Morgunblaðið - 23.02.1990, Blaðsíða 6
9
6 - C--- ------- MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBKÚAR 1990
MIÐVIKUPAGUR 28, FEBRÚAR
SJONVARP / SIÐDEGI
14:30 15:00 15:30 16:00 16:30 17:00 17:30 18:00 18:30 19:00
17.50 ► Öskustundin. Um-
sjón Helga Steffensen.
18.20 ► Brauðkoilurnar
hans Olsons (Hr. Olsons
Pastejer). Sænsk barna-
mynd.
18.40 ► Táknmálsfréttir.
18.45 ► Heimsmeistara-
keppnin i handknattleik —
Bein útsending frá Tékkó-
slóvakíu. (sland-Kúba.
STÖÐ2 15.30 ► Skikkjan (The Robe). Myndin er byggð á skáld- sögu Lloyd C. Douglas um rómverska hundraðshöfðingj- ann sem hafði umsjón með krossfestingu Jesú Krists. Ric- hard Burton var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir lefik í þessari mynd. Aðalhlv.: Richard Burton, Jean Simmons. 17.05 ► Santa Barbara framhalds- myndaflokkur. 17.50 ► Fimm félagar (Famous Five). Spennandi myndaflokkur fyrir krakka. 18.15 ► Klementína(Clementine). Teikni- mynd. 18.40 ► f sviðsljósinu (After Hours). 19.19. ► 19:19.
SJÓNVARP / KVÖLD
19:30 20:00 20:30 21:00 21:30 22:00 22:30 23:00 23:30 24:00
Bein útsending frá Tékkó-
slóvakiu. (sland-Kúba.
20.20 ► Fréttir
og veður.
20.55 ► Gestagangur. 21.40 ► Sjálfsvíg í Frúarkirkju (Antonieta). 23.00 ► Ellefufréttir. 23.45 ► Dagskrárlok.
Ólfnaspjaliarvið hmn Frönsk bíómynd frá árinu 1985. Leikstjóri Carlos 23.10 ► Sjálfsvíg.. frh.
landsfræga útvarpsmann Saura. Aðalhlutverk Hanna Schygulla, Isabelle
o.q diassqegqjara Jón I Adjani og Carlos Bracho. Kona nokkurerað
MúlaÁmason. semja bók um sjálfsvíg kvenna á 20. öld. Hún kynnir sér sögu Antonietu frá Mexikó.
19.19 ► 19:19. Fréttirogfréttaum-
fjöllun, íþróttir og veður ásamt
fréttatengdum innslögum.
20.30 ► Af bæ í borg (Perfect 21.30 ► Snuddarar 22.20 ► Michael 23.00 ► Reiði guðanna I (Rage af Angels I). Fram-
Strangers). Gamanmyndaflokkur. (Snoops). Skemmtilegur Aspel. Gestir hans að haldsmynd í tveimur hlutum. Annaðkvöld frumsýnir Stöð
21.00 ► Bigfoot-bflatröllin (Big- bandarískur gamanmynda- þessu sinni eru þau 2 Reiði guðanna II sem er beint framhald þessarar
foot inAction). Þátturfyriráhuga- flokkur. Jaqueline Bisset, myndar.
menn um bílaferlínin „Bigfoot". QuincyJones og Mel Gibson. 00.35 ► Dagskrárlok.
UTVARP
MYIMDDÖIMD
RAS 1 FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Magnús G. Gunn-
arsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið — Randver Porláksson. Frétta-
yfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veður-
fregnir kl. 8.15. Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30,
8.00, 8.30 og 9.00. Mðrður Árnason talar um
daglegt mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli bamatíminn - Norrænar þjóðsögur og
ævintýri „Höllin fyrir austan sól og vestan mána",
sænskt ævintýri endursagt af Paul Wanner í
þýðingu Sigurjóns Guðjónssonar. Sigurlaug M.
Jónasdóttir. (Einnig útvarpað um kvöldið kl.
