Morgunblaðið - 23.01.1990, Síða 5
4 B
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRŒXJUDAGUR 23. JANÚAR 1990
B 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞREÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1990
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
II HANDKNATTLEIKUR / 1. PEILD KVENNA
FH-stúlkur á mikilli siglingu
Morgunblaðið/Einar Falur
Kristín Pétursdóttir, FH, svífur hér inn af línunni og skorar örugglega eftir góða línusendingu frá Berglindi Hreins-
dóttur, en þær tvær áttu góðan leik þegar FH sigraði Víking á laugardag. FH vann 17:14 og liðin eru nú jöfn í þriðja
sæti deildarinnar.
FH sigraði Víking á laugardag
17:14 og er iiðið greinilega á
uppleið eftir að hafa byrjað ís-
landsmótið illa. Stjarnan átti
ekki í erfiðleikum með Hauk-
ana, sigraði 29:19, og Vals-
stúlkur báru sigurorð af Gróttu
á heimavelli, 21:18.
Víkingar byrjuðu af miklum
krafti gegn FH. Liðið lék
sterka vörn sem ráðleysislegur
sóknarleikur FH mátti sín lítils
^■■■■1 gegn. Víkingar náðu
Katrín því snemma góðu
Friöriksen forskoti, en eftir að
skrifar FH-stúlkur náðu að
jafna undir lok fyrri
hálfleiks snerist dæmið við og þær
voru yfir í leikhléi 8:10. Síðari hálf-
leikur var jafn en FH var sterkari
á endasprettinum líkt og í þeim
fyrri og uppskar sigur 14:17.
Heiða Erlingsdóttir og Svava
Baldvinsdóttir voru bestar í liði
Víkings, sérstaklega nýtti Heiða
færin sín vel í hægra horninu. Aðr-
ar Víkingsstúlkur voru frekar dauf-
ar. Hjá FH voru Kristín Péturs-
dóttir og Berglind Hreinsdóttir
mjög góðar, börðust vel bæði í vörn
og sókn. Þá var Rut Baldursdóttir
sterk.
Barátta í Valsheimilinu
Fyrri hálfleikur í leik Vals og
Gróttu var í járnum. Bæði lið lögðu
mikla áherslu á varnarleikinn, lítið
var skorað en staðan í leikhléi var
7:7. í síðari hálfleik náðu Valsstúlk-
ur sér á strik Valsstúlkur og voru
komnar með sex marka forskot um
miðjan hálfleikinn. Gróttustúlkur
brugðu á það ráð að taka tvö útispil-
ara Vals úr umferð, en allt kom
fyrir ekki. Undir lok leikins náði
Grótta að laga stöðuna aðeins, en
öruggur Valssigur var í höfn, 21:18.
Sigur Vals var sigur liðsheildar-
innar, og flestar áttu ágætan leik.
Skytturnar áttu þó erfitt uppdráttar
yegna þess hve framarlega Grótta
spilaði vörnina, en horna og línu-
spil naut sín þess betur.
Sóknarleikur Gróttu var frekar
einhæfur og líkt og hjá Val voru
skytturnar atkvæðalitlar. Liðið
skoraði mikið úr hraðaupphlaupum
sem voru mörg hver vel útfærð.
Systurnar Brynhildur og Elísabet
Þorgeirsdætur voru atkvæðamiklar
og áttu báðar góðan leik.
Öruggt hjá Stjörnunni
Stjarnan hafði mikla yfirburði
gegn Haukum í fyrri hálfleik og
hafði níu marka forystu í leikhléi
4:13. Haukar mættu ákveðnir til
leiks eftir hlé, en þrátt fyrir jafnan
síðari hálfleik, var forskot Stjörn-
unnar í þeim fyrri of mikið fyrir
Haukana. Leiknum lauk því með
öruggum sigri Stjörnunnar, sem
enn fylgir Fram eftir sem skugg-
inn, á toppi deildarinnar. Haukalið-
ið er hins vegar enn án stiga, en
hefur sótt sig mjög siðustu leiki.
