Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á ísafírði: Ólafiir Helgi Kjart- ansson í efsta sæti ísafirði ÓLAFUR Helgi Kjartansson skattstjóri varð efstur í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins til bæjarstjórnarkosninga hér á íafirði, sem fram fór um helgina. Ólafur hlaut 208 atkvæði í I. sæti, eða 76,7% greiddra atkvæða, alls hlaut hann 262 atkvæði, eða 96,6%. Alls voru 452 á kjör- skrá, 286 greiddu atkvæði, eða 63,3%. í öðru til þriðja sæti urðu Hans Georg Bæringsson málarameistari og varabæjarfulltrúi og Sigrún C. Halldórsdóttir skrifstofustjóri. Þau hlutu 72 atkvæði í 1. til 2. sæti. Hans hlaut 230 atkvæði í heild og Sigrún 189. I fjórða sæti varð Einar Garðar Hjaltason framkvæmdastjóri og varabæjarfulltrúi. Hann hiaut 162 atkvæði í 1. til 4. sæti og alls 230 atkvæði. í fímmta sæti varð Helga Sig- mundsdóttir með 129 atkvæði í 1. til 5. sæti og sjötti varð Kristján Kristjánsson með 135 atkvæði í 1. til 6. sæti. Úrslit prófkjörsins eru bindandi fyrir þá sem fengu atkvæði meira en helmings kjósenda, þar sem þátt- taka var yfír 50% af kjörskrá. Fimm efstu hlutu bindandi kosningu. Stefnt er að því að framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjar- Fundað um Fossvogsdal SAMTÖKIN „Líf í Fossvogsdal" halda fund í safhaðarheimili Bústaðakirkju í dag, þríðjudag, klukkan 20.30. Fundarefhi er skýrslan „Athugun á skipulagi í Fossvogsdal—forkönnun“, sem unnin var fyrir Skipulagssljórn ríkisins af líffræði-, raunvísinda- og verkfræðistofnun Háskóla Islands. í skýrslunni eru teknir fyrir ýmsir þætti, s.s. Fossvogsdalur með eða án brautar, höfuðborgar- svæðið með eða án Fossvogs- brautar, lífríkið í Fossvogsdal og loftmengun í Reykjavík og Foss- vogsdal. Sérfræðingar háskólans mæta á fundinn og kynna skýrsl- una. Síðan verða umræður um ýmis atriði hennar. Þá kemur skipulagsstjóri ríkisins á fundinn. í frétt frá samtökunum „Líf.í Fossvogsdal" segir, að á fundinum skýrist hvert stefni í umræðunni um hraðbraut um Fossvogsdal. Stjóm samtakanna hvetji dalbúa og aðra áhugamenn um umhverf- ismál og framtíð Fossvogsdals til að mæta á fundinn og kynna sér málin. stjómarkosningarnar í vor verði til- búinn innan hálfs mánaðar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú fjóra bæjarfulltrúa af níu. Tveir nú- verandi bæjarfulltrúa gáfu ekki kost á sér í prófkjörinu, þau Árni Sigurðs- son og Geirþrúður Charlesdóttir. Úlfar Fulltrúar Sambandsnefíidar námsmanna á blaðamannafundinum í gær. Á myndinni eru talið frá vinstri: Arnar Már Ólafsson, BÍSN, Viktor B. Kjartansson, SHÍ, Jónas Fr. Jónsson, formaður Stúdentaráðs, Ólafur Loftsson, BÍSN, og Páll Þórhallsson, SÍNE. Námsmenn krefja menntamálaráðherra svara; IJ msaniin hækkun námslána 1. janúar ekkí framkvæmd HÆKKUN námslána um 6,4%, sem koma átti til framkvæmda 1. janúar sl., samkvæmt samkomulagi menntamálaráðherra og náms- manna frá síðasta ári, hefúr af hálfú menntamálaráðherra verið fre- stað um óákveðinn tíma. Á blaðamannalundi, sem Samstarfsnefíid námsmanna efndi til vegna þessa í gær, kom fram, að námsmenn hafa undanfarnar átta vikur staðið í viðræðum við Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, um þessi mál. Þar sem ekkert hefði að þeirra mati komið út úr viðræðunum hefði verið tekin sú ákvörðun að krefja ráðherra opinberlega svara. Menntamálaráðherra segir að hann sé mjög undrandi á þessum ummælum námsmanna. Þeir hefðu sjálflr sagt að eðlilegt væri að hinkra við með þessa hækkun. Skapa þyrfti víðtæka samstöðu um þessi mál en ekki draga þau niður í „flokkspólitískt svað“. Jónas Fr. Jónsson, formaður Stúdentaráðs, minnti á blaða- mannafundi námsmanna á, að í lög- um um Lánasjóð íslenskra náms- manna væri kveðið á um, að upp- hæð námslána ætti að nægja fyrir eðlilegum náms- og framfærslu- kostnaði. Námslán hefðu aftur á móti verið skert um 20% á árunum 1985-86. Svavar Gestsson, sem á þeim tíma hefði verið óbreyttur þingmaður, hefði barist hart gegn þessari skerðingu. Hefði hann m.a. sagt það vera skilyrði fyrir stjómar- samstarfi af hálfu Alþýðubanda- lagsins að lögunum um námslán yrði fylgt. Eftir að Svavar tók við embætti menntamálaráðherra í september 1988 hefði vinnuhópur verið settur á stofn er fjalla skyldi um leiðrétt- ingu á skerðingunni. Niðurstaða þess hóps hefði verið, að skerðingin skyldi bætt í þremur áföngum. Fyrsta áfangahækkunin, 7,5%, skyldi koma til framkvæmda þann 1. mars 1989, önnur, 5,0%, þann 1. september og sú þriðja, sem nema ætti 6,4%, þann 1. janúar 1990. Fyrstu tvær hækkanirnar hefðu gengið eftir, sagði Jónas Frið- rik, en sú þriðja ekki. Sögðust námsmenn hafa fengið loðin svör frá ráðherra eí þeir kröfðu hann skýringa. Fulltrúar námsmanna sögðu á fundinum að þeir hefðu skilning á því að staða efnahagsmála væri erfið þessa dagana. Hefðu náms- menn því lagt til við menntamála- ráðherra að hækkunin þyrfti ekki öll að koma til framkvæmda 1. jan- úar sl. heldur gæti komið í áföng- um. Lögðu námsmenn fram tillögur í þessa átt. Ráðherra hefði í fyrstu lýst yfir ánægju með þær en það næsta sem námsmenn hefðu heyrt frá honum væri að til stæði að skerða framlag til LÍN um 45 m.kr. Því hefði þó tekist að afstýra. í lok fundarins sagði formaður Stúdentaráðs að námsmenn litu svo á að boltinn væri nú í höndum menntamálaráðherra. Hann hefði hið pólitíska vald og þyrfti að gera það upp við sig hvort hann vildi standa við það samkomulag við námsmenn, sem gert var fyrir ári síðan, eða ekki. Svavar Gestsson, menntamála- ráðherra, sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann væri undrandi á ummælum námsmanna á blaða- mannafundinum og í fréttatilkynn- ingu þeirri sem þeir hefðu sent út. Fulltrúar námsmanna hefðu sjálfír sagt að eðlilegt gæti verið að bíða með þessa hækkun í einhvern tíma. Hann sagði að menn ættu líka að hafa það í huga að kaupmáttur námslána hefði hækkað um 12% á síðasta ári en kaupmáttur launa hefði á sama tíma lækkað um 10%. Taldi ráðherra að staðið hefði verið við þau fyrirheit sem gefin hefðu verið að mestu. Nú væri verið að vinna að heildarendurskoðun námslána og yrði þeirri endurskoð- un væntanlega lokið í mars. Vildi ráðherra ekki tjá sig um möguleika þess að 6,4% hækkunin kæmi til framkvæmda á þessu ári. Hafiiaríjörður: Skuldír bæjarins eru um 190 