Morgunblaðið - 27.02.1990, Síða 21
'4 010
1 •
’K
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990
21
Kanslari Vestur-Þýskalands hittir Bandaríkjaforseta:
Kohl ítrekar fyrri afstöðu
til landamæra Póllands
Washingfton. Bonn. Daily Telegraph. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, gaf ekki skýra yfir-
lýsingu um helgina um að sam-
einað Þýskaland myndi virða
núverandi vesturlandamæri Pól-
lands. Hermt er að George Bush
Bandaríkjaforseti hafí lagt hart
að Kohl að viðurkenna landa-
mærin á fundi þeirra um helgina
í Camp David, sveitasetri forset-
ans. Kohl sagði á sameiginlegum
fréttamannafundi með Bush á
sunnudag að endanleg afstaða til
landamæranna yrði mótuð af lýð-
ræðislega kjörnu þingi samein-
aðs Þýskalands.
Kohl sagði að hann bæri virðingu
fyrir afstöðu Pólveija í þessu máli.
„Enginn hefur í hyggju að tengja
sameiningu þjóðarinnar við breyt-
ingar á núverandi landamærum."
Kanslarinn gaf til kynna að hann
gæti ekki talað fyrir munn Austur-
Þjóðveija en sagði að vestur-þýska
þingið hefði þegar lýst því yfir að
landamærunum yrði ekki haggað.
A blaðamannafundinum sagði Bush
að orð Kohls væru „á engan hátt
tvíræð“. Bush sagði einnig að ekki
kæmi til greina að Pólveijar ættu
aðild að viðræðum fjórveldanna,
Bretlands, Frakklands, Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna, við
þýsku ríkin um framtíð Þýskalands.
Kohl og Bush ítrekuðu þá afstöðu
sína að sameinað Þýskaland yrði í
Atlantshafsbandalaginu. Bush
sagðist sjá fyrir sér að bandarískir
hermenn yrðu í vesturhluta samein-
aðs Þýskalands á meðan Sovétmenn
kölluðu her sinn heim frá austur-
hiuta landsins. Með því að tala um
“„hernaðarlega sérstöðu“ þess svæð-
is sem nú tilheyrir Austur-Þýska-
landi virtist Bush einnig taka undir
hugmyndir Hans-Dietrichs Gensch-
ers utanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands um að herir NATO
færu ekki austur yfir Saxelfi sem
skilur þýsku ríkin að.
Málgagn pólskra stjórnvalda,
Rzeczpospolita, sagðist í gær harma
niðurstöðu viðræðna Bush og Kohls
og sagði að ekki hefði verið komið
til móts við kröfur Pólveija. Kohl
var gagnrýndur heima fyrir í gær
fyrir afstöðu sína. Hildegard
Reuter
Það fór vel á með George Bush Bandaríkjaforseta og Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands, um borð í golfvagni forsetans á Camp
David-sveitasetrinu á laugardaginn.
Hamm-Briicher, talsmaður Fijálsra
demókrata, samstarfsflokks Kristi-
legra demókrata, í utanríkismálum,
sagði að þolinmæði flokksins gagn-
vart Kohl væri á þrotum. Rita
Sussmuth, flokkssystir Kohls, for-
seti vestur-þýska þingsins og einn
vinsælasti leiðtogi Kristilegra
demókrata. hvatti til þess að þýsku
ríkin gæfu út sameiginiega yfirlýs-
ingu um pólsku landamærin áður
en til sameiningar kæmi. Hins veg-
ar hlaut Kohl lof frá Hartmut
Koschyk, leiðtoga Sambands brott-
rekinna, en þau samtök segjast tala
fyrir munn 10 milljón Þjóðveija sem
reknir voru til Þýskalands úr Aust-
ur-Evrópu eftir stríð.
mmm
DANFOSS % /
YEITHVADÞU VILT!
Mikii útbreiðsla DANFOSS otnhitastilla a
Islandi sýnir að þeir eru í senn nákvæmir og
öruggir.
Æ fleiri gera nú sömu kröfur til baðblöndun-
artækja og velja hitastilltan búnaö frá
DANFOSS.
Með DANFOSS næst kjörhiti á heimiiinu
Þú stillir á þægilegasta hitann í hverju her-
bergi og DANFOSS varðveitir hann nákvæm-
lega.
Og í baðinu ertu alltaf öruggur með rétta
hitann á rennandi vatni, ekki síst fyrir litla fólkið
þitt.
Aukin vellíðan, lœgriorkukostnaður.
= HEÐINN =
SELJAVEGI 2, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Enska er okkar mál
NÁMSKEIÐIN HEFJAST 7. MARS
INNRITUN STENDUR YFIR
FYRIR
MUNID
MERKJASÖLUNA
RAUÐI KRQSS ÍSLANb'l
FULLORDNA
7 VIKNA ENSKUNÁMSKEIÐ
7 VIKNA ENSKAR BÓKMENNTIR
7 VIKNA RITUÐ ENSKA
5 VIKNA UMRÆÐUHÓPAR
FYRIR FÓLK Á
VIÐSKIPTASVIÐI
(ATH. FÁMENNIR HÓPAR)
7 VIKNA VIÐSKIPTAENSKA
ó VIKNA SKRIFSTOFU- OG RITARAENSKA
3 VIKNA SÍMAENSKA
FYRIR BORW
7 VIKNA STUÐNINGSNÁMSKEIÐ
FYRIR 9. BEKK.
LEIKSKÓLI FYRIR BÖRN 3-5 ÁRA
3 VIKNA SUMARSKÓLI 7-13 ÁRA
í JÚNÍ.
SER-
NÁMSKEID
7 VIKNA UNDIRBÚNINGUR FYRIR
T.O.E.F.L.
7 VIKNA BRETLAND - SAGA -
MENNING - FERÐALÖG
3 VIKNA HRAÐNÁMSKEIÐ í MAÍ.
EINKATÍMAR EFTIR SAMKOMULAGI.
Ensku Skólinn
TÚNGATA 5, 101 REYKJAVIK
HRINGDU í SÍMA
25330/25900
OG KANNAÐU MÁLIÐ