■ Úrslit/ B 6
ímém
FOLK
■ GUÐMUNDUR Guðmunds-
son, línumaður KA-manna, fiskaði
sjö vítaköst í leiknum gegn FH.
Hann skoraði hins vegar ekkert
mark sjálfur. KA fékk alls átta víta-
köst og misnotaði fjögur þeirra, þar
af varði Bergsveinn Bergsveins-
son tvö.
■ FH og Haukar hafa löngum
eldað grátt silfur saman í hand-
boltanum. FH-ingar báru höfuðið
hátt í Hafnarfirði á laugardaginn
því á undan leik FH og KA í 1.
deild léku B-lið FH og Haukar í
2. deild. B-lið FH sigraði, 28:26,
og þótti það sanna yfirburði FH-
inga á handboltasviðinu. Kvennalið
Hauka í 1. deild mátti einnig þola
tap, 29:19 fyrir Stjörnunni úr
Garðabæ. FH-ingar fullkomnuðu
þrennuna á laugardaginn er
kvennalið félagsins sigraði
Víking, 17:14, í 1. deild kvenna.
HANDKNATTLEIKUR / SPÁNN
Teka og Granollers fylgja
Barcelona fasl eftir
KRISTJÁN Arason var marka-
hæstur í liði Teka með fjögur
mörk er lið hans sigraði Lag-
isa, 22:14, í spænsku 1. deild-
inni í handknattleik um helg-
ina. Geir Sveinsson gerði tvö
mörk fyrir Granollers í 31:27
sigri á Alicante og Alfreð
gerði þrjú mörk er Bidasoa
tapaði fyrir Cuenca.
Barcelona heldur enn forystu
sinni í 1. deild með 28 stig
og hefur enn ekki tapað leik. Um
helgina sigraði liðið San Antonio
á útivelli, 21:23.
Barcelona var
tveimur mörkum
undir, 20:18, þeg-
ar tíu mínútur
voru eftir, en þá misstu heima-
Atli
Hiimarsson
skrifar
frá Spáni
menn sinn besta mann, Obucina,
útaf og það nýtti Barcelona sér
og sigraði. Milan Kalina lék sinn
síðasta leik með Barcelona, því
Júgóslavinn Portner mun taka
stöðu hans.
Teka, lið Kristjáns Arason,
þurfti ekki mikið að hafa fyrir
sigrinum gegn Lagisa á heima-
velli sínum, 22:14. Kristján Ara-
son átti góðan leik og var marka-
hæstur í liði sínu með 4 mörk.
Cuenca sigraði Bidasoa, 25:24,
í jöfnum og spennandi leik. Cuen-
ca var yfir nær allan tímann, en
Alfreð og félagar náðu að jafna
22:22, en heimamenn voru sterk-
ari á endasprettinum. Daninn,
Kim Jacobsen, var í miklu stuði
í liði Cuenca, skoraði 12 mörk og
er nú markahæstur í deildinni
með 115 mörk. Bogdan Wenta
og Romero skoniðu 6 mörk fyrir
Bidasoa og Alfreð gerði 3 mörk.
Granollers átti í miklu basli
með Alicante á heimavelli en sigr-
aði þó, 31:27. Leikur Granollers
var frekar slakur og þá sérstak-
lega varnarleikurinn sem hefur
verið aðall liðsins. Masip var
markahæstur í liði heimamanna
með 7 mörk. Geir Sveinsson gerði
tvö. Norðmaðurinn, Rannekleiv,
var markahæstur í liði gestanna
með 7 mörk.
Önnur úrslit:
Michelin — Malga.................21:20
Valencia — Pontevedra............30:22
Palaútordera — Cúja Madrid.......15:23
Arrate — Atletico Madrid.........15:30
Staðan: Barcelona 28, Granollers og Teka
25, Atletico Madrid 24, Bidasoa og Valen-
cia 20, Caja Madrid 18, Arrate 15, Cuen-
ca og Michelin 11, San Antonio 10.
