Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
9
Athafnamenn - fyrirtæki
Getum tekið að okkur vörur í umboðssölu og einn-
ig innflutning á vörum. Erum í sambandi t.d. við
flestar verslanir, veitingahús og bakarí landsins.
Við höfum fullkomna pökkunarvél og aðstöðu til
pökkunar á alls konar vörum.
Tilboð óskast send í pósthólf 191,202 Kópavogur.
hádegisverðartilboð
LJUFFENGT
O G Ó D Ý R T
SÚPA & SALAT
val úr 5 salatrcttum
695 kr.
SÚPA & PASTA
val úr 10 pastarcttum
695 kr.
SÚPA & BRAUÐLOKA
val úr 4 brauðlokum
695 kr.
PASTA & SALAT
ral úr W pastaríttum
650 kr.
SÚPA & FISKUR DAGSINS - 790 kr.
Á
Bernhöfts-
torfunni
NOTAÐIR BILAR
hMFá
TOYOTA TERCEL 4 x 4 ’85 Brúnn. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 51 þús/km. Verð kr. 540 þús. SUZUKI FOX ’87 Svartur. 5 gíra. 2ja dyra. Blæjubíll. Ekinn 31 þús/km. Verð kr. 650 3ÚS.
*
MAZDA 929 GLX ’87 Blár. Sjálfskiptur. 4ra dyra. Ekinr 60 þús/km. Verð kr. 990 þús. TOYOTA CARINA IIGL’89 Grár. Sjálfskiptur. 5 dyra. Rafmagn rúðum, centrallæsingar. Ekinn 52 3Ús/km. Verð kr. 1.050 þús.
MMC LANCER ’87 Blár. 5 gíra. 5 dyra. Vökvastýri Ekinn 37 þús/km. Verð kr. 660 þús TOYOTA TERCEL 4 x 4 ’86 Tvíl. blár. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 56 þús/km. Verð kr. 650 þús.
44 1 44 - 44 7 33
Undarlegur
fógnuður
Misskilningur sósíalista
í síðustu viku mátti sjá fleiri en eitt dæmi um það í fjölmiðlum,
að mörgum var misboðið vegna þess hvernig sósíalistar gengu
fram í tilefni af komu Vaclavs Havels, forseta Tékkóslóvakíu,
hingað til lands. Er greinilegt, að tal sósíalista um Havel sem
einhvern sérstakan fulltrúa sinn hefur fallið í grýtta jörð og vak-
ið hneykslan. Þarf raunar ekki að undrast það, þar sem Havel
hefur lagt sérstaka áherslu á, að hann starfi ekki í nafni sósí-
alismans. Er staldrað við þetta í Staksteinum í dag.
Garri Tímans segir sl.
þriðjudag-:
„ Svo undarlega brá
við, þegar forseti Tékkó-
slóvakiu heimsótti okkur
um helgina, að heimsókn-
imii var snúið upp í eins-
konar sigur sósialismans.
Það virðast litil takmörk
fyrir því, hvemig fyrri
kommúnistar og áhang-
endur þeirra hérlendis
leyfa sér að túlka þær
umbyltingar sem orðið
hafe í þjáðum og kúguð-
um ríkjum Austur-Evr-
ópu. Havel forseti fékk
ekki inngöngu í háskóla
af því að hann var af
borgaralegum ættum, og
fjölskylda hans taldist til
andstæðinga kommún-
ismans. Þegar hann kom
hingað flykktust gamlir
stúdentar að honum með
spjöld á lofti, liklega til
að fagna honum. Þessir
sömu stúdentar voru við
nám í Tékkóslóvakíu á
sama tima og Havel var
baimaður aðgangur að
skóla, sendir héðan af
Sameiningarflokki al-
þýðu sósíalistaflokknum
tU uppeldis.
Og til áréttingar því,
að Havel forseti væri
þeirra maður, snaraðist
kona úr hópnum og kall-
aði að þetta væri „sigur
sósíalismans". Auðséð er
á þessu að þetta fólk hef-
ur engu gleymt í
„taktík". Þetta er sú
gamla stefea öfgaaflanna
sem nú hafe hnigið til
viðar, að segja að svart
sé hvitt og lívítt svart
Þessu fólki finnst auðvit-
að ekki koma til mála að
þegja, og allra síst þegar
svona tækifæri býðst með
sjálfen forseta Tékkó-
slóvakiu í forgrunni, en
hann var í fengelsi sósíal-
ismans í september
siðastliðnum. Þá var
áberandi hvað sigurveg-
arar sósíalismans gerðu
sér mikinn mat úr þvi að
troða Havel forseta um
tær i Þjóðleikhúsinu.