20.00.)
9.20 Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.
9.30 Landpósturinn - Frá Noröurlandi. Umsjón:
María Björk Invadóttir.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar. Hollráð til kaupenda vöru
og þjónustu og þaráttan við kerfiö. Umsjón: Bjöm
S. Lárusson. (Einnig útvarpað kl. 15.45.)
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Úr bókaskápnum. Erna Indriðadóttir skyggn-
ist í bókaskáp Margrétar Kristinsdóttur fram-
haldsskólakennara. (Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Ingveldur G. Ólafs-
dóttir. (Einnig útvarpað að loknum fréttum á
miðnætti.)
11.53 Ádagskrá. Litið yfir dagskrá miðvikudagsins
í Útvarpinu.
12.00 Fréttayfiriit. Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Mörður Árnason flytur.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Dánarfregnir. Auglýsingar.
13.00 í dagsins önn - Nútímabörn. Umsjón: Berg-
Ijót Baldursdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Fátækt fólk" eftir Tryggva
Emilsson. Pórarinn Friðjónsson les (6).
14.00 Fréttir.
14.03 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Högni Jónsson.
(Endurtekinn aðfaranótt mánudags kl. 5.01.)
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt um Norrænu ráðherranefndina.
Umsjón: Ævar Kjartansson. (Endurtekinn þáttur
frá mánudagskvöldi.)
15.45 Neytendapunktar. Umsjón: Björn S. Lárus-
son. (Endurtekinn þáttur frá morgni.)
16.00 Fréttir.
16.C3 Dagbókin.
1f,08 Þingfréttir.
'6.15 Veöurfregnir.
16.20 Bamaútvarpið - Hvað er i tunnunni? Um-
sjón: Kristín Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á siðdegi - Dvorak, Ravel og Saint-
Sa$$ns.
— „Pólverjadans" fyrir selló og pianó eftir Antonin
Dvorak. Heinrich Schiff leikur á selló og Elisa-
beth Leonskaja á píanó.
— „Bóléró" eftir Maurice Ravel. Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur; Claudio Abbado stjómar.
— Konsert fyrir selló og hljómsveit nr. 1 í a-moll
eftir Camille Saint-Saéns: Ofra Harnoy leikur með
Viktoriuhljómsveitinni i Kanada; Paul Freeman
stjórnar.
— „Óður um látna prinsessu", eftir Maurice Ravel.
Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur; Claudio
Abbado stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni.
(Einnig útvarpað að loknum fréttum kl. 22.07.)
18.10 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson
og Bjarni Sigtryggsson. (Einnig útvarpað í nætur-
útvarpi kl. 4.40.)
18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttír.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá. Þáttur um menningu og listir liðandi
stundar.
20.00 Litli bamatíminn — Norrænar þjóðsögur og
ævintýri. „Höllin fyrir austan sól og vestar
mána", sænskt ævintýri endursagt af Paul Wann-
er i þýðingu Sigurjóns Guðjónssonar. Sigurlauc
M. Jónasdóttir. (Endurtekinn frá morgni.)
20.15 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson kynnir
tónlist eftir George Crumb.
21.00 Byssumenn. Umsjón: Þórarinn Eyfjorð. (End
urtekinn þáttur frá 1. febrúar.)
21.30 islenskir einsöngvarar . Eriingur Vigfússon
syngur islensk lög.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni.
(Endurtekinn frá sama degi.)
22.15 Veðurfregnir. Dagskrá morgundagsins.
22.20 Lestur Passiusálma . Ingólfur Möller les 15.
sálm.
22.30 Hvað er dægurmenning? Dagskrá frá mál-
þingi Útvarpsins og Norræna hússins um dægur-
menningu, annar hluti. Umsjón: Þorgeir Ólafs-
son. (Einnig útvarpað kl. 15.03 annan föstudag.)
