Morgunblaðið - 23.02.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.02.1990, Qupperneq 1
 VIKUNA 24. FEBRÚAR — 2. MARS r PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990 BLAÐ V,/ Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8 Útvarpsdagskrá bls. 2-8 Hvað er að gerast? bls. 3/4 Myndbönd bls. 6 Bíóin í borginni bls. 7 Vinsælustu myndböndin bls. 8 Birkið við efstu mörk Það er nú almenn skoðun sérfróðra manna, að birkiskógar landnámsaldar hafi vaxið saman yfir Kjöl. Þa hafi birkið víða vaxið að 600 metra hæðarlínu. Um þetta varður meðal annars fjallað í öðrum þætti myndaflokksins Á grænni grein sem er á dagskrá Sjónvarps nk. fimmtudag. Lýst er ferð Valdimars Jóhann- essonar og Gísla Gestssonar með Sigurði Blöndal, fyrrverandi skógræktarstjóra, á nokkra staði á hálendinu þar sem birkið vex enn í allt að 600 metra hæð, en þeir heim- sækja Stórahvamm, Karlsdrátt og Fögruhlíð. Þar vex skógur í 400-500 metra hæð sem er síst lakari en Hallormsstaðarskógur var um síðustu aldamót. í myndinni eru m.a. sýndar Ijósmyndir frá Hallormsstað sem teknar voru 1903. Ljósmyndavörur hf. kostuðu gerð myndar- innar eins og allra myndanna í þáttaröðinni, sem sýnd er í tilefni „Landgræðsluskóga - átak 1990“. Framleiðandi er Víðsjá kvik- myndagerð. FJÖTRAR Hátt í hlíðum Pakistan er fjöldi akra sem þaktir eru valmúa, heróínjurtinni. Þessi jurt er eina gróðavon bændanna þarna en fyrir hennartilstuðlan látast hundruð manna árlega. Fjötrar, nýr framhaldsþáttur í sex hlutum, sem hefur göngu sína á Stöð 2 nk. sunnudag, fjallar um baráttu gegn þessum ógnvaldi. Alþjóðleg eiturlyfjaviðskipti og eiturlyfja- neysla eru staðreyndir en í þessum spennandi framhaldsmyndaflokki kynnast áhorfendur því hvernig þessum ólöglegu viðskiptum er háttað, hvernig miskunnarlausir alþjóðlegir dreifinga- raðilar starfa en mannslífið er í þeim undir- heimum einskis virði. Breski ráðherran Jack Lithgow, sem leikinn er af Bill Paterson, gerir baráttuna gegn eitur- lyfjavandanum að sínu máli. Hann hyggst byrja á því að hindra heróínflutninga frá Pakistan. Þegar fjölskylda hans og vinir dragast inn í atburðarásina verður barátta hans martraðar- kennd. Engum er þyrmt í þessum undirheim sem stjórnast af miskunnarlausri fégræðgi. Þing Norðurlandaráðs og heimsmeistarakeppnin Dagskrá beggja rása Ríkisútvarpsins næstu vikuna mun markast af fram- ístöðu íslendinga á þingi Norðurlandaráðs og á Heimsmeistaramótinu í handknattleik. Á báðum þessum stöðvum munu íslendingar standa í ströngu, stjórnmálamennirnir í Háskólabíói og handknattleiksmennirnir í Tékkóslóvakíu. iþróttadeildin mun fylgjast grannt með gangi mála í Tékkóslóvakíu, en auk þess mun Dægurmáladeildin fylgjast með undirbúningi liðsins fyrir leikinn gegn Júgóslövum. Fréttastofan mun flytja fréttir af þingi Norðurlandaráðs, efna til umræðu- þáttar um stöðu Norðurlandanna í Evrópu framtíðarinnar og í þættinum Að utan verður rætt við forsætisráðherra Norðurlandanna. Auk fréttastof- unnar verða fleiri deildir með norrænt efni. Sérstakt norrænt kvöld verður nk. mánudag þar sem flutt verður talað mál um norðurlöndin og norræna samvinnu og leikin tónlist frá Norðurlöndunum. í Litla barnatímanum verða fluttar þjóðsögur og ævintýri frá Norðurlöndunum alla vikuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.