Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBR0AR 1990
STJOBNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Áætlanir þinar varðandi starfið
eru stórspjallar, en ýmislegt
óvæiit getur tafið fyrir að þær
komist í framkvæmd. Gerðu ekki
hvem sem er að trúnaðarmanni
þínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Notaðu frítima þinn á skapandi
hátt. Þú hefur tilhneigingu til að
sóa tímanum um þessar mundir.
Þú blómstrar i hópstarfi í dag.
Þiggðu heimboð og lokaðu þig
ekki inni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér finnst vinur þinn hafa brugð-
ist þér. Þetta er ekki heppilegur
tími til að fá peninga að láni hjá
öðru fólki. Þú kannt að hafa fjár-
hagslegan ávinning af verki í
tengslum við starf þitt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Skoðaðu allar tillögur sem lagðar
eru fyrir þig með fyllstu gát.
Ekki er allt gull sem glóir. Þið
hjónin nálgist ákveðið vandamál
frá nýju sjónarhomi og leysið það
farsællega í sameiningu.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þér gæti boðist stórskemmtilegt
viðfangsefni núna einhvem dag-
inn. Þú þarft þó að fara af mik-
illi gát með það verkefni sem þú
hefur í takinu.
myja
(23. ágúst - 22. september) <T.J'
Þó að ýmislegt fari öðravisi en
ætlað er í dag gæti svo farið að
þú kynntist nýrri manneskju þér
til mikillar ánægju. Taktu enga
áhættu í peningamálum.
vög T
(23. sept. - 22. október)
Þú finnur óvenjulega lausn á
vandamáii sem hefur verið að
velkjast fyrir þér um langa hríð.
Láttu fjölskylduna ganga fyrir í
kvöld.
Sþorödreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®)|0
Ekki eru allir hreinskiptnir sem
þú umgengst í dag. Haltu vöku
þinni og lestu á milli línanna. Þú
verður fyrir truflunum í starfi, en
hugmyndaauðgin er yfirfljótan-
leg.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú færð grænt ljós á að gera
breytingar heima fyrir. Haltu
skemmtanakostnaði innan hóf-
legra marka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Óleyst vandamál heima fyrir
valda erfiðleikum i dag. Vini
þínum dvelst lengur hjá þér en
æskilegt er. Þú ert í sjöunda himni
vegna nýrra hugmynda sem þú
ert með í deiglunni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Sumir kunningja þinna geta ein-
faldlega ekki þagað yfir leyndar-
máli og það væri bamalegt að
gera þá að trúnaðarmönnum. Ein-
hver snurða hefur hlaupið á sam-
band þitt við annað fólk.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ***
Athugaðu möguleikann á að
ganga i klúbb eða félag, en forð-
astu fyrir alla muni að blanda þér
í ijármál annars fólks að svo
stöddu.
AFMÆLISBARNIÐ á auðvelt
með að bjarga sér þegar kreppir
að. Það virðist kunna að ná sér
fljótt á strik eftir áföll. Það er
sjálfstætt á sinn hljóðláta hátt og
kann illa við að vera skipað fyrir
verkum. Það er heimspekilegt í
hugsun og getur náð langt á svið-
um þar sem sköpun á sér stað.
Því gengur best þegar það er inn-
blásið, en getur stundum verið
stygglynt og hástemmt. Þó að það
sé gefið fyrir félagsskap er það
ekki alltaf lamb að leika sér við.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
... AUTÍL/IGI
/jTHUGAOÚ
Btrr... LOFT-
&ÓLUR STIGA
UPR..5/OL-
URDU /WG f>„,
i-ia
GRETTIR
HVER ERT ÞÚ.OG HVAO GERDif
þÚVIP GRETTI
, VAK AP
[ tSETSA AÐ, ,
INl/M/Nlf
TOMMI OG JENNI
* A'-'-'tzty&r — : « r VT*"—7TZ : f , T J—7 »—
tATT/t/V/tru^
ER_ uaOMr -
V
LJOSKA
AÚÐVITAP,
/SETÉCÓ
FAK pAtáGAG’ <T ELAtAR
SKtíLA- K
fflLUNN /
STOPPAÍS,
P/tGLJR ?
