Morgunblaðið - 20.02.1990, Side 4
4 B
MORGUNBLAÐH)
IÞROTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRUAR 1990
+
MORGUNBLAЌ)
IÞROTTIR
ÞRŒUUDAGUR 20. FEBRUAR 1990
B 5
SUND
JUDO / MATSUMAE-MOTIÐ I DANMORKU
Eðvarð Þór
vannbesta
afrekið
Arnþór Ragnarsson sigraði í sjö greinum
ValurB.
Jónatansson
skrifar
EÐVARÐ Þór Eðvarðsson vann
besta afrekið á sundmóti Ár-
manns sem fram fór í Sund-
höll Reykjavíkur um helgina.
Hann sytni 100 metra baksund
á 58,51 sek. Geir Sverrisson
náði besta tíma sem náðst
hefur í flokki fatlaðra í 200
metra bringusundi. Arnþór
Ragnarsson vann sjö greinar
af þrettán og hlaut einnig
skriðsundsbikarinn sem keppt
hefur verið um frá því 1909.
Geir Sverrisson, sem keppir fyr-
ir Sundfélag Suðumesja, bætti
fyrri árangur sinn verulega í 200
metra bringusundi fatlaðra er hann
synti á 2.48,34
mínútum. Geir, sem
vann silfurverðlaun
í 100 m bringusundi
á heimsleikum fatl-
aðra 1988, varð sjöundi í sundinu
á sunnudaginn. Arnþór Rangarsson
sigraði í greininni, synti á 2.28,48
mínútum.
Eðvarð Þór Eðvarðsson, SFS,
sýndi það um helgina að hann er
að komast í sitt besta form. Hann
synti 100 metra baksund á 58,51
sek. og fékk fyrir það 808 stig sem
var besta afrek mótsins í einstakri
grein. Tími Eðvarðs er tveimur sek.
frá íslandsmeti hans. Eðvarð Þór
sigraði einnig í 200 baksundi og
200 m íjórsundi. Hann synti 200 m
baksund á 2.11,15 mín. en íslands-
met hans í 25 metra braut er
2.01,61 mín.
ÍÞR&mR
FOLK
■ BO Johansson, landsliðsþjálf-
ari Islands í knattspyrnu, fór inní
búningsklefa eftir leik úrvalsliðs
landsbyggðarinnar og Reykjavík-
urúrvalsins á gevigrasinu á sunnu-
dag og þakkaði leikmönnum góðan
leik. Hann sagði að 16 leikmenn
yrðu valdir til þátttöku í Banda-
ríkjaferðinni sem fyrirhuguð er í
apríl og kæmu þeir flestir úr þessum
hópi leikmanna.
■ SIGURJÓN Kristjánsson lék
ekki með belgíska liðinu Boom um
helgina. Liðið sigraði eitt af neðstu
liðum 2. deildar 4:3.
■ HÁKON Halldórsson var end-
urkjörinn formaður Júdósambands
íslands á ársþingi sambandsins
fyrir skömmu. Stjórn JSÍ skipa auk
Hákons; Magnús Olafsson, Sig-
urður Jóhannsson, Þór Indriða-
son, Runólfiir Gunnlaugsson, Jón
Óðinn Óðinsson og Garðar
Skaftason, en tveir síðasttöldu eru
nýir í stjórn.
■ MICHAL Vachum hefur verið
ráðinn jandsliðsþjálfari Júdósam-
bands Islands næstu tvö árin, eða
fram yfir Ólympíuleikana í Barc-
elona 1992.
■ GRAHAM Taylor, fram-
kvæmdastjóri Aston Villa, kom
leikmönnum sínum heldur betur á
óvart í síðustu viku. Hann bað þá
um að mæta með vegarbréfin á
næstu æfingu því þeir færu í þriggja
daga frí. Leikmenn biðu spenntir
eftir því að komst á sólarströnd en
í stað þess að aka útá flugvöll, voru
allir settir í rútu og ekið til Sussex!
