Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 12
MQRGjjyBLAÐIÐ ÞJUÐ.IUDAGlIfl 27, FEBRýAR 1990 Hl 2 Enn um Þróunar- félagið og GKS hf. eftir Rafti Ben. Rafhsson og Gunnar Inga Gunnarsson Inngangur Að sérstaklega gefnu tilefni sáu forsvarsmenn nokkurra íslenskra fyrirtækja í húsgagnaframleiðslu ástæðu til að gera opinbera at- hugasemd við það, hvernig Þróun- arfélag Islands hf. hefur orðið aðili að rekstri fyrirtækisins GKS hf., en það var nýlega stofnað eft- ir sameiningu Kristjáns Siggeirs- sonar hf. og Gamla Kompanísins hf. Bréf, þess efnis, stílað á eig- endur og stjórn Þróunarfélagsins, var birt í Morgunblaðinu þann 6. feb. sl. Athugasemdarmenn tóku þar sérstaklega fram, að ekki væri verið að gera sjálfan samruna fyrirtækjanna tortryggilegan, heldur aðeins hitt, á hvem máta Þróunarfélagið tengdist samran- anum. Athugasemdirnar Efnisatriði ábendinganna vora þessi: 1) Með stjórnarsetu fram- kvæmdastjóra Þróunarfélags- ins í GKS hf., hafa skapast þess háttar bein hagsmuna- tengsl milli fyrirtækjanna, að útilokað er, að fyrirtæki í samkeppni við GKS hf. geti sótt um fyrirgreiðslu hjá Þró- unarfélaginu, þótt raunhæft tilefni gæfist til slíks, t.d. vegna þróunar og markaðs- setningar einstakra hug- mynda. Þannig virðist okkur, sem Þróunarfélagið hafí valið sér GKS hf. til „ásetningar“ á hinum harða markaði íslenskrar húsgagnafram- leiðslu. 2) Um tilgang Þróunarfélagsins segir m.a. í samþykktum fé- lagsins: „Félagið leggur höf- uðáherslu á tvo þætti, þegar mat er lagt á umsóknir. Verk- efnið verður að heyra til ný- sköpunar í íslensku atvinnulifi og sýna verður fram á góða arðsemi þeirrar íjárfestingar sem ráðast á í.“ Einnig segir þar: „Mikil áhersla er lögð á ígranduð og vönduð vinnu- brögð og umsækjendum er tryggður trúnaður varðandi þau atriði í umsóknum sem óskað er eftir að farið sé með sem trúnaðarmál.“ Af ofangreindu verður að álykta, að stjórnarseta fram- kvæmdastjórans veiti GKS hf. sér- stöðu fyrirgreiðslueinokunar, sem m.a. brýtur í bágá við ofangreind- ar samþykktir Þróunarfélagsins um tryggingu trúnaðar. Svör þróunarfélagsmanna Þann 8. feb. sl. birtist í Morgun- blaðinu viðtal við Gunnlaug Sig- mundsson, framkvæmdastjóra Þró- unarfélagsins. Þar kemur fram, eins og áður var raunar vitað, að hann sjái sjálfur ekkert athugavert við það að eiga sæti í stjórn GKS hf. Hann kvað ekki á dagskrá að auka hlutafé Þróunarfélagsins í GKS hf. umfram þær 500 þús., sem þegar væru inni. Þessi fullyrðing er í ósamræmi við það, sem Ólafur Davíðsson, stjórnarformaður, lýsti yfír á fundi með athugasemdar- mönnum, þann 2 feb. sl. Þá sagði Ólafur, að fyrirhugað væri að leggja fram 7 til 7‘A milljón í GKS hf. Ef upphæð Gunnlaugs er rétt, þá ætlar Þróunarfélagið að veðja á hið nýja félag með 500 þús. kr. og stjórnarsetu Gunnlaugs! Er það trú- verðugt? Þá segir Gunnlaugur einn- ig, að forsendur aðildar Þróunarfé- lagsins að GKS hf. „Iiggi ekki að öllu leyti fyrir enn“. Hvað með sam- þykktir Þróunarfélagsins? Ólafur Davíðsson, stjórnarformaður, skrif- ar síðan grein í Morgunblaðið 13. feb. sl. Hann virðist þar telja sig svara athugasemdarmönnum fyrir hönd stjórnar og hluthafa Þróunar- félagsins hf. í grein hans kemur ekkert það fram, sem dregið gæti „Hér er alvarlegt mál til umræðu. Því verður fylgt eftir. Islensk fyrir- greiðslupólitík er undir eftirliti.