Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík FlaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Andvirði milljarðar króna fleygt / • / • n í sjoinn: 53.000 tonnum af bolfiski var fleygt fyrir borð á físki- skipaflota okkar árið 1989, samkvæmt könnun meðal sjó- manna, sem SKÁÍS hefur unn- ið fyrir Kristinn Pétursson, alþingismann. Verðmæti þess afla, sem fleygt var, gæti num- ið langleiðina í einn milljarð króna. Það munar um minna, ekki sízt í samdráttarári í þjóð- arbúskapnum. Helft þess bolfisks, sem tal- ið er að hent hafi verið fyrir borð, samkvæmt þessari könn- un, var þorskur, mest undir- málsfiskur og slakur netafisk- ur. Einnig er talið, að tölu- verðu hafi verið hent af karfa, ufsa og ýsu og reyndar fleiri nytjafiskum. Við sögu koma skuttogarar, vélbátar og smá- bátar. I svörum sjómanna, sem þátt tóku í könnuninni, kemur fram, að meginorsök þess að veiddum fiski er hent í hafið er talin vera „þröngar skorður kvótakerfisins“. í sumum til- fellum virðast sjómönnum að- eins tvær leiðir færar, að henda afla eða fá sekt fyrir að koma með hann að landi. Kristinn Pétursson segir enga lausn einfalda á þessu vanda- máli. Það megi þó af niður- stöðu könnunarinnar læra „að taka beri undirmálsfisk og gallaðan netafisk út úr kvóta . .. Það er ljóst að fiskveiði- stjórnunin hefur brugðizt, ekki sjómennirnir,“ segir Kristinn. Deilt er á stundum um áreiðanleika kannana. Þær tíunda ekki alla fleti rannsókn- arefna eða segja allan sann- leika. Þær eru á hinn bóginn nokkur vísbending,_ þegar rétt er að þeim staðið. í jafn stóru máli og hér sýnist um fjallað hlýtur að vera mikilsvert að fá fram álit þeirra sem gerst til þekkja; þeirra sem sækja björgina í sjávardjúp. Það kemur því á óvart, þegar hag- fræðingur Landssambands íslenzkra útvegsmanna „harm- ar að Kristinn Pétursson skuli fínna hjá sér hvöt til að sverta sjómenn og útvegsmenn í þeim tilgangi," eins og haft er eftir honum hér í Morgunblaðinu, „að ná sér niðri á kvótakerfinu með mjög vafasömum aðferð- um.“ Framtak þingmannsins er frekar lofs en gagnrýni vert. Hann skjallar og sjómenn í orðum sínum en ekki hið gagn- stæða, þegar hann segir: „Menn neyðast til að fleygja fiski vegna þess hvað þröng- sýni er mikil í reglugerðum. Það er tvímælalaust hagur Landssambands íslenzkra út- vegsmanna, sjómanna og allr- ar þjóðarinnar að þetta mál sé rætt af hreinskilni. Sjómenn eins og ég þekki þá eru hrein- skiptnir og heiðarlegir menn og það kemur greinilega í ljós í þessari könnun. Ég held að þeir ætlist til að fólk, sem vinn- ur að lagasetningu um tak- mörkun á atvinnufrelsi manna, eins og er í þessu tilfelli, fjalli um málin af hreinskilni. Ég lít á það sem skyldu mína að koma hreint fram í þessu máli.“ Auðlindir sjávar eru óað- skiljanlegur hluti af lífskjör- um, velferð og efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Þær hafa hinsvegar nýtingarmörk, sem virða verður. Um það er ekki deilt. Það á að vera okkur kappsmál - nú og framvegis - að ná þeim afla, sem fiski- fræðilegar staðreyndir heim- ila, að tekinn sé úr nytjastofn- um hveiju sinni, og vinna í sem verðmætasta vöru með sem minnstum tilkostnaði. Það þarf að þróa veiðisókn og vinnslu aflans að þessum