Morgunblaðið - 23.01.1990, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1990
------------------—----------—------------:----
B 3
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM
Vreni
Schneid-
er sigraði
Í31.sinn
á heims-
bikarmóti
VRENI Schneider náði besta
tímanum i báðum umferðum
svigsins í Maribor í Júgóslavíu
á sunnudag. Þetta var 31. sigur
hennar í heimsbikarnum á sex
ára keppnisferli. Mateja Svet
sigraði á heimavelli sínum í
stórsviginu á sama stað á laug-
ardaginn.
Schneider, sem misti af nokkr-
um mótum fyrir jólin vegna
hnémeiðsla, sýndi það um helgina
að hún er búin að ná sér að fullu.
Hún heldur þó við fyrri staðhæfingu
sína að hún nái ekki að verja titil-
inn í ár. „Wachter er í mjög góðri
æfingu og yfirveguð og verðskuldar
að vinna heimsbikarinn. Ég er án-
ægð ef mér tekst að halda titlinum
í svigi,“ sagði Schneider efstir sig-
urinn i Maribor á sunnudaginn.
Svet á heimavelli
Mateja Svet, heimsmeistari í
svigi 1987, náði sér vel upp á heima-
velli í stórsviginu sem fram fór á
laugardaginn. Svet vann þar sjötta
heimsbikarsigur sinn og þann fyrsta
á þessu keppnistímabili. Anita
Wachter frá Austurríki, sem hefur
forystu í heimsbikamum, varð önn-
ur og Maria Walliser frá Sviss
þriðja.
„Ég var viss um að æfingarnar
að undanförnu mundu skila sér fyrr
eða síðar. Þetta var í fyrsta sinn í
vetur sem ég náði tveimur góðum
ferðum í sama mótinu,“ sagði Svet,
sem æfði alla síðustu viku í brekk-
unni sem keppt var í og þekkti því
vel til.
Atlí Skárdal frá Noregi stal senunni í bruninu í Kitzbiihel á laugardaginn.
HANDBOLTI / EM KVENNA
Óhreint mjöl...?
Vestur-þýsku handboltastúlkurnar í Bayer Leverkusen voru gráti
næst eftir síðari viðureign sína gegn Spartak Kiev í IHF-keppn-
inni um helgina, en leikurinn fór fram í Kiev. Þær unnu fyrri leikinn
á heimavelli, 21:15, en töpuðu um helgina 17:24 og eru úr leik —
töpuðu samanlagt 38:39.
FráJóni Það var ekki einungis vegna úrslita síðari leiksins
Halldóri sem v-þýsku stúlkurnar vom sárar, heldur ástæða taps-
tertarswnii jns ag þejrra mati; framganga júgóslavneska dómara-
v' Yskalandl parsins. Þeir svartklæddu gerðu sér lítið fyrir og útilok-
uðu eina Leverkusen-stúlkuna, fyrir litlar eða engar sakir að sögn
Þjóðveija, vísuðu síðan þjálfara liðsins upp í áhorfendapalla og síðast
en ekki síst fékk sovéska liðið 14 — fjórtán — vítaköst 5 leiknum. Þar
af það síðasta á lokasekúndu leiksins, og með marki úr því komst
sovéska liðið áfram.
Þjóðhátíð hjá
IMorðmönnum
Zurbriggen vann tvíkeppnina og hef-
ur nú örugga forystu í stigakeppninni
NORÐMENN stóðu sig vel í heimsbikarnum íalpagreinum f Kitz-
búhel í Austurríki um helgina. Atli Skárdal sigraði í brunkeppn-
inni á laugardag og Ole Kristian Furusedt varð í öðru sæti, á
eftir heimsmeistaranum Rudolf Nierlich ísviginu á sunnudag.
Pirmin Zurbriggen sigraði ítvíkeppninni og er nú lang efstur í
heildarstigakeppni heimsbikarsins.
