Morgunblaðið - 11.03.1990, Blaðsíða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
Lýörœbissinnar
stofnaflokk ogstefna ab
sigri í kosningum
Zorig Sanjasuren og stuðningsmenn: Afsagnar forystunnar krafizt.
MONGÚLÍU
VINDAR BREYTINGANNA hafa borizt alla leið til Mongólíu, af-
skekkts lands hirðingja og eyðimerkur milli Sovétríkjanna og Kína,
sem er þrisvar sinnum stærra en Frakkland. Stjórn mongólskra
kommúnista hefur orðið fyrir sams konar þrýstingi og varð kommún-
istaleiðtogum í Austur-Evrópu að falli. Nýlega fjarlægðu valdhafarn-
ir siðustu styttuna af Stalín í höfiiðborginni Ulan Bator að kröfii
ungrar og reynslulítillar lýðræðishreyfingar, sem hefur staðið fyrir
útifundum siðan í desember og fékk nýlega að stofiia fyrsta stjórnar-
andstöðuflokk landsins.
Stalínslíkneskið var tákn um
yfirgnæfandi áhrif Rússa
í Mongólíu, en valdhaf-
amir hafa reynt að koma
á nokkrum umbótum inn-
anlands og tekið upp sjálf-
stæðari utanríkisstefnu.
Fyrir skömmu fór forsæt
isráðherrann, Dumaagiyn Sodnom, í
sögulega heimsókn til Japans til að
tryggja japanskar íjárfestingar og
stuðla þannig að því landinu verði
bjargað úr viðjum stalínisma. Enginn
leiðtogi landsins hafði áður farið í
heimsókn til auðugs kapítalistaríkis
síðan kommúnistar tóku völdin fyrir
69 árum.
Víðtækur stuðningur
Lýðræðissinnaðir stjórnarand-
stæðingar njóta víðtæks stuðnings í
baráttu sinni fyrir því að binda enda
á stjórn kommúnista. Þegar þeir
stofnuðu Mong-
ólska lýðræðis-
flokkinn í febrúar
kröfðust þeir þess
að leiðtogar komm-
únista segðu af sér
og að mannréttindi
og trúfrelsi yrðu virt. Lýðræðissinnar
stefna að sigri í kosningum, sem
kunna að fara fram eftir nokkra
mánuði, en flokkur kommúnista, Al-
þýðubyltingarflokkurinn, mun veij-
ast af alefli. „Lýðræðishreyfingin
hefur eflzt meir en nokkurn óraði
fyrir,“ sagði erlendur stjórnarerind-
reki nýlega. „Ef kosningar verða
haldnar er ekki ósennilegt að Mong-
ólski lýðræðisflokkurinn sigri og
myndi ríkisstjórn."
„Við hvetjum til þess að efnt verði
til réttarhalda gegn þeim embættis-
mönnum, sem gerðu þjóðina háða
erlendum ríkjum og leiddu kreppu
yfir þjóðina, og að þeim verði refs-
að,“ sagði í samþykkt, sem var gerð
á stofnfundi lýðræðisflokksins. Átt
var við núverandi og fyrrverandi
valdamenn, sem hafa hlýtt skipunum
frá Moskvu, fyrst og fremst Yumz-
mm ERLEND mm
HRIWCSIÁ
eftir Gudm. Halldórsson
hadyn Tsédenbal fyrrum flokksleið-
toga, sem býr í Moskvu ásamt
sovézkri eiginkonu, og Zhambyn
Batmunkh, sem tók við af honum
1984. Um leið var Míkhaíl Gorbatsj-
ov sent bréf, þar sem honum var
hrósað fyrir að reyna að binda enda
á valdaeinokun sovézkra kommún-
ista og sagt að Mongólski lýðræðis-
flokkufinn stefndi að umbótum í
hans anda.
Á fundinum ríkti mikill samhugur
með þremur milljónum Mongóla, sem
búa rétt handan landamæranna í
Innri-Mongólíu og lúta stjórn
Kínveija (íbúar „Ytri-Mongólíu“ eru
heldur færri). Lesin var orðsending
frá „mongólskum bræðrum og systr-
um“ í Innri-Mongólíu með svohljóð-
andi tilvitnun í Genghis Khan, sem
sameinaði alla Mongóla á 13. öld og
réð yfir heimsveldi, sem náði frá
Kyrrahafi til Dónár: „Þið megið ekki
halda að leiðin sé
of löng. Farið þið
og náið markinu.
Þið megið ekki
halda að það sé of
erfitt, reynið og
ykkur mun takast
það.“ Þegar tilvitnunin var lesin risu
fundarmenn úr sætum og hrópuðu
„Mongólar! Mongólar!"
