Morgunblaðið - 23.01.1990, Qupperneq 8
IÞRvTflR
KNATTSPYRNA
Setfyssingar fá tvo sóknar-
leikmenn frá Júgóslavíu
Sóknarleikmaðurfrá Ljubljana hefur gengið til liðsvið Eyjamenn
SELFYSSINGAR, sem leika f
2. deild, hafa gengið frá
samningum við tvo júgóslav-
neska leikmenn. Það eru þeir
Salih Porca, 24 ára og Izudin
Dervic, 26 ára, sem hafa leik-
ið með Olimpija Ljubljana.
Júgóslavarnir koma hingað 4.
febrúar. Það er styrkur fyrir
okkur að fá þá. Okkur hefur vant-
að sterka sóknarleikmenn undan-
farin ár,“ sagði Njáll Skarphéðins-
son, formaður Ungmannafélags-
ins Selfoss. Selfyssingar fá Pál
Guðmundsson aftur, en hann lék
með Skagamönnum. Heimir
Karlsson þjálfar Selfyssinga, sem
hafa misst tvo leikmenn frá sl.
keppnistímabili. Ólaf Ólafsson til
Víkings og Inga Björn Albertsson,
sem er þjálfari Valsliðsins.
Vestmannaeyingar hafa einnig
tfyggt sér Júgóslava. Ahdreja
Jeria mun leika með ÍBV í 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu í
sumar. Jeria, sem er 25 ára sókn-
arleikmaður, lék með 2. deildarlið-
inu Slovan Ljubljana. Hann kemur
til Eyja í febrúar. Eyjamenn eru
hættir við að hafa tvo Júgóslava
í herbúðum sínum.
KARFA
Bo Heiden.
Heiden á
heimleid
Bandaríkjamaðurinn Bo Heiden,
sem leikið hefur með úrvals-
deildarliði Tindastóls í körfuknatt-
leik í vetur, er hættur hjá félaginu.
^^■■■i Hann heldur til síns
Frá Bimi heima síðar í þessari
Björnssyniá viku.
Sauðárkróki Heiden lék ekki
gegn ÍR um helgina:
Var settur úr liðinu vegna þess að
hann hafði ekki farið að fyrirmæl-
um þjálfarans, Vals Ingimundar-
sonar. Þrátt fyrir þetta voru forr-
áðamenn körfuknattleiksdeildar
Tindastóls tilbúnir að hafa leik-
manninn út tímabilið, en það vildi
hann ekki. Heiden þjálfaði yngra
flokka hjá Tindastóli, auk þess að
leika með meistarafiokki, og í gær-
kvöldi var honum boðið að halda
áfram þjálfuninni til loka keppn-
istímabilsins, þó svo hann hætti að
leika sjálfur, en hann gekkst ekki
inn á það.
Lið Tindastóls verður því án út-
lendings í þeim leikjum sem eftir
eru, í deild og bikar.
SKOTFIMI
Carl jafnaði
ÓL-lágmarkið
Carl J. Eiríksson jafnaði
ólympíulágmarkið í riffilskot-
fími á innanfélagsmóti SR í Bald-
urshaga sem fram fór um helgina.
Carl hlaut samtals 590 stig. Þor-
steinn Guðjónsson varð annar með
567 stig og Gunnar Jarnason í
þriðja sæti með 565 stig.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Bogdan hefur
kallað á
Bergsvein
BOGDAN Kowalczyk, lands-
liðsþjálfari í handknattleik, hef-
ur kallað á Bergsvein Berg-
sveinsson, markvörð úr FH, til
að æfa með landsliðinu. Berg-
sveinn erfimmti markvörður-
inn ílandsliðshóp Bogdans, en
í hópnum eru 26 leikmenn.
Markverðirnir fímm eru: Einar
Þorvarðarsson, Val, Hallg-
rímur Jónasson, IR, Leifur Dagf-
innsson, KR og FH-ingarnir Guð-
mundur Hrafnkelsson og Berg-
sveinn Bergsveinsson.
Landsliðshópur Bogdans er að
öðrú leiti óbreyttur. Landsliðið æfir
nú á fullum krafti, eða níu sinnum
í viku. Leikmennimir sem leika á
Spáni, Alfreð Gíslason, Geir Sveins-
son og Kristján Arason koma til
iandsins 4. febrúar og þá verður
KNATTSPYRNA
fækkað í landsliðshópnum í nítján
eða tuttugu leikmenn. Sá hópur
mun taka þátt í lokaundirbúningn-
um fyrir heimsmeistarakeppnina í
Tékkóslóvakíu, sem stendur yfír frá
fimmta til 25. febrúar. Sextán leik-
menn fara til Tékkóslóvakíu.
Landsliðshópurinn er skipaður
þessum leikmönnum, fyrir utan
markverði:
Þorgils Óttar Mathiesen, FH, Birgir Sig-
urðsson, Víkingi, Jakob Sigurðsson, Val,
Konráð Olavson, KR, Guðmundur Guð-
mundsson, Víkingi, Bjarki Sigurðsson,
Víkingi, Valdimar Grímsson, Val, Gunnar
Beinteinsson, FH, Héðinn Gilsson, FH, Sig-
urður Gunnarsson, ÍBV, Óskar Ármanns-
son, FH, Sigurður Bjamason^ Stjömunni,
Jón Kristjánsson, Val. Guðjón Árnason, FH,
Magnús Sigurðssoh, HK, Júiíus Gunnars-
son, Val, Júlíus Jónasson, Asniers, Kristján
Arason, Teka, Sigurður Sveinsson, Dort-
mund, Alfreð Gíslason, Bidasoa og Geir
Sveinsson, Granollers.