“ úr réttmæti ábendinga athuga- semdarmanna. Hagsmunatengsl og siðferðisþrek Af ummælum framkvæmda- stjóra og stjórnarformanns Þróun- arfélagsins má ráða, að allt sé þetta mál með felldu og að þeir treysti sér til að standa að uppbyggingu og rekstri GKS hf. án þess að hags- munatengslin skerði samkeppnis- stöðu annarra fyrirtækja í sams- konar rekstri. Einnig verður að skilja ummæli þeirra þannig, að með eignaraðild Þróunarfélagsins að GKS hf. sé t.d. engan veginn tryggt, að GKS hf. hljóti auðfengn- ari fyrirgreiðslu hjá Iðnlánasjóði, þótt Ólafur Davíðsson sé þar einnig í stjórn. I því hlutverki virðist Ólaf- ur einnig treysta sér til að afgreiða umsóknir fyrirtækja í samkeppni við GKS hf. á hlutlausan hátt og í fullum trúnaði. Lokaorð Hér er alvarlegt mál til umræðu. Því verður fylgt eftir. íslensk fyrir- greiðslupólitík er undir eftirliti. ís- lenskir húsgagnaframleiðendur verða að vita, hvort þeir séu komn- ir í beina samkeppni við Þróunarfé- lag íslands hf. Uti á landi hefur rekstrarhagfræðin oftsinnis verið látin víkja fyrir byggðasjónarmið- um. Menn hafa látið sig hafa það. Þegar, hins vegar, farið er að bóla á gjörgæslufyrirtækjum á ströng- um íslenskum samkeppnismarkaði, þá mótmælum við. Höíundar eru stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Bíró-Steina hf. NÚ ERUM VIÐ FLUTTIR Á LAUGAVEGINN — Ný og betri húsakynni — — Aukin og bætt þjónusta — — Aldrei meira úrval bíla — Hrói höttur (Eiríkur Smári Sigurðarson) kennir Maríon (Svöfu Arnardóttur) að skjóta af boga en úr kafinu kemur að hún kann listina fyrir. Hrói höttur í essinu sínu _________Leiklist_____________ Jóhanna Kristjónsdóttir Leikfélag Hafnarfjarðar frum- sýndi Hróa hött í Bæjarbíói Höfúndur handrits: Guðjón Sig- valdason Lýsing: Egill Ingibergsson, Stefán Sveinbjörnsson Búningar: Alda Sigurðardóttir Leikmynd: Kristín Reynisdótt- ir, Guðjón Sigvaidason, Egill Ingibergsson Tónlist: Jóhann Morávek Aðstoðarleiksljóri: Erlá As- geirsdóttir Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason Hrói höttur hefur lengi verið dáð hetja, í flestra ungra lesenda hugum góði og tápmikli kappinn sem þoldi ekki órétt, var dæmdur fyrir litlar eða engar sakir og varð útlagi í Skírisskógi ásamt öðrum sem minna höfðu til saka unnið en sá argýstjórnandi í Nott- inghamhéraði. í skóginum höfð- ust svo Hrói og félagar hans við, stálu af þeim ríku og hjálpuðu þeim sem áttu bágt og urðu fyrir barðinu á valdinu. Sagan um vin- áttu þeirra Hróa og Litla-Jóns og Tóka munks er auk þess glettin og spennandi. Nú hefur Leikfélag Hafnar- fjarðar fengið Guðjón Sigvaldason til að gera