar Webster
og Jonathan Bow hvíldir og veiktist
vörn Hauka við það. Náðu Keflvík-
ingar því undirtökum um miðjan
fyrri hálfleik og breyttu stöðunni á
nokkram mínútum úr 25:17 fyrir
Hauka í 37:29 sér í hag.
Haukar hófu seinni hálfleikinn
af miklum krafti sem fyrr segir,
skoruðu 11 stig á fyrstu tveimur
mínútunum án þess að Kef lvíkingar
fengju svarað og breyttu stöðunni
úr 40:46 í 51:46. íslandsmeisturan-
um tókst þó fljótlega að jafna en
þegar 12 mínútur voru til leiksloka
og staðan 58:57 fyrir Hauka tóku
heimamenn leikinn í sínar hendur.
Með góðum varnarleik tókst þeim
að koma lengst af í veg fyrir að
Keflvíkingar kæmust í skotfæri;
náðu hvað eftir annað af þeim
knettinum og skoruðu grimmt sjálf-
ir. Átti Pálmar Sigurðs þá stórgóð-
an kaf la og skoraði 11 stig á tæpum
þremur mínútum. Leikinn í gegn
spilaði hann félaga sína hvað eftir
annað upp og gaf sendingar sem
þeir þökkuðu fyrir með því að skora.
Haukar náðu 20 stiga forystu,
83:63, þegar fimm mínútur vora
eftir. Slökuðu þeir þá á og Keflvík-
ingum tókst að minnka muninn.
Sigurkarfa á lokasekúndunni
Guðmundur Bragason tryggði
Grindvíkingur sigur á Þór,
71:69, á síðustu sekúndu leiksins,
eftir æsispennandi lokamínútur.
^■■■■1 Jón Örn Guð-
Frá Frímanni mundsson náði for-
Ólafssyni ystu 69:68 fyrir Þór
iGrindavik þegar 39 sekúndur
voru til leiksloka
með tveimur vítaskotum. Grindvík-
ingar áttu misheppnað skot, náðu
Agúst
Ásgeirsson
. skrifar
frákastinu og Guðmundur Braga-
son skoraði sigurkörfuna fyrir
UMFG. Lokastigið kom síðan úr
vítaskoti Guðmundar.
Leikurinn sjálfur var jafn og
spennandi. Þórsarar spiluðu af
skynsemi í vörninni og Grindvíking-
ar áttu í miklum erfíðleikum með
svæðisvöm þeirra. Þeir héldu hins
vegar út og töpuðu leik sem þeir
gátu eins sigrað. Dan Kennard var
yfirburðamaður hjá Þór, skoraði
tæpan helming stiga þeirra og hirti
ein 22 fráköst. Konráð Óskarsson
átti góða spretti í fyrri hálfleik en
lenti í villuvandræðum í þeim seinni
pg sama er hægt að segja um Jón
Örn Guðmundsson.
Njarðvíkingar gerðu 66 stig í
fyrrí hálfleik
Njarðvíkingar áttu ekki í mikl-
um erfiðleikum með að sigra
slaka Valsmenn í Njarðvík á sunnu-
daginn. Heimamenn sýndu oft
^■■1 meistaratakta í fyrri
Björn hálfleik þegar þeir
Blöndal gerðu út um leikinn,
skrifar en f hálfleik höfðu
þeir 33 stiga forskot
66:30. Lokatölurnar urðu 115:88
og nú virðist Njarðvíkurliðið vera
að komast í gang aftur eftir nokkra
lægð.
Bræðurnir Matthías og Magnús
Matthíassynir léku ekki með Val
að þessu sinni þar sem þeir voru í
leikbanni og fjarvera þeirra veikti
liðið greinilega. Njarðvíkingar fóru
hreinlega hamföram í fyrri hálfleik
eins og sjá má á hálfleikstölum,
sýndu á köflum afbragðs leik og
höfðu Valsmenn ekki roð við þeim.
Síðari hálfleikur var mun jafnari
því Njarðvíkingar leyfðu varamönn-
um sínum að spreyta sig lengstum
og lauk honum reyndar með sigri
Hlíðarendaliðsins.
Reynisliðið hvorki fugl né fiskur
Reynismenn vora ekki erfíður
biti að kyngja fyrir KR-inga
er liðin mættust á Seltjarnamesi á
sunndagskvöld. 47 stig skildu liðin
að í lokin, 108:61.