23.10 Staða Norðurtandanna i Evrópu framtiðarinn-
ar. Þingmenn á Norðurlandaráösþingi ræða
málið á dönsku, norsku og sænsku og verða
umræðurnar ekki þýddar á islensku. Umsjón:
Sigrún Björnsdóttir og Bjarni Sigtryggsson.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Ingveldur G. Ólafs-
dóttir. (Endurtekinn frá morgni.)
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
RÁS2
'7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn í Ijósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja
daginn með hlustendum.
8.00 Morgunfréttir - Morgunútvarpið heldur
áfram.
9.03 Morgunsyrpa. Eva Ásrún Albertsdóttir og
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Neytendahorn kl.
10.03 og afmæliskveðjur kl. 10.30.
11.03 Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur. -
Morgunsyrpa heldur áfram, gluggað i heims-
blöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti Einari
Jónassyni. (Frá Akureyri.)
14.03 Hvað er að gerast? Lisa Pálsdóttir kynnir
allt það helsta sem er að gerast í menningu,
félagslifi og fjölmiðlum.
14.06 Milli mála. Árni Magnússon leikur nýju lögin.
Stóra spurningin. Spurningakeppni vinnustaða
kl. 15.03, stjórnandi og dómari Dagur Gunnars-
son.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán Jón Haf-
stein, Guðrún Gunnarsdóttir, Sigurður Þór Sal-
varsson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Sigurður
G. Tómasson. - Kaffispjall og innlit upp úr kl.
16.00. - Stórmál dagsins á sjötta timanum. -
Gæludýrainnskot Jóhönnu Harðardóttur.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfundur í bejnni útsend-
ingu, sími 91 — 68 60 90.
19.00 Heimsmeistaramótið i handknattleik ÍTékkó-
slóvakiu: ísland - Kúba Samúel örn Eriingsson
lýsir leiknum.
20.15 iþróttarásin. Fylgst með og sagðar fréttir af
íþróttaviðburðum hér á landi og erlendis.
22.07 Lísa var það, heillin. Lísa Pálsdóttir fjallar
um konur i tónlist. (Úrvali útvarpað aðfaranótt
þriðjudags kl. 5.01.)
00.10 I háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Fréttirkl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,10.00,11.00,
12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00,
18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Áfram Island. (slenskir tónlistarmenn flytja
dægurlög.
2.00 Fréttir.
2.05 Donovan. Magnús Þór Jónsson' segir frá
söngvaranum og rekur sögu hans.(Annar þáttur
af þremur endurtekinn frá sunnudegi á Rás 2.)
3.00 Á frivaktinni. Þóra Marteinsdóttir kynnir óska-
lög sjómanna. (Endurtekinn þáttur frá mánudegi
á Rás 1.)
4.00 Fréttír.
4.05 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi miövikudags-
ins.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson
og Bjarni Sigtryggsson. (Endurtekinn þáttur frá
deginum áður á Rás 1.)
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.01 Ljúflingslög Svanhildur Jakobsdóttir kynnir.
(Endurtekinn þáttur frá föstudegi á Rás 1.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Á þjóölegum nótum. Þjóðlög og vísnasöngur
frá öllum heimshornum.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
kl. 8.10-8.30 og 18.03-19.00.Útvarp Norðurland
BYLGJAN
FM98.9
7.00 Morgunþátturinn með Rósu Guðbjartsdóttur
og Haraldi Gíslasyni. Kikt í blöðin og nýjustu frétt-
ir af færðinni og veðri, samgöngum.
9.00 Haraldur Gislason. Róleg og þægileg tónlist
i bland við kántrýiðl
10.00 Valdis Gunnarsdóttir. Vinir og vandamenn
kl. 10.30. Uppskrift dagsins valin rétt fyrir kl. 12.
Flóamarkaður í 15 min. kl. 13.20.
12.00 Hádegisfréttir.
14.00 Ágúst Héðinsson og nýjasta tónlistin.
17.00 Reykjavik siðdegis. Sigursteinn Másson.
Vettvangur hlustenda.
