Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 1
56 SIÐUR B
48. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosningarnar í Nicaragua:
Ortega viðurkennir
ósigur sandinistanna
Violeta Chamorro, fram-
bjóðandi fjórtán stjórnar-
andstöðuflokka í forseta-
kosningunum í Nicaragua
á sunnudag, fagnar sigri
ásamt varaforsetaefni
sínu, Virgilio Godoy (t.h.).
Chamorro bar sigurorð af
Daniel Ortega, frambjóð-
anda sandinista, sem hafa
farið með völdin í landinu
í áratug.
Managua. Reuter, Daily Telegraph.
DANIEL Ortega, forseti Nicaragua, viðurkenndi í gær ósigur fyrir
Violeta Chamorro, frambjóðanda 14 stjórnarandstöðuflokka, í forseta-
kosningunum sem fram fóru i landinu á sunnudag. Er 61% atkvæða
höfðu verið talin hafði Chamorro fengið 54,3% atkvæða en Ortega
41,5%. Urslitin komu mjög á óvart og 2.500 manna alþjóðleg eftirlits-
neihd lýsti því yfir að stjórn sandinista hefði staöið við loforð sín um
frjálsar og heiðarlegar kosningar. Ortega lofaði að virða úrslit kosning-
anna. George Bush Bandaríkjaforseti fagnaði sigri Chamorro og hvatti
til þess að endi yrði bundinn á stríð sandinista og kontra-skæruliða,
sem Bandaríkjamenn hafa stutt.
Sandinistar höfðu verið mjög sig-
urvissir og úrslitin ollu miklu upp-
námi í aðalkosningaskrifstofu þeirra,
þar sem reistur hafði verið gríðarstór
hljómsveitarpallur fyrir sigurhátíð-
ina. Skoðanakannanir höfðu verið
mótsagnakenndar en flestir frétta-
skýrendur höfðu spáð sandinistum
sigri.
„í gær kusu þúsundir og aftur
þúsundir Nicaraguamanna stjórn-
málaafl, sem ég tel að eigi að taka
við völdunum 25. apríl,“ sagði Ortega
í sjónvarpsávarpi. Hann minntist þó
hvorki á Chamorro né bandalag
stjórnarandstöðuflokkanna, UNO,
með nafni. Jimmy Carter, fyrrum
Bandaríkjaforséti, einn af 2.500 eft-
irlitsmönnum sem fylgdust með
kosningunum, kvaðst fullviss um að
Ortega myndi virða úrslitin og láta
af völdum.
kosninganna og þá yfirlýsingu að
hann hygðist virða úrslit þeirra“.
Tíðindunum var víðast hvar fagn-
að en ijölmiðlar á Kúbu, sem spáð
höfðu sandinistum stórsigri, sögðu
að „raunveruleg bylting" væri eina
ráðið við vanda Nicaraguamanna.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagði að kosningarnar hefðu verið
mikilvægt skref í átt til friðar í Mið-
Ameríku. Einn leiðtoga kontra-liða
sagði að þeir myndu ekki leggja nið-
ur vopn fyrr en tryggt yrði að
Chamorro tæki „algjörlega við völd-
unum“ og her sandinista leystur
upp. Stjórn sandinista ber að fara
frá eftir tvo mánuði samkvæmt
stjórnarskrá landsins.
Sjá: „Kosningarnar í Nic-
aragua" á bls. 18.
Kouter
Talsmaður Sajudis um stórsignr þjóðernissinna 1 þingkosningum í Litháen:
Litháar geta nú hafíst handa
við að móta framtíð landsins
Chamorro sagði við stuðnings-
menn sína að hún myndi standa við
loforð sín um að stefna að þjóðarsátt
í landinu. „Kosningarnar sýna að
Nicaragua-menn vilja búa við lýð-
ræði, frið og umfram allt frelsi,“
bætti hún við.