leikgerð úr sögunni og auk þess var efnt til teiknisam- keppni meðal grunnskólanemenda um að draga upp myndir af þeim félögum. Anddyri Bæjarbíós var svo fóðrað með um ellefu hundruð myndum úr samkeppninni og verður svo meðan sýningar eru. Þarna voru margar frábærar myndir, svo virtist þó sem einkum yngri börn hefðu sýnt áhuga og sent myndir og ekki verra. Sýningin var hressileg og vakti mikinn hlátur og áhuga. Leikgerð Guðjóns Sigvaldasonar var að- gengileg og skiljanleg og leik- stjórnin sömuleiðis, og hann virð- ist hafa gott lag á að vinna með ungu fólki og ég minnist altjent einnar annarrar sýningar hjá unglingum í Hafnarfirði undir hans stjóm sem hafði þá sömu kosti að renna prýðilega og halda áhuga. Leikmyndin er falleg og skipt- ingar gengu áreynslulaust fyrir sig. Hrói höttur er leikinn af Eiríki Smára Sigurðarsyni og ger- ir hann það snoturlega en kannski er lögð fullmikil áhersla á ein- feldni Hróa framan af. Svafa Arn- ardóttir er Maríon og tókst það allt bærilega og Björgvin Friðriks- son og Helgi Hinriksson voru Litli Jón og Tóki múnkur í ágætum gervum og stóðu fyrir sínu. Inn í söguna hefur verið bætt sýslumannsfrúnni og fór Hildur Hinriksdóttir með það hlutverk. Hún er mikil frekjudolla og óhemja sýslumannsfrúin og dró Hildur hvergi af sér frekar en Halldór Magnússon sem var sýslumaðurinn. Ýmsir voru í minni hlutverkum, ég nefni foringja sýslumanns, Erlend Pálsson. Framsögn leikenda var í stirðara lagi en allir lögðu sig fram og auðvitað var mest um vert að all- ir skemmtu sér á sviði sem í sal. Mér fannst það lýta sýninguna hve mikið var lagt upp úr há- reysti og lítt hömdum hrópum; aftur á móti veitti ég því líka at- hygli að ungum áhorfendum fannst það alltaf langfyndnast þegar mestur var gauragangur- inn. í sýningarlok voru svo afhent verðlaun í áðurnefndri teiknisam- keppni og hefði mátt vanda þá athöfn meira. Ný bók eftir norskan þjóðkirkjuprest: Stuttar hugvekjur fyrir hvem dag ársins BÓKIN Máttarorð eftir norskan þjóðkirkjuprest, Erling Ruud, er komin út á vegum Vasaútgáfúnnar í Reykjavík í þýðingu Benedikts Arnkelssonar guðfræðings. Bókin er gefin út sem kilja. Á bókarkápu segir: „Bíblían hef- ur staðist tímans tönn. Hún býr yfir mætti til að breyta lífi 'manna, leysa ijötra. Bókin Máttarorð er samin fyrir þá sem vilja kynnast Biblíunni nánar og finna þar grund- völl til að byggja á í lífi og dauða.“ í kynningu útgefanda segir m.a.: „Gert er ráð fyrir að bókina megi nota allan ársins hring og era í henni stuttar hugvekjur fyrir hvern dag ársins, ein blaðsíða á dag. Á hverri síðu er dæmisaga, ritningar- orð, hugleiðing og sálmvers, þýtt eða framort, t.d. eftir Friðrik Frið- riksson, Helga Hálfdanarson, Bjarna Eyjólfsson o.fl. í bókarlok er skrá um efnisatriði og um ritn- ingarorð sem beinlínis er vitnað til. Fram kemur í formála þýðanda að bókin hefur verið þýdd á ýmis tungumál og gefin út í tugþúsund- um eintaka."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.