Atli Skárdal, sem aldrei áður
hafði unnið heimsbikarmót,
kom, sá og sigraði í 50. Hahnen-
kamm heimsbikarmótinu í bruni.
Hann hafði næst besta tímann eftir
fyrri ferð, 0.16 sek á eftir Helmut
Höflehner frá Austurríki. I síðari
umferðinni gerði Skárdal engin
mistök og var 2/100 hlutum úr
sek. á undan Höflehner. Skárdal,
sem er 23 ára, hefur oft verið nefnd-
ur skógarmaðurinn fýrir hve
glannalega hann keyrir og fer oft
út úr brautunum.
„Ég bjóst við að vinna heims-
bikarmót í vetur, og það var gaman
að sigurinn kom hér á 50. Hahnen-
kamm-mótinu. Ég var taugaóstyrk-
ur eftir fyrri umferðina, en þjálfari
minn, Dieter Bartsch frá Aust-
urríki, gaf mér góð ráð fyrir síðari
umferðina. Hann bað mig að taka
ekki of mikla áhættu, en skíða samt
ákveðið,“ sagði Skárdal.
Höflehner, sem hefur í hyggju
að hætta eftir þetta keppnistímabil,
varð vonsvikinn að ná ekki að sigra
á heimavelli. „Ég var óheppinn.
Þegar maður tapar með svona litl-
um mun getur það ekki verið ann-
að. Ég gerði ekki mörg mistök, en
það er ekki hægt að ráða við heppn-'
ina,“ sagði Höflehner.
Z urbriggen hlaut
„Hanakambinn"
Zúrbriggen hafnað í þriðja sæti
í bruninu eftir að hafa náð besta
tímanum í síðari umferðinni. „Ég
eyðilagði sigurmöguleika mína í
fyrri umferðinni vegna þess að ég
var ekki með rétta áburðinn undir
skíðunum," sagði Zúrbriggen.
Hann getur þó verið ánægður
með árangurinn því hann vann
„Hanakambinn" sem eru verðlaun
sem veitt eru fyrir tvíkeppnina
(brun og svig). Hann varð í 12.
sæti í sviginu og sagði að hann
hafi skíðað með bremsurnar á. „Ég
náði að stíga skrefi nær fjórða
heimsbikartitlinum. Ég gat ekki
tekið áhættu í sviginu þar sem of
mikið var í húfi.“
Þetta var 11. heimsbikarsigur
hans í tvíkeppni. Hann hefur nú
210 stig í heimsbikarkeppninni
samanlagt, 42 stigum meira en
Norðmaðurinn Furusedt, sem er í
öðru sæti. Armin Bittner er í þriðja
sæti, 66 stigum á eftir.
„Ég var heppinn“
Heimsmeistarinn austurríski,
Rudolf Nierlich, átti frábæra seinni
ferð í svigkeppninni á sunnudag og
það nægði honum til sigurs eftir
að hafa verið níundi eftir fyrri
umferð. Ole Kristian Furusedt varð
annar 0,88 sek á eftir og Armin
Bittner, Vestur-Þýskalandi, í þriðja
sæti.
„Ég var ekki ánægður með síðari
ferðina," sagði Nierlich. „Ég var
lánsamur að hafa rásnúmer sex því
brautin var þá mjög góð. Síðan fór
að rigna þannig að brautin versnaði
er á leið og margir sem á eftir
komu gerðu mörg mistök. Ég gerði
sjálfur mistök í efri hlutanum og
tók síðan mikla áhættu."
■ Úrslit / B7
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Syrtir í álinn hjá United
Stórliðið er nú í fjórða neðsta sæti eftirtap gegn Norwich
ÚTLITIÐ er heldur dökkt hjá stórliðinu Manchester United. Liðið
hefur sýnt að peningar og árangur fara ekki alltaf saman og
þrátt fyrir liðið hafi keypt marga bestu leikmenn Bretlands er það
íþriðja neðsta sæti. Á sunnudaginn tapaði liðið fyrir Norwich
og þær raddir, er vilja Alex Ferguson úr f ramkvæmdastjórastöð-
unni hjá liðinu, gerast æ háværari.