Bergsveinn Bergsveinsson.
/JmflflR
FOLK
■ HÁLFTÍMA áður en leikur
Arsenal og Tottenham hófst var
hliðunum að vellinum lokað. Það
var gert af öryggisástæðum og tal-
ið er að um 7-10.000 áhorfendur
með miða, hafi orðið eftir fyrir utan.
■ ARSENAL hefur keypt varnar-
manninn Colin Pates frá Charlton
á 600 þús. pund — andvirði 60
millj. ísl. kr. Pates, sem er 28 ára,
er mjög fjölhæfur leikmaður.
Hafsteinn í KA
HAFSTEIIMN Jakobsson, miðvallarleikmaöur
úr Leiftri á Ólafsfirði, hefur ákveðið að ganga
til liðs við íslandsmeistara KAfyrir komandi
keppnistímabil knattspyrnumanna.
Hafsteinn er ekki með öllu ókunnugur KA-
búningnum því hann leikur blak með félag-
inu, og er einn besti leikmaðurinn þar á bæ.
Hann hefur allan sinn knattspyrnuferil leikið
með Leiftri og verið burðarás í liðinu. Hann var
með félaginu þegar það sigraði í 3. deild 1986 og
vann sér svo rétt til að leika í 1. deild árið eftir.
Hafsteinn lék síðan alla 18 leiki félagsins þegar
það var í 1. deild sumarið 1988.
Þess má geta að Birgitta Guðjónsdóttir, eigin-
kona Hafsteins, frjálsíþróttakona frá Selfossi, er
einnig í herbúðum KA. Hún leikur blak með félag-
inu, auk þess að þjálfa frjálsíþróttafólk Ungmenna-
félags Akureyrar.
Hafsteinn Jakobsson klæðist KA-peysunni næsta
sumar.
FRJALSAR
Ben Johnson.
Ben Johnson
sviftur
heimsmetum
Alþjóða fijálsíþróttasámbandið
hefur svift Ben Johnson heims-
meti sínu í 100 metra hlaupi, sem
hann setti í á heimsmeistaramótinu í
Róm 1987. Hann hafði áður verið
sviftur heimsmetinu sem hann setti á
Ólympíuleiknum í Seoul, þar sem hann
féll á lyfjaprófi.
Johnson hljóp 100 metrana á 9,79
sek. í Seoul, og á 9,83 sek. í Róm
1988. Hann hefur viðurkennt að hafai
neytt ólöglegra lyfja frá 1984. Carl'
Lewis á nú gildandi heimsmet í 100
metra hlaupi, 9,92 sek. sem hann setti
á Ólympíuleikunum í Seoul, er hann
varð annar á eftir Johnson.
Johnson var einnig sviftur heims-
metunum í 50 og 60 metra hlaupi
innanhúss. Met hans í 50 m var 5,55
sek., en hefur nú verið afmáð og
Manfrd Kokot frá A-Þýskalandi og
James Sanford skráðir fyrir metinu,
sem er 5,61 sek. Met Johnsons í 60
m hlaupi var 6,41 sek, en verður nú
í höndum Lee McRae frá Bandaríkjun-
um, 6,50 sek. og var það sett 1987.
Kanadíska hlaupakonan, Angella
Issajenko, var einnig svift heimsmeti
sínu í 50 metra hlaupi kvenna innan-
húss. Hún hefur viðurkennt að hafa
tekið ólögleg lyf allt frá árinu 1979.
Met hennar var 6,06 sek. og sett 1984.
Heimsmetið er nú 6,11 sek. og er í
eigu Maritu Koch frá Austur-Þýska-
landi.
ENGLAND
asti leik-
urinn“
- sagði Þorvaldur
Örlygsson, eftirsígur
á Derby
Þetta var án efa erfiðasti
leikurinn sem ég hef spilað
í deildinni. Völlurinn er lítill og
mikil harka í leiknum,“ sagði
Þorvaldur Örlygsson, eftir að lið
hans, Nottingham Forest, hafði
sigrað Derby á útivelli, 0:2. „Það
var mikil stemmning á vellinum
og uppselt eins og yfirleitt í leikj-
um þessara liða,“ sagði Þorvald-
ur.
„Ég var nokkuð ánægður með
minn hlut í leiknum og held að
ég hafi sloppið nokkuð vel frá
honum,“ sagði Þorvaldur.
Nottingham Forest mætir
Tottenham í ensku bikarkeppn-
inni á morgun en eftir leikinn
fá leikmenn Forest vikufrf og
sleikja sólina í Tenerife. Þor-
valdur fer hinsvegar í þveröfuga
átt — í snjómokstur heima á
Akureyri.
■ England / B3
GETRAUNIR: 111 221 1X1 X X 1 LOTTO: 2 14 17 27 29 + 23