Þeir voru ekki á því að
sitja heima og sleikja sár
sín, heldur stóðu keikir
og brosandi framan í
manni, sem hafði verið í
fangelsi hjá flokksbræðr-
um þeirra nokkrum mán-
uðum áður.“
Fela nafii og
númer
I Dagblaðinu-Vísi á
miðvikudag segir Har-
aklur Ólafsson, dósent
við Háskóla Islands og
fyrrum þingmaður Fram-
sóknarflokksins:
„Þegar Havel stóð á
sviðinu, dálitið vand-
ræðalegur meðan áliorf-
endur fógnuðu honum og
þökkuðu verk hans, gat
ég ekki varist þeirri
hugsun að þarna stæði
maður er tæki hlutverk
skáldsins svo alvarlega
að alls engar hömlur
mætti leggja á starf þess.
Þess vegna væri hann
ófrjálsari sem stjórn-
málamaður en skáld í
dýflissu. í leikritinu um
endurbygginguna er ótt-
iim alls staðar nálægur.
Hann er andstæða frelsis-
ins. Hið eina frelsi sem
er hugsanlegt er að gera
uppreisn þrátt fyrir ótt-
ann, hverfe ekki inn í
sjálfsaumkun og muldr-
andi hlýðni, laga sig ekki
að kerfínu. Aðeins á þann
liátt er unnt að varðveita
I hið eina frelsi sem nokk-
urs er virði: sjálfsvirðing-
una.
Skáld gera mistök eins
og aðrir og engimi veit
hvaða stefnu málin taka
í þeim löndum sem nú
eru að hverfe af blind-
götu kommúnistaflokk-
anna. Forseti Tékkóslójv-
akíu á ekki auðvelt verk
fyrir höndum. Hann
þekkir seiglu kerfisins,
og hami veit hve mörgum
er auðvelt að haga segl-
um eftir vindi.
Margir munu rísa'upp
sem ekki þóttust liafa
komið nærri þar sem lagt
var á ráðin um hvemig
nota skyldi óttann til að
stjónia ríkjum. Fólki í
Tékkóslóvakíu jafiit sem
á Islandi er það létt verk
og löðurmannlegt að
breiða yfir nafh og núm-
er og segja að eiginlega
hafi það aldrei meint það
sem það sagði eða gerði
áður fyrr. Engin stjóm-
málastefha er vinsælli en
hentistelhan.
Ég vona að Havel tak-
ist að koma á manneskju-
legu samfélagi i landi
sínu, að óttinn viki. Og
mættum við eitthvað
læra af heimsókn þessa
skálds um okkar eigið
þjóðfélag og þau öfl sem
þar em að verki.
Draumar liugans em
ef til vill hinn eini saiuii
vemleiki þegfar allt kem-
ur til alls.“
Undrun borg-
arsljóra
I Morgunblaðinu sl.
fóstudag var birt endur-
sögn af ræðu Davíðs
Oddssonar borgarstjóra
frá deginum áður en þá
sagði hami meðal aimars:
„Eg horfði gapandi
undrandi á Vilborgu
Dagbjartsdóttur i sjón-
varpi segja að atburðim-
ir fyrir austan, ekki síst
i Tékkóslóvakíu, séu
mjög mikill sigur fyrir
sósíalista. Hún sagði
þetta við komu manns
sem neitaði að skrifa
undir eiðstaf sem forseti
Tékkóslóvakiu af því að
orðið marxismi var í eið-
stafiium. Honum var
fengið nýtt blað og þá var
komið sósíalismi inn í eið-
stafrnn og hann neitaði
aftur að skrife undir.
Maður horfði steinhissa á
allt þetta fólk snúast í
kringum Havel og í raun-
hmi vorkenndi maður
honum fyrir að vita ekki
í hvaða félagsskap hann
var kominn. Og maður
fenn þegar maður ræddi
við nána aðstoðarmenn
forsetans að þeir ætíuðu
ekki að trúa eigin eyrum
þegar þeir heyrðu að af
11 ráðherrum í ríkis-
stjórninni þá væm að
minnsta kosti þrír sem
væm beinir arfar komm-
únismans."
SJOÐSBREF 1
200.000 eru orðin
að 431.088
Agnes Halldórsdóttir keypti Sjóðsbréí 1 fyrir
200.000 krónur 15. júní 1987. Hún kom og seldi
þau hjá VIB 22. febrúar sl. og fékk greiddar út
samdægurs 431.088 krónur. Það jafngildir 11,1%
ávöxtun yfir lánskjaravísitölu á ári. Sjóðsbréf 1
henta best þeim sem vilja geyma sparifé vel í
a.m.k. eitt ár. Ávöxtun þeirra er nú áætluð 8,5-9%
yfir verðbólgu.
Verið velkomin í VÍB.
TOYOTA
NYBYLAVEGI 6-8, KOPAVOGI
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30