Morgunblaðið - 11.03.1990, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.03.1990, Qupperneq 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990 '« 1 ■ . wBSmmí ■vf' ' í- ■n . > hefur unnið sigur med uppfærsiunni á Endurbygglngu í ÞJóðleikhúsínu, Hún segist ailtef ákveðin í að hætta ieikstjórn eftir ^ hverja frumsýningu og aldrei ákveðrpR en nú, — entí hyggst hún snuá sérað kartöfiúræíct eftir Svein Guðjónsson/Mynd: Ragnar Axelsson ÞAÐ ER hátt til lofts og vítt til veggja í þessu’gamla timburhúsi við Laufásveginn. Við göngum í eins konar hring, í gegnum eld- húsið og inn í tvær samliggjandi stofiir. I annarri þeirra stendur forláta flygill og gamall útskorinn stóll. í hinni er grænt sófasett og eins konar himinsæng úr dökkum viði. Þetta minnir á sviðs- mynd úr leikriti frá Mið-Evrópu um miðja öldina, ef hljómflutnings- tækin eru undanskilin. Svona hús hefúr öðruvísi sál en þau sem byggð eru nú til dags og ég hef á orði að mér þyki íbúðin sér- kennileg og skemmtileg. Brynja er sammála því, en bætir við að það hafí þótt glapræði þegar þau Erlingur festu kaup á húsinu á sínum tíma. „Þá voru timburhús bara timburhús og allt skyn- samt fólk fjárfesti í steinsteypu uppi í Breiðholti.“ FFlestir eru sammála um að Brynja Benediktsdóttir hafi unnið sigur með upp- færslu sinni á leikritinu „Endurbyggingin" í Þjóð leikhúsinu, ekki síst í ljósi þess að höfundurinn, Vaclav Havel, sem við- staddur var frumsýninguna, hefur óskað sérstaklega eftir því að sýn- ingin verði fest á myndband og not- uð sem fyrirmynd annars staðar, þar sem verkið verður sett á svið. En hvernig líður leikstjóra á frumsýn- ingu þegar sjálfur höfundurinn situr meðal leikhúsgesta? „Mér líður alltaf vel á frumsýning- ardegi því þá er raunverulega verki mínu lokið. Þá get ég ekkert annað gert en að senda orku og andlegan kraft til þeirra sem eftir stánda í eldlínunni, sem eru fyrst og fremst leikararnir á sviðinu og svo leikhús- fólkið í kringum sviðið. Auðvitað var óskaplega gaman og uppörvandi að fá Havel á sýninguna, en ég hef oft áður haft höfunda á frumsýningu, og það breytir í rauninu engu um sjálfa sýninguna. Athygli leikstjór- ans er ekki á höfundinum eða fólk- inu í salnum heldur uppi á sviðinu. Árangur þeirrar vinnu sem menn hafa lagt á sig, það er fullsköpuð sýningin, skiptir þá öllu máli og allt annað er aukaatriði, Nærvera Ha- vels breytti því engu hvað þetta snerti, en mér fannst auðvitað gott að finna hvað hann var hrifinn og ánægður. Hann var ósköp Ijúfur og indæll og svona maður, sem hefur þessa lífsreynslu og er leikhúsmaður af Guðs náð, hann segir ekkert sem hann meinar ekki. Maður veit að hann er ekki að blaðra svona út í bláinn.“ — Ertu kannski aldrei stressuð í starfinu? „Jú, biddu fyrir þér. Manni iíður oft óskaplega illa. Það er dálítið skrítið að mér líður yfirleitt verst í upphafi vinnunnar, þegar ég er að vinna það sem kallað er forvinna, þegar ég er að finna út hvernig í andskotanum ég á að koma verkinu til skila, til áhorfenda minna, með þeim listamönnum sem ég hef á að skipa hveiju sinni. Það er minn höf- uðverkur og fyrir mig er þessi tími hræðilega kvalarfullur. Hins vegar er þessi ferill mismun- andi, eftir að leikstjórinn hefur gert upp við sig þann skilning sem hann ætlar að leggja í verkið, þær að- ferðir sem hann ætlar að nota, og með hvaða fólki hann ætlar að vinna. Þá hefjast leikæfingar og þær eru náttúrulega krefjandi vinna, sem reynir mjög á verkstjórnarhæfileika leikstjórans. Leikæfingarnar skipt- ast í mörg tímabil og ánægjulegasta tímabilið er þegar leikararnir fara að hata leikstjórann og kenna honum um allt sem miður fer. Það er merki þess að leikarinn er að taka yfir. Þá er hann búinn að þiggja þá möt- un sem leikstjórinn getur boðið hon- um upp á og er farinn að leggja sjálfstætt mat á túlkunina. Á vissan hátt er hann að yfirgefa leikstjórnina og það er mikilvægur áfangi í sköp- uninni og merki þess að eitthvað sé að fæðast." Uppllfun af efri svölum Brynja kveðst ekki minnast þess að hafa í bernsku dreymt um að verða leikkona. Hún fæddist á sveitabæ í Mýrdal í Vestur-Skafta- fellssýslu, dóttir hjónanna Benedikts Guðjónssonar kennara og Róshildar Sveinsdóttur frá Fossi. Þegar hún var sjö ára fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur. „Ég held að pabbi og mamma hafi flust í bæinn til að koma okkur krökkunum til mennta. Á þeim árum var nánast ógerningur að koma I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.