„Að fá á sig sautján
mörk í einum hálf-
leik gengur ekki“
- sagði Jakob Sigurðsson, lyrirliði Vals
„VIÐ vorum kvíðnir fyrir leikinn,
en þetta var slakt hjá okkur í
fyrri hálfleik. Það var engin
samvinna samvinnan fvörn-
inni, menn töluðu ekki saman
og það var engin færsla. En við
vissum að við gátum betur og
sýndum það eftir hlé,“ sagði
Jakob Sigurðsson, fyrirliði
Vals, við Morgunblaðið eftir
níu marka sigur gegn Gróttu,
34:25, en staðan í háifleik var
17:17.
Varnarleikur liðanna var ekki til
að hrópa húrra fyrir í fyrri
hálfleik og sérstaklega voru Valsar-
arnir slappir. Menn voru í vörninni,
en spiluðu hana
ekki, og gestirnir
skoruðu nánast að
vild. Heimamenn
náðu samt þriggja
marka forystu um miðjan hálfleik-
inn, en héldu ekki út. Leikmenn
Gróttu nýttu sér það og tókst að
brúa bilið fyrir hlé.
Allt annað var að sjá til Vals-
manna í seinni hálfleik og þá sýndu
Steinþór
Guöbjartsson
skrifar
„Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upplifa þetta,“ sagði Kristján Signjundsson,
markvörður Víkings, eftir að hafa lokað markinu gegn Stjörnunni.
„Bara eins og
í gamla daga“
- sagði Kristján Sigmundsson sem lokaði
marki Víkings í sigri á Stjörnunni
KRISTJÁN Sigmundsson og
Birgir Sigurðsson voru menn-
irnir á bakvið fyrsta sigur
Víkings síðan í 2. umferð er lið-
ið fékk Stjörnuna f heimsókn.
Birgir gerði 12 mörk og átti frá-
bæran leik og Kristján Sig-
mundsson lokaði markinu í
síðari hálfleik. í fyrri umferðinni
sigraði Stjarnan með tíu marka
mun en nú sneru Víkingar blað-
inu við og sigruðu örugglega,
28:23.
Þetta var bara eins og í gamla
daga,“ sagði Kristján Sig-
mundsson, brosmildur í leikslok.
„Þetta var hreint ólýsanlegt og ég
■■■■■■■ hélt ekki að ég ætti
Logi B. eftir að upplifa
Eiðsson þetta.
skrifar Við höfðum trú á
liðinu og hver og
einn gerði sitt besta. Auk þess held
ég að Stjaman hafí eiginiega verið
búin að afgreiða þennan leik áður
en hann hófst,“ sagði Kristján.
Víkingar náðu snemma yfír-
höndinni og í leikhléi höfðu tveggja
marka forskot, 13:11. Stjarnan
komst í fyrsta sinn yfír, 17:18, þeg-
ar sextán mínútur vom til leiks-
loka, en þá lokaði Kristján markinu
og færði félögum sínum dýrmæt
hraðaupphlaup. Víkingar juku for-
skot sitt smám saman og sigur
þeirra var öruggur.
Birgir Sigurðsson átti frábæran
leik, í vöm sem sókn, gerði 12
mörk og fiskaði þrjú vítaköst.
Framgöngu Kristjáns er lýst hér
að framan og hann kom liðinu yfir
erfiðan hjalla. Karl Þráinsson og
Bjarki Sigurðsson náðu vel saman
hægra megin og á miðjunni lék
Ingimundur Helgason af miklu ör-
yggi-
Leikmenn Stjörnunnar byrjuðu
ágætlega en brotnuðu við mótlætið
í síðari hálfleik. Skúli Gunnsteins-
son og Hafsteinn Bragason áttu þó
góðan leik og Gylfi Birgisson byrj-
aði vel en varð útundan í sókninni
í síðari hálfleik.