FERDINAND
• a V \ QIV/IÁC/Sl IV
01VI 1"L. IV
5W0VEL OUR WALK?! IT
I5N'T EVEN 5N0UJINGÍ
Moka gangstíginn ykkar?
Moka gangstíginn okkar?! Það snjó-
ar ekki einu sinni!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Úrslit íslandsmóts kvenna og
yngri spilara fóru fram í húsa-
kynnum BSÍ, Sigtúni 9, um
síðustu helgi. Kvennaflokkinn
vann sveit sem spilaði undir
nafni veitingastaðarins Rauða
sófans (Esther Jakobsdóttir,
Valgerður Kristjónsdóttir, Anna
Þóra Jónsdöttir og Hjördís Ey-
þórsdóttir), en sveit Stillingar
hf. vann flokk 25 ára og yngri
(Matthías Þorvaldsson, Hrannar
Erlingsson, Steingrímur Gautur
Pétursson og Sveinn Rúnar
Eiríksson). Esther Jakobsdóttir
halaði inn 17 IMPa fyrir sveit
sína með því að finna besta út-
spilið gegn tígulslemmu Erlu
Siguijónsdóttur í síðasta leik
mótsins:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ 6432
¥2
♦ KG103
♦ Á1074
Vestur Austur
♦ KG107 ... ♦ ÁD985
¥ KG765 |i ¥98
♦ 92 ♦ 4
♦ 98 ♦ KD653
Suður
♦ -
¥ ÁD1043
♦ ÁD8765
♦ G2
í opna salnum sátu Esther og
Valgerður i AV gegn Erlu og
Kristjönu Steingrímsdóttur.
Sagnir gengu:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 spaði 2 þjörtu
4 spaðar Pass Pass 5 tíglar
Pass 6 tíglar Pass Pass
Pass
Esther valdi að koma út með
tromp og fækka þannig hjarta-
stungunum í blindum um eina.
Erla gat þá aðeins tekið 11 slagi
með víxltrompun og hvorki lauf-
ið né hjartað gátu útvegað þann
tólfta.
Á hinu borðinu sögðu Hjördís
og Anna Þóra einnig sex tígla,
og voru reyndar doblaðar. Anna
Þóra sagði þrjú lauf við spaða-
opnun austurs, sem sýndi rauðu
litina. Það varð til þess að
Hjördís í norður varð sagnhafí
og austur kaus að leggja af stað
með laufkónginn. Og meira
þurfti ekki til: 10 slagir á tígul
og tveir ásar.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp í áskor-
endaflokki í Hastings um áramót-
in. Alþjóðlegi meistarinn T. Fatin,
(2.325), Egyptalandi, hafði hvítt
og átti leik, en Sovétmaðurinn
M. Sher (2.470) hafði svart. Sov-
étmaðurinn lék síðast 23. — Dd7-
g4? sem gaf Egyptanum færi á
gagnsókn:
24. Hg5! — Dxe4? (Svartur varð
að leika 24. — Hdl+!, 25. Dxdl
— Dxe4 þótt möguleikar hvíts séu
betri eftir 26. Hxg7+ — Kf8, 27.
f3 - De3+, 28. Kg2 - Dxc3, 29..
Hxb7.)25. Hxg7+ - Kfi8, 26.
Da3* (Svarti yfirsást greinilega
þessi iúmska skák) 26. — Ke8,
27. Hel - Dxel, 28. Bxel -
Bf7, 29. Hxh7 og það stoðaði lítið
þótt Sovétmaðurinn þráaðist við
að gefast upp, hann réði ekki við
hinn mikla liðsmun.
Sigurvegari í áskorendaflókkn-
um varð enski alþjóðameistarinn
Tony Kosten sem fær sæti í efsta
flokki næst og tryggði sér jafn-
framt stórmeistaratitilinn.