Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
27
Fyrirtæki
Munum sameina
*
Opus og Allt
hugbúnað
— segir Hálfdán Karlsson, fram-
kvæmdastjóri fslenskrar forritaþróunar
sem verður sameinað Þekkingu hf.
„Við munum taka það besta úr Ópus og Allt hugbúnaðarpökkunum
og sameina það í einn pakka. Eg get ekki sagt um hvort það tekur
eitt eða tvö ár en það er ekki búið að kortleggja það i smáatriðum.
Fyrir viðskiptavinina verður það lausn sem er að öllu leyti betri en
í dag,“ sagði Hálfdán Karlsson, framkvæmdastjóri íslenskrar forrita-
þróunar en nú um mánaðamótin verður fyrirtækið sameinað Þekk-
ingu hf. Eftir sameininguna verður Islensk forritaþróun eitt stærsta
hugbúnaðarfyrirtæki landsins með um 17 starfsmenn og mun þjóna
yfir eitt þúsund viðskiptavinum.
Samanlögð velta fyrirtækjanna á
síðasta ári var um 60 milljónir króna
en gert er ráð fyrir að hún verði
75 milljónii á þessu ári. Umsvif
íslenskrar forritaþróunar hafa auk-
ist hratt frá árinu 1988 þar sem
veltan það ár var aðeins 20 milljón-
ir króna. í fyrra var hún 34 milljón-
ir og var gert ráð fyrir 55 milljónum
á þessu ári.
Hálfdán Karlsson segir að reikna
megi með að eitt af hveijum 6 fyrir-
tækjum hér á landi verði í viðskipt-
um við hið nýja hugbúnaðarfyrir-
tæki. Ljóst sé að tímabili hinna
mörgu og smáu sé að ljúka en í
staðinn komi færri og stærri fyrir-
tæki sem veitt geti viðskiptavinum
sínum þá þjónustu sem þeir krefjist.
Hann segir að sú stefna Islenskr-
ar forritaþróunar að vinna aðeins í
umhverfi fyrir „Intel“ örgjörva hafi
verið mikið lán fyrir fyrirtækið.
„Það hafa ýmsir beðið okkur gegn-
um árin að skrifa fyrir hin og þessi
tölvukerfi og umhverfi en við höfum
tekið þá stefnu að gera það ekki.
Það hefur reynst rétt stefna. Intel
vélarnar eru orðnar öflugar og hafa
tekið markaðshlutdeild frá stærri
tölvum. Langstærsti markaðurinn
verður í þessum vélum á næstu
árum og þar erum við sterkastir."
Islensk forritaþróun er stór
eignaraðili í Artek hf. þar sem unn-
ið er að gerð þýðanda á forritunar-
málinu ADA fyrir bandarískan
markað. Hálfdán segir að með sam-
einingunni opnist möguleikar á út-
flutningi hugbúnaðar. Með aukinni
rekstrarhagræðingu verði unnt að
leggja fé í rannsóknir og þróunar-
starfsemi eða rannsaka aðra mark-
aði. „Opinn Evrópumarkaður mun
bjóða upp á ýmsa möguleika og
löndin í Austur-Evrópu eru mjög
frumstæð varðandi tölvuvæðingu,'
sagði Hálfdán..
Morgunblaðið/Bjami
SAMEINIIMG — Forráðamenn Þekkingar óg íslenskrar forritaþróunar undirrituðu nýlega samning
um að sameina rekstur fyrirtækjanna. Á myndinni eru (f.v.) Vilhjálmur Þorsteinsson, Atli Þór Ólafsson,
Örn Karlsson og Finnbogi Albertsson en við borðið sitja (f.v). Hálfdán Karlsson og Páll Pétursson.
Iðnþróunarsjóður
Samdráttur í lánsumsókum
Á SÍÐASTA ári bárust Iðnþróunarsjóði alls 122 lánsumsóknir að upp-
hæð 1.473 milljónir króna, en árið áður voru umsóknirnar 126 sam-
tals upp á 1.881 milljón króna.
Árið 1988 afgreiddi Iðnþróunar-
sjóður 87 lán að upphæð 858 milljón-
ir króna, en í fyrra voru afgreidd
aðeins færri lán eða 82 að upphæð
960 milljónir króna. Af heildarláns-
upphæðinni á síðasta ári fóru 714
milljónir króna til hinna ýmsu greina
iðnaðarins, en 246 milljónir til ann-
arra atvinnugreina, sem áður féllu
utan verksviðs sjóðsins.
„Þegar liða tók á árið dró greini-
lega úr lánsumsóknum og sérstak-
lega til nýrra framkvæmda," sagði
Þorvarður Alfonsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarsjóðs. „Margir
þurftu að semja um framlengingu
og endumýjun lána vegna efnahags-
ástandsins. Það er ljóst að erfiðleikar
fyrirtækja hafa aldrei verið meiri en
á síðastliðnu ári frá mínum bæjardyr-
um séð, en Iðnþróunarsjóður hefur
starfað í 20 ár á þessu ári.“
Eins og kunnugt er tók Iðnþróun-
arsjóður fyrstur fjárfestingarlána-
sjóða upp kjörvaxtakerfi um sl. ára-
mót. Að sögn Þorvarðar er ekki kom-
in mikil reynsla á þptta nýja vaxta-
kerfi, en þau viðbrögð sem fram
hafa komið til þessa eru jákvæð.
Melsölublodá hvetjum degi!
Rýmingarsala
á erlendum námsbókum
Eymundsson býður kennara og nemendur grunnskóla og framhaldsskóla
- unga sem gamla - velkomna á rýmingarsölu á erlendum námsbókum.
Danska
24 titlar
Enska Hjúkrunarfræði Raungreinar
330 titlar 120 titlar 60 titlar
Sálfræði Þýska Viðskiptafræði
50 titlar 55 titlar 30 titlar
15-90% afsláttur
Rýmingarsalan er í Austurstræti 10 (þar sem Penninn var áður til húsa).
Opið milli kl. 9 og 18 og frá kl. 10 og 13 nk. laugardag.
Símapantanir og upplýsingar í síma (91 )-13522.
Rýmingarsölunni lýkur á laugardag.
B
EYMUNDSSON
ÓKAVERSLU
MENNTASETUR I MlÐRl BORG