Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990 Tryggvi Krisíjáns- son — Minning Fæddur 22. desember 1888 Dáinn 18. febrúar 1990 í dag er til moldar borinn Tryggvi Kristjánsson. Afi Tryggvi eins og hann var alltaf kallaður, dó sunnudaginn 18. febrúar 1990. Síðustu ár ævi sinnar frá 1988 dvaldi hann á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Frá árinu 1983 var hann á dvalarheimilinu Skjaldarvík. Afi Tryggvi var 101 árs þegar hann dó, fæddur 22. desember 1888. Ég hitti hann í desember síðastliðnum og hafði þá heilsu hans hrakað mikið frá því um sumarið. Þá sagði hann við mig að líklega myndum við ekki sjást aftur. Oft áður hafði hann sagt þetta þegar ég kvaddi hann en alltaf hittumst við aftur. En nú er afi genginn til feðra sinna. Við sjáumst ekki meir, allavega ekki í þessu lífi. Afi mun nú hitta ömmu Jóhönnu en hún dó árið 1965, 79 ára. Mínar fyrstu minningar um afa og ömmu eru frá því að ég var um 6 ára þá bjuggu þau á loftinu í Uppsölum (Brekkugötu 15, Akur- eyri). Stiginn upp til þeirra var óskaplega brattur en það sem beið uppi á loftinu var þess virði að böðlast upp stigann. Það var alltaf voru svo hlý og góð. Afi átti alltaf suðusúkklaði í skrifborðinu sínu og oft átti amma nýjar kleinur og mjólk. Það voru notalegar stundirn- ar sem ég átti hjá þeim á loftinu. Þegar ég fór heim frá ömmu og afa fékk ég alltaf suðusúkklaði í smjörpappír í nesti. Þetta fannst mér afar merkilegt. Oft var þetta súkkulaði sparað eins lengi og hægt var, það var sérstakt afabragð af súkkulaðinu og það var sérstök tilfinning að borða það. Mér eru afar minnis- stæðar stundirnar með afa og ömmu á loftinu. Amma dó þegar ég var 8 ára þannig að stundirnar sem ég átti með henni voru fáar en yndislegar. í mínum huga er mynd ömmu afar skýr, hún var írnynd hjartahlýju og góðmennsku. Ég vildi að amma og ég hefðum getað átt fleiri stundir saman. Eftir að amma dó hefur eflaust verið tómarúm í lífi afa. Það er alltaf erfitt að missa maka sinn og sérstaklega þegar fólk hefur unnið saman í gegnum súrt og sætt eins og ég held að amma og afí hafí gert. Gangur lífsins er að deyja svo undarlegt sem það er. Þórberg- ur Þórðarson segir í kwæðinu En ef þú ferð á undan þér yfri sælli veröld, taktu þá á móti mér með þín sálarkeröld. Eflaust mun amma taka á móti afa og mikið held ég að þau verði ánægð að hittast á ný. Alltaf var gott að koma til afa og fá hjá honum suðusúkkulaði eða konfekt. Afi þurfti alltaf að Fæddur 15. febrúar 1930 Dáinn 18. febrúar 1990 í dag verður til grafar borinn frá Garðakirkju Geir M. Jónsson kjötiðnaðarmeistari. Hann fæddist á Eskifirði 15. febr. 1930, sonur hjónanna Marenar Jónsdóttur og Jóns Guðnasonar verkamanns. Föð- ur sinn missti hann sjö ára og var þá tekinn í fóstur af föðurbróður sínum, Sveini Guðnasyni ljósmynd- ara, og konu hans, Gerðu Kristjáns- dóttur. Um fermingaraldur fluttist hann með þeim til Reykjavíkur, þegar fóstri hans settist þar að dg gerðist starfsmaður Trygginga- stofnunar ríkisins. Skömmu síðar hóf Geir matreiðsl- unám hjá Axel Mogensen og vann að því loknu sem matreiðslumaður á skipum og víðar. Síðar hóf hann nám í kjötvinnslu hjá Sigurði Steind- órssyni hjá Sláturfélagi Suðurlands og varð meistari í þeirri iðn. Hjá félaginu vann hann svo í þrjátíu ár, uns heilsan brást fyrir ári. Geir var vel metinn í hópi starfs- félaga sinna og um skeið formaður í félagi kjötiðnaðarmanna. Nokkuð sinnti hann stjórnmálum og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Al- þýðuflokkinn og Oddfellowa. Geir kvæntist árið 1958 Maríu Gestsdóttur frá Giljum í Hálsasveit, hinni ágætustu konu. Bjuggu þau fyrst á