Morgunblaðið - 27.02.1990, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
Setningur kvikmyndaður. Vermenn úr Bolungarvík og Sigurður
Sverrir Pálsson kvikmyndagerðarmaður ásamt Þórarni Guðnasyni
hljóðupptökumanni.
Fjöruverkin. Aðgerð í fjörunni. Fulltrúi vestanmanna, Gunnar Sig-
urðsson og flatningsmennirnir Kristinn Jónsson frá Dröngum og
Sigmundur Þorkelsson ræða gæðamál.
ÓDÝRUSTU FERMINGAR
MYNDATÖKURNAR
frá kr. 7.500.-
Ljósmyndastofurnar:
Bama og Fjölskylduljósmyndir
Reykjavík
sími: 12644
Mynd Hafnarfirði,
sími: 54207
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími: 43020
Öllum okkar tökum fylgja tvær
prufustækkanir 20x25 cm.
eftir fór að snjóa. Og nú höfum
við staðið í því nánast dag eftir
dag að moka leikmyndirnar upp
svo hægt verði að ljúka verkefn-
inu.“
Okkur langar til að koma sér-
stöku þakklæti til þeirra og ekki
síst bæjarstjórn Bolungarvíkur,
Byggðasafni Vestíjarða og safn-
verðinum þar og sérstaklega lang-
ar okkur að þakka Geir Guðmunds-
syni verkstjóra í saltfiskverkun
Einars Guðfinnssonar sem er mik-
ill áhugamaður um sögu byggðar
í Bolungarvík og hefur hann verið
okkar fiskitækniráðunautur og
unnið allan fisk til nota í atriðun-
um, auk heldur verið okkar helsti
bakhjarl allt frá fyrstu stundu, að
til greina kom að taka þetta atriði
í Ósvör“ sagði Erlendur. Auk hans
eru í tökuliðinu þeir Sigurður
Sverrir Pálsson kvikmyndatöku-
maður, Þörarinn Guðnason hljóð-
maður og Gunnar Baldursson sem
sér um leikmynd.
- Gunnar
Ljósmyndir Geir Guðmundsson
og Erlendur Sveinsson.
Heimamenn í hlutverkum vermanna. Talið frá vinstri: Gunnar Hallsson, Rögnvaldur Ólafsson, Kristinn
Guðjónsson, Jósteinn Bachmann, Jón Guðbjartsson, Sigmundur Þorkelsson, Jón Sveinsson, Jarþrúður
Ólafsdóttir, Gunnar Leósson, Guðjón Kristinsson og Gunnar Sigurðsson.
m .
;
v *
■ 'timsmmeHi
Atriði í tvær kvikmynd-
ir tekin í Bolungarvík
5
<n
Z
LIJ
j/í
5
3
□
s
I
3
z
z
5:
5
3
Q
1
2
Bolungarvík.
„VERSTÖÐIN ísland“ er vinnu-
heiti kvikmyndar um sjávarút-
veg á íslandi, sem kvikmynda-
fyrirtækið Lifandi myndir er að
vinna fyrir Landssamband
íslenskra útvegsmanna. Myndin
er heimildamynd um sögu út-
gerðarinnar frá árabátaöld til
okkar daga.
Það sem tekið er í Bolungarvík
nú er upphafsatriði myndarinnar
og á að standa fyrir árabátaöldina.
Myndatakan fer fram í Ósvör, sem
er gamalt útræði rétt innan við
kaupstaðinn. í Ósvör hefur verið
reist verbúð ásamt fiskkró, þurrk-
hjalli og bátaspili á þar til gerðum
spilskans. Verbúðin sem reist var
í Ósvör var reist fyrir nokkrum
árum hér innanvert í bænum en
er sundlaug var byggð var verbúð-
in fyrir í skipulaginu. Hún var því
tekin niður og sett í geymslu en
menn höfðu oft talað um að endur-
reisa hana í Ósvörinni.
Erlendur Sveinsson kvikmynda-
gerðarmaður er stjórnandi þessa
verkefnis. Hann sagði að eftir
miklar vangaveltur um það hvar
best væri að taka þetta atriði
myndarinnar hefði niðurstaðan
orðið Bolungarvík. Hann sagði að
stefnan væri að fá heimamenn á
hveijum stað til að taka að sér
hlutverk í þessari mynd. „I þeim
hluta myndarinnar, sem tekinn er
í Bolungarvík, fara átta manns
með hlutverk en til hliðar við þessa
útgerðarmynd erum við hjá Lifandi
myndum að taka atriði í aðra
mynd sem við höfum verið að vinna
fyrir Samband íslenskra fiskfram-
leiðenda,“ sagði Erlendur. „Þar er
um að ræða heimildarmynd um
fiskverkun og höfum við þegar lok-
ið við gerð fyrsta og þriðja hluta
þess verkefnis. Ekki hefur verið
ákveðið með framhaldið en það er
á stefnuskrá SÍF að ljúka því verk-
efni og varð því að ráði að nota
þessar aðstæður hér og taka nokk-
ur atriði. í þeim er fjallað um komu
tveggja manna í verstöð á síðari
hluta nítjándu aldar þar sem þeir
eru að kanna vöruvöndun. Er þar
sýnd landtaka sexærings og hvem-
ig aflinn er meðhöndlaður frá því
komið er með hann að landi og
þar til frá honum hefur verið geng-
ið í salthúsi.
Um það hvernig verkefnið hefði
gengið hér sagði Erlendur: „Það
er óhætt að segja að það hefur
gengið á ýmsu. Við komum hingað
fyrst í haust og ætluðum að fara
í tökur, en þá vantaði snjó til að
fá sögusviðið sem trúverðugast.
Þá vildi ekki snjóa þannig að
ákveðið var að fresta verkefninu
fram yfir áramót og komum við
hérna aftur 23. janúar sl. Daginn
TÖLVU-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
þar er tölvupappírinn vel geymdur.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
TILBOD
A ^Qauknecht (trasbo)
HÁ GÆÐAÞURRKURUM
VERÐ ÁÐUR 40.900
VERÐ NÚ 34.900
nfflnst
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
Verð miðast við staðgreiðslu. VIÐ MIKLAGARÐ
ÞÚ SPARAR KR. 6.000
STENDUR AÐEINS í ÖRFÁA DAGA!
AN LYKTAR
OG BRAGÐS
HVER PERLA INNI
HELDUR óómg. AF
NÁTTÚRULEGUM
HVÍTLAUK ^
Uden lugf og smag
Ekstra stærke