veruleika, eftir leiðum hagræðingar, framleiðni og arðsemi. Öll rök hníga að þessari nauðsyn: að- stæður í lífríki sj'ávar, fram- vindan á helztu mörkuðum sjávarvöru og lífsbarátta fólks- ins í landinu. Það samræmist hinsvegar ekki fiskifræðilegum rökum, ekki efnahagslegum rökum, ekki hagsmunarökum fólks eða fyrirtækja, að henda and- virði eins milljarðar króna í sjóinn, eins og umrædd könn- un leiðir líkur að, ef hægt er að haga málum með öðrum hætti. Þessvegna er niðurstaða hennar íhugunarefni, að ekki sé fastar að orði kveðið. Þess vegna er frumkvæði og fram- tak Kristins Péturssonar, al- þingismanns, af hinu góða - og algjörlega út í hött að setja það undir mæliker tortryggn- innar. Allt sem 'að fiskveiði- stjórnun lýtur þarf að vanda vel og taka mið að lærdómi reynslunnar. Samkomulag aflamiðlun og fiskverð Aflamiðlun taki að sér úthlutun útflutningsleyfa Eftirfarandi samkomulag' varð innan Verðlagsráðs sjávarútvegsins síðastliðinn sunnudag og það staðfest að utanríkisráðherra samdæg- urs. Samkomulagið felur í sér að Sigurbjörn Svavarsson, útgerðar- stjóri Granda hf. verður formaður nefiidarinnar: „Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa lýst því yfir að samkomulag seljenda og kaupenda um fiskverð geti tekist með því tilskildu að afla- miðlun með ferskan fisk verði kom- ið á. Til að greiða fyrir því að lausn, sem seljendur og kaupendur sætta sig við, fáist í þessu mikilvæga máli lýsa hagsmunaaðilar sig reiðu- búna að koma á fót aflamiðlun, sem hafi það hlutverk að greiða fyrir fiskviðskiptum innanlands og hafa eftirlit með og aðlaga útflutning á óunnum fiski nýtingu ferskfisk- markaða fyrir neyslufisk (sbr. reglugerð nr. 27 um útflutnings- leyfi o. fl. frá 11. jan. 1988). Aðilar málsins hafa komið sér saman um að eftirtaldir menn skipi stjórn afla- miðlunar (varamenn innan sviga): Ágúst Elíasson (Árni Benedikts- son), Óskar Þórarinsson (Sveinn Hjörtur Hjartarson), Sigurbjörn Svavarsson (Eiríkur Tómasson), Snær Karlsson (Guðmundur J. Guð- mundsson) og Sævar Gunnarsson (Benedikt Þór Valsson). Aðilar aflamiðlunar samþykkja að aflamiðlun taki að sér að úthluta útflutningsleyfum (þó ekki á vatna- fiski svo sem lax og silungi) enda muni utanríkisráðuneytið ekki veita önnur útflutningsleyfi á ferskum fiski. Þessu fyrirkomulagi verði komið á strax og þegar aflamiðlun, samkvæmt framangreindu, hefur verið stofnuð. Þetta fyrirkomulag verður endurmetið í byijun hvers árs með tilliti til þess, hvort breyt- inga er þörf í ljósi reynslu." Undir samkomulag þetta rita aðilar Verðlagsráðsins, Bjami Lúðvíksson, Guðjón A. Kristjáns- son, Magnús Gunnarsson, Óskar Vigfússon og Sveinn Hjörtur Hjart- arson, formaður ráðsins. Utanríkis- ráðherra staðfestir svo samkomu- lagið með undirskrift sinni og eftir- farandi orðum: „Utanríkisráðherra er samþykkur ofangreindu sam- komulagi og mun beita sér fyrir framkvæmd þess.