Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 25

Morgunblaðið - 27.02.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 25 Kúbanska hljómsveitin „Los noveles“ ásamt söngkonunni Leonor Zayas. Kúbönsk hljóm- sveit í heimsókn Starfsmannafélag Samvinnubankans: Landsbankinn selji hluta- bréfin aftur á sama verði STARFSMANNAFÉLAG samvinnubankans ályktaði á aðalfúndi sínum þann 13. febrúar síðastliðinn um kaup Landsbankans á hlut SÍS í Samvinnubankanum. Félagið harmar þá ákvörðun sambands- ins að selja hlut sinn í bankanum „enda gæti sú ákvörðun leitt til þess að Samvinnubankinn yrði lagður niður, starfsmönnum, við- skiptamönnum og Samvinnuhreyfingunni til mikils tjóns,“ segir í ályktuninni. Þar er er einnig vikið að deilum um kaupin og lagt til að Landsbankinn selji hlutabréfin aftur á sama verði og ekki sé óeðlilegt að aðrir hluthafar Samvinnubanka njóti þá forkaups- réttar. Aðalfundurinn lýsir efasemdum verið seldur þeim sem vildu reka um að loforð um tryggð réttindi bankann áfram í núverandi mynd starfsfólks Samvinnubankans við fremur en að selja Landsbankan- yfirtöku eða sameiningu verði um, „enda ekki sjáanlegt að nokk- efnd, þau loforð virðist „eftir ur hafi ávinning af sameiningu síðustu upplýsingum ekki stand- þessara banka.“ ast.“ Þá segir í ályktun fundarins: Fundurinn lýsir undrun sinni á „Við teljum óeðlilegt að ríkisvald- ða hlutur Sambandsins í sam- ið, í þessu tilviki í gegn um Lands- vinnubankanum skuli ekki hafa banka, noti almannafé til þess að kaupa samkeppnisaðila út af markaðnum. Fróðlegt væri að vita hvort fordæmi um slíkt finnist í hinum vestræna heimi. Þorsteinn Pálsson talar um skaða Landsbankans af kaupun- um. Ráðherra bankamála, Jón Sig- urðsson, sér kaupin nú sem vanda- mál og er farinn að tala um „far- sælustu“ lausn málsins. Hann tal- ar þar um að skipta Samvinnu- bankanum milli Landsbanka og Búnaðarbanka. Við bendum á ein- földustu lausnina, en hún er að Landsbanki selji hlutabréfin aftur á sama verði og hann keypti og þá er ekki óeðlilegt að aðrir hlutha- far Samvinnubanka njóti for- kaupsréttar.“ KÚBANSKA hljómsveitin „Los novels“ er væntanleg hingað til lands 27. febrúar nk. ásamt söngkonunni Leonor Zayas. Þau verða hér í tæpa viku og koma m.a. fram á Hótel Borg. í salsasveitinni „Los novels“ eru ' 6 hljóðfæraleikarar sem hafa spilað saman um árabil og ferðast vítt og breitt um heiminn til að kynna kúb- anska tónlist. Leonor Zayas er þekkt og vinsæl söngkona í sínu Óhappið varð með þeim_ hætti, að Fiat Uno var ekið austur Ártúns- brekku þegar Volvo-bifreiðin, sem var ekið í sömu átt, skall í vinstri hlið Fiatsins. Ökumaður Fiatsins áttaði sig ekki strax á því, hvað hefði komið fyrir, en þegar hann heimalandi og víðar, hún hefur m.a. ferðast um Suður-Ameríku, Evrópu og Kanada. Kúbanska listafólkið byijar íslandsdvölina með tónleik- um á Hótel Borg miðvikudaginn 28. febrúar. gætti betur að var Volvoinn að aka á brott. Volvoinn mun hafa verið blágrár, með tegundarheitið 740. Okumaður Volvosins, og vitni ef einhver eru, er beðinn um að gefa sig fram við Slysarannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík. Mosfells- prestakall laust til umsóknar BISKUP íslands hefúr auglýst Mosfellsprestakall í Kjalarnes- prófastsdæmi laust til umsóknar með umsóknarfresti til 18. mars næstkomandi. í prestakallinu er nú aðeins ein sókn, Lágafellssókn, en tvær kirkj- ur, Lágafells- og Mosfellskirkja. Séra Birgir Ásgeirgson, sem hef- ur þjónað prestakallinu frá 15. ágúst 1976, fær lausn frá embætti 1. maí næstkomandi þar sem hann hefur verið ráðinn prestur við Borg- arspítalann