Miðsandi á Hvalfjarðar- strönd, en fluttu síðan til Reykjavík- ur. Síðustu tuttugu árin hafa þau búið í Garðabæ. Þeim Maríu og Geir varð fimm eiga eitthvað smáræði til að gefa þeim sem komu í heimsókn. Það var hugurinn sem fylgdi gjöfinni sem var svo mikilsverður að mínu mati. Afi var góður maður og reyndi að finna það góða í hveijum manni. Hann vildi engum illt gera. Hin síðari ár, eftir að ég flutti til Reykjavíkur og hann fór á dvalar- heimili, hélt ég alltaf sambandi við hann. Ailtaf þegar ég fór til Akur- eyrar var heimsókn til afa Tryggva efst á blaði. Ég man að eitt sinn er ég og Inda systir sátum á rúm- stokknum hjá honum, fór hann með vísur sem hann hafði samið um hina ýmsu menn og konur. í þessum vísum var sterk tilfinning og mikið spaug. Við lofuðum hon- um því að segja engum frá þessum vísum. Þetta var leyndarmál okkar þriggja. Svona var hann afi Tryggvi, indæll og góður gamall maður. Þegar ég kom síðast til Akureyrar, í desember, heimsótti ég hann í síðasta skiptið. Hann hafði frétt af því að ég væri að koma og vildi fá nákvæmlega að vita hvenær ég kæmi í heimsókn. Þegar ég kom til hans var hann hálfsofandi en ég settist á rúmið hjá honum, sagðist vera komin og barna auðið og eru þau þessi: Þóra Gerða hjúkrunarfræðingur, nú bú- sett í Danmörku, gift Sigurði Inga Gunnlaugssyni verkfræðingi; Hrönn, búsett í Bandaríkjunum, gift Charles Stout Ijósmyndara; Jón tré- smiður, búsettur í París og kvæntur þarlendri konu, Armelle Godene viðskiptafræðingi; yngstir eru Gest- ur háskólanemi og Sveinn við fram- haldsskólanám, báðir í foreldrahús- um. Kynni okkar Geirs hófust þegar hann kvæntist frænku minni og á þau hefur engan skugga borið, heldur hafa þau aukist og treyst eftir því sem árin liðu, enda var hann valmenni og ótrauður að hjálpa upp á sakimar ef til hans var Ieitað. Það var alltaf hressandi að hitta Geir og spjalla við hann í gamni og alvöru um vandamál líðandi stundar eða jafnvel að ferð- ast með honum skringilegar stað- leysur handan raunveruleikans. Snar þáttur í fari Geirs var bjart- sýni á tilveruna og skemmtilegar hugdettur, sem ef til vill vora ekki alltaf að sama skapi raunsæjar, og var hann þó meiri staðfestumaður en margur kann að hyggja af laus- legum kynnum. Það var hressandi að rekast á Geir á fömum vegi, að fá hann í heimsókn eða sitja kvöld- stund á heimili þeirra hjóna og lofa huganum að flögra ekki síst um víðlendur landsins til fjalla, þar sem hann var víða gjörkunnugur. Þegar fundum okkar bar saman í síðasta sinn og hann orðinn helsjúkur, bragðum við á það gaman að ráð- gera sumarferð um fjalllendið norð- an Vatnajökuls. Þannig horfði hann bjartsýnn til framtíðarinnar þó kominn væri til efstu leita. Af þeirri ferð verður ekkert og kannski var hún bara helfró. Við áttum nokkrar slíkar ferðir sameiginlega og ég lít nú til baka til horfinna sumra, þar sem höfð voru uppi gleðimál og ef til vill dreypt á glasi í góðkunningja hópi. Nú þegar leið- ir skilur finnst mér að þessar stund- ir hafi verið helsti fáar. Um ævistarf Geirs er mér í raun- inni fátt kunnugt. Störf hans lágu fjarri mínum verkahring, og það var að baki hversdagslegra starfa, sem leiðir okkar lágu saman og þar sem þau vora látin liggja í lág- inni. En allt þykir rnér benda til þess, að Geir hafi verið traustur og vel metinn á sínum vettvangi, og vel gerði Sláturfélagið við hann, þegar heilsuna þraut og hann átti ekki annan kost en að leggja starfs- fan sínu í naust. í dag fylgjum við Sigrún góðum vini í hinstu för og þökkum sam- fylgdina. Mig granar að minningu hans muni oft skjóta upp í huga okkar, bjartri og hressilegri eins og notalegt að