Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 21
C 21
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990
Minning:
Sigurdrífa Tryggva
dóttir frá Engidal
Fædd 16. maí 1911
Dáin 2. nóvember 1989
Hinn 2. nóv. sl. andaðist á
Sjúkrahúsi Húsavíkur Sigurdrífa
Tryggvadóttir frá Engidal í Bárð-
dælahreppi. Útför hennar var virðu-
lega gjörð frá Húsavíkurkirkju þann
11. s.m. Átta synir hennar allt
vörpulegir menn á besta aldri báru
kistuna til grafar og á eftir fylgdu
fjórar dætur hennar ásamt stórum
hópi bamabarna. Nokkuð er það
óvanalegt að sjá svo stóran systk-
inahóp saman kominn. Það má og
segja, að foreldrum þessara systk-
ina hafi skilað óvenju vel um bratt-
lendi lífsbaráttunnar, sem jafnan
var háð á bijóstum hinnar mis-
gjöfuiu náttúm þessa lands, en þau
voru fólk mikillar gerðar bæði til
sálar og líkama og árangurinn eftir
því.
Sigurdrífa var af þingeysku bergi
brotin i ættir fram. Hún fæddist
að Halldórsstöðum í Bárðdæla-
hreppi þann 16. maí 1911 og yngst
af fimm börnum foreldra sinna
þeirra Maríu Tómasdóttur frá
Stafni í Reykjadal og Tryggva
Valdemarssonar frá Engidal í Bárð-
dælahreppi. Á Halldórsstöðum ólst
Sigurdrífa upp til 14 ára aldurs, en
þá fóm foreldrar hennar búferlum
að Engidal í sömu sveit. Bærinn
Engidalur stendur í mjúku dragi í
Fljótsheiðinni austan Bárðardals og
er heiðarbýli í þess orðs fyllstu
merkingu. Eigi sér þaðan til ann-
arra bæja, en víðsýni er allt til
Bárðarbungu á Vatnajökli, þá
skyggni er gott. Grösugt og kjarn-
lent er umhverfis Engidal og
skammt til veiðivatna svo land-
kostir em þar gildir að fornu mati.
Hins vegar er langræði til næstu
bæja og býlið því mjög út af fyrir
sig í hinum víða bláfjallageimi. í
þessu sérstæða umhverfi ólst Sig-
urdrífa upp til fullorðinsára og undi
flesta æfi sinnar daga, enda órofa
böndum bundin sinni heimaslóð.
Sigurdrífa var kona ekki stór vexti,
en svaraði sér vel á alla lund og
bar mikla persónu, enda vakti hún
virðingu og traust allra, sem henni
kynntust. Hún fór aldrei flast að
neinu og var framkoman bæði mild
og hógvær, en þó hispurslaus eins
og þeim er lagið, sem gott vald
hafa yfir sjálfum sér og öðrum. Hún
var bæði bókhneigð og námfús og
fylgdist jafnan vel með öllu, sem
gerðist nær og fjær. Á ungum árum
réðst hún til vistar í Reykjavík, en
höfuðborgarlífið freistaði hennar
ekki svo leiðin lá heim í Engidal
að vetri liðnum. Henni lét betur í
eyrum svanasöngur á heiði, en ys
og þys borgarlífsins. Á Héraðsskól-
anum á Laugum í Reykjadal stund-
aði hún nám veturna 1929—30 og
30—31. Skólagangan varð ekki
lengri, en sakir námfýsi stundaði
hún töluvert sjálfsnám með þeim
árangri, að hún náði að lesa Norður-
landamálin reiprennandi og þýsku
sér til gagns. Atvik höguðu því svo,
að ekki þurfti Sigurdrífa að yfir-
gefa Engidal til að finna gæfu sína
og draumaprins. Haustið 1932 réðst
að Engidal ungur vetrarmaður,
Páll Guðmundsson að nafni. Páll
var maður húnvetnskra ætta, fædd-
ur að Svertingsstöðum í Miðfirði,
einn af átta börnum hjónanna Guð-
mundar Sigurðssonar og Guðrúnar
Einarsdóttur. Páll var maður sér-
stæðrar gerðar og mátti um hann
segja, að hann hefði andansgjöf
jafnt sem handa svo og hitt, að eigi
fór hann erindisleysu í Engidal.
Árið 1934 gengu þau Sigurdrífa og
Páll að eigast og hófu búskap á
heiðarbýlinu. Sá búskapur þeirra
þar stóð að því sinni óslitið til vors-
ins 1951 og voru þá böm þeirra
orðin 10. Nærri má því geta, að
ekki hefur lífsbaráttan á heiðarbýl-
inu verið eintómur dans á rósum
og önn húsfreyjunnar þung bæði
daga og nætur. Til marks um það,
þá fór Sigurdrífa aldrei í kaupstað
í þessi rúm 15 ár og eitt sinn liðu
svo 5 ár, að hún fór eigi út af bæ
sem kallað er. Það var löngum hlut-
skipti hennar, að klukkan réði ekki
vinnudeginum, heldur trúmennska
hennar og endalitlar þarfir annarra.