Með þessu tapi minnka verulega
möguleikar Stjömunnar á meistara-
titli en sigurinn er að sama skapi
dýrmætur fyrir Víkinga, enda staða
þeirra ekki glæsileg.
þeir sitt rétta andlit. Vörnin vakn-
aði til lífsins, Einar, sem hvfldi sig
síðustu mínútur fyrri hálfleiks, fór
aftur í markið og nánast lokaði því
og þetta gerði útslagið. Grótta átti
sér ekki viðreisnar von og gerði
aðeins átta mörk í hálfleiknum gegn
17 mörkum Vais.
„Ég er ánægður með þennan sig-
ur og stöðu okkar í deildinni, en
nú höfum við tvo mánuði til að fylla
upp í götin og lagfæra það sem er
að. Að fá á sig 17 mörk í einum
hálfleik gengur ekki og má ekki
koma fyrir aftur,“ sagði Jakob.
Jóhann Ingi
Árnason
skrifar
tap IR
ívetur
(BVtókÍR
í kennslustund
Eyjamenn kafsigldu ÍR-inga
í síðari hálfleik í Vest-
mannaeyjum á laugardaginn,
eftir jafnan fyrri hálfleik. Loka-
tölur urðu 26:16
og hefur ÍR ekki
tapað svo stórt í
vetur. Eyjamenn
eru þar með
komnir upp fyrir ÍR í deildinni,
með 11 stig í fímmta sæti, en
ÍR er með 10 stig.
ÍR-ingar komu grimmir til
leiks og höfðu frumkvæðið
lengst af í fyrri hálfleik. ÍBV
gerði fyrsta markið en náði ekki
að komast aftur yfír fyrr en á
síðustu mínútu fyrri hálfleiks,
10:9.
í síðari hálfleik var eins og
annað ÍBV-lið kæmi inn á völl-
inn. Allt gekk upp liðinu og það
náði fljótlega fimm marka for-
skoti. Þá var eins og allur vind-
ur væri úr ÍR-ingum og stóð
ekki steinn yfír steini og stærsta
tap þeirra í vetur var staðreynd.
ÍR-ingar reyndu of mikið að
taka Sigurð Gunnarsson úr
umferð og við það losnaði um
Guðmund Albertsson og Sig-
bjöm Óskarsson sem gerðu sam-
tals 11 mörk í leiknum.
Valdimar Grímsson lék vel fyrir Val gegn Gróttu. Hann skoraði mörg glæsileg mörk úr
í fæðingu. Sigtryggur Albertsson, markvörður Gróttu, kemur engum vörnum við.
„Höfum tekið
stefnuna á titilinn“
- sagði Þorgils Óttar Mathiesen eftir sigurinn á KA
MorgunblaÖið/Einar Falur
hraðaupphlaupum og er eitt þeirra hér
„EG er að sjálfsögðu ánægður með
sigurinn, en leikurinn var ekki góð-
ur. Það vantaði einbeitingu og engu
líkara en að leikmenn hafi vanmetið
andstæðinginn,11 sagði Þorgils Ótt-
ar Mathiesen, þjálfari og leikmaður
FH, eftir 26:21 sigur á KA. „Við
höfum nú tekið stefnuna á islands-
meistaratitilinn. Staða okkar er
óneitanlega góð nú þegar hlé er
gert á deildinni f ram yf ir Heims-
meistarakeppnina."
FH og Valur hafa teklð afgerandi
forystu í 1. deild og virðist fátt geta
komið í veg fyrir að annað hvort þessara
félaga hreppi íslandsmeistaratitilinn.
Stjaman er væntanlega
úr leik í þeirri baráttu
eftir tapið gegn Víking-
um og KR tapaði dýr-
mætu stigi til HK.
FH-ingar áttu í mesta basli með KA-
menn í fyrri hálfleik og þá sérstaklega
Erling Kristjánsson. Jafnt var nánast á
öllum tölum upp í 7:7. Þá var tveimur
KA-mönnum vísað af leikvelli samtímis
og síðan þriðja leikmanninum skömmu
ValurB.