“ Ágúst Elíasson er framkvæmda- stjóri Samtaka fískvinnslustöðva og Árni Benediktsson formaður Félags Sambands fiskframleiðenda. Óskar Þórarinsson er útgerðarmaður í Eyjum og Sveinn Hjörtur Hjartar- son starfsmaður LÍÚ. Sigurbjörn Svavarsson er útgerðarstjóri Granda hf. og formaður Útvegs- mannafélags Reykjavíkur og Eirík- ur Tómasson er útgerðarstjóri Þor- bjarnar í Grindavík og formaður Útvegsmannafélags Suðurnesja. Snær Karlsson er varaformaður Alþýðusambands Norðurlands og Guðmundur J. Guðmundsson er for- maður Verkamannasambands ís- lands. Sævar Gunnarsson er for- maður Vélstjóra- og sjómannafé- lags Grindavíkur og Benedikt Þór Valsson hagfræðingur Farmanna- og fiskimannasambands ísiands. Samkomulag um fískverð; Hækkun að meðaltali 3% og heimalöndunarálag ákveðið YFIRNEFND Verðlagsráðs sj’áv- arútvegsins náði á sunnudag samkomulagi um ákvörðun fisk- verðs. Ákvörðunin er tekin sam- hliða því að utanríkisráðherra staðfestir skipan í stj'órn afla- miðlunar og hún taki yfir út- flutning á ísuðum fiski. Jafii- framt er aflamiðluninni ætlað að greiða fyrir viðskiptum með físk innan lands. Fiskverð hækkar um 3% frá fyrsta janúar og heima- löndunarálag hefur verið ákveð- ið. Guðmundur J. Guðmundsson: Má segja að nú sé dagur vonar „ÉG LEGG áherzlu á, að samkomulag varð um skipan Sigurbjörns Svavarssonar sem oddamanns, ekki fulltrúa útgerðarmanna. Ég bind jafhframt miklar vonir við að með aflamiðluninni verði breyting á útflutningnum, því í óeíhi stefnir með fyrra fyrirkomulagi. Það verð- ur alltaf eitthvað af ferskum fiski flutt utan, en það getur ekki geng- ið að 40% af fískinum héðan fari til vinnslu ytra, bæði í Þýzkalandi og Bretlandi. Við getum ekki staðið að slíkum útflutningi sem er bein samkeppni við eigin fískvinnslu. Eigum við ekki bara að segja að nú sé dagur vonar,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Islands og varamaður í sljórn aflamiðlunarinn- Guðmundur segir að í mörgu hafi verið ábótavant stjórnun á þessum útflutningi og upplýsinga- miðlun um hann. Aðeins hafi tíðkazt að gefa upp brúttóverð fyrir aflann, ekki raunverð þar sem upplýsingum Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra: Sigurbjörn er ekki full- trúi LÍÚ „SIGURBJÖRN Svavarsson út- gerðarsljóri hjá Granda sem verð- ur formaður nefndarinnar ojg oddamaður er ekki fulltrúi LÍU. Samkomulag hagsmunaðilanna fjögurra um Sigurbjörn réði tiln- efhingu hans,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þegar Verkamannasamband ís- lands hafði fallist á að Sigurbjörn Svavarsson yrði oddamaður nefnd- arinnar, og verið fullvissað um það af öllum aðilum að hann væri ekki sérstakur fulltrúi LÍÚ þá gat ég fallist á þennan hátt mála,“ sagði utanríkisráðherra. Hann sagði jafnframt að yfir- stjórn aflamiðlunarinnar heyrði und- ir utanríkisráðuneytið þar til ný lög um stjórnarráðið hefðu verið sam- þykkt, en það yrði ekki á þessu þingi. um annan kostnað hafi verið haldið eftir. Hvergi hafi komið fram flutn- ingskostnaður, sölulaun, tollar og annar kostnaðaur við söiuna og ekki hafi kvótaskerðing verið reikn- uð inn í dæmið hvað þá heldur sigl- ingatími skipanna. Þá sé ékki hægt að sætta sig við það, að á sama tíma og hér vanti fisk til vinnslu séum við að standa undir fiskvinnslu í útlöndum. Stað- an sé þannig að erfitt sé að standa við eðlileg viðskipti með unnar sjáv- arafurðir á mörkuðunum vegna þess hve mikið fari óunnið utan og það sé jafnframt bezti fiskurinn valinn í útflutninginn. Það verði að miða þennan útflutning við markað fyrir fisk, sem áfram er seldur