koma til þeirra, þau Afmælisdiktur: PETTA ER HÚN... „Dásamlegur dugnaðarforkur! " SIEMENS MK 4450 hrærivélin er engin venjuleg „hrærivél". Hún hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar, rífur, hakkar og sker - bæði fljótt og vel. Að hætti vestur-þýskra framleiðenda er hún einkar vel hönnuð. Létt, lipur, hljóðlát og kröftug. Jafnauðveldlega og að skipta um gír á vestur-þýskum sportbíl, skiptir þú henni úr hakkavél í hrærivél og í grænmetiskvörn upp í blandara. Hún^er draumaverkfæri í eldhúsinu. Fáðu þér (-eða gefðug^ ) fjölhæfan dugnaðarfork í eldhúsið. 13.750,- krónur er heldur ekki mikið verð fyrir þennan líka bráðlaglega dugnaðarfork. ítarlegur leiðarvísirog uppskrifta- hefti á íslensku fylgja með. j SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • Sími 28300 Geir M. Jóns- son — Minning hélt í hönd hans eins og alltaf. Þegar hann vaknaði kom smábros og hann spurði hvernig ég hefði það og hvað væri að frétta. Hann spurði hvort ég væri hamingjusöm og hvort mér liði ekki vel. Ég sagði það vera, þá kreisti hann hönd mína og sagði: „Haltu í hamingjuna." Svo sofnaði hann og svaf smástund. Þegar hann vakn- aði aftur sagðist ég þurfa að fara, bað hann um að hafa það gott og ef til vill hittumst við á ný. „Ekki á ég nú von á því,“ sagði hann. í þetta sinn var hann sannspár. Afi hefur nú fengið hvíld. Hann er farinn þangað sem við förum öll. Sorgin er alltaf mikil þegar ástvinur deyr en ég held að afi hafi verið hvíldinni feginn. Ég vil þakka afa Tryggva allar þær stundir sem ég átti með honum í gegnum árin, þær eru eftirminni- legar. Afí var góður afi. Fari elsku afi minn í friði. Ég votta Laufeyju, Fiddu, Kidda, pabba mínum, fjölskyldum þeirra, börnum og barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja okkur öll við fráfall afa Tryggva. Björk Jónsdóttir maðurinn var allur. En innilega samúðarkveðju viljum við senda eiginkonu hans, börnum, tengda- börnum og öðram aðstandendum. Haraldur Sigurðsson Kveðja frá Sláturfélagi Suðurlands Geir Marenó Jónsson starfaði hjá Sláturfélagi Suðurlands óslitið frá október 1959 til ágúst 1989, eða í tæp 30 ár. Eftir að hafa starfað sem nemi í kjötiðn hjá félaginu út- skrifaðist hann vorið 1962 og starf- aði sem kjötiðnaðarmaður í þess þágu allt til ársins 1974 er hann tók við stöðu verksmiðjustjóra í verk- smiðju Sláturfélagsins á Skúlagötu 20 í Reykjavík. Geir var meistari í sinni iðngrein og hefur hann á ferli sínum skrifað uppá 62 sveinsbréf kjötiðnaðarmanna sem hafa lært kjötiðn undir hans handleiðslu. Það lætur nærri að sé um þriðjungur starfandi kjötiðnaðarmanna hér- lendis. Geir hefur jafnframt gert náms- samninga við mun fleiri lærlinga sem annaðhvort hafa ekki lokið námi eða hætt. Það einkenndi störf Geirs og starfsferil hversu umhugað honum var um velferð fyrirtækisins og starfsfólks þess. Hann tók m.a. að sér að vera fararstjóri í ferðalög- um á vegum starfsmannafélags fyrirtækisins í mörg ár og var mikill áhugamaður um ferðalög og mjög fróður um hina ýmsu staði. Ferðir þessar stuðluðu ekki hvað síst að því að auka samheldni meðal starfsfólksins. Þrátt fyrir heilsubrest hin síðari ár sinnti Geir starfi sínu af sam- viskusemi og trúmennsku og sýndi fádæma baráttuþrek í veikindum sínum. Hann er tvímælalaust einn af þeim mönnum sem markað hafa hvað dýpst spor í sögu Sláturfélags- ins og stuðlað að farsæld þess og virðingu. Sláturfélag Suðurlands þakkar Geir vel unnin störf í þágu félagsins og vottar eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og öðrum aðstand- endum samúð. Steinþór Skúlason, forstjóri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.