Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 14

Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990 4 PÁPARF ÉGAÐFARA f HRIKALEGA SÁLUSORGUN... í TRÚNflÐI/A UÐUR EIR VILHJÁLMSDÓTTIR eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur KANNSKI verða brautryðjendurnir alltaf að bíða eftir sögunni. Það hefur stundum hvarflað að mér að eigi við um Auði Eir Vilhjálmsdóttur, sem var fyrsta konan til að taka prestsvígslu á Is- landi. Þó lygilegt sé eru ekki nema sextán ár síðan. Eftir 1981 tóku kvenprestar svo að þyrp- ast út á akurinn og þykir varla f réttnæmt nú þó kona taki vígslu. Auður Eir var lengst af eina konan í guðf ræðideild frá 1956 til 1962. Ég man eftir prófprédikun hennar í Háskólakapellunni og að hún talaði öðruvísi, hún sló til dæmis á létta strengi svo að virðulegir gestir litu hver á annan í forundran áður en þeir létu eftir sér að brosa. Hún vann í Kvenlögreglunni með námi, starfaði innan Hjálpræðishersins og lenti í hinu umtalaða Bjargsmáli 1967 er hún var sökuð um harðræði við stúlku sem þar var en strauk síðar. Bjargsmálið loddi við hana lengi og stóð henni ugglaust fyrir þrifum þegar hún reyndi að sækja um brauð — jafnvel löngu eftir að allir höfðu viðurkennt að málinu hafði verið snúið á haus að ekki sé nú talað um að allir voru löngu búnir að gleyma um hvað það sner- ist. Auður Eir er glaðlynd og hlý, einörð í f ram- komu, hún hefur smitandi hlátur og virkar býsna margþættur persónuleiki, einlæg trúkona og í bland við að vera jarðbundin og yfirveguð, mik- il tilfinningamanneskja. Hún hefur fitjað upp á nýjungum í kirkjulegu starfi I Þykkvabænum en þar hefur hún þjónað síðustu tíu ár. Við töluðum saman tvisvar vegna þessa viðtals. Þegar hún skilaði mér því úr yfirlestri hafði hún breytt ýmsu. „Ég er til í að ræða tilfinningar mínar við þig,“ sagði hún, „en ég uppgötvaði um helg- ina að ég er ekki reiðubúin að ræða þær við alla þjóðina." Við spjölluðum margt þessar stundir. Ég sagði mér fyndist kirkjan þung og næði ekki til mikils þorra manna. Hvaða skoðun hefur hún á því? að þarf að vera meiri gleði í kirkj- unni, hún þarf að vera nær okkur og opnari. Við verðum að sameinast um að vita hvern- ig við eigum að bera fram fagnaðarerindið. Ég starfa með nokkrum kvennahópum þar sem við ræðum þetta. Og í Þykkvabæ er hópur með konum og körlum. Hver hóp- ur hittist einu sinni í mánuði eða oftar, við tölum um trúna og lesum úr biblíunni. Mér finnst slík hópstarfsemi lyk- ilatriði. Ég tel að við skerp- um lífssýn okkar með því að tala saman og miðla reynslu og finna til samsvörunar við það sem við lesum. Þessar konur hafa ekki allar alist upp við trúarræktun eða iðk- un en vilja efla þennan þátt vitundar sinnar. Mér finnst þessi starfsemi byggjast á tvennu. Við finnum samspil lífs okkar og hinna kristnu sanninda. Svo erum við allar stjórnendur, hver ber sína ábyrgð og allar geta fært fram það sem þær vilja. Þeg- ar við byrjuðum fannst mér ég vita hvað þessir hópar ætluðu að gera en ekki hvernig við færum að því.“ Varstu trúrækin sem barn? „Ég hafði sterka trúarvit- und og sótti sunnudagaskóla hjá KFUK og fannst það stórkostlegt. Á hverjum sunnudegi v_ar þar þéttsetinn bekkurinn. Á bernskuheimili mínu var trúrækni eins og var og er á svo mörgum heimilum. Svona á sinn hátt. Pabbi fór með okkur í sunnu- dagsgöngur, niður á höfn að skoða skipin, og svo var komið við í Dómkirkjunni á heimleið. Ekki hlýddum við endilega á alla guðsþjón- ustuna en fengum andrúmið í okkur ung. Það var skemmtilegt. Eftir stúdents- próf úr Verzlunarskóianum 1956 fór ég í guðfræðideild.“ Ég hegg eftir því að þú notar oft orðið skemmtilegt. „Það er vegna þess mér finnst svo margt skemmti- legt. Þetta hópstarf sem ég minntist á. Ogtrúin er skemmtileg. Hvað ég meini? Sjáðu til. Hún er svo hress- andi.Að vera með fólki sem hittist í trúnni sinni, fólki sem er glatt. Kristin trú er fagnaðarboðskapur. Þess vegna hlýtur trúin að ger_a okkur glöð og fagnandi. Ég veit að mörgum finnst vera þyngsli og drungi í kirkj- unni. Ég hugsa það séu þess- ar hefðir.“ Hún hallar undir flatt. „Það er erfitt að rífa sig frá þeim. Stundum eru þær líkt og skurðgoð sem má ekki hrófla við. En þetta hlýtur að breytast. Mér finnst eftirtektarvert að sumar prestssystur mínar eru ekki jafn fastar í hefðun- um.“ Auður lauk guð- fræðiprófi 1962 og hafði þá að- eins ein kona lokið því áður. Hún tók ekki vígslu fyrren árið 1974. Sú sem næst kom var elsta dótt- irhennar, Dalla, 1981. Svo var líkt og flóðgátt opnaðist og nú hafa 18 konur tekið vígslu. Sárafáar konur höfðu verið í deildinni áður né voru henni samtíða. „Samt virtist þetta mjög hversdagslegt í augum próf- essora minna. Það var eins og ég væri þúsundasta kon- an. Jú, mér féll margt vel í deildinni. En það hefur heyrst að sumir kveinkuðu sér. Fannst guð hlyti að vera alls staðar annars staðar en í guðfræðideildinni. Ég fann ekki fyrir þessu en oft fannst mér erfitt. Ég man eftir rit- skýringartíma hjá prófessor Magnúsi Má er hann sagði við mig: „Nú sé ég að ég er alveg að drepa yður.“ Það var hveiju orði sannara. Við vorum að fara yfir ritskýr- ingu um Rómveijabréfið. Ritskýringar eru eins og hrossaræktarskýrslur, fannst mér sem var óvön þessum aðferðum. En oftast leið mér vel og deildarbræður mínir voru ágætis félagar og lærifeðurnir merkir. Mér finnst eftir á að hyggja að trúarlegri mótun minni megi líkja við fléttu — ég var í KFUK og ég starfaði í kven- lögreglunni, svo að áhrifin söfnuðust saman og fléttuð- ust í einn farveg. Nei, það urðu engir árekstrar, öllu fremur að eitt styrkti ann- að.“ Mig langar að tala um sálusorgun, segi ég. „Mig líka! Ég hef svo oft velt fyrir mér þeim mun sem er á kristilegri sálusorgun og sálfræðiviðtölum. Sú kristilega beinir til guðs með vandann. Kristileg sálusorg- un er tilboð. Tilboð um að leysa vanda. En það tekst auðvitað ekki alltaf. Þá fyl- list ég ýmsum spurningum. Eins ogþessari: Hvers virði er kristin trú sem leysir ekki vandamál? Að mínum dómi er sálusorgun eitt mikilvæg- asta verkefni kirkjunnar í nútímanum. En sálusorgun er meira en það eitt að sitja hjá presti eða sálfræðingi með vandamálin því við sálu- sorgum hvert annað leynt og ljóst á hveijum degi. Það er fjarska gott. En stundum finnst mér þó vanta á að við gefum okkur tíma til að tala saman, létta af okkur þyngslum eða áhyggjum áð- ur en þau vaxa manni yfir höfuð. Ég vona þetta sé að breytast. Það er engu líkara en menn séu að opnast örlít- ið og við finnum fíjótt hvað þetta gerir okkur gott og er hollt. Hvað prestar hafa meira að bjóða? Þetta eina og stóra; að eiga akkerið í trúnni. Sálfræðingar veita faglega hjálp, prestar hina trúarlegu. Þeir þyrftu að vinna meira saman, þeií-. bæta hver annan upp. Sjálf hika ég ekki við að vísa fólki til sálfræðinga ef þannig stendur á. Vinir eru yndisleg- ir sálusorgarar og stundum finnst mér leitt að það er eins og þeir hafi ekki nógu oft það vægi sem dugir til að á orð þeirra sé hlustað eða eftir þeim farið. Auðvitað byggja prestar og sálfræð- ingar á lærdómi sem gefur kannski forskot. En þeir búa ekki alltaf yfir væntumþykj- unni eða mannvitinu sem góður vinur hefur. Sumir segja að þeir leiti síst til prests. Ég held það stafi oft af vanþekkingu eða mis- skilningi á starfi kirkjunnar. Það er mjög líklegt að ég hafi brugðist í sálusorgun einhverntíma. Auðvitað! Og ég finn það manna best og það bakar mér sársauka. Svo mikinn að égþarf sjálf sálu- sorgun. Þá leita ég hennar einkum hjá fólkinu heima hjá mér, prestasystrum mínum, vinkonum mínum í biblíuhóp- unum eða öðrum vinum. Ég hef lista með nöfnum þeirra sem ég leita til þegar í harð- bakkann slær. Það eiga menn að hafa, það hjálpar að átta sig áður en vandinn er orðinn óviðráðanlegur. Ég býst við að konur séu fúsari að leita sér sálusorgunar og sinna henni. Karlmenn eru margir hræddir við að missa eitthvað af ímyndinni, finnst þeir opinbera veikleika, hika við að tjá tilfinningar. Én ætli það sé ekki að breytast.“ Þú hikar væntanlega ekki við að viðurkenna að þú sért tilfinningavera. „Ég er áreiðanlega tilfinn- ingavera. Það er náttúrlega ekki auðvelt að dæma um það sjálfur. Þegar maður ætlar að fara að segja hitt eða annað um sjálfan sig wmmtmwr HOOVER Compact Electronic 1100 Kr. 9.500,- stgr. ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 ÞARABAKKI 3, SÍMI 670100 Burt meö rykið fyrir ótrúlega lágt verö! pmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmuj Byrjenda- námskeið 1 Skemmtilegt og gagnlegt nám- skeið fyrir þá sem eru að byrja að fást við tölvur. Tími: 15., 20., 22., og 27. mars kl. 13-16 og 20-23. BSRB, ASI og VR styðja félaga sína til þátttöku á námskeiðunum. Leiðbeinandi: Stefán Magnússon. ■ Tölvuskóli Reykjavíkur ■ ■ Bl tölvufræðsla Borgartúni 28. s. 687590 • * ■I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.