Þar dvaldi liðið í þrjá daga spilaði
vist við eldri borgara en þeir fara
margir til Sussex í vetrarfríinu.
Arnþór Ragnarsson, SH, sigraði
í sjö greinum; 100 og 200 m bringu-
sundi, 50, 100, 200 og 400 m skrið-
sundi og 400 m fjórsundi. Amþór
fékk bikar fyrir sigur í 100 metra
skriðsundi, synti á 55,26 sek.
Bryndís Ólafsdóttir, Þór, var sig-
ursælust í kvennaflokki. Hún sigr-
aði í fimm greinum; 50, 100, 200
og 400 metra skriðsund og 200
metra fjórsund.
Urslit / B6
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
EðvarA Þ6r Eðvarðsson sigraði með yfirburðum í 100 og 200 metra baksundi og vann besta afrek mótsins. Hér er
hann að spyrna sér frá bakkanum og greinilegt að hann tekur vel á. Til hliðar er Geir Sverrisson, sem náði besta tíma
sem náðst hefur í heiminum í 200 metra bringusundi fatlaðra.
GLIMA / BIKARGLIMA ISLANDS
Ólafur bikarmeistari
í sjöunda skipti
ÓLAFUR Haukur Ólafsson úr
KR varð bikarmeistari Glímu-
sambands íslands í sjöunda
skipti á laugardaginn, en hann
sigraði fyrst 1981. Keppt var í
fjórum flokkum og hefur mótið
verið haldið síðan 1973.
Olafur Haukur lagði Jóhannes
Sveinbjömsson, HSK, í tveim-
ur snörpum úrslitaglímum. „Jó-
hannes er erfiður andstæðingur.
Hann er óragur við
að beita nýjum
brögðum og kemur
sífellt á óvart. í fyrri
glímunni lagði ég
hann með hælkrók hægri á vinstri,
en beitti vinstrifótar klofbragði í
síðari glímunni," sagði Ólafur H.
Ólafsson eftir glímuna.
Ólafur sagði ennfremur: „Ég er
mjög óhress með fyrirkomulagið í
Hörður
Magnússon
skrifar
Ólafur Haukur lagði Jóhannes
Sveinbjömsson, HSK, í tveimur snörp-
um úrslitaglímum.
mótinu. Það vom aðeins sex kepp-
endur í mínum flokki og hefði ég
helst viljað glíma við þá alla,“ sagði
Ólafur sem glímdi aðeins við tvo
andstæðinga.
Bræðurnir Lárus og Óðinn Kjart-
anssynir úr HSK öttu kappi í flokki
10-12 ára, en faðir þeirra Kjartan
Lárusson þjálfar þá. Lárus hafði
betur eftir jafnar gli'mur.
í flokki 13 - 15 ára voru það enn
Skarphéðinsmenn sem voru á ferð.
Ólafur Sigurðsson og Jóhann R.
Sveinbjörnsson glímdu til úrslita og
hafði Jóhann betur.
Orri Björnsson, KR og Ingiberg-
ur J. Sigurðsson, Víkveija, glímdu
til úrslita í flokki 16-19 ára. Þeir
háðu tvær skemmtilegar glímur,
enda okkar efnilegustu glímumenn
þar á ferð. Ingibergur hafði að lok-
um sigur.
Keppendur voru 28 frá fjórum
félögum.
BORÐTENNIS
HANDKNATTLEIKUR / HM
Meiðsli í her-
búðum Spánveija
Spánveijar, sem leika með ís-
lendingum í riðli í heims-
meistarakeppninni í Tékkósló-
vakíu, hafa orðið fyrir blóðtöku.
Spánveijar eiga í
miklum erfiðleik-
um vegna meiðsla
leikmanna. Tveir
leikmenn frá Teka
hafa meiðst, Jose Villaldea fingur-
brotnaði og Julian Ruiz reif vöðva
FráAtlá
Hiimarssyni
á Spáni
á fæti.
