Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
5
Byggingarnefiid
Reykjavíkur:
Framkvæmdir
kannaðarvið
Hamarshúsið
Á VEGUM byggingarfulltrúa, er
verið að kanna hvað líður lagfær-
ingum á Hamarshúsinu við
Tryggvagötu, sem byggingar-
nefnd gerði athugasemdir við í
júlí 1987. Byggingameistari húss-
ins fékk þá ákveðinn frest til að
bæta úr ágöllum húss og lóðar
að öðrum kosti yrði beitt dag-
sektum.
Áð sögn Hilmars Guðlaugssonar
formanns byggingarnefdnar, er
búið að laga hluta af því, sem nefnd-
in fór fram á að yrði lagfært en
verið er að kanna hvað eftir stend-
ur. Erfitt er um vik, þar sem Upp-
bygging hf. fyrirtækið sem tók að
sér lagfæringarnar, er gjaldþrota
og byggingameistarinn var sviptur
réttindum til að starfa í Reykjavík
og því óljóst með hvaða hætti verð-
ur hægt að ljúka verkinu.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
áBÍdum Moggans!
Morgunblaðið/Þorkell
Sæludagar í Breiðholti
NEMENDUR Fjölbrautaskólans í Breiðholti eiga „Sæludaga" í þess-
ari viku. Þeim gefst kostur á að taka þátt í starfi hátt í 50 hópa um
hin fjölbreytilegustu viðfangsefni. Meðal annars má nefna „flipp“,
fjölmiðlun, dulspeki, ísklifur, leiklist, letingjahóp, samkvæmisdansa
og ÁTVR-kynningu. Árshátíð skólans verður á Sæludögum svo og
ýmsar uppákomum á kvöldin. Við upphaf sælunnar í gærmorgun
var m.a. farið í skrúðgöngu með lúðrablásara í fararbroddi og var
þessi mynd þá tekin.
Símaskráin í 160 þús-
und eintökum í maí
SÍMASKRÁ fyrir árið 1990 er í vinnslu og gert er ráð fyrir að hún
komi út í 160.000 eintökum í byrjun maí. Símaskrána verður prentuð
í prentsmiðjunni Odda. Að sögn Ágúst Geirssonar, fúlltrúa símstjóra,
fara um 300 tonn af pappír í símaskrána. Pappírinn var keyptur frá
Finnlandi og kostaði hann 11 milljónir króna við pöntun að við-
bættum ýmsum gjöldum.
Frestur til að koma breytingum
á aðsetri eða öðrum upplýsingum á
framfæri við ritstjóm símaskrárinn-
ar rann út 15. desember á síðasta
ári en tekið var á móti upplýsingum
út allan janúarmánuð.
Ágúst Geirsson sagði að sú regla
væri höfð við gerð símaskrárinnar
að skrá ekki nöfn fyrirtæki nema
þau séu skráð í firmaskrá. Þetta á
einnig við um fyrirtæki sem bera
erlend nöfn og eru ekki skráð í
firmaskrá.
Utlit símaskrárinnar verður svip-
að og það hefur verið undanfarin
tvö ár en ný mynd prýðir kápuna.
Að öllum líkindum verður hún af
vatnsfalli, annað hvort á Vestfjörð-
um eða Austfjörðum, að sögn
Ágústs.
Niðurskurði norrænna
sto&ana mótmælt
TUTTUGU kunnlr íslendingar hafa samið ávarp til þings Norðurland-
aráðs og ráðherranefhdar ráðsins, sem koma saman á Islandi í vik-
unni. Þar er mótmælt tillögum, sem liggja fyrir Norðurlandaráði,
um að leggja niður fjórar norrænar stoftianir, þar á meðal Norrænu
þjóðfræðistofnunina, og skera niður fjárframlög til annarra stofiiana
og rannsóknarverkefna.