ferskur, ekki unninn, og gæta þess að ekki verði sett inná hann þvílíkt magn að verð kolfalli eins og allt of oft komi fyrir. Nú hafi tekizt merkir samningar um áiag vegna heimalöndunar, sem ásamt aflamiðluninni geti dregið verulega úr því misrétti, sem ríki milli sjómanna. í sumum tilfellum sé öllum afla landað heima, öðrum öllum ytra eða á innlendum mörk- uðum. Mikilvægt sé að samkomulag verði um báða þessa þætti og út- gerðarmenn fái ekki ráðið of miklu. Þeir segist eiga bæði fiskinn og miðin og telji menn vera að kássast upp á sig, þegar rætt sé um ráðstöf- un aflans. Það sé nú ekki svo ein- falt. Að auki segir Guðmundur að að sér sæki vaxandi tortryggni á frammistöðu stóru útflutningssam- takanna SH og Sambandsins. Þau standi sig ekki nógu vel hvað ný tækifæri varðar og því verði menn af möguleikum á aukinni verð- mætasköpun. Fiskverð þetta gildir til 30. nóv- ember á þessu ári og var ákveðið með atkvæðum fulltrúa fiskseljenda og fiskkaupenda en oddamaður sat hjá. Oddamaður yfírnefndar var Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, Sveinn Hjörtur Hjartarson var fulltrúi útgerðar- manna, en sjómenn tóku að þessu sinni ekki þátt í störfum yfirnefnd- ar. Fulltrúar kaupenda voru Bjarni Lúðvíksson og Magnús Gunnars- son. Ákveðið var heimalöndunarálag sem felur í sér að á hverju eftirtal- inna tímabila verði greitt sérstakt álag á þorsk, ýsu, ufsa, karfa .og grálúðu ef meiru en 70% af afla- magni tegundanna er ráðstafað beint til fiskkaupenda innan lands. Fyrsta tímabilið er frá fyrsta febrú- ar til loka maí, það næsta frá upp- hafi júní til ágústloka og það þriðja frá fyrsta september til 30. nóvem- ber. Álagið skal þannig fundið út, að Óskar Vigfósson: Niðurstaðan viðunandi „LAUSNIN á þessari erfíðu físk- verðsdeilu er í raun í samræmi við það, sem Verðlagsráðið hafði náð samkomulag um áður en ákvörðun var vísað til yfírnefhd- ar. Það þurfti að fiinda nærri 20 sinnum og niðurstaðan er viðun- andi miðað við aðstæður," segir Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannsambands íslands. Óskar segir að fískkaupendur hafi lagt mikla áherzlu á aflamiðlun- ina og ekki viljað samþykkja fisk- verð, fyrr en aflamiðlunin yrði stað- fest. Miðað við niðurstöðu þess máls, vissi hann ekki hvað menn hefðu verið að rífast um. Vonandi kæmi nefndin útflutningi á ísfíski í betra form en áður, að minnsta kosti væri nú stjórn útflutningsins aðeins á einni hendi. Óskar gat þess einnig að kjara- samningar sjómanna væru enn laus- ir, en deilunni hefði fyrir nokkru verið vísað til sáttasemjara. Vonandi fengist lausn á þeim málum innan tíðar, en sjómenn legðu mikla áherzlu á endurskoðun samtenging- ar olíuverðs og aflahluts. „Við höfum nú ekki fengið tækifæri til að tala við viðsemjendur okkar um kjara- málin í þrjú ár. Á þeim tíma hafa orðið miídar breytingar á útgerð og Sigurbjörn Svavarsson: Sama hvemig menn eru kynntir „Verðlagsráð sjávarútvegsins kom sér saman um lista með nöfnum fimm stjórnarmanna í aflamiðlunni. Skipan þessara manna var sani- þykkt af utanríkisráðherra og öllum hagsmunaaðilum. Mér er svo alveg sama hvernig menn eru kynntir í fjölmiðlum. Það breytir engu um að þetta hefur verið samþykkt. Aðalatriðið er að friður verði