Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 ■ CANAVERALHÖFÐA Geimskoti bandarísku geimfeijunn- ar Atlantis var frestað í gær, fimmta daginn í röð. Að þessu sinni olli slæmt veður frestuninni en und- anfarna daga hefur geimskoti verið frestað ýmist vegna bilana eða veð- urs. Leynd hvílir yfir för Atlantis sem farin er á vegum bandaríska vamarmálaráðuneytisins. Hermt er að fimm geimfarar verði í áhöfninni og að hlutverk þeirra verði að koma njósnahnetti á braut um jörðu. ■ VARSJÁ - Moshe Arens, ut- anríkisráðherra ísraels, kom í gær til Póllands og er tilgangur heim- sóknar hans að endurnýja stjórn- málasamband ríkjanna. Pólveijar sluitu því 1967 og sagði málgagn pólsku stjórnarinnar í gær að sú ákvörðun hafi verið alvarleg mistök. ■ MÍLANÓ - Paolo Pillitteri borgarstjóri Mílanó og Carlo Togn- oli íþróttamálaráðherra Italíu skýrðu frá því á laugardag að Ital- ir myndu sækja um að halda Ólympíuleikina aldamótaárið 2.000 í Mílanó. Hugsanlegt yrði að ein- hveijar keppnisgreinar færu fram í nágrannaborgunum Genua og Toríno, ef ítalir hrepptu hnossið. t góðrar og hagnýtrar þekkingar á stuttum tíma. Námskeiðin styrkja hcefni starfsmanna og stuðla til muna að betri nýtingu vinnutíma. Helstu þættir, aðferðir og hjálpartæki fjármálastjórnunar verða kynntir á einfaldan og aðgengilegan hátt. Meðal námsefnis má nefna rekstrar- og fjárhagsáætlanir, undirstöðuatriði bókhalds og helstu hugtök I fjármálastjórnun, samanburð á bók- haldsniðurstöðum og áætlunum, mat á arðsemi fjárfestinga, lestur og túlkun árs- reikninga og leiðir til fjármögnunar fyrirtækja. 40 STUNDIR, MANUDAGA OG MIÐVIKUDAGA KL. 16-19 FRÁ 5. MARS TIL 11. APRÍL n Markmið námsins er að gefa stjórnendum í framleiðslufyrirtækjum betri heildarmynd yfir framleiðsluferlið og að ná sterkari tökum á framleiðslunni til að auka hagkvæmni hennar, gæði og verðmæti. Námið er ætlað forstöðumönnum, framkvæmdastjórum, deildarstjórum, framleiðslustjórum og lagerstjórum hjá iðnfyrirtækjum, þjónustufyrir- tækjum og byggingaverktökum. 60 STUNDIR, ÞRIÐJUDAGA OG FIMMTUDAGA KL. 16-19 FRÁ 1. MARS TIL 8. MAÍ HK I 8 j'J D £> í Námið er ætlað stjórnendum og öðrum málsvörum fyrirtækja og stofnana. Pví er ætlað að leiðbeina um samskipti við fjölmiðla, hvernig skapa megi jákvæða ímynd og hvaða leiðir eru færar í þeim efnum. Sérstaklega verður farið í hvernig nota má fjölmiðla til að halda ímynd fyrirtækis eða stofnunar á lofti, með auglýsingum, frétta- tilkynningum, greinaskrifum, ráðstefnum, kynningum, o.s.frv. 50 STUNDIR, ÞRIÐJUDAGA OG FIMMTUDAGA KL. 16-19 FRÁ 6. MARS TIL 26. APRÍL A J i jl j’jI 1 © Hvatning til skipulagðra vinnubragða. Meginefni námskeiðsins er: samskipti á vinnustað, bréfaskriftir, skjalavistun, skipu- lagning vinnu og vinnuumhverfis, starfssvið ritara, kynning á ritvinnslu og möguleik- um tölvunnar. 12 STUNDIR, KL. 8:30-12:30, DAGANA 5., 6. og 7. MARS f t £5 3 J 1\ L A O Á námskeiðinu er kynnt hvernig gera skal og ganga frá helstu útflutningsskjölum. Farið verður yfir helstu afhendingarskilmála (Incoterms) auk greiðsluskilmála, svo sem opnun bankaábyrgða. Þátttakendur leysa verkefni þar að lútandi til að öðlast hagnýta verklega þekkingu. 