„Nauðsyn er að nota fjármuni
vel, og sífellt er þörf endurskoðun-
ar, en það er rangt að leggja niður
þá starfsemi sem skilar góðum
árangri og er þess eðlis að hún
verður ekki rædd nema með sam-
vinnu landa okkar. Aðrir munu
varla verða til þess að rannsaka
sérstæða þjóðmenningu og skipan
mannvistar í norrænum löndum,
eða þróun löggjafar og hefða á
mörgum sviðum, þannig að okkur
verði að fullu gagni. Og til þess að
afla nauðsynlegrar þekkingar á
öðrum hlutum heimsins, getur sam-
vinna orkað því sem eitt landanna
ræður ekki við,“ segir meðal annars
í ávarpinu.
Undir ávarpið rita sjö fyrrverandi
menntamálaráðherrar, þeir Ey-
steinn Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason,
Ingvar Gíslason, Magnús Torfi
Ólafsson, Ragnar Arnalds, Sverrir
Hermannsson og Vilhjálmur Hjálm-
arsson, Sigmundur Guðbjarnason
háskólarektor og þrír forverar hans,
þeir Ármann Snævarr, Guðlaugur
Þorvaldsson og Guðmundur Magn-
ússon, og þrír deildarforsetar í há-
skólanum, þeir Svanur Kristjáns-
son, Sigurður Líndal og Þór White-
head. Þá skrifa undir skjalið Þórir
Kr. Þórðarson formaður stjórnar
hug- og félagsvísindadeildar
Vísindaráðs, Þór Magnússon þjóð-
minjavörður, Jónas Kristjánsson
forstöðumaður Árnastofnunar, Jó-
hannes Nordal formaður stjórnar
Vísindaráðs, Guðmundur Eggerts-
son forseti Vísindafélags íslendinga
og Stefán Thors forstöðumaður
Skipulagsstjórnar-ríkisins:
Hafiiarfjörður:
Kært vegna
16 vanhald-
inna áa
HJÁ lögreglunni í Hafnarfirði er
nú til meðferðar kæra á hendur
manni vegna lélegrar umhirðu
um 16 ær sem hann liefur í húsi
í fjárhúsahverfi við Kaldársels-
veg.
Maðurinn hefur leyfi bæjarins til
að halda þar sex kindur en hýsir
sextán. Dýralæknir hefur skoðað
ærnar og að mati hans eru þær
holdlitlar og vanhaldnar bæði með
vatn og hey.
Höfð voru afskipti af sama manni
vegna svipaðs máls fyrir sex árum.
Embætti lögreglunnar í Hafnarfírði
hefur mál þetta nú til skoðunar.
Meint brot
gegn þroska-
heftum manni
til athugunar
RLR hefur fengið til frumat-
hugunar erindi þess efnis að
maður, sem leystur hefur verið
frá starfi við stofhun fyrir
þroskahefta í borginni, hafi fram-
ið kynferðisbrot gegn vistmanni.
Að sögn Þóri Oddssonar varar-
annsóknarlögreglustjóra er erindið
til frumathugunar hjá embættinu
og hefur hvorki komið til handtöku
né gæsluvarðhalds vegna þess.
FALLEGT OG NÍÐSTERKT
PERGO gólfefnið er bylt-
ingarkennd nýjung, sem
fer sigurför um heim allan.
Það er lagt „fljótandi" eins
og parket, en útlit og litir
eru mjög fjölbreytilegir og
slitþolið margfalt á við
parket.
Engir brunablettir
Má hreinsa af með þynni o.fl.
Hælaför sjást ekki
Láttu skynsemina iráða,
veldu PERGO á gólfið.
Komið í verslunina og sannfærist eða hafið
samband við söiumenn okkarí síma 21220.
HF.0FNASM IÐJ AN
HATEIGSVEGI 7, S: 21220
EIGINLEIKAR EFNISINS
ERU MAGNAÐIR
1. Það er geysilega slitsterkt.
2. Þolirmjög vel högg.
3. Þolir sígarettuglóð.
4. Gefurhvorki frá sér
nédregurísig lykt.
5. Er auðvelt að þrífa.
6. Þolir flest kemísk efni.
7. Þarf aldreiað lakka.
8. Þykkt aðeins um 7 mm.
9. Auðveltaðleggja.
10. Rafmagnastekki.
11. Upplitast ekki.
\w
m.