Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 15

Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990 C 15 Ég veit að það þykir sniðugt að afgreiða konur með því að þær álykti allt út frá tilfinn- ingahliðinni. En við gerum það bara öll — á einn eða annan hátt.“ rekur mann í vörðurnar. Nei annars, hvaða vitleysa. Auð- vitað er maður best fær að dæma um sjálfan sig því að maður er alltaf með sjálfum sér — þó maður sé kannski ekki alltaf með sjálfum sér. En kosti og galla mína sé égkannski öðruvísi. Égtek eftir þegar ég er á fundum, þá segir einhver eftir á:„ Já en þú ert nú svo mikil tilfinn- ingamanneskja." Ég hugsaði þá með mér: Ér þetta nú jákvætt eða neikvætt? Það er allt í lagi að sitja heima hjá sér og vera tilfinninga- manneskja. En kannski er það ekki nógu virðulegt á fundum. En nú kæri ég mig kollótta. Það gleður mig hvað þáttur tilfinninganna er stór í öllum ákvörðunum. Og ég er ekki rög lengur við að tjá tilfinningar hvort sem er á fundum eða ekki. Við ályktum og ákveðum að miklu leyti út frá tilfinning- um, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Ég veit að það þykir sniðugt að afgreiða konur með því að þær álykti allt út frá tilfinningahliðinni. En við gerum það bara öll — á einn eða annan hátt.“ í framhaldi af þessu; hug- myndir um sjálfa þig. „Ég vinn svolítið eftir hug- ljómun. Það er minn veru- leiki og virkar örvandi á mig. Fyrir vikið hef ég gert ýmis- legt sem ég hefði ella ekki gert. Sóknarbörn mín láta eftir mér margt sem mér dettur í hug og það er skemmtilegt. 0g þau leyfa mér meira eftir því sem á líður, og við kynnumst betur. Þau gæta líka að mér og ég að þeim. Eða ég vona það sé gagnkvæmt." Heldurðu að þú sért vinsæl meðal þeirra, kannski um- deild? „Þú segirnokkuð. Nú veit ég ekki alls kostar. Þau njóta alla vega vinsælda hjá mér. Mér finnst samspil okkar meira og betra nú orðið. En ég velti ekki fyrir mér nótt og nýtan dag hvort ég sé ástsæl. Ef þau gagnrýna mig og ég er á því að ég eigi þetta ekki skilið og kannski enn frekar ef ég á það ski- lið ... þá þarf ég að fara í hrikalega sálusorgun. Bið þau um hana og fæ hana.“ ftir að Auður lauk guðfræðiprófi vann hún hjá kvenlögreglunni í nokkur ár og telur það hafa verið mjög gagnlegan vett- vang. Hún sótti um brauð í fyrsta skipti 1971, um Kópa- vog. Ég spurði hvort róður- inn hefði verið þungur. Hún fórnaði höndum. „Auðvitað. Ég var fyrsta konan sem reyndi slíkt. Ég gekk hús úr húsi og talaði við fólk og kynnti mig. Það var erfitt en skemmtilegt og mér var vel tekið þó svo ég fyndi að það hvarflaði að fæstum að kjósa mig. „Þú ert ágæt, góða, en ég gæti ekki hugsað mér að láta konu jarða manninn minn,“ eru orð sem ég hef oft vitnað til. Þegar ég hugsa um þessa kosningabaráttu núna finnst mér að viðbrögð fólks hafi að mörgu leyti verið skiljan- leg. Fólk þarf tíma, kona sem prestur er einhvers konar ógnun við það sem erum vön og við þekkjum. Ég áttaði mig ekki á þessu fyrst en þegar það fór að renna upp fyrir mér að ég hafði ekki minnstu möguleika varð ég óskaplega reið. Kannski voru það heppilegustu viðbrögðin og auðvitað átti ég ekki heimtingu á þessu.“ Auður Eir var svo vígð til Suðureyrar í Súgandafirði 1974 og þjónaði þar í ár. Hún segir að sér hafi verið tekið hlýlega. Ég spyr hvort það hafi komið á óvart. „Nei, ég var ekkert hissa á því. Fyrstu viðbrögð sókn- arnefndarinnar voru að finnast það svo sjálfsagt að ráða mig til starfa. Ég öðlað- ist góða reynslu á Suðureyri þetta ár.“ Hver fannst þér svo reynsla þín af prestskosning- um síðar? „Öll lífsreynsla er góð ef hún er ekki gífurlega þung- bær. Þegar ég hugleiði mín eigin mál hefur þetta verið ljómandi góður skóli að standa í þessum prestskosn- ingum. Kannski eyddi ég alltof miklum tíma í þetta prestskosningavafstur en ég varð einhvern veginn að halda áfram eftir að ég var byijuð. Kannski hefði ég átt að nota þessi ár til _að mennta mig í sálusorgun. A hinn bóginn var einmitt þetta vafstur ágæt menntun í að umgangast fólk.“ Þú sóttir um Dómkirkj- una. Eigum við að tala um það. Hún hugsar sig um.„ Æ, nei. Við skulum ekki gera það.“ Ég segi: Allt í lagi. Þá vendum við okkar kvæði í kross. Nú ert þú kona á miðj- um aldri, margar konur kvíða sálarlegum og líkam- legum breytingum. Hvað með þig? „Þá vil ég vitna í tvær manneskjur, séra Sigurð Pálsson, vígslubiskup, sem sagði á efstu árum sínum að bestu árin í ævi manneskj- unnar væru milli fimmtugs og sjötugs. Og í Þorbjörgu Daníelsdóttur, vinkonu mína, sem sagði við mig á dögun- um að jafnöldrur okkar væru svo margar að kikna undan álaginu. Þess vegna eigum við að leggja allt kapp á að finna hvað er að fara með okkur og reyna að kippa því í liðinn svo árin til áttræðs verði þau bestu.