í Reykjavík. Við Borg- arspítalann hefur sr. Sigfinnur Þor- leifsson þjónað undanfarin fimm ár, þannig að eftir að sr. Birgir hefur þar störf, verða tveir sjúkrahús- prestar þjónandi þar. (Fréttatilkynning) Fantasía sýn- ir vagnadans Leikhópurinn Fantasía sýnir nú nýjan íslenzkan sjónleik, Vagna- dans, í leikhúsi Frú Emilíu. Rang- hermt var í myndatexta í Morgun- blaðinu á föstudag, að Frú Emilía tæki þátt í flutningi sjónleiksins. Sá leikhópur leggur hinum bara til húsnæðið. ■ VEITINGASTAÐURINN Hornið gengst fyrir djasstónleikum í Djúpinu miðvikudaginn 28. febrú- ar. Þá leikur ný íslensk sveit sem aðeins einu sinni hefur áður haldið tónleika hér á landi. Þetta er Kuran Swing kvintettinn, en hann_ skipa Björn Thoroddsen á gítar, Ólafúr Þórðarson á gítar, Þórður Högnason á kontrabassa, Szymon Kuran á fiðlu og Magnús Einars- son á mandólín. Kuran Swing hefur á efnisskrá sinni bæði „standarda" og frumsamið efni. I BRIAN Edwards, verkfræð- ingur hjá Staubli Unimation Ltd. í Englandi, heldur erindi um notk- un rðbóta í Englandi og sýnir dæmi þaðan á myndböndum. Erindið verður þriðjudaginn 27. febrúar kl. 17 í húsi Verkfræðideildar Há- skóla íslands, VR II stofu 157. Brian Edwards hefur starfað hjá Unimation Ltd. síðan 1984. Hann er staddur hér á landi í sambandi við uppsetningu á róbóta sem Há- skóli íslands, Iðntæknistofhun íslands og Tækniskólinn hafa fest kaup á. Allir áhugamenn um ró- bótatækni eru velkomnir. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM 26. febrúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 100,00 71,00 77,10 39,901 3.076.495 Þorskur(óst) 72,00 69,00 71,23 5,737 408.670 Ýsa 112,00 60,00 102,90 37,393 3.847.570 Ýsa (ósl.) 91,00 60,00 88,59 3,224 285.617 Karfi 37,00 37,00 37,00 1,121 41.477 Ufsi 35,00 29,00 32,52 1,054 34.280 Steinbítur 25,00 12,00 17,42 15,886 276.787 Steinbítur(ósL) 27,00 15,00 21,36 18,903 403.790 Langa . 50,00 29,00 39,83 1,379 54.900 Lúða 460,00 180,00 305,31 1,127 343.930 Koli 50,00 50,00 50,00 0,406 20.300 Keila (ósl.) 20,00 15,00 19,62 2,364 46.380 Samtals 67,24 135,470 9.108.309 FAXAMARKAÐUR hf. i ' Reykjavík Þorskur 85,00 63,00 79,53 26,053 2(072.084 Þorskur(ósL) 74,00 63,00 69,96 16,832 1.177.535 Ýsa 99,00 81,00 88,87 3,093 274.887 Ýsa (ósl.) 108,00 58,00 95,44 11,726 1.119.170 Siginnfiskur 180,00 180,00 180,00 0,025 4.500 Ufsi 49,00 25,00 44,51 111,320 4.954.847 Hlýri+steinb. 27,00 15,00 16,90 5,079 85.813 Langa 39,00 39,00 39,00 2,433 94.882 Lúða 610,00 240,00 358,96 0,326 117.020 Skarkoli 42,00 42,00 42,00 0,072 3.024 Keila 19,00 19,00 19,00 0,910 17.290 Rauðmagi 110,00 110,00 110,00 0,020 2.200 Gellur 235,00 235,00 235,00 0,017 3.995 Hrogn 240,00 15,00 199,17 0,481 95.800 Samtals 56,10 178,999 10.041.841 ( dag verða meðal annars seld 50 tonn af ufsa úr Andvara VE, svo og 20 tonn af þorski og 10 tonn af ýsu úr ýmsum bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 90,00 35,00 73,56 148,897 10.953.476 Ýsa 118,00 20,00 81,36 22,621 1.840.506 Karfi 42,00 39,00 40,94 2,631 107.712 Ufsi 34,00 15,00 29,24 28,265 826.494 Steinbítur 35,00 15,00 26,44 30,950 818.296 Langa 50,00 40,00 45,23 1,592 71.999 Lúða 485,00 255,00 396,13 0,278 110.125 Skarkoli 43,00 22,00 36,18 1,783 64.517 Keila 21,00 10,00 15,19 1,149 17.454 Lýsa 45,00 45,00 45,00 0,372 16.740 Rauðmagi 98,00 90,00 93,29 0,233 21.736 Skata 70,00 5,00 45,35 0,269 12.198 Hrogn 200,00 200,00 200,00 0,177 35.400 Samtals 61,77 243,191 15.023.004 Volvo ekið á Fiat Uno LÖGREGLAN óskar eftir að ökumaður Volvo-bifreiðar, sem var ekið í hlið Fiat Uno í Ártúnsbrekku sunnudagskvöldið 18. febrúar, gefi sig fram, svo og vitni ef einhver voru. ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 23.-26. febrúar 1990 — Um helgina var tilkynnt um 34 árekstra. Þá slasaðist ökumað- ur í árekstri tveggja bifreiða á gatnamótum Höfðabakka og Bíldshöfða á föstudag kl. 14.55 og ökumaður bifhjóls slasaðist í árekstri þess og bifreiðar á bif- reiðastæðunum við Kringluna á sunnudag kl. 16.41. Á laugar- dagskvöld var bifreið ekið á vegv- ísi og fjórar mannlausar bifreiðir á Njálsgötu. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis. Auk hans eru 12 aðrir ökumenn, sem stöðvaðir voru um helgina, grunaðir um ölvun við akstur. — Mikið hefur verið um um- ferðaróhöpp undanfarið og er fólk hvatt til þess að sýna aðgæslu og fara varlega. Vanmat á aðstæðum hefur verið ein meginástæða óhappanna. — Tilkynnt var um 4 slys. Kona datt í strætisvagni á Eiði- storgi. Stúlka datt úr vinnupöllum á rafstöð við Álfagranda. Maður datt innandyra í húsi við Klepps- veg og maður datt utandyra við hús á Nesvegi. — 70 ökumenn voru kærðir fyrir umferðarlagabrot um helg- ina. 18 þeirra voru kærðir fyrir að aka á móti rauðu ljósi. — Tilkynnt var um 7 innbrot, 7 þjófnaði og tveir voru staðnir að hnupli í verslunum, í Kaupstað og í Kringlunni. Einn reyndi að framvísa falsaðri ávísun. 5 skemmdarverk voru framin á gæslusvæðinu og 8 rúður voru brotnar. Tilkynnt var um 4 slys, en einungis um ein líkamsmeiðsl. — M.a. var brotist inn í þvotta- stöð, félagsmiðstöð, bíla, íbúð og veitingastað. Veski var stolið frá manni í Sundhöllinni. Þá var strætisvagni stolið frá Lækjart- orgi á laugardagsmorgun. Hann fannst í Völvufelli skömmu síðar. — 22 einstaklingum var veitt aðstoð við að komast inn í læstar bifreiðir. 7 var veitt aðstoð við að komast inn í læstar íbúðir og allmargir aðrir nutu aðstoðar við ýmislegt annað er þeir þurftu aðstoðar við. — Auk framangreinds þurfti lögreglan að hafa afskipti af a.m.k. 71 ölvuðum manni er ekki kunni fótum sínum forráð. 26 þurftu gistingar í fangageymsl- um; 16 á föstudagsnótt og 9 á laugardagsnótt, en einn hafði fangageymslurnar út af fyrir sig á sunnudagsnótt. Alls voru 7 þess- ara manna færðir fyrir dómara og mál þeirra afgreidd með sáttar- greiðslum. — Tilkynnt var um eld í íbúð við Drápuhlíð. íbúðin var mann- laus, en eldur var í rúmdýnu. — Tiltölulega rólegt var í mið- borginni um helgina. Lögreglan þurfti einungis að hafa afskipti af 11 málum þar á föstudagsnótt og 9 á laugardagsnótt, flest minniháttar. DAGBÓK SELTJ ARN ARNES- KIRKJA. í dag er opið hús fyrirbörn 0-12 árakl. 17.30. ITC-deildin Harpa heldur fund í kvöld kl. 20.30 í Braut- arholti 30. Fundurinn _er öll- um opinn. Uppl. hjá Ágústu í s. 71673.____________ SAMTÖKIN um . sorg og sorgarviðbrögð hafa opið hús í kvöld í safnaðarheimili Laugameskirkju kl. 20-22. Á sama tíma eru veittar uppl. og ráðgjöf í s. 34516. MR-stúdentar 1940 halda fund í Torfunni nk. fimmtu- dag, 1. mars, kl. 20.30. SKIPIN REYKJAVÍKURHÖFN. Á sunnudag og í gær komu nótaskip inn vegna veðurs og til að lagfæra veiðarfæri. Hákon, Jón Finnsson, Júpit- er, Hilmir og Svanur. Þá kom togarinn Arnarnes inn til löndunar. í nótt er leið voru þessi skip væntanleg að utan: Brúarfoss, Helgafell, Urriðafoss og leiguskipið Dorado. HAFNARFJARÐARHÖFN. Á sunnudaginn kom Selfoss af ströndinni og fer aftur á strönd í dag. í gær fór ísberg á ströndina. Þá kom flutn- ingaskipið Polar Nanok og grænlenskum skuttogara frá Nuuk, Nerpilik, var fylgt inn á höfnina af varðskipi því sjó- kortin vantaði þar um borð. Togarinn er með bilaða stýris- vél.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.