Robert Fleck gerði bæði mörk
Norwich, hið fyrra eftir send-
ingu frá Andy Townsend á 75.
mínútu og hið síðara eftir mistök
Jim Leightons í
FráBob marki United.
Hennessyi Efstu liðin,
Englandi Liverpool og Aston
Villa, unnu bæði um
helgina. Liverpool sigraði Crystal
Palace, 2:0. Ian Rush gerði 18.
mark sitt í deildinni og Peter
Beardsley bætti öðru við.
Aston Villa vann mikilvægan sig-
ur á Southampton, 2:1. Kevin Gage
tryggði Aston Villa sigur á 79.
mínútu. „Það er ekki hægt að bera
liðið núna saman við liðið í fyrra.
Við vitum að við getum unnið hvaða
lið sem er og setjum stefnuna á
titilinn,“ sagði Gage, eftir leikinn.
Þetta var þrettándi sigur Aston
Villa í síðustu sextán leikjum.
Arsenal sigraði Tottenham á
Highbury en hvorki Guðni Bergsson
né Sigurður Jónsson komu þar við
sögu. Tony Adams gerði sigurmark
Arsenal á 62. mínútu. „Við áttum
ekki skilið að tapa þessum leik og
ég er mjög ánægður með lið mitt,“
sagði Terry Venables, fram-
kvæmdastjóri Tottenham eftir leik-
inn.
Sóknardúett Chelsea, Kevin Wil-
son og Kerry Dixon, tryggði liðinu
sigur á Charlton, 3:1. Þeir hafa leik-
ið mjög vel og gert samtals 28
mörk fyrir liðið í vetur.
Sheffield Wednesday hefur ekki
unnið deildarleik á Goodison Park
í 29 ár og það breyttist ekki um
helgina. Kevin Sheedy tryggði
Everton sigur með tveimur glæsi-
legum mörkum.
Luton og QPR gerðu jafntefli,
1:1. Danny Wilson fékk tækifæri
til að tryggja Luton sigur en víta-
spyrna hans fór í þverslá. Þetta var
fjórða vítaspyrnan sem liðið misnot-
ar og er Wilson ábyrgur fyrir þrem-
ur þeirra.
■ Úrslit B/6
■ Staöan B/6
Tony Adams fyrirliði Arsenal.
HANDKNATTLEIKUR / HM
Hópferd til Tékkóslóvakíu
Ferðaskrifstofur keppast við að
bjóða hópferðir á heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik í
Tékkóslóvakíu. Ferðabær hf. býður
upp á ferð, sem er skipulögð þann-
ig að boðið verður upp á leiki í
milliriðli og úrslitaleikina.
Farið verður til Amsterdam 3.
mars og gist þar eina nótt. Síðan
verður flogið til Prag 4. mars og
ekið þaðan til Bratislava og gist í
fimm nætur á mjög góðu hóteli.
Gist verður svo í tvær nætur í Prag.
Flogið verður heim frá Prag 11.
mars, til Amsterdam og þaðan til
Keflavíkurflugvallar.
Verð á ferðinni er 67.980 kr.
Innifalið í því verði er flug, gisting
í tvíbýli, hálft fæði í Bratislava og
Prag, gisting með morgunverði í
Amsterdam, aðgöngumiðar á leiki,
akstur á milli Prag og Bratislava
og fararstjórn.
(Fréttatilkynning)
Fótboltaþjálfari
óskast á Reyðarfjörð næsta sumar.
Verður að vera sterkur leikmaður, þjálfa
meistaraflokk og tvo til þrjá yngri flokka.
Laun samkomulag. Gott starf fyrir sólar-
dýrkendur.
Upplýsingar í síma 97-41322 á kvöldin;