Morgunblaðið - 27.02.1990, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990
„ þ&rættu eJcJó sþncx shzLpur i
bikini þegar Jcrakkcxrá, hans aldri
eru cxí5 horiex. / ^
Ást er ...
... að klifa ekki ætíð á
vandamálunum.
TM Refl. U.S. Pat Ofl —all nflhts rasarvad
o 1990 Los Artgeles Tímes Syndicate
Með
morgunkaffinu
Ég vil ekki að þú segir
gamli skröggur við hann
pabba þinn. — Við erum
jafnaldrar...
HÖGNI HREKKVÍSI
Banna þarf saltaustur á götur
0
Til Velvakanda.
Hver er mesti skaðvaldur á slit-
lagi gatna á vetrum?
Það eru ekki nagladekk, eins og
gatnamálayfirvöld halda fram.
Hvað er það þá?
Það er saltið sem ausið er á
götumar í hundmða - eða þúsunda
- tonna tali.
Hvemig má það vera?
Saltið leysir upp asfaltið í malbik-
inu. Og saltið veldur enn meiri
skaða: Það orsakar mikið frost, er
það kemur í snjólag, svo að vatn,
sem síast hefur niður í gegnum
þunnt slitlagið, hraðfrýs og spreng-
ir upp malbikið. Þetta er aðalorsök-
in fyrir hinum kröppu holum og
hvössu brúnum þeirra, sem sjá má
á hverju vori á götum, sem salt-
bornar hafa verið, en lítt eða ekki
á þeim ósaltbomu.
Snjónegld dekk valda litlum sem
engum skaða nema þar sem salt
hefur verið borið á og leyst upp
malbikið.
Ef einhver skyldi vefengja þessar
fullyrðingar mínar, væri ráð að
leita umsagnar lærðra verkfræð-
inga þeirra, sem sérstaklega hefðu
kynnt sér þessi mál.
Niðurstaða mín er þessi: Salt-
austur á malbikaðar götur ætti að
banna, en hvetja þess í stað til
aukinnar notkunar nagladekkja í
öryggisskyni og til slysavama. I ljós
myndi koma stórum minnkað slit á
yfírborði gatna og mjög mikil fækk-
un á hinum mjög svo hvimleiðu
frostholum á vorin. ■
Salt og malbik geta aldrei sam-
rýmst.
Einn sem ekur
Arangur er enginn mælikvarði
hann þaðan. Ef Guðni fengi sér ekkert vit að einblína svona á
hinsvegar rússneskan ríkisborgara- árangur í sambandi við þjáifun.
rétt og kallaði sig Guy Kjartanov Hann er algert aukaatriði.
þá mætti athuga málið. En það er Fjalar Sigurðarson
Tjöruþvottur:
Hvers vegna ekki
fyrir alla ökumenn?
Til Velvakanda.
KSÍ vantaði þjálfara fyrir A-
landsliðið um daginn. Þessi útlenski
stakk af og Guðni Kjartansson hljóp
í skarðið eins og oft áður. Þá skaut
upp þeirri fáránlegu meinloku, að
manninn ætti að fastráða sem
landsliðsþjálfara. KSÍ sá að sjálf-
sögðu á því mikla annmarka. Mað-
urinn var ekki aðeins nærstaddur
og tiltækur, hann var íslenskur!
Það gat bara ekki gengið. Að vísu
hefur hann náð furðu góðum ár-
angri með A-Iandsliðið þegar hann
hefur verið að taka við af hetjunum
og doktorunum sem stinga af en
það má ekki vera að einblína á
árangur, hann skiptir ekki öllu.
Aðalatriðið í knattspymu (fýrir
utan að vera með), er að hafa „flott-
an“ þjálfara, helst með doktors-
eða prófessorsnafnbót en alveg
absolútt útlending, helst með slá-
andi og flott fornafn; svona Bo
eða Sigi eða þannig. Guðni er bæði
óþjált og íslenskt og því alveg
ótækt. Þetta var því hárrétt hjá
KSÍ.
E.S. Það var svolítið óþægilegt
hvað Guðni Kjartansson náði góð-
um árangri með 21 árs liðið og
því alveg hárrétt hjá KSÍ að reka
Til Velvakanda.
