Morgunblaðið - 27.01.1990, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990
"S
IOnY
CRAGG
EinarGuð
„ÁN TITILS (STE
Brezki myndlistarmaðurinn
Tony Cragg varð fyrst þekktur
fyrir gólf- og veggverk er sam-
anstanda af fundnum efhispört-
um úr hversdagsleikanum. Eitt
slíkt verk varð t.d. þeirrar
frægðar aðnjótandi á síðast-
liðnu sumri,.að komast á Kjar-
valsstaðasýningu, og fór þar
með talsvert í taugarnar á
mörgum Reykvíkingnum. —
Greinir hér frá einkasýningu
listamannsins, sem haldin var í
Kunstsammlung Nordrhein-
Westfalen.
Frá því seint á áttunda ára-
tugnum hefur list Tony Cragg
aðallega snúizt um hluti sem
búnir eru til af manninum og
hannaðir eru með notagildið
eitt í huga. Cragg var sannfærð-
ur um, að slíkir hlutir, fram-
leiddir úr gerviefnum, gætu
búið yfír alhliða merkingu á
svipaðan hátt og náttúruleg
eftii. Raðaði hann saman ólíkum
hlutum, plastafgöngum og öðru
tilfallandi rusli er á veginum
varð, þannig að birtist nýtt,
óvænt samhengi.
„Það er vakti helzt fyrir mér
með gerð myndrænna líkinga
var, og er enn, að skapa hluti
sem fínnast ekki í náttúrunni
eða heimi hagnýtninnar en geta
endurspeglað og flutt upplýs-
ingar og tilfinningar varðandi
umheiminn og mína eigin til-
veru.“ Þetta sagði listamaður-
inn í viðtali, 1985, og Iætur enn
þessi orð standa.
Tony Cragg fæddist í
Liverpool árið 1949.
Faðir hans var raf-
magnsverkfræðingur.
í uppvextinum beind-
ist áhugi inn á svið
eðlisfræði, efnafræði,
líffræði, jarðfræði og
stærðfræði. Að loknu
skólanámi vann Toný Cragg um
tveggja ára skeið sem aðstoðarmaður
á rannsóknarstora, þar sem fóru
fram endalausar tilraunir með
gúmmí. Þetta er e.k. Rannsóknar-
stofnun gúmmíiðnaðarins, og þarna
byrjaði Tony Cragg að teikna til-
raunaglösin, kolburnar og önnur
rannsóknartól, sem hann þurfti að
fylgjast með. Síðan lá leiðin í list-
nám. Á árunum 1968—72 stundaði
hann nám við Gloucestershire Cöl-
lege of Art og Wimbledon School of
Art; hann hlaut mjög stranga skólun
í málun og teikningu. I skólafríum
vann Cragg hjá málmsteypusmiðju,
og eftir þá reynslu missti hann alla
löngun til að standa fyrir framan
málaratrönur. Frá 1973-77 nam
Cragg höggmyndagerð við Royal
College of Art í London; þarna
glæddist með honum áhugi fyrir iðn-
aðarvörum og afgangi allskonar, sem
hann sankaði að sér. Þessum fundnu
hlutum klastraði hann saman á ýms-
an hátt, límdi og negldi saman
o.s.frv. — en kennurunum fannst
ekki, að þarna væru listaverk á ferð-
inni. Er verki var lokið, setti” hann
það til hliðar-'og byrjaði á því næsta.
Þar sem ekkert lát var á framleiðslu,
kom þar að, að_ vinnustofan fylltist
af ringulreið. Á endanum staflaði
EIMSVALAR" OG „BIG BRONZE".
„ÁV AXT AFLÖSKUR"
þess að vita hvað
hlutimir um-
hverfis hann eru;
hann er sér varla
meðvitandi um
pólitískt ástand,
þjóðfélagslegan
raunveruleika,
efnafræðileg
vandamál, né veit
hann nokkuð um
grundvallaratriði
eins og rafmag-
nið. Fólk er stöð-
ugt að tala um
framþróun, en
það virðist
gleyma því, að framþróunin sem það
talar um er aðeins á efnislega svið-
inu, þar sem maðurinn sjálfur á hinn
bóginn hefur varla nokkuð breytzt í
grundvallaratriðum, hvorki líkam-
lega eða andlega á síðustu tíu þús-
und árum.“ Og: „Það verða allir að
búa sér til mynd af heiminum og
tilvist sinni.“.
Fyrstu einkasýningar voru árið
1979: London, Berlín, Hamborg.
Síðan hafa að meðaltali verið um
átta einkasýningar árlega, í galler-
íum og listasöfnum hingað og þang-
að: I Diisseldorf, Mílanó, París,
Tókíó, New York, Amsterdam,
Múnchen, Basel, Rio de Janeiro,
Köln, Toronto, og víðar. Enn fleiri
eru samsýningarnar sem listamaður-
inn hefur tekið þátt í — er þar allra
helzt að nefna Dokumenta 7 og
Dokumenta 8 í Kassel (’82 og ’87).
Það er vart svo mikilvæg skúlptúr-
sýning haldin, að Tony Cragg er
ekki þar með. Hann var fulltrúi Bret-
lands á Feneyjabíenalnum 1988; verk
hans færðu brezka sýningarskálan-
um sérstök verðlaun, „gullljón“. —
Yið listaakademíuna í Dusseldorf
hefur Tony Cragg kennt síðan Í78,
og þar er hann nú orðinn fullgildur
prófessor.
Hin síðari ár hefur myndgerð
Craggs tekið breytingum, þar sem
hann vinnur jöfnum höndum á hefð-
bundinn myndhöggvarahátt með
bronz, járn, stein, gifs eða tré. Enn
sem fyrr gengur hann út frá verk-
smiðjuframleiddum hlutum f list-
sköpun sinni. En nú tekur hann út
einstaka hluti og stækkar; plastbrúsi
undan þvottalegi fyrir uppvask er
t.d. fyrirmynd að rúmlega tveggja
metra háum járnsteyptum skúlptúr.
„Myndmótun Craggs er rannsókn og
leikur með samræmi innihalds og
forms (sagði m.a. í upplýsingum
handa blaðamönnum vegna opnunar
hann verkum sínum saman; þessi
stafli sem úr Varð, var fyrsti stóri
skúlptúrinn á ferli listamannsins;
þennan skúlptúr sýndi listneminn
Tony Cragg á skólasýningu árið
1977. Sama ár kvæntist hann þýzkri
konu og fluttist til Wuppertal, þar
sem hann hefur síðan búið og starf-
að.
Árum saman safnaði Cragg öllu
lauslegu drasli er hann rakst á, en
að lokum sérhæfði hann sig í plast-
afgöngum. Plastið, þetta fremur
óvirðulega gerviefni, varð honum
efniviður til myndgerðar. . .
„Maðurinn fer í gegnum lffið án
TONY CRAGG
„MATRUSKA"