Þessir tveir sterku leikmenn eru
farnir úr æfingabúðunum, sem
Spánveijar eru í við Madrid. Það
er nokkuð öruggt að þeir verða
ekki með í HM í Tékkóslóvakíu.
I þeirra stað hefur verið kallað á
Reino frá Caja Madrid og Bar-
beito frá Barcelona. Reino er 24
ára og hefur leikið fjölda lands-
leikja, en Barbeito er 21 árs nýliði.
Þá eru þeir Marin, Granollers
og Luison, Caja Madrid, meiddir,
en þeir verða með í Tékkósló-
vakíu.
Spánska landsliðið lék þijá æf-
ingaleiki gegn félagsliðum fyrir
helgina og vann í öllum leikjunum,
Atletico Madrid, 22:19, Malaga
27:13, Valencia 23:20. Rúmen-
arnir Stinga og Voinea léku ekki
með Valencia.
Morgunblaðið/Einar Falur
David Hannah frá Skotlandi sigraði Alan Griffiths frá Wales, 2:1, í úrslitum.
Hannah sigraði
Griffiths í úrslitum
Kjartan Briem stóð í Griffiths í undanúrslitum
DAVID Hannah frá Skotlandi sigraði
Alan Griffiths frá Wales, 2:1, í úrslit-
um boðsmóts BTÍ í íþróttahúsi
Kennaraháskólans á laugardaginn.
Kjartan Briem og Hilmar Konráðs-
son höfnuðu í 3. til 4. sæti.
jr
Urslitaleikur mótsins milli Hannah,
sem er besti borðtennismaður
Skota, og Griffiths, sem hefur verið
fremstur borðtennismanna Wales, var
jafn og spennanandi og
þurfti oddaleik til að fá
fram úrslit. Hannah vann
fyrsta leikinn 21:19 en
Griffiths jafnaði í næstu
með því að vinna, 13:21. Oddaleikurinn
var jafn, en Hannah hafði oftast frum-
ValurB.
Jónatansson
skrifar
kvæðið. Hann komst í 14:19, en Griffiths
náði að jafna 20:20 en Skotinn var sterk-
ari á endasprettinum og sigraði með
minnsta mun, 22:20.
íslandsmeistarinn Kjartan Briem var
ekki langt frá því að vinna Griffiths í
undanúrslitum. Kjartan vann aðra lotuna
örugglega, 21:15, eftir að hafa tapað
fyrstu, 17:21. í oddaleiknum var Kjartan
full bráður, tók of mikla áhættu og tap-
aði^ 14:21.
í hinum undanúrslitaleiknum iéku
David Hannah og Hilmar Konráðsson.
Skotinn sigraði nokkuð örugglega ,2:0
(21:13 og 21:12).
Alls tóku 16 keppendur þátt í mótinu
sem verslunin Grundarkjör styrkti.
Glæsilegt hjá Bjama
- lagði þrjá sterka japanska júdómenn og tvo þeirra á „ippon“
BJARNI Friðriksson júdókappi úr Ármanni var í miklum ham á
Matsumae-mótinu í Kaupmannahöfn um helgina. Hann sigraði
örugglega í -95 kg flokki, lagði m.a. þrjá Japani og tvo þeirra á
„ippon". Sigurður Bergmann vann silfurverðlaun í +95 kg flokki.
Bjarni sýndi það í Kaupmanna-
höfn að hann er enn í fremstu
röð júdómanna í heiminum. Hann
vann Magne Eide frá Noregi í fyrstu
umferð, síðan Kai Yasuhiro frá Jap-
an á „ippon“, en Yasuhiro varð í
öðru sæti á síðustu Asíuleikunum
og er talinn næst besti júdómaður
Japana í þessum flokki. I 3. umferð
lagði Bjarni Japanann Yanagi Hu-
deyuk, einnig á „ippon“, sem er
fullnaðarsigur og gefur 10 stig. í
úrslitum glímdi Bjarni við Hori
Kawa frá Japan og vann á „waza-
ari“ sem gefur sjö stig. Tíu kepp-
endur voru í flokki Bjama.