„Lýðræðið vann enn einn sigur-
inn,“ sagði í yfirlýsingu Bush Banda-
ríkjaforseta, sem talsmaður hans,
Marlin Fitzwater, las á blaðamanna-
fundi í Hvíta húsinu. Forsetinn hvatti
til þjóðarsáttar í Nicaragua og kvaðst
vona að endi yrði bundinn á stríð
sandinista og kontra-skæruliða, sem
staðið hefur í átta ár og kostað
30.000 manns lífið. Fitzwater kvað
forsetann hafa sent Ortega skeyti til
að þakka honum fyrir „framkvæmd
„MENN ERU vitaskuld mjög I
ánægðir en jafnframt raunsæir
og gera sér ljóst að mikið verk
er fyrir höndum ætli Litháar sér |
að endurheimta sjálfstæði sitt,“
sagði Ríta Dapkus, forstöðumaður
upplýsingaskrifstofu Sajudis,
hreyfingar þjóðernissinna, er
ÍMorgunblaðið náði af henni tali í
höfuðborg Litháens, Vilnius, í
gær. Sajudis vann stórsigur í
fyrstu frjálsu þingkosningunum í
sögu Sovétríkjanna sem fram fóru
í Litháen á laugardag en hreyf-
ingin berst fyrir því að Litháen
verði sjálfstætt ríki á ný.
„Sigurinn er ef til vill stærri en
við áttum von á en ég tel að það
hafí ekki komið mönnum svo mjög
á óvart að frambjóðendur þeir sem
nutu stuðnings Sajudis hafi fengið
svo góða kosningu sem raun ber
vitni,“ sagði Ríta Dapkus. „Við átt-
um von á því að fá um 70 prósent
atkvæða en raunin virðist vera sú
að við höfum fengið um 80 prósent.
Við teljum að nú geti Litháar hafist
handa við að móta framtíð sína.“
Frambjóðendur Sajudis unnu sig-
ur í 73 af 90 kjördæmum og fengu
hreinan meirihluta á þingi en þar
situr 141 fuiltrúi. Kosið verður á ný
milli tveggja efstu manna í 45 kjör-
dæmum 10. mars auk þess sem end-
urtaka þarf kosningu í sex kjördæm-
um vegna ónógrar þátttöku.
„Mestu skiptir að við fáum tvö
af hveijum þremur þingsætum til
að þess að við getum komið í gegn
nauðsynlegum breytingum á stjórn-
arskrá Litháens. Það verður ekki
ljóst fyrr en eftir að kosið hefur
verið á ný í næsta mánuði en það
virðist öruggt að við náum tilskildum
meirihluta á þingi,“ sagði Ríta Dapk-
us. Hún lagði á það áherslu að þjóð-
emissinnar í Litháen litu ekki svo á
að um væri að ræða úrsögn landsins
úr sovéska ríkjasambandinu en
Eystrasaltsríkin þrjú voru innlimuð
í Sovétríkin árið 1940 eftir að hafa
notið sjálfstæðis á árunum milli
heimsstyijaldanna tveggja. „Við
gerðumst aldrei hluti af Sovétríkjun-
um þannig að ekki er um úrsögn
að ræða.“
Líklegt er að mynduð verði sam-
steypustjórn þeirra flokka sem hafa
sjálfstæði landsins á stefnuskrá sinni
en að Moskvu-hollir kommúnistar,
sem fengu aðeins sjö menn kjörna,
verði í stjórnarandstöðu. Þótt um-
bótasinnaðir kommúnistar, sem
stofnað hafa nýjan og óháðan flokk,
hafi aðeins fengið 22 menn kjörna
er líklegt að þingið veiti þeim umboð
til að vera í forsvari samninganefnd-
ar Litháa í viðræðum við ráðamenn
í Moskvu um sjálfstæði landsins.
Sjá frétt á bls. 19.
Óveðurí
Evrópu
36 manns að minnsta kosti
biðu bana af völdum óveðurs
í norðvestanverðri Evrópu í
gær, aðeins þremur dögum
eftir að íbúar þessa svæðis
sleiktu sólskin og nutu
óvenjulega mikilla hlýinda.
Veðríð varð hvað verst á
sunnanverðu Englandi þar
sem þrettán manns biðu
bana. Að minnsta kosti ellefu
fórust í Vestur-Þýskalandi,
fimm í Frakklandi og fjórir í
Belgíu. Óveðrið náði frá
þýsku Rínarhéruðunum í
austri og vestur fyrir Bret-
landseyjar. Veðurhæðin
mældist allt að 160 km/klst.
Gífurleg úrkoma fylgdi veðr-
inu.
Reuter