18 STUNDIR, KL. 9:00-15:30 í ÞRJÁ DAGA Nánari upplýsingar um námskeiðin fást hjá Stjórnunarfélagi Islands í síma 62 10 66. Stjómunarfélag íslands Ánanaustum 15, 101 Reykjavík Reuter Brandt í Leipzig Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, var hylltur á úti- fundi í Leipzig um helgina. Brandt sat flokksþing jafnaðarmanna í Austur-Þýskalandi og þar var hann kjörinn heiðursformaður á laugar- dag. Þá vegtyllu hefur hann þegar hlotið hjá vestur-þýskum jafnaðar- mönnum. Skoðanakannanir benda til að jafnaðarmenn vinni kosning- ar í Austur-Þýskalandi 18. mars næstkomandi. Á flokksþinginu lögðu þeir fram sameiningaráætlun sem felur í sér að nefnd þingmanna frá báðum ríkjum komi saman til að gera nýja stjórnarskrá í anda vestur-þýsku stjómarskrárinnar. Síðan yrðu greidd atkvæði um hana í báðum ríkjunum. Samið við breska sjúkrabílslj óra St. Andrews, frá Gudmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SAMIÐ var við sjúkrabílstjóra sl. föstudag eftir margra mánaða átök. Algert verkfall hófst í gær hjá sjúkrabílstjórum í Liverpool, en talið er að samningurinn verði samþykktur. Átök hafa staðið á milli heilbrigð- isyfirvalda og sjúkrabílstjóra síðan í apríl á síðasta ári. Yfírvinnubann hefur staðið lengi, sums staðar hafa þeir neitað að sinna neyðarútköllum nú um nokkurt skeið og á stöku stað vildu þeir sjálfir reka sjúkra- bílana. Sums staðar hafa sjúkrabíl- stjórar farið í algert verkfall um tíma. Sums staðar hefur herinn séð um sjúkraflutninga undanfarna mánuði. Samningamenn sjúkrabílstjóra hafa ekki viljað grípa til algerrar vinnustöðvunar. Þeir töldu, að verk- fall myndi espa almenning gegn sjúkrabílstjórum, en þeir hafa notið mikillar, víðtækrar samúðar og stuðnings. Þessi átök eru talin hafa skaðað stjórnvöld vegna þess víðtæka stuðnings, sem málstaður sjúkrabíl- stjóra naut. Samið var um nokkru meiri kaup- hækkanir en áður höfðu verið í boði. Samningamenn sjúkrabíl- stjóra hafa hvatt félagsmenn sína til að samþykkja samninginn og segja hann þýða yfir 17% kaup- hækkun á tveimur árum og fyrir suma ríflega 19%. Sjúkrabílstjórar höfðu einnig krafizt þess, að í framtíðinni fengju þeir sjálfkrafa kauphækkanir til jafns við aðra og tengdust slökkvi- liðsmönnum og lögreglu. Yfirvöld féllust ekki á þessa kröfu. Sjúkrabílstjórar í Liverpool sam- þykktu fyrir helgi að fara í verk- fall, sem hófst i gær, mánudag. Talið er, að samningurinn verði víðast hvar samþykktur, en með litlum mun. Verði hann ekki sam- þykktur, er fyrirsjáanlegt að átök munu standa fram eftir þessu ári. Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu um hann verður kunn um miðjan marz. Ná bandarísk verð- bólgnáhiáf til íslands? Flórida. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SAMKVÆMT skýrslum opinberra tqlfræðistofnana í Bandaríkjunum voru almennar neysluvörur þar í landi 1,1% dýrari í janúar en í desember. Er þetta mesta hækkun á einum mánuði sem orðið hefur frá því í júní 1982. Mestan þátt í hækkuninni átti stöðugt hækkandi verð á matvælum og eldsneyti. En þó horft sé fram- hjá þeim, voru hækkanir á öðrum hlutum meiri en þau 0,6% sem opin- berar stofnanir reiknuðu með. Hagfræðingar telja þó enga hættu á nýrri verðbólguöldu og segja að sl. janúarmánuður sé mjög misvísandi um raunverulega þróun. Óvenjulegt kuldakast hafi eyðilagt uppskeru í Florída og valdið óeðli- legri eldsneytisnotkun í flestum ríkjum Bandaríkjanna, sem hafi leitt til stórhækkaðs verðs á elds- neyti, einkum á olíu til húshitunar. Þegar það sé liðið hjá og ný upp- skera komi á markaðinn um næstu mánaðamót muni verð á neysluvör- um aftur lækka. En verðhækkanirnar munu hafa áhrif víðar en í Bandaríkjunum, m.a. á íslandi. Verð á ávöxtum og grænmeti hækkaði um 10,2% í Bandaríkjunum í janúar. Olía til húshitunar hækkaði að meðaltali um 26,9%, og gasolfuverð hækkaði um 7,7%. Hvorutveggja hækkunin stafaði af fimbulvetrinum í desem- ber. Þó sérfræðingar hafi almennt ekki trú á því, að ný verðbólgualda sé yfirvofandi, hafa sumir þeirra áhyggjur af því að verðbólga skuli heldur ekki hjaðna en 4,6% verð- bólga hefur verið í Bandaríkjunum tvö síðustu árin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.