Morgunblaðið - 11.03.1990, Qupperneq 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Pandóra Sigurður Eyberg, Magnús Þór Einarsson,
Júlíus Rúnarsson og Þór Sigurðsson.
ZEPPEUNROKK
ÍSLENSKT þungarokk hefúr á erfitt uppdráttar. Um
þessar mundir er þó mikil uppsveifla og ein nýrri þun'ga-
rokksveita er Keflavíkursveitin Pandóra, sem sendi frá
sér sína fyrstu plötu fyrir síðustu jól.
BLUSÞUNGAROKK
Quireboys Gamaldags blúsþungarokk.
Pandóru skipa Júlíus
Guðmundsson, tromm-
ur og þverflauta, Sigurður
Eyberg Jóhannesson, munn-
harpa og söngur, Þór Sig-
urðsson, gítar, og Magnús
Einarsson, bassi. Sveitin hef-
ur starfað í rúm tvö ár og
hefur frá stofnun haldið sig
við rokk í þyngri kantinum;
einskonar Zeppelinrokk. í
stuttu spjalli sagði Júlíus að
sveitarmenn hefðu þó fleira
undir í einu en þungarokkið.
Fyrsta piata sveitarinnar,
Saga, kom út seint á síðasta
ári. PandÓra er þegar farin
að leggja drög að annarri
plötu, en sveitin er nú að
semja söngleik sem Leikfélag
Keflavíkur hyggst setja upp
í haust. Tónlistin úr þeim
söngleik verður að öllum
líkindum hljóðrituð í sumar
og gefin út í haust. Það verð-
ur ekki hreint þungarokk að
sögn Júlíusar, „en það er
heví á milli“.
BLÚSROKK Á sér gróna
hefð í Bretlandi, en þó er
langt síðan sveit sem leik-
ur slíka tónlist hefur náð
ofarlega á vinsældalistum.
Yfirleitt hafa það verið
bandariskar rokksveitir
sem hafa einokað vin-
sældalista, þegar ráðsett-
ar breskar sveitir eins og
Iron Maiden hafa ekki lát-
ið á sér kræla. Það þótti
því saga til næsta bæjar
þegar fyrsta plata bresku
þungarokksveitarinnar
Quireboys, skaust efst á
breska breiðskífulistann í
fyrstu viku.
Rokksveitin Quireboys,
var stofnuð í Lundún-
um af þeim Spike og Guy
Bailey. Þeir kynntust á krá
(hvar annars) og fundu að
þeir áttu sameiginlegan
mikinn áhuga á gömlum
lögum með Rolling Stones
og ýmsum ámóta sveitum
sem ekki eru lengur til. Þeir
fengu ýmsa kunningja til
liðs við sig og frá byijun var
leikið keyrsluþungarokk
með píanói og blússkölum.
Með tímanum vann hljóm-
sveitin sér það orð að vera
með eindæmum fjörug tón-
leikasveit og 1987 var svo
komið að sveitin hélt níu
tónleika í röð í hinum fræga
Maquee-klúbb í Lundúnum
og uppselt var á alla tónleik-
ana. Það ár tróðu þeir og
upp á Reading-rokkhátíð-
inni. Þar sá til þeirra Sharon
Osboume, eiginkona Ozzy,
sem tók þá að sér. Ekki var
þó sopið kálið, því það tók
ár áður en útgáfufyrirtæki
tóku við sér síðla árs 1988.
Fyrsta platan var tekin upp
í Los Angeles og tóku upp-
tökur sex mánuði. Hermir
sagan að piltarnir hafi eytt
meiri tíma á ýmsum búllum
og skemmtistöðum en í
hljóðverinu, en þeim tókst
að ljúka við plötuna, sem
sló í gegn, eins og áður
sagði.
MlRONMaiden, sem er
sennilega ein vinsælasta
þungarokksveit hér á landi,
hefur ekki sent frá sér plötu
um alllangt skeið, en annar
gítarleikari sveitarinnar
Adrian Smith og söngvarinn
Bruce Dickinson hafa starf-
að með öðrum sveitum og
ýtt undir vangaveltur um að
sveitin.sé hætt. Fyrir stuttu
kom svo á daginn að Adrian
Smith hefði ákveðið að segja
skilið við félaga sína og helga
sig sveit sinni ASaP.