Vegna fréttar frá gatnamála-
stjóra þess efnis að ekki verði leng-
ur boðið upp á þá þjónustu að fólk
geti tjöruþvegið dekk bifreiða sinna
hjá hverfismiðstöðvum borgarinnar
vegna misnotkunar ökumanna á
nagladekkjum, langar mig til að
spyija: Hvers vegna mega ökumenn
sem keyra á nagladekkjum ekki
notfæra sér þessa þjónustu?
Nú stendur orðrétt í fréttinni:
„Tjaran sem sest á dekk í vetrar-
akstri dregur úr viðnámi þeirra
þegar tekið er af stað eða hemlað.“
Þetta hlýtur að gilda um allar bif-
reiðar, hvort sem þær eru á negld-
um dekkjum eður ei, nema gatna-
málastjóri telji að negld dekk veiti
svo mikið viðnám í hálku, að tjöru-
þvottar sé þar ekki þörf.
Með þessari ákvörðun er verið
að refsa öllum bíleigendum sem
vilja stuðla að öryggi sínu og ann-
arra í umferðinni með því að halda
dekkjunum hreinum og lausum við
tjöru. Því vil ég-skora á gatnamála-
stjóra að taka þetta til endurskoð-
unar nú þegar, ef honum er um-
hugað um öryggi í umferðinni.
Þórarinn Jóhann Jónsson
Yíkverji skrifar
Koma Havels, forseta Tékkó-
slóvakíu, hingað til lands fyr-
ir rúmri viku vakti mikla athygli
og hefur sjálfsagt fáum komið til
hugar, að af henni gæti orðið,
þegar Brynja Benediktsdóttir ,
leikstjóri, sendi honum boð um að
koma hingað.
En í tengslum við þessa heim-
sókn var haldinn fundur, sem fór
framhjá þeim herskara ijölmiðla-
manna, sem fylgdust með ferðum
forsetans og samstarfsmanna
hans. Þessi fundur var haldinn í
fjármálaráðuneytinu á laugar-
dagskvöld. Það var Olafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra, sem
innti Klaus, fjármálaráðherra
Tékkóslóvakíu, eftir því, hvort
hann væri tilbúinn til þess að
ræða við nokkra forystumenn í
íslenzku fjármálalífi. Klaus var
reiðubúinn til þess og lét fjármála-
ráðherrann íslenzki þá boða á
skrifstofu sína nokkra einstakl-
inga þ.á.m. Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, dr. Jóhannes
Nordal, Seðlabankastjóra, Bjarna
Braga Jónsson, aðstoðarbanka-
stjóra Seðlabankans, Þórð Frið-
jónsson, forstöðumann Þjóðhags-
stofnunar, aðstoðarmenn sína, Má
Guðmundsson og Mörð Árnason
o.fl. Þarna voru saman komnir
menn, sem hafa haft mikil af-
skipti af efnahagsmálum á Islandi
í 30 ár.
Þeir sátu þarna og hlustuðu á
Klaus segja frá þeim verkefnum,
sem hann er að glíma við í Tékkó-
slóvakíu og viðhorfum hans til
atburðanna í Austur-Evrópu og
Sovétríkjunum. Fjármálaráðherra
Tékkóslóvakíu mun hafa talað
opinskátt og af mikilli hreinskilni
og að sögn viðstaddra var þetta
ógleymanlegt samtal öllum þeim,
sem þarna voru saman komnir.
Eftir þetta samtal bauð Ólafur
Ragnar Klaus í bíltúr um
bæinn. Þeir enduðu niður við höfp
og stóðu þar á gamalli trébryggju
fyrir neðan kaffivagninn í versta
veðri. Þar horfði fjármálaráðherra
Tékkóslóvakíu þegjandi til hafs
en hafið hafði hann ekki séð.í 3
ár. Þeir komu svo of seint í virðu-
legt kvöldverðarboð, ráðherrarnir
tveir.
XXX
Þegar ríkisstjórnin var að und-
irbúa niðurskurðartillögur
sínar á dögunum var gert ráð fyr-
ir því, að Alþingi sparaði um 20
milljónir króna. Stjórnin fékk
skilaboð frá Alþingi um að ekki
væri hægt að spara nema 6 millj-
ónir! Ekki verður sagt, að þingið
sýni öðrum gott fordæmi með
þessu háttalagi.