Bókhneigðinni gat hún ekki þjónað,
nema að taka af svefntíma sínum
um nætur, þegar kyrrð var komin
á barnahópinn. En hjónin voru sam-
taka um allt, hvort heldur sem galt
meðlæti eða mótlæti og ekkert var
til annarra sótt, enda sjálfsbjargar-
hvötin sterk hjá báðum. Búið var
að vonum ekki stórt, en afurðagott
með afbrigðum því Páll var snjall
búmaður. Einnig var hann slyngur
veiðimaður og sótti mikla björg í
bú bæði hvað snerti fugl og fisk,
enda heiðin gjöful á hvorutveggja;
Vorið 1951 brugðu þau Engidals-
hjónin á það ráð að flytjast búferl-
um að Saltvík í Reykjahreppi og
mun sú ráðabreytni einkum hafa
orsakast af því, að þau vildu bæta
menntunaraðstöðu bama sinna. í
Saltvík fæddust þeim brátt tveir
drengir og þar búnaðist þeim vel,
því jörðin er kostamikil, en sakir
þess að þau fengu hana ekki keypta,
þá fluttu þau þaðan eftir 9 ára
búskap austur að Eiðum í N-Múla-
sýslu og var öllum sveitungum
þeirra eftirsjón að, því þau voru
hinir bestu nágrannar og svo góð
heim að sækja að við var brugðið.
Á Eiðum var viðstaðan aðeins tvö
ár, því þar festi fjölskyldan eigi
yndi og lá þá leiðin vestur að Syðri-
völlum á Vatnsnesi þar sem æsku-
heimili Páis hafði áður staðið. Á
Syðrivöllum var svo þegar' hafist
handa með umfangsmiklar fram-
kvæmdir bæði hvað snerti bygging-
ar og ræktun og gmnnur lagður
að nýrri og betri framtíð. En á þess-
um árum tók hinn stóri systkina-
hópur mjög að dreifast úr foreldra-
húsum bæði vegna náms og starfa
svo sem vænta mátti. Sigurdrífa
fann sig ekki heima á Syðrivöllum
og mun hugur hennar oft hafa leit-
að til æskustöðvanna. Páll mun
ekki heldur hafa fallið eins vel að
umhverfinu og hann hugði, því
tímarnir höfðu breyst og æskufé-
lagarnir umvörpum horfnir. Hins-
vegar var ljómi endurminninganna
frá Engidal kominn á himininn og
laðaði heim í heiðardalinn. Það fór
því svo árið 1968 eftir 7 ára dvöl
á Syðrivöllum, að þau hjónin létu
jörðina í hendur Eiríki syni sínum
og fluttu norður í Engidal þar sem
þeim var vel fagnað af fv. sveitung-
um, ungum sem öldnum.
Við endurkomu sína í Engidal
gátu þau hjónin kastað mæðinni,
notið bókhneigðar sinnar og dundað
við hannyrðir, sem báðum var iag-
ið. Búskapurinn var aðeins nokkrar
kindur til ánægjuauka og veiðiskap-
ur húsbóndans sport í stað lífsbar-
áttu áður. Böm þeirra og tengda-
börn hlúðu að dvöl þeirra í Engidal
með ýmsu móti, en lang stærstur
var hlutur Kristlaugar dóttur þeirra
í því tilliti. Hún dvaldi í Engidal
þeim við hlið 6 síðustu búskaparár-
in, eða þar til yfir lauk hjá Páli
árið 1984 og reyndist þeim ómetan-
leg stoð á alla lund. Einnig dvöldu
þar synir hennar og maður, þegar
þeir máttu því við koma sakir skóla-
göngu og atvinnu, og lífgaði það
mikið uppá samfélag heiðarbýlisins.
Eitt sinn spurði ég Sigurdrífu, hvort
ekki hefði verið erfitt að ala upp
þessi 12 börn. Hún lét lítið af því
og kvaðst hafa látið þau eldri ala
upp hin yngri. Svo kann að hafa
Studioblóm
Þönglabakka 6, Mjódd,
norðan megin við
Kaupstað,
sími 670760
Kransar, krossar,
kistuskreytingar,
samúöarvendir
Sendingarþjónusta
Blómustofa
Friófinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opiðöllkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
LEGSTEINAR granít-marmari
Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður, pósthólf 93, símar 54034 og 652707.
