Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
LÆKNISFRÆÐIÆ/g^r lífió á?
Sveinn Pálsson ogKópur
ÞEGAR Bjarni Pálsson gerðist
fyrsti landlæknir hér árið 1760,
nýkominn frá próíborði í Hafn-
arháskóla, var hann eini lækn-
islærði maðurinn í þessari
dönsku nýlendu.
Bjarni og eftirmenn hans í
Nesi við Seltjörn kenndu
nokkrum ungum mönnum fræði
sín og gegndu sumir þeirra störf-
um fjórðungslækna eftir að þeirri
skipan heilbrigð-
ismála var komið
á. Einn þeirra
var Sveinn Páls-
son og lærði af
frænda sínum
Jóni Sveinssyni
sem tók við emb-
ætti landlæknis
skömmu eftir lát
eftir Þórarin
Guðnoson
Bjarna.
Sveinn var Skagfírðingur,
fæddist 1762 og tók lokapróf úr
Hólaskóla tvítugur að aldri en hóf
læknisnám haustið eftir. Til Hafn-
ar sigldi hann svo að fimm árum
liðnum til frekari læknismenntun-
ar og lukust þá upp fyrir honum
nýir heimar. Samhliða námi í
læknisgreinum og heimspeki lagði
hann stund á almenn náttúruvís-
indi, og á kynni sín af leiklist í
borginni minnist hann síðar þegar
hann setur saman eigin ævisögu
og talar jafnan um sjálfan sig í
þriðju persónu: „Komedíuhúsið
var sá einasti lystisemdastaður í
Höfn, sem Sveinn gat ekki móti
sér látið að sækja, þegar ekki
þvertók skildingsleysi, og iðraði
hann þess aldrei." Sveinn lauk
ekki prófi í læknisfræði en útskrif-
aðist sem náttúrufræðingur og
fyrstu árin eftir heimkomuna
ferðaðist hann víða um land á
vegum náttúrufræðifélags í Dan-
mörku og skráði ítarlegar dag-
bækur og ritgerðir á dönsku sem
í fyrsta skipti birtust á prenti og
þá í íslenskri þýðingu röskum
hundrað árum eftir dauða höfund-
ar (Ferðabók Sveins Pálssonar,
Reykjavík 1945). Lækningar
stundaði Sveinn í og með á þess-
um ferðaárum 1791-97 en eftir
það varð þjónustan við sjúka meg-
instarf hans og þarf engan að
undra þótt hún reyndist tímafrek.
Umdæmi hans náði frá Reykjavík
að Lómagnúp og Vestmannaeyjar
þá meðtaldar, en oft varð hann
að sinna sjúklingum langt austur
í næsta hérað. Vötnin eru mörg
og ströng, hvergi var brú og
hvergi neitt það sem nú á dögum
gæti kallast vegur.
Sveinn gekk að eiga Þórunni,
yngstu dóttur Bjarna landlæknis,
og hokruðu þau fyrst undir Eyja-
fjöllum um skamma hríð en flutt-
ust svo að Kotmúla í Fljótshlíð
og bjuggu þar í 12 ár. Almenning-
ur hafði úr litlu að spila og lækn-
ar fengu ekki ævinlega mikið fyr-
ir snúð sinn, enda neyddist Sveinn
til að stunda sjóróðra með Eyfell-
ingum og sækja þannig björg í
bú. Næst lá leið þeirra hjóna til
Víkur í Mýrdal og áttu þau þar
heima til dauðadags. Sveinn
treysti sér ekki til að gegna emb-
ættisstörfum lengur en til 1833
Sveinn Pálsson
enda þá kominn yfir sjötugt og
bagaður af nárakviðsliti. Hann
iifði sjö ár eftir það, dó 1840 og
hafði þá verið ekkjumaður í fjögur
ár.
En nú víkur sögunni til Gríms
Thomsens skálds og bónda á
Bessastöðum. í mánaðarblaðinu
Sunnanfara 1894 birti hann
kvæðið um Svein Pálsson og Kóp.