18.00 Kvöldfréttir.
18.15 íslenskir tónar.
19.20 Snjólfur Teitsson.
20.00 Ólafur Már Bjömsson. Tónlist og lauflétt
spjall. Fréttir af veðri og færð og skiðasvæðin
tekin fyrir.
24.00 Freymóður T. Sigurðsson á næturvakt-
Inni.
Fréttir eru á klukkutímafresti frá 8-18.
STJARNAN
FM102
7.00 Snorri Sturluson.
10.00 Bjarni Haukur Þórsson. Markaður með notað
og nýtt. Einnig fréttir úr heimi iþrótta klukkan
11.00.
13.00 Sigurður Helgi Hlöðversson. Ný og gömul
tónlist.
17.00 Ólöf Marín Úlfarsdóttir. Siðdegisþættir með
tónlist.
19.00 Rokklistinn. Rokkvinsældarlistinn valinn af
hlustendum Stjörnunnar og það er Darri Ólaspn
sem fer yfir stöðu vinsælustu rokklaganna á ís-
landi i dag auk þess að segja frá því helsta sem
er að gerast á rokklistum um viða veröld.
22.00 Kristófer Helgason.
1.00 Björn Þórir Sigurðsson á nætuvakt.
ÚTRÁS
FM 104,8
12.00 Hvað segir Þorrí i dag. MS.
1.00 Dagskrárlok.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9
7.00 Nýr dagur. Eiríkur Jónsson. Morgunmaður
Aðalstöðvarinnar með fréttir, viðtöl og fróðleik i
bland við tónlist.
9.00 Árdegi Aðalstöðvarinnar. Anna Björk Birgis-
dóttir. Ljúfir tónar i dagsins önn með fróðleiks-
molum um færð, veður og flug.
12.00 Dagbókin. Innlendar og erlendar freftir um
allt sem þú vilt og þarft að vita um í dagsins
önn. Fréttir af flugi, færð og samgöngum. Um-
sjónarmenn ÁsgeirTómasson, Þorgeir Ástvalds-
son, Eiríkur Jónsson og Margrét Hrafns.
13.00 Lögin við vinnuna. Fróðleikur i bland við Ijúfa
tóna og allt sem þú þarft að vita um i dagsins
önn. Umsjón Þorgeir Ástvaldsson.
16.00 í dag í kvöld með Ásgeiri Tómassyni. Fréttir
og fréttatengt efni um málefni líðandi stundar.
18.00 Á rökstólum. Flest allt i mannlegu samfélagi
látum við okkur varða. Flest allt er rætt um og
það gerum við á rökstólum. Umsjón Bjarni Dag-
ur Jónsson.
19.00 Það fer ekkert á milli mála. Miðvikudags-
kvöld á Aðalstöðinni er málið. Gulli er i essinu
sínu og leikur Ijúfa tóna og fræðir hlustendur
um það sem er efst á baugi. Umsjón Gunnlaug-
ur Helgason.
22.00 Sálartetrið. Skyggnst inn I dulspeki, trú og
hvað framtíðin ber i skauti sér, viðmælendur í
hljóðstofu. Umsjón Inger Anna Aikman.
EFFEMM
FM 95,7
7.00 Arnar Bjarnason.
10.00 ívar Guðmundsson.
13.00 Sigurður Ragnarsson.
16.00 Jóhann Jóhannsson. Þáttur afmælisbarna og
pizzuunnenda, ásmt nýrri tónlist
19.00 Ragnar Vilhjálmsson.
22.00 Valgeir Vilhjálmsson. Sex-pakkinn korter í
ellefu. Sex lög, vinsæl eða líllega til vinsælda
spiluð ókynnt.
1.00 Næturdagskrá.
Sæbjörn Valdimarsson
Af sorgfum og
gleði samkyn-
hneigðra
drama
Torch Song Trilogy ★ ★ ★
Leikstjóri Paul Bogart. Handrits-
höfundur Ronald K. Fierstein.