MMEIRA um Iron Maiden:
Sveitin hefur nú verið tíu ár
á samningi hjá EMI og hefur
fyrirtækið haft af því mikinn
hag. Til að minnast þessara
tímamóta hóf EMI útgáfuröð
fyrir stuttu, þar sem fyrstu
tíu smáskífur sveitarinnar
verða gefnar út á 12“, eina
á viku í tíu vikur, með auka-
lagi og stuttu spjalli við
trymbil sveitarinnar. Svo
þyrstir eru aðdáendur sveit-
arinnar orðnir að 12“, sem
flokkast með breiðskífum
vegna verðsins, fór inn á topp
tíu í Bretlandi og íslandi.
Að sigra
heiminn
ÞEGAR PLATA sleaze-
rokksveitarinnar Guns ’n’
Roses þaut upp bandaríska
breiðskífúlistann ári eftir
að hún kom út virtist það
koma öllum í opna skjöldu.
Sleaze-rokkið virtist eiga
greiða leið að banda-
rískum piötukaupendum
og nú er önnur slík sveit,
Skid Row, komin á topp tíu
með sína fyrstu breiðskífú.
Skid Row er ein þeirra
sveita sem njóta þess að
þekkja fræga poppara, í
þessu tilfelli Jon Bon Jovi.
Sveitin var stofnuð í New
Jersey 1987 af lagasmiðun-
um Dave Sabo og Rachel
Bolan. Nokkru áður höfðu
þeir byijað að semja lög og
bættu hvorn annan upp; ann-
ar með þungar hugmyndir
og hinn léttar. Strangar æf-
ingar tóku við eftir að sveitin
var fullmótuð og tækifærið
gafst svo þegar Bon Jovi, þá
orðinn heimsfrægur, bauð
sveitinni að hita upp hjá sér.
Skid Rovu Draumur sem
rættist.
Umboðsmaður Bon Jovi
hreifst af Skid Row og kom
sveitinni á samning hjá Atl-
antic. Fram að því höfðu pilt-
amir látið hveijum degi
nægja sín þjáning og ekki
velt fyrir sér framtíðinni. Nú
var hinsvegar alvara á ferð-
inni og þeir einsettu sér að
sigra heiminn. Að ráði útgáf-
unnar fór sveitin fjarri
glaumi New York og tóku
upp plötuna í Wisconcin.
Platan kom svo út á síðasta
ári, eins og áður sagði, og
sveitin virðist hafa ti! þess
alla burði að verða jafn vin-
sæl og Guns ’n’ Roses. „Þetta
er það sem okkur hefur
dreymt um alla ævi; gera
plötu, fara í tónleikaferð og
eta okkur veika af drasl-
fæði,“ sagði Sabo fyrir stuttu
og fáar sveitir eru í betri
aðstöðu til að gera það um
þessar mundir.
DÆGURTÓNLIST
Hvad erab þungarokki ?
Hærra, hraðar, þyngra
ÞUNGAROKK ER tónlistarstefna sem alla jafna er í
litlum metum hjá þeim sem telja sig hafa vit á eða
góðan smekk fyrir tónlist. Það á þó til góðar hliðar
líkt og önnur dægurtónlist og þar er að flnna krafl
og einlægni sem oft vantar í það sem hæst ber hveiju
sinni. Hér á landi eru þeir sem aðhyllast þungarokk
fjölmargir og fer sífellt fjölgandi.
Þungarokk skiptist í fjöl-
margar greinar og oft
ekki gott að greina á milli.
Ein Vinsælasta þungarokk-
sveit heims er Guns ’n’ Ros-
es. Tónlist
sú sem
sveitin
leikur, •
melódískt
þunga-
rokk, á
ættir að
eftir Ámo rekja til
Malthíasson Led
Zeppelin og stendur ekki
langt frá því popprokki sem
t.a.m. Bon Jovi og sveit
hans flytja, en hefur þó ver-
ið kölluð síeaze-rokk.
Glam-rock, eða glimmer-
rokk, á sitthvað skylt með
sleaze-rokkinu, en aðalmál-
ið þar virðist á stundum
vera klæðaburður og
stríðsmálning sveitarmeð-
lima og túberað hár. Glimm-
erokksveitir sem skara
framúr eru Mötley Criie,
Poison og Cinderella.
Hefðbundnara þunga-
rokk lifir góðu lífí má nefna
sveitirnar Def Leppard og
Iron Maiden. Af athyglis-
verðri nýrri sveit má nefna
rússnesku sveitina Gorky
Park. Hér á landi eru fjöl-
margar sveitir sem leika
þessa gerð af rokki, til að
mynda Battery, Pandóra og
Villingarnir. Afbrigði af
„klassísku” þungarokki er
blúsrokk, sem staðið hefur
með blóma í Bretlandi.
Speed-metal er einskonar
svar við iðnaðarrokki átt-
unda áratugarins. Upp
spruttu sveitir sem léku
þungarokk á tvöföldum
hraða með örum taktskipt-
um og tvöföldum hljóðstyrk
hið minnsta og lögðu meira
uppúr gítarfrösum en laglín-
um. Fremsta speed-metal-
sveit heims er Metallica, en
síðasta plata hennar,
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Bootlegs Fremsta íslenska speed-metalsveitin.
... and Justice for All, seld-
ist í rúmum tveimur milljón-
um eintaka. Fremsta
íslenska speed-metalsveitin
er Bootlegs. Þeir sem vilja
kynna sér speed-metal ættu
að fá sér Metallieu-plötuna
Kill ’em Ali; tímamótaplötu
í þeirri gerð tónlistar, og
plötu Bootlegs, WC Monst-
er.
Thrash rokk er grófara
en speed-metal, þó grunnur-
inn sé sá sami. Textar slíkra
sveita fjalla gjarnan um
dauða og eyðileggingu og
þær í meiri hávegum hafði
af aðdáendum sem þeir eru
blóðugri og tónlistin
grimmdarlegri. Tímamóta-
plata í trash-rokki er platan
Reign in Blood með sveitinni
Slayer.
Dauðarokk er enn eitt
afbrigði af speed-metal;
textamir enn drungalegri
og söngur bjagaður með
rafeindatólum til að ná fram
ómennskum stunum.
Líklega þarf mesta átakið
til að læra að meta dauða-
rokk, enda er hraðinn eins
mikill og unnt er. Fremstu
dauðarokksveitir eru Death,
íslénsk þungarokk.
sem plata hennar Leprosy
er talin með tímamótaplöt-
um í dauðarokki, og hol-
lenska sveitin Pestilence.
Ekki veit ég um íslenska
dauðarokksveit, en telja
mætti sitthvað sem Ham
hefur gert með dauðarokki,
þó ekki í hraða.
Ljúka má þessari upp-
talningu með að nefna hard-
core-rokk, sem mætti með
nokkrum rökum telja pönk.
Gömlurh pönkurum má
benda á plötuna Speak
English or Die, með sveit-
inni Stormtroopers of Death
(SOD), sem sameinaði
trash-rokk og hardcore á
einkar áheyrilegan hátt og
tónleikaplötu rastafari-
pönksveitarinnar Bad Bra-
ins, sem leikur hardcore-
reggae.
FRUMSKOGATHRASH
í ÁRAMÓTAUPPGJÖRI þungarokkblaða bar mikið á
brasilísku hljómsveitinni Sepultura, sem sendi írá sér
sína fimmtu breiðskjífu á síðasta ári. Platan sú heitir
Beneath the Remains og var auglýst sem „kraumandi
thrash úr frumskógum Amazon“, en Sepultura leikur
thrash-rokk af þyngstu gerð. Platan var víðast valin
thrash-plata ársins.
Sepultura var stofnuð um
1984 og var til að byija
með undir miklum áhrifum
af Venom og Hellhammer
(síðar Celtic Frost). Fyrstu
plötur sveitarinnar, Bestial
Devastation og Morbid Vis-
ions, þykja miklar hörmung-
arskífur, enda átti hún eftir
að hrista af sér utanaðkom-
andi áhrif og skapa sér per-
sónulegan stíl. Skömmu eftir
að önnur plata sveitarinnar
kom út gekk til liðs við hana
Andreas Kisser, klassískt
menntaður gítarleikari sem
hlustar á léttþungarokk ekki
síður en thrash. Þriðja plat-
an, Schizophrenia, vaki at-
hygli á sveitinni utan Brasilíu
og hún náði samning við ört
vaxandi þungarokkfyrirtæki,
Roadrunner. Þriðja platan,
Sepultura Frumskógarokk
frá Brasilíu.
Beneath the Remains, sló svo
í gegn svo um munar, eins
og áður kom ffam. Til að
kynna plötuna fór sveitin í
tónleikaferð um Bandaríkin
og Vestur-Evrópu við af-
bragðs undirtektir gagnrýn-
enda, ekki síður en óbreyttra
tónleikagesta.
Talsmaður sveitarinnar
segir hana vilja auka enn
þungann í tónlistinni, en um
leið breikka grunninn sem
hún er reist á.