Genghis Khan hetja
Kínveijar hafa nokkrar áhyggjur
af því að Mongólar hafa fyllzt nýju
þjóðarstolti, eins og i ljós kom á
fundinum. Þeir óttast að ólgan í
Ulan Bator kunni að breiðast út til
Innri-Mongólíu og að Mongólar
beggja vegna landamæranna hefji
baráttu fyrir sameiningu. Japans-
ferð mongólska forsætisráðherrans
og fyrirsjánleg þróun í átt til fyöl-
flokkakerfis í Mongólíu vekja einnig
ugg í Peking. Kínverskir fjölmiðlar
hafa ekkert sagt frá atburðunum í
Mongólíu, en mongólska sjónvarpið
var með beinar útsendingar frá
stofnfundi Mongólska lýðræðis-
flokksins.
Til skamms tíma töldu mongólsk-
ir valdhafar nána vináttu við Rússa
nauðsynlega til að halda Kínveijum
í skefjum. En viðskipti Mongólíu
og Kína hafa aukizt síðan sambúð
Kínveija og Rússa fór að batna og
þeir sem ferðast milli Iandanna
þurfa ekki lengur vegabréfsáritanir.
Um 60,000 sovézkir hermenn hafa
verið í Mongólíu, en talið er um
tveir þriðju þeirra verði farnir fyrir
árslok.
Genghis Khan hefur verið hafinn
til skýjanna í Mongólíu á ný og er
tákn mongólskrar þjóðarvakningar,
þótt hann sé talinn blóðþyrstur
landvinningamaður á Vesturlönd-
um. Eftir valdatöku kommúnista
var nafn hans þurrkað út og hættu-
legt gat verið að minnast á hann
opinberlega, þar sem hann hefði
verið „afturhaldssinni“. Nú vinna
mongólskir sagnfræðingar að því
að veita honum uppreisn æru og
almenningur dýrkar hann sem þjóð-
hetju. Opinberlega er sagt að á
honum hafi verið „tvær hliðar“ og
sagnfræðingurinn Natsaglery telur
að hann hafi verið „60% góður og
40% slæmur". Fyrirhugað er að
skíra nýtt hótel í höfuðið á honum
og Genghis Khan-vodka er væntan-
legt á markaðinn.
Syndir fortíðarinnar
Fyrstu valdhafar kommúnista í
Mongólíu, sem er næstelzta komm-
únistaríkið, minntu um sumt á
Genghis Khan og voru „stalínskari
en Stalín“. Þúsundir búddamunka,
presta og annarra stjórnarandstæð-
inga voru teknir af lífi, musteri
voru lögð í rúst og klaustrum var
lokað á árunum eftir 1930, í valda-
tíð Choibalsans, sem var kallaður
„Stalín Mongólíu". Nú er aðeins
eitt klaustur starfandi, en til stend-
ur að opna fleiri og nefndir hafa
verið skipaðar til að veita fórn-
arlömbum Choibalsans uppreisn
æru.
Tsédenbal, sem var var vikið frá
völdum 1984, var forsætisráðherra
í 32 ár og leiðtogi kommúnista-
flokksins í 26 ár. Hann er hataður
vegna þess að hann gróf undan
Lýðræðissinnar á útifundi: Víðtækur stuðningur.
mongólskri menningu og upprætti
búddatrú að mestu, stóð fyrir
hreinsunum í anda Stalíns og kom
á samyrkjubúskap, sem hirðingjar
áttu erfitt með að aðlagast. Núver-
andi valdhafar viðurkenna að kúg-
unarstjórn Tsédenbels hafi orðið
mörg þúsund manns að bana og æ
meira hefur borið á gagnrýni á
hann í ríkisreknum blöðum Mong-
ólíu.
Batmunkh, núverandi leiðtogi,
hefur fjarlægt verstu einkenni
stalínismans og fylgt fordæmi
Gorbatsjovs, sem hefur raunveru-
lega sagt honum að Mongólíumenn
þurfi ekki lengur að hlýða Rússum
í blindni. Ein helzta breytingin er
sú að stjórn skipulagsmála hefur
verið færð í nýtt horf og tillögur
hafa verið gerðar um breytingar í
menntunarmálum. Hefðbundnar
nýárshátíðir hafa verið leyfðar á
ný og hirðingjum hefur verið leyft
að eiga hjarðir, en dýrin mega þó
ekki vera fleiri en 150.
„Glasnost“
Árleg aðstoð Rússa hefur numið
880 milljónum dollara, eða helmingi
þjóðartekna, og Mongólíumenn
munu skulda þeim fimm milljarða
dollara. Áhugi Rússa á að hjálpa
Mongólíu hefur dvínað, þar sem
þeir eiga sjálfir við ærna erfiðleika
að etja. Mongólía er ekki lengur
<-“>16. sovétlýðveldið".
Um 95% utanríkisviðskipta
Mongólíu hafa verið við Comecon,
markaðsbandalag kommúnista-
ríkja, en það er í upplausn. Stjórn
landsins beinir sjónum sínum í vax-
andi mæli til auðugra iðnríkja eins
og í ljós kom þegar mongólski for-
sætisráðherrann fór til Japans. I
ferðinni undirritaði hann samning