Aðalleikendur Fierstein, Anne
Bancroft, Matthew Broderick,
Brian Kerwin. Bandarísk. New
Line Cinema 1988. Skífan 1990.
115 mín. Öllum leyfð.
Það er öllum hollt að hafa í huga
áður en þeir sjá þessa mynd að
hommar og lesbíur óskuðu þess
ekki við fæðingu, frekar en aðrir
gestir Hótel Jarðar, að verða sam-
kynhneigð. Við erum ekki spurð.
Og Torch Song Trilogy er einmitt
ein þeirra nýju ágætismynda sem
eýða aldagömlum fordómum, þar
er tekist á við félagsleg og ekki
síður andleg vandamál þessa minni-
hlutahóps af þvílíku raunsæi, hrein-
skilni og kímni að jafnvel hörðustu
afturhaldsseggir ættu að gera sér
ljóst að öll erum við ósköp venjuleg-
ar manneskjur með okkar tilfínn-
ihgar, kosti og galla.
Torch Song Trilogy er byggð á
leikriti Fiersteins og segir frá af-
drifaríku tímabili í lífi þessa litríka
listamanns — og homma — einkum
þó leit hans að viðurkenningu í þjóð-
félaginu, hjá ástmönnum sínum og
ekki síst eigin móðir. .
Opinská, hressileg innsýn í lok-
aða veröld, borin uppi af dram-
atísku, sönnu, og til allrar guðs-
blessunar, oftast bráðfyndnu hand-
riti leikritaskáldsins og leik ágætis-
leikarans Fiersteins. Hann fær
óvænta en einkar athyglisverða
hjálp frá hinum upprennandi stór-
leikara Broderick, sem ljáir góðum
málstað lið og hættir ferli sínum,
(einsog dæmin sanna), með því að
taka að sér hlutverk samkyn-
hneigðs, þegar hann er einmitt á
viðkvæmu stigi á framabraut sinni.
Þau Bancroft, Kerwin og leikstjór-
inn Bogart gera svo sitt til að gera
Torch Song Trilogy að eftirminni-
legri og athyglisverðri mynd.
Kúnstugir
klækjarefír
gamanmynd
Dirty Rotten Scoundrels -★★'/»
Leikstjóri Frank Oz. Aðalleik-
endur Michael Caine, Steve Mart-
in. Bandarísk. Orion 1988. Skífan
1989. 106 mín. Öllum leyfð.
Þeir Caine og Martin eru út-
smognir bragðarefír sem hafa sitt
lifíbrauð af því að féfletta auðkonur
með öllum tiltækum ráðum. En
Rivieran er ekki nógu stór fyrir þá
báða svo þeir fara í e.k. hæfíleika-
keppni sem á að skera úr um hvor
þeirra á svæðið skilið . . .
Byggir á gamalli og góðri gam-
anmynd með Niven og Brando sem
sýnd var í Skúlagötubragganum á
sínum tíma, (blessuð sé minning
hans!), og fölnar nokkuð í samlík-
ingunni. Engu að síður pottþétt
afþreying, lauflétt endaleysa sem
kemur öllum í gott skap og nær
tilgangi sínum með ágætum.
Rás 1:
Evrópa
framtíöarinnar
MBMI í kvöld stýra þau Bjarni Sigtryggsson og Sigrún Björns-
10 dóttir umræðum fimm fulltrúa á Norðurlandaráðsþingi um
“■ þær breytingar sem orðið hafa á pólitísku landslagi í Evr-
ópu. Komið verður inn á breytt viðhorf í öryggismálum, væntanlegar
viðræður Efta ríkjanna við Evrópubandalagið og hugsanlega sam-
vinnu Eystrasaltsríkjanna og Norðurlanda. Hvert verður framlag
Norðurlanda til að efla friðsamlega þróun í Evrópu? Umræðan fer
fram á sænsku, norsku og dönsku og verður þátturinn ekki þýddur.