milljónir - segir Guðmundur Arni Stefánsson bæjarstjóri HAGVIRKIHF Árshátíð Hagvirkis sem vera átti 3. mars verður frestað til 31. mars vegna fráfalls Óskars Jónssonar. S F H Starfsmannafélag Hagvirkis hf. g jg HAGVIRKI HF VERKTAKAR VERKHÖNNUN Hafnarfjarðarbær skuldar samtals um 848,1 milljón í langtíma- og skammtímaskuldum en þegar útistandandi kröftir bæjarsjóðs hafa verið dregnar frá skuldum er nettóskuld eða raunskuld bæjar- ins um 190 milljónir, að sögn Guðmundar Árna Stefánssonar bæjar- sljóra. Hann segir að þessi skuld nemi um það bil 10% af heildar ársveltu bæjarins. „Ófrægingarherferð Sjálfstæð- ismanna á hendur eigin bæjarfé- lagi er algerlega með ólíkindum,“ sagði Guðmundur Árni Stefánsson við Morgunblaðið. „Þeir skirrast augljóslega einskis í árásum sínum á bæjaryfirvöld og jafnvel þó það sé fólskuleg árás á eigið bæjarfé- lag í leiðinni. Því er haldið fram að fjárhagur Hafnarfjarðarbæjar sé á heljarþröm. Það eru slík öfug- mæli að engu tali tekur og talnale- ikir og blekkingar sem þeir við- hafa eru einnig takmarkalaus. í bráðabirgðauppgjöri, sem bæj- arendurskoðandi hefur tekið sam- an, eru tölur sem segja hina réttu . sögu. Veltufjármunir, það er skammtíma kröfur bæjarsjóðs, eru rúmar 643,9 milljónir og langtíma kröfur eru 12,1 milljón. Útistand- andi kröfur á viðskiptamenn, sem að stórum hluta innheimtist á1 þessu ári, eru því 656 milljónir. Skuldir á móti eru skammtíma- skuldir 312,7 milljónir og langtímaskuldir eru 535,3 milljón- ir. Skuldir samtals hjá Hafnar- fjarðarbæ eru því 848,1 milljón. Þegar peningaleg eign bæjarsjóðs um áramót er dregin frá útistand- andi skuldum, er nettóskuld eða raunskuld bæjarsjóðs um 190 milljónir," sagði Guðmundur. „Ég sé að oddviti Sjálfstæðis- flokksins kannast ekki við hugtak- ið nettóskuld. Það er undarlegt hjá manni sem stendur sjálfur í rekstri fyrirtækja en það er sú viðmiðunartala, sem sveitarstjórn- armenn þekkja allir. Það er það viðmiðunarhugtak sem sérstök nefnd á vegum félagsmálaráðu- neytis notar þegar könnuð er raun- veruleg fjárhagsstaða sveitarfé- laga. Þessi nettóskuld, sem er inn- an við 200 milljónir króna, er um það bil 10% af heildar ársveltu bæjarins og 'A af öllum fram- kvæmdum síðasta árs, sem þýðir í raun að skuldir Hafnarfjarðar- bæjar má greiða upp á örskömm- um tíma að öllu leyti ef um það er tekin ákvörðun. Það er auðvitað ekki gert því við erum að ráðast í mannvirkjagerð og framkvæmd- ir, sem eiga að standa áratugum saman og eðlilegt er að greiða fyrir slíkt á einhverjum árafjölda. En þetta allt leiðir af því að Hafn- arfjarðarbær stendur styrkum fót- um fjárhagslega og ég fullyrði að er með sterkustu bæjarfélögum á landinu. Það vekur sérstaka athygli að þetta skyndiupphlaup Sjálfstæðis- manna hér í bæ, ber upp á sömu helgi og Alþýðuflokksmenn hafa prófkjör sitt. Mörgum bæjarbúum dettur ekki annað í hug en að hér sé á ferðinni einhverskonar mis- heppnuð tilraun til eyðileggingar á prófkjöri Alþýðuflokksins. Sú tilraun tókst ekki, tilraun þeirra til að ófrægja eigin bæ mun held- ur ekki takast,“ sagði Guðmundur Árni Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.