um stjórnina og framkvæmd aflamiðlunarinnar," sagði Sigurbjörn Sva- nýskipaður formaður stjórnar aflamiðlunar. synlegt að afla sér upplýsinga um það, hvernig að úthlutun hafí verið staðið, hvernig horfur séu á mörk- uðunum og svo framvegis. varsson, Sigurbjörn segir að fyrsti fundir stjórnarinnar verði næstkomandi miðvikudag og formlegt starf hefj- ist í næstu viku. Stjórnni sé nauð- „Við munum þurfa að ráða okkur starfsmenn, einn eða fleiri til að sjá um þessi mál, en þau hafa verið í höndum að minnsta kosti tveggja manna, annars í utanríkisráðuneyt- inu, hins hjá LÍÚ. Ráðuneytið hefur þegar úthlutað gámaleyfum fyrir þessa viku og úthlutar einnig fyrir þá næstu, en eftir það tekur afla- miðlunin við,“ sagði Sigurbjörn Svavarsson. sjómennsku og því tímabært að við tölum saman," sagði Óskar Vigfús- son. fyrir hvert 1% umfram 70% af afla- magni veiðiskips af ofangreindum físktegundum, sem ekki er ráðstaf- að á innlendum eða erlendum fisk- mörkuðum, skal greiða 0,4% álag á verð fiskitegundanna. Álagið skal greitt á allt aflaverðmæti ofan- greindra fiskitegunda, sem fisk- kaupandi kaupir af veiðiskipi. Því getur álag á fískverð mest orðið 12%. Fiskkaupandi og fiskseljandi skulu í upphafi hvers tímabils leit- ast við að ákveða hve miklum hluta af aflamagni veiðiskips af ofan- greindum tegundum skuli ráðstafað á innlendum og erlendum fiskmörk- uðum annars vegar og hins vegar beint til fískvinnslu. í samræmi við þá ákvörðun skal greiða álagið sam- hliða greiðslum fyrir aflann, en endanlegt uppgjör álagsins skal þó fara fram í lok hvers tímabils. Ráð- stöfun annarra fiskitegunda en til- greindar eru heful ekki áhrif á álagsgreiðslur þessar. I bókun frá ráðinu segir svo: „Verðlagsráð vill ítreka þann skiln- ing sinn að þessi verðákvörðun feli í sér 3% hækkun á lágmarksverði. Það er samkomulag aðiia að heima- löndunarálagið beri ekki að túlka þannig að það komi sem viðbótar- greiðsla ofan á áður umsamdar yfír- borganir á fiskverð. Þótt fulltrúar sjómanna hafí ekki formlega tekið þátt í störfum yfirnefndar að þessu sinni er þeim kunnugt um þessa túlkun og eru henni sammála.“ Sveinn Hjörtur Hjartarson: Tveir fulltrúar útvegsmanna „ÞAÐ getur ekki vafízt fyrir neinum, að í stjórn aflamiðlunarinnar eru tveir fulltrúar útgerðarinnar. Ég skil ekki hvers vegna einhver læti eru út af því, að þeir eru kynntir með réttum starfsheitum og titlum," segir Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, í samtali við Morg- unblaðið. Sveinn sagði, að samkomulag hefði orðið meðal hagsmunaaðila um skipan í nefndina og utanríkisráð- herra staðfest hana. Öllum, sem að málinu stæðu, væri ljóst að Sigur- björn Svavarsson væri útgerðarstjóri hjá Granda hf og formaður Útvegs- mannafélags Reykjavíkur. Það færi heldur ekki á milli mála að Óskar Þórarinsson væri útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, enda kosinn í nefndina af Útvegsbændafélaginu þar. Þá væri það jafnljóst að vara- menn þessara manna væru frá út- gerðarmönnum komnir. Sjálfur væri hann starfsmaður LÍÚ og Eiríkur Tómasson útgerðarstjóri Þorbjamar hf í Grindavík og formaður Útvegs- mannafélags Suðurnesja. „Meginmálið er að aflamiðlun er loksins orðin að veruleika og við höfum miklar