Legsteinar 1 Framieiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. 1 Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf ■ um gerð og val legsteina. ' 1
1 KS.HELGASONHF I ■STEINSMIÐJA B ■■ SKEMMUVEGI 48-SlMI 76677 |
verið að einhveiju leyti og allavega
var hún óvenju mikil gæfukona í
sínu fjölskyldulífi. Hún giftist
manni, er var henni samboðinn, og
ói honum 12 börn, sem öll eru vel-
mennt mannkostafólk, en þau em
sem hér skal greina: Ásgrímur
kennari búsettur í Reykjavík
kvæntur Guðrúnu S. Bjarnadóttur,
Tryggvi kennari búsettur í Svíþjóð
kvæntur sænskri konu Inger að
nafni, Ólöf húsfreyja búsett á
Húsavík, gift Rúnari Hannessyni,
Ragna húsfreyja búsett á Húsavík,
gift Steingrími Árnasyni, Eiríkur
bóndi á Syðrivöllum kvæntur Ingi-
björgu Þorbergsdóttur, Björn fv.
skólastjóri nú bankafulltrúi búsett-
ur í Hveragerði, kvæntur Lilju Har-
aldsdóttir, Ketill kennari búsettur í
Mosfellsbæ, kvæntur Bryndísi
Baldursdóttur, Kristlaus húsfreyja
og bóndi í Engidal, gift Guðmundi
Wíum, Hjörtur vinnur við þunga-
vinnuvélar búsettur í Noregi, giftur
þarlendri konu Karin Larson, Guð-
rún bókasafnsfræðingur búsett í
Reykjavík, gift Eggert Hjartarsyni,
Skúli ókvæntur tæknifræðingur og
vinnur á verkfræðiskrifstofu í
Reykjavík og Guðmundur verk-
fræðingur, búsettur í Noregi
kvæntur Kolbrúnu Ýr Bjamadóttur.
Bæði fyrir og eftir lát manns síns
varð Sigurdrífa fyrir heilsufarsleg-
um áföllum og dvaldist síðustu árin
ýmist á sjúkrahúsi eða meðal barna
sinna uns yfir lauk. En þótt heilsu
hennar hrakaði síðustu árin, þá
lagði hún ekki árar i bát, því starf-
ið var líf og lífið var starf í hennar
augum.
Þegar hægri höndin hætti að
hlýða henni, þá virkjaði hún hina
vinstri til sauma og hannyrða.
Starfslöngunin var alltaf söm við
sig og hugsunin óbreytt þannig, að
alltaf var tekið mið af þörfum ann-
arra fremur en eigin. Það vita þeir,
sem henni eiga mest að þakka. Ég
efast ekki um, að margur hefur
hlotið Fálkaorðuna fyrir minni af-
rek, en hún innti af hendi í lífi og
starfi. Hinsvegar mun það ekki
hafa verið henni neitt tjón, þótt hún
færi orðulaus af þessum heimi, því
lífsskoðun hennar var hafin yfir
ailan hégóma eins og oft vill verða
með hinar hljóðlátu hetjur hvers-
dagslífsins. Hún sá hið smáa í hinu
stóra og hið stóra í hinu smáa.
Þegar ég lít yfir lífsslóð hennar
efast ég ekki um, að hún var ein
þeirra, sem átti mikinn auð þeirrar
gerðar, er mölur og ryð fá ei grand-
að.
Þótt ég hafi lítillega gripið hér á
helstu æviatriðum Sigurdrífu
Tryggvadóttur, þá var það ekki
meiningin að skrifa ævisögu henn-
ar, enda á hún gildari þátt í sögu
landsins en svo, að slíku yrði gerð
skil í stuttri blaðagrein. Hitt var
miklu fremur meining mín, að
þakka henni minnisstæða samfýlgd,
kærar stundir og kynni góð. Þá
vildi ég líka óska henni góðrar land-
töku á hinni ókunnu strönd handan
þess mikla hafs, sem aðskilur lif-
endur og látna. Öllum börnum
hennar og öðrum aðstandendum
sendi ég hugheilar samúðarkveðjur,
þótt síðbúnar séu.
Vigfús B. Jónsson, Laxamýri.
t
Öllum þeim sem heiðruðu minningu móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ÁSTU K. IMSLAND,
og sýndu okkur hlýhug, flytjum við kærar þakkir.
Edda R. Imsland, Jón B. Baldursson,
Thorvald K. Impland, Dagbjört E. Imsland,
Páll Imsland
Albert, Engilbert, Ásta Steina,
Bryngeir, Róbert og Matthías Páll.
t Alúðarþakkir færum við öllum, sem okkar, tengdamóður og ömmu, minntust ástkærrar móður
ÞÓRDÍSAR HARALDSDÓTTUR,
Hagamel 52,
er andaðist 28. desemþer.
Helga Brynjólfsdóttir, Bryndís Brynjólfsdóttir,
Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Jón Níelsson,
Brynjólfur Þór Jónsson, Helga Bryndís Jónsdóttir,
Guðrún Svanborg Hauksdóttir og Þorbjörn Jónsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LÁRU MAGNÚSDÓTTUR,
Meðalholti S,
síðast búsett á Hrafnistu.
Guð blessi ykkur öll.
Dúna Bjarnadóttir, Ragnar Bjarnason,
tengdabörn,
barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir Jil allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu okkar,
JÓNU MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR,
Skipasundi 9.
Guð blessi ykkur öll.
Hinrik Ragnarsson,
Edda Númina Hinriksdóttir, Bragi Ásgeirsson,
Ragnar Árni Hinriksson, Helga Claessen,
barnabörn og barnabarnabarn.