Sigurður Bergmann stóð sig vel,
hafnaði í 2. sæti í +95 kg flokki.
Hann glímdi til úrslita við Kaneko
frá Japan og tapaði á „koka“ eða
minnsta mun sem gefur aðeins þijú
stig.
Halldór Hafsteinsson varð þriðji
í -85 kg flokki. Helgi Júh'usson og
Karl Erlingsson urðu í 9. sæti í - 65
kg flokki og -71 kg flokki. Eiríkúr
Ingi Kristinsson og Freyr Gauti
Sigmundsson unnu enga glímu.
Átta þjóðir sendu keppendur á
mótið; Japan, Skotland, Færeyjar,
Noregur, Svíþjóð, Finnland, íslands
og Danmörk. Alls voru keppendur
90 talsins. Japanir vom sigursælir,
unnu fern gull, fimm silfur og fern
bronsverðlaun. Skotar komu næstir
með tvenn gull^ ein silfur og þrenn
bronsverðlaun. Islendingar höfnuðu
í þriðja sæti þjóðanna með ein gull-
og ein silfurverðlaun. Heimamenn,
Danir, voru í fjórða sæti með fimm
bronsverðlaun.
Hákon Halldórsson
Bjarni Friðriksson á efsta þrepi. Hann sigraði örugglega í -95 kg flokki.
KNATTSPYRNA
Landsbyggðin
hafði betur
Hörður Magnússon skoraði tvívegis gegn
Reykjavíkurúrvalinu
Urvalslið landsbyggðarinnar sigr-
aði Reykjavíkurúrvalið, 3:0, í
æfingaleik á gervigrasinu í Laugar-
dal á sunnudag. Markakóngur ís-
landsmótsins, Hörður Magnússon,
gerði tvö marka landsbyggðarinnar.
Kjartan Einarsson, sem leikur nú
með KA, gerði fyrsta markið á 15.
mínútu. Hann fékk sendingu frá fé-
laga sínum Bjarna Jónssyni inní víta-
teiginn og afgreiddi knöttinn örugg-
lega framhjá Birki Kristinssyni,
markverði.
Hörður Magnússon bætti öðru
marki við á 61. mínútu. Guðmundur
Valur Sigurðsson, félagi Harðar í FH,
gaf háa sendingu á fjærstöngina frá
hægri kanti. Hörður stökk þar hæst
allra og skallaði framhjá Bjarna Sig-
urðssyni, sem stóð í markinu í síðari
hálfleik. Hörður bætti siðan öðru
marki við skömmu síðar er hann skor-
aði af stuttu færi úr þvögu. Hann
fékk reyndar upplagt færi til að
bæta þriðja markinu við er hann
komst einn í gegn undir lokin, en
skot bans fór framhjá.
Leikurinn var þokkalegur miðað
við aðstæður. Reykjavíkurúrvalið var
meira með knöttinn, en náði ekki að
skapa sér færi. „Landið“ byggði á
skyndisóknum og það reyndist betur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bo Johannsson, landsliðsþjálfari íslands, fylgist hér grannt með sýning-
arleiknum á sunnudaginn. Með honum eru Lárus Loftsson, aðstoðarmað-
ur hans og Marteinn Geirsson, sem mun þjálfa U-21 árs landsliðið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Baldur Bjarnason úr Fram og leikmaður Reykjavíkurúrvalsins er hér með knöttinn. Hann reynir að komast framhjá Ólafi Kristjánssyni og Sigursteini Gisla-
syni, sem léku með úrvali landsbyggðarinnar.
I