væntingar um að hún muni skila starfi sínu eins og til var stofnað. Að betri skipan komist á þetta mál en undanfarin ár, þar sem samræming þessa útflutnings verður í höndum eins aðila,“ segir Sveinn Hjörtur. Athygli heimsins beinist að örlög- um Sovétríkjanna - segir Christopher N. Donnelly, sérfræðingur Atlantshafsbandalags- ins í málefiium Sovétríkjanna CHRISTOPHER N. Donelly, sérfræðingur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í málefiium Sovétríkjanna, flutti erindi á vegum Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu síöastliðinn laugardag. Hann sagði að ef hægt væri að Iíta á síðasta ár sem ár Austur-Evró- puríkjanna þá yrði 1990 ár Sovétríkjanna; þar myndu mikilvæg- ustu atburðirnir gerast þótt hann vildi engu spá um framvinduna að öðru leyti. Donelly lagði áherslu á þá hættu sem Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga stafaði nú frá æðstu yfírstjórn sovéska hersins sem teldi leiðtoganum hafa mistekist í flestu. Donelly hefur það hlutverk hjá NATO að reyna að selja sig inn í hugsunarhátt Sovétmanna, „hugsa eins og Sovétmaður" eins og hann orðar það. Hér á eftir fer útdráttur úr erindinu. Það er rangt að segja að Sov- étríkin ráði yfír hemaðarvél, þau em ein stór hemaðarvél og hafa verið frá stofnun ríkisins. Allt sem máli skiptir er miðað við þörfína á að veijast innri og ytri óvinum. Skelfíleg reynsla Sovétmanna úr seinni heimsstyijöld gerir þessa afstöðu reyndar að vissu marki skiljanlega. Mjög erfítt er að giska á hlut- fall herútgjalda af heildarútgjöld- um sovéska ríkisins. Fyrir skömmu var Sergej Akhromejev, fyrrum forseti sovéska herráðsins, í heim- sókn í aðalstöðvum NATÓ. Hann sagði þá að til væru þijár aðferðir við að reikna þetta út. Sú fyrsta væri aðferð Brezhnev-tímans, önn- ur væri aðferð glasnost-tímans, hin þriðja aðferð þeirra sem rót- tækastir væra og loks aðferð bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Sjálfur sagði Akhromejev og virtist tala í alvöru, að hann hefði mesta trú á niðurstöðu CLA sem áætlar að 15% til 19% af heildarút- gjöldum Sovétmanna fari í herinn. Sovétmenn hafa f reynd lítinn áhuga á viðræðum um niðurskurð flotastyrks. En þar sem NATO neitar að ræða málið reyna þeir sífellt að fítja upp á því, þeir reyna að finna veikan blett á andstæðing- unum eins og stjórnmálamenn gera ávallt. Sovétmenn telja mögu- legt að nota málið til að kljúfa samstöðu vestrænna ríkja. í sovéska herráðinu era 98% félaga rússneskir; fulltrúar ann- arra þjóða og þjóðabrota ráða þar engu. Um það eitt era æðstu ráða- menn sammála og þeir munu t.d. aldrei sætta sig við að múslimar verði með tímanum ráðandi afl í ríkinu vegna mikillar íjölgunar þeirra. Flestir sovéskir múslimar eru súnnítar og því hófsamari en shítamir í íran. Þess vegna er vart mikil hætta á að 50 milljónir sovéskra múslima sameinist í upp- reisn islams gegn Moskvuvaldinu. Hins vegar er trúin oft notuð sem sameiningartákn í þjóðemisbarát- tunni gegn Rússum. Urgnr í herráðinu Ljóst er að í herráðinu ríkir nú mikil og vaxandi óánægja með störf Gorbatsjovs. Þeir telja að hann hafí brugðist í leiðtogahlut- verkinu, það sé ekki þeirra hlut- verk að draga hann að landi, og þybbast við eftir bestu getu. Gorbatsjov hefur haft uppi stór orð um að draga saman seglin í vígbúnaðarmálum. Hann hefur lof- að Vesturveldunum að minnka vígtólaframleiðsluna en eftir sem áður er nýjum kafbátum stöðugt hleypt af stokkunum og skriðdrek- ar bruna af færiböndunum. Gorb- atsjov sagði á síðasta ári að allar eldflaugar með kjamahleðslum hefðu verið fjarlægðar frá landa- mærunum við Noreg. Norðmenn urðu nýlega varir við að þetta er rangt. Auðvitað er mögulegt að Gorbatsjov hafi verið að skrökva en það er alveg jafn líklegt að herforingjar hafi logið að honum, hafi einfaldlega ekki hlýtt fyrir- skipunum stjórnvalda. Þeir reyna ávallt að draga lappirnar þegar rætt er um niðurskurð og segjast þurfa mun lengri tíma til fram- kvæmda. í hópi nánustu ráðgjafa Gorbatsjovs eru ekki menn með nægilega sérþekkingu á hermálum til að reka fullyrðingar hershöfð- ingjanna ofan í þá. Mikilvægt er að gera sér grein. fyrir þessu og taka eftir því hve yfírlýsingar stangast á eftir því hver er að tala. Einn valdaaðilinn segir að allur sovéskur herafli verði fluttur frá Tékkóslóvakí á þessu ári, annar að því verði lokið 1992 en sjálft herráðið að hægt verði v að ljúka því 1999! Sérréttindi valdastéttarinnar Glasnost og perestrojka hafa reynst hernum erfíð. Hershöfðingj- amir óttast að völd þeirra og sér- réttindi verði frá þeim tekin þótt Gorbatsjov hafi enn þá lítt hróflað við alls kyns munaði yfírstéttarinn- ar. Á skömmum tíma hafa rúmlega 50 liðsforingjar í Rauða hemum verið myrtir á götu í Leníngrað og ráðist hefur verið með barsmíð- um á um 4.000. Fjölmargir al- mennir borgarar skella skuldinni á herinn fyrir allt sem aflaga fer, benda á gífurlegan kostnaðinn af öllu apparatinu; reiðin og leitin að sökudólgnum haldast í hendur. Sovéskur almenningur lítur fyrst og fremst á Gorbatsjov sem arftaka gömlu leiðtoganna og ' finnst að hann bregðist megin- hlutverkinu sem er að skaffa mat á diskinn og tryggja frið í landinu. Þegar Lenín tók völdin 1917 hét hann Sovétmönnum ekki neyslu- vörum heldur sanngimi. Óhóf og sérréttindi yfirstéttar kommúnista verða almennum borgnrum æ ljós- ari og þetta veldur því, öðra frem- ur, að nú er grandvöllur fyrir bylt- ingu í landinu. Ef forysta hersins ákveður, 5 samvinnu við aðra rússneska þjóð- emissinna, að velta Gorbatsjov úr sessi er líklegt að í hans stað komi maður af svipuðu tagi, umbóta- sinni, en hann mun beita harka- legri aðferðum við að halda ríkinu saman. Það er ekki gott að segja hver það verður; Borís Jeltsín kæmi til greina. Sennilega er Gorbatsjov búinn að ákveða að láta Eystrasaltsríkin róa, telur sig hafa styrk til að þvinga þetta í gegn í æðstu stjóm- inni. Hann veit hvað það kostar hann á Vesturlöndum ef hann sendir skriðdreka inn í Eystrasalts- ríkin. Forystan sér fyrir sér belti hlutlausra ríkja vestan við Sov- étríkin en óljóst er hve mikla áherslu hún leggur á að halda í Mið-Asíuríkin og Kákasuslöndin. Einnig er ekki víst að herinn sætti sig við að ríkið skreppi svo mjög saman. En fari svo er augljóst að mikilvægi hafnanna í Norður- Rússlandi og hafsvæðanna í grennd við þær mun aukast í framtíðinni þar eð athafnafrelsi Sovétflotans á Eystrasalti og Svartahafi minnkar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.