Jónatansson
skrifar
síðar, nánast af ástæðulausu. FH-ingar
færðu sér þetta í nyt og náðu fjögurra
marka forskoti fyrir leikhlé, 13:9, og það
gerði útslagið.
KA náði byijaði vel í síðari hálfleik
og minnkað bilið í tvö mörk, en FH setti
þá í þriðja gír, bmnaði framúr og hafði
fimm mörk yfír 20:15 er 15 mín. voru
til leiksloka. Eftir það var ekki aftur
snúið og KA náði aldrei að ógna forystu
FH.
Leikurinn var ekki í háum gæða-
flokki. Sóknarleikur FH var fálmkenndur
á stundum og eins og leikmenn legðu
sig ekki fram nema þeir þyrftu þess
nauðsynlega. Héðinn og Guðjón voru
yfírburðamenn hjá FH. Bergsveinn, sem
stóð í markinu í síðari hálfleik, varði vel.
KA-menn léku skynsamlega, langar
sóknir og reyndu að koma vel út á móti
FH í vörninni. Erlingur var bestur, lék
vel bæði í vörn og sókn. Sigurpáll var
sterkur í vinstra horninu. Guðmundur
Guðmundsson fiskaði sjö vítaköst, en það
gekk ekki eins vel að nýta þau.
■Sóknarnýting FH í leiknum var 67
prósent, en 55 prósent hjá KA.
KR úr leik í toppbaráttunni
Morgunblaýið/Einar Falur
Þjálfararnir, Þorgils Óttar Mathies-
en og Erlingur Kristjánsson, báru
saman bækur sínar eftir að dæmt var
vítakast á KA. „Eg tók bara svona
laust utan um hann,“ gæti Erlingur
verið að segja við Þorgils Óttar og er
greinilega_ ekki ánægður með víta-
kastsdóminn.
KR-ingar misstu endanlega af
lestinni í toppbaráttunni er þeir
náðu aðeins jafntefli gegn neðsta liði
deildarinnar, HK, 17:17, í Digranesi
á laugardaginn.
Leikurinn var af-
spyrnu slakur og und-
irrituðum er til efs að
hafa séð jafn lélegan
1. deildarleik áður. Mikið jafnræði
var með liðunum allan tímann og
jafnt á flestum tölum.
KR-ingar virtust hafa tryggt sér
sigurinn 20 sek. fyrir leikslok er
Páll Ólafsson skoraði 16:17. HK-
Hörður
Magnússon
skrifar
menn drifu sig í sókn og KR-ingar
misstu leikmann útaf og aðeins sjö
sekúndur eftir. Knötturinn barst í
hendur Gunnars Más Gíslasonar, sem
skoraði efst í hægra markhomið
framhjá Gísla Felix, markverði. Leik-
menn HK fögnuðu ákaft en KR-ingar
gegnu hnípnir og skömmustulegir af
leikvelli.
HK-menn verðskulduðu annað
stigið fyrir mikla baráttu í vörninni
og góða frammistöðu Bjarna Frosta-
sonar í markinu. Leikur þeirra átti
þó lítið sameiginlegt við handbolta.
Lítil ógnun var í sóknunum og stóðu
þær yfír í fjórar til fimm mínútur.
Reyndar var eina skytta þeirra,
Magnús Sigurðsson, í strangri gæslu
allan tímann.
KR-ingar voru kærulausir og virk-
uðu mjög áhugalausir. Sóknin var
slök og hreint furðulegt að sjá til
einstakra leikmanna í sókninni. Sig-
urður Sveinsson stóð þó fyrir sínu
og gerði sex falleg mörk úr horninu.
Gísli Felix stóð í markinu allan leik-
inn og komst vel frá sínu. Þetta var
leikur sem KR-ingar vilja gleyma sem
fyrst.