“ Oghvernig? „Ræða málin, ráðgast, nota reynslu hver annarrar. Ég held að þá sjáum við að við höfum troðið of miklu inn í tíma okkar. Við verðum að taka eitthvað af því út aftur. Svo veljum við auðvitað mis- jafnlega hvað við tökum út. Við hættum að segja, ég ætti að eða ég ætti ekki að ... Við finnum bara hvað við eigum að ... Hún styður hendi undir kinn. Heldur áfram. „Við uppörvum hver aðra svo mik- ið, við miðaldra konur. Ein vinkona mín segir oft við mig að ég sé há og grönn. Þá finnst mér ég há og grönn þó ég viti ég sé það ekki. Og það er óskaplega gaman að vera há og grönn! Svo læt ég svona hrós berast í ein- hverri breyttri mynd til næstu manneskju sem ég hitti. Ég held að það hafi líka góð áhrif og hressandi." Kannski er þetta nú ekki alveg svona einfalt, segi ég. „Þetta er hluti af þessari gagnkvæmu hversdagslegu sálusorgun sem'við töluðum um, sálusorgun vináttunnar. Hún er mjög merkur hlutur einmitt af því hann er ein- faldur. Líklega er það ein- mitt hjá manneskjum sem uppörva mann á þennan hátt sem við gætum sest niður að fá dýpri og alvarlegri sálusorgun. Með öllu þessu gerum við okkur grein fyrir sjálfum okkur og hjálpum hvert öðru til að fá góða mynd af okkur. En við þurf- um ekki að krefjast full- komnunar hvert af öðru.“ Hvað finnst þér um kröfur til presta og fullkomleika þeirra? „Prestar eiga að vísa veg- inn og svo fara þeir hann ekki alltaf að ýmissa mati. Auðvitað er álitamál hvað er að fara veginn og hvað ekki. Oft eru ósanngjarnar kröfur gerðar og dómar felldir af hörku. Menn eiga sér mynd af prestinum sem er ekki alltaf raunhæf. Þessi mynd er sprottin úr öðrum þjóðfélagsháttum. Ný mynd á við í breyttu þjóðfélagi. Vonandi erum við að reyna að gera hana. Kannski drög- um við upp þá mynd sem hentar okkar og hvert eftir sínu höfði. Það verður að huga að svo mörgu í kirkj- unni. Það verður líka að leysa vanda dreifbýlispresta. Gefa þeim fleiri tækifæri til að hittast, endurmennta sig. Þá líður öllum betur og þeir verða betri prestar. Við ger- um allt betur ef við erum glöð og finnst við ráða við verkefnið. Mér þykir tvímælalaust mikill kostur að umræður um kirkjuna eru hreinskilnari og opnari en var. Þá er líklegra að við komum að kjarna málsins, inntaki trúarinnar." Og Bjargsmálið á sínum tíma. Hvað gerði það þér? að hefur ugglaust gert mér ógagn. Við því verður ekkert gert. Mér fannst þetta ekki skemmtileg lífsreynsla en einhver svona reynsla verður æ algengari í þjóðfélagi okkar. Það er alltaf verið að taka fólk í gegn. Ég held að þetta sé hættulegt af því við getum öll vaknað upp við það að eitthvað hefur verið sagt eða skrifað til að skemma mann- orð okkar. Við eigum ekki að fara svona hvert með annað. En Bjargsmálið var ekki alvont fyrir mig. Margir styrktu mig, fólk sem ég hafði ekki hugmynd um að væri mér velviljað. Það var gott. Það var réttara sagt yndislegt. En ég sé enga ástæðu til að neita að þetta veitti mér ör.“ BOX1464 121 REYKJAVÍK SÍMÍ: 91/27644 Handnnenntaskóli Islands hefur kennt yfir 1600 fslendingum bæöi heima og erlendis á síðastliðnum níu árum. Hjáokkur getur þú lærtteikningu, litameð- ferð, skrautskrift, innanhússarkitektúr og gerð kúluhúsa - fyrir fulloröna - og föndur og teikningu fyrir börn í bréfaskólaformi. Þú færð send verkefni frá okkur, sendir okkur úrlausnir þínar og þær eru sendar leiðréttar til baka. - Biddu um kynningu skólans með því að senda nafn og heimilisfang til okkar eöa hringdu í sima 27644 núna strax, símsvari tekurvið pöntun þinni á nóttu sem degi. - Tímalengd námskeiðanna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt, hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hér er tækifærið, sem þú hefur beðið eftir til þess að læra þitt áhugasvið á auðveldan og skemmti- legan hátt. Þú getur þetta líka. - Nýtt hjá okkur: Innanhússarkitektúr. ÉG 6ska eftir ad fa’ sent kynningarrit hm'i mér að kostnadarlausu NAFN. k NAI I HEI HEIMILISF. 'Æ TILBOÐ ÓSKAST i Dodge Raider Ram. 4x4 árgerð ’87 (ekinn 28 þús. mílur), ásamt öðrum bifreiðum, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 13. mars kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00. Sala varnarliðseigna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.