Þá var Sveinn búinn að liggja
meira en hálfa öld í gröf sinni og
er líklegast að Grímur hafi í æsku,
áður en hann lagði upp í sína
Iöngu útivist með öðrum þjóðum,
heyrt frægðarsögur af lækninum
sem var þekktur fyrir samvisku-
semi og skyldurækni, þrátt fyrir
marga raun og kröggur í vetrar-
för. En hvaðan var stólpagrípur-
inn Kópur og hvaða Jökulsá
glímdu maður og hestur við í
kvæðinu? Fleiri en eitt og fleiri
en tvö straumvötn á svæði því sem
Sveinn læknir sinnti bera þetta
nafn og mætti ætla að flestum
dytti í hug Jökulsá á Sólheima-
sandi en öðrum þætti sennilegra
að kvæðið væri „skáldskapur“ frá
upphafi til enda. Grímur tekur
sjálfur af skarið í ritgerð sem
hann skrifaði í Dýravininn: „Nafn-
kenndastir hestar hér á landi á
síðari tímum voru þeir Kolur,
hestur síra Þorláks á Skinnastöð-
um, og Hornafjarðarkópur... Kóp-
ur er sá eini, sem ég hef heyrt
um getið, sem borið hefur þann
er á honum sat yfir Jökulsá á
Breiðamerkursandi, og var áin
rúmlega á miðjar síður, en al-
mennt álitið hún sé ófær, er hún
nær kviði. Kópur var hann kallað-
ur, sökum þess hann aldrei gekk
úr holdum, og var hann þó allra
hesta fjörugastur og þolnastur.
Ekki man ég, hver eigandinn var,
en heyrt hef ég, að góðhestakyn
í Hornafirði sé helst komið af
Kóp.“ Greinin birtist 1887 og að
líkindum hefur Grímur þá ekki
verið búinn að yrkja kvæðið góða.
Húsverndarsjóður
Reykjavíkur
í lok apríl verður úthlutað lánum úr Húsvemdarsjóði
Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til við-
gerða og endurgerðar á húsnæði í Reykjavík, sem
sérstakt varðveislugildi hefur af sögulegum eða bygg-
ingarsögulegum ástæðum.
Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja greinar-
góðar lýsingar á fyrirhuguðum framkvæmdum, verk-
lýsingar og teikningar eftir því sem þurfa þykir.
Umsóknarfrestur ertil 6. apríl 1990 og skal umsókn-
um, stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavíkur, komið
á skrifstofu garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2, 105
Reykjavík.
HERRASKÓR
Litur: Svart
Stærð: 40-46
Verð: 2.990,-
Ath: Mjúkir, léttir og úægilegir
Kringlunni,
s. 689212.
—ssOBm
VELTUSUNDÍ 1
21212
Domus Medica
S. 18519.
RYMINGARSALA
í annaó skipti á 12 árum.
Nú vegna skipulagsbreytinga.
Selt verður með góðum afslætti:
Sígild húsgögn og lampar, sýningarhúsgögn,
hlutir, sem hætt er að framleiða,
gluggatjaldaefni, bútar og fl.
Rýmingarsalan stendur yfir dagana
15., 16. og 17. mars.
Listi yfir vörurnar liggur frammi í versluninni
frá mánudagsmorgni 12. mars.
TILKYNNING
UM iFLUTNING
Eftirtaldar endurskoðunarskrifstofur
hafa flutt starfsemi sína í Ármúla 10.
Endurskoðunarskrifstofan hf.
Endurskoðunarskrifstofa
Bergs Tómassonar hf.
Endurskoðunarskrifstofa Kolbeins
Jóhannssonar (beinn sími 38888)
Endurskoðunarskrifstofa
Ólafs J. Ólafssonar sf.
Endurskoðunarskrifstofa
Tómasar Þorvarðarsonar
(beinn sími 32408)
Nýtt símanúmer er /
687210
Lausnin
. *y"f
lagermn
STAKAR HILLUR EÐA
HEIL HILLUKERFI
Lagerinn þarf að vera rétl
skipulagðurtil
að rétt nýting náist fram.
Kynntu þér möguleikana
semviðbjóðum.
LAGERKERFIFYRIR
VÖRUBRETTI
Mjög hentugt kerfi og sveigjaniegt við
mismunandi aðstæður. Greiður
aðgangur fyrir lyftara og vöruvagna.
STÁLHILLUR FYRIR
SMÆRRIEININGAR
UMBOÐS-OG HEILDVERSLUNIN
BÍLDSHÖFDA 16SÍMI672444 TELEFAX6725 80