KR-ingar léku
með byijunarlið sitt
aðeins fyrstu mínút-
urnar síðan fengu
varamennirnir að spreyta sig. Það
skipti engu máli því Reynisliðið er
hvorki fugl né fískur að undanskild-
um David Grissom, sem var besti
leikmaður vallarins. Athygli vakti
góð frammistaða Harðar Gauta
Gunnarssonar KR-ings sem kom'
af bekknum, stóð sig vel og gerði
19 stig.
Hörður
Magnússon
skrifar
Morgunblaðifi/Einar Falur
Pálmar Sigurðsson átti frábæran leik fyrir Hauka gegn ÍBK. Hér er hann
kominn innfyrir Magnús Guðfínnsson og býr sig undir að læða boltanum í
körfu Keflvíkinga.
Mikil spenna á Króknum
Það var mikil spenna er Tinda-
stóll mætti IR á Sauðárkróki
á sunnudaginn. Leikurinn var
hnífjafn nær allan tímann og aldrei
munaði meira en sjö
FráBirni stigum. Heimamenn
Björnssyniá vora þó sterkari í
Sauðárkróki tokin og Sverrir
Sverrisson gerði sig-
urkörfuna, 64:63, þegar 40 sekúnd-
ur voru til leiksloka.
Tindastóll lék án tveggja lykil-
manna, Vals Ingimundarsonar, sem
var í leikbanni, og Bo Heydens, sem
var settur úr liðinu fyrir agabrot.
Liðið sýndi þó mikla baráttu, lék
af skynsemi og sterk vörn, með
Sturlu Örlygsson og Ólaf Adolfsson
sem bestu menn, færði liðinu sigur.
ÍR-ingar fengu fimmtán mínútna
upphitun eftir langa bílferð og voru
nokkurn tíma að komast í gang.
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA—DEILDIN
James Worthy (t.h.) átti mjög góðan leik gegn Detroit.
Lakers losaði takið
Náði loks að sigra Detroit
Los Angeles sigraði Detroit Pist-
ons um helgina á útivelli,
107:97, og losaði þarmeð um tak
sem meistararnir höfðu á þeim.
Detroit hafði sigrað
Frá Gunnari í síðustu sjö leikjum,
Valgeirssyni þar af fjórum úr-
/ Bandaríkjunum glitaleikjum í vor.
Leikurinn um
helgina var mjög góður og jafn
lengst af. Lakers náði þó yfirhönd-
inn með því að gera tólf fyrstu stig-
in í síðari hálfleik og hélt tíu stiga
forskoti til leiksloka. Leikurinn var
nokkuð harður og var Isiah Thomas
vikið af velli fyrir slagsmái.
James Worthy var bestur í liði
Lakers og gerði 26 stig í fyrri hálf-
leik og 31 stig alls.
í leik efstu liðanna í austurdeild-
inni sigraði Chicago New York,
117:109. Með þessum sigri setti
Chicago met, vann 15. heimasigur
sinn í röð. Michael Jordan fór á
kostum og gerði 42 stig. í síðustu
tveimur leikjum hefur hann gert
12 þriggja stiga körfur og hefur
nú sett stefnuna á skotkeppnina í
Stjörnuleiknum en segist hafa misst
áhugann á troðslukeppninni.
Þetta var reyndar annar leikur
liðanna í vikunni en sá fyrri var
mjög sögulegur. New York sigraði
109:106 en staðan var jöfn,
106:106, þegar 0,1 sekúnda var til
leiksloka. New York fékk innkast
og Trent Tucker greip boltann og
sendi hann beint ofaní. Leikmenn
Chicago mótmæltu og á myndbandi
mátti sjá að tæp sekúnda leið frá
því að Tucker greip boltann þar til
hann sleppti honum, en dómurinn
stóð.
Los Angeles Clippers hefur geng-
ið vel að undanförnu en liðið varð
fyrir miklu áfalli í vikunni er Ron
Harper, sem kom frá Cleveland,
meiddist alvarlega og verður líklega
frá keppni í tæpt ár.
Larry Bird er kominn á fulla ferð
og gérði 37 stig fyrir Boston gegn
Golden State. Það dugði þó ekki til
því Boston tapaði, 115:120.