Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Kristján með
FH næsta vetur
Þjálfar liðið ásamt Þorgils Óttari Mathiesen og leikur jafnframt með því
Ragnar Margeirsson
Ragnar
tilKR
KRISTJÁN Arason verður þjálfari 1. deild-
arliðs FH í handknattleik næsta keppn-
istímabil ásamt Þorgils Óttar Mathiesen,
núverandi þjáifara liðsins. Kristján mun
einnig leika með liðinu. Girnilegt tilboð
Kristján Arason er á heimleið og klæðist FH-
búningnum á ný.
frá spænska liðinu Teka, sem
landstiðsmaðurinn leikur með,
gæti breytt þessu, en Kristján
telur ólíklegt að félagið bjóði
honum betri samning en þann,
sem rennur út í júní nk.
Kristján, sem hefur verið í fimm
ár í Vestur-Þýskalandi og á
Spáni, sagði við Morgunblaðið eftir
að keppni lauk á HM í Tékkóslóvakíu
um helgina, að það
Steinþór væri spennandi verk-
Guðbjartsson efni að taka við FH-
liðinu og þjálfa það
trarrag með Óttari. „Við höf-
um svipaðar hugmyndir og þekkjum
hvorn annan mjög vel.“
Kristján hefur þegar keypt hús í
Hafnarfirði og sagði að hann hefði
ráðið sig í spennandi starf heima á
íslandi. Kristján sagði að starfið sam-
ræmdist ekki því að leika áfram með
landsliðinu, vegna þess hve mikill tími
færi í æfingar og keppni með liðinu.
Allar líkur væru því að því að hann
hefði leikið sinn síðasta landsleik.
„Ég hef það ágætt á Spáni, en það
er líka gott að koma heim,“ sagði
Kristján. Hann og samheijar hans
hjá Teka mæta vestur-þýska liðinu
Grosswallstadt á útivelli á sunnudag
í 8-liða úrslitum Evrópukeppni bikar-
hafa. „Gæfan hefur ekki fylgt manni
að undanförnu, en vonandi verður
það breyting á. Við mætum til leiks
með heimsmeistara [Mats Olsson] í
markinu og í því er mikill styrkur.“
KR-ingar hafa fengið góðan liðsstyrk. Ragnar
Margeirsson, landsliðsmaður í knattspyrnu,
hefur gengið til liðs við vesturbæjarliðið. Það
þarf ekki ekki að fara mörgum orðum um
það að Ragnar mun styrkja KR-liðið mikið.
Hann mætti á sína fyrstu æfingu í vestur-
bænum í gær.
W
E g á örugglega eftir að kunna vel við mig hjá
E KR og vona að KR-ingar eiga eftir að njóta
krafta minna,“ sagði Ragnar Margeirsson, sem
verður ekki einmanna. Hann hitti fyrir þijá leik-
menn frá Keflavík. Sigurð Björgvinsson, Gunnar
Oddsson og Ólaf Gottskálksson. „Þetta eru góðir
vinir mínir og þá þekki ég vel aðra leikmenn
KR-liðsins, sem ég hef leikið með í landsliðinu á
undanfömum árum,“ sagði Ragnar Margeirsson,
sem lék með Fram síðasta keppnistímabil.
HANDKNATTLEIKUR / HM
„Hahn gerði mistök“
- sagði Jörg Bahrke, framkvæmdastjóri IHF, um misskilning um Aog B sæti
ÍSLAND er aftur komið í
hóp B-þjóða í handknatt-
leik, eftir að hafa lent í 10.
sæti heimsmeistara-
keppninnar íTékkóslóvak-
íu, sem lauk á laugardag.
Sá misskilningur komst á
kreik að 10. sætið dygði
til að halda sæti meðal
A-þjóða en það á ekki við
rök að styðjast.
Að sögn Jóns Hjaltalín
Magnússonar, formanns
HSI, í gær voru það Erwin
Lanc, forseti IIiF og Raymond
Hahn, aðalritari sambandsins,
sem sögðu honum að þeirra
skilningur væri sá að 10. sæti
gæfi A-sæti. „Við héldum að
svo væri ekki, eins og komið
hefur í Ijós, en Ilahn sagði að
þetta væri sinn skilningur og.
forráðamanna franska hand-
knattleikssambandsins,“ sagði
Jón. „Þar sem málið var orðið
opinbert gáfu þeir Hahn og
Lanc okkúr leyfi til að tilkynna
íslensku leikmönnum og fjöl-
miðlum þessar fréttir," sagði
formaður HSI, en fréttin birt-
ist fyrst í kvöldfréttatíma
Ríkisútvarpsins á sunnudag.
Morgunblaðið náði ekki í
Hahn í gær, en Lanc staðfesti
í símtali við blaðið frá Aust-
urríki að hann hefði talið, er
hann ræddi við Jón, að 10.
sæti gæfi þátttökurétt í næstu
A-keppni, en hins vegar væri
ekki um það að ræða að hann
„túlkaði" reglurnar á þennan
hátt. „Ég hélt að reglurnar
væru svona þegar ég var að
ræða við Jón í Prag. Ég var
hins vegar ekki með pappírana
á mér, en skoðaði þá um leið
og ég kom heim og sá strax
að ég hafði ekki haft rétt fyr-
ir mér.“
Misskilningurinn var leið-
réttur í gær. Jón Hjaltalín
ræddi við Erwin Lanc og sagði
Austurríkismanninn hafa beð-
ist afsökunar.
Jörg Bahrke, framkvæmda-
stjóri alþjóða handknattleiks-
sambandsins, IHF, fullyrti í
símaviðtali við Morgunblaðið í
gær að aldrei hefði staðið til
að breyta reglunum. Átta
efstu sætin gæfu sæti í næstu
A-keppni, níu þar sem gest-
gjafarnir Svíar væru á meðal
átta efstu nú. „Reglurnar voru
sendar út fyrir mörgum mán-
uðum, og á nokkrum fundum
með fulltrúum þátttökuþjóð-
anna í Tékkóslóvakíu sögðust
allir hvað eftir annað vera með
reglurnar á hreinu,“ sagði
Bahrke. „Ég vorkenni Jóni
Hjaltalín og íslensku leik-
mönnunum, en þeir verða að
mæta til Austurríkis [í
B-keppnina] 1992,“ sagði
Bahrke. Þaðan komast þrjár
efstu þjóðirnar, og næsta Evr-
ópuþjóð þar á eftir, í A-keppn-
ina í Svíþjóð 1993.
„Raymond Hahn fór ekki
með rétt mál er hann sagði
Jóni Magnússyni að íslending-
ar væru enn í hópi A-þjóða.
Ilahn gerði mistök," sagði
Bahrke.
■ HM/B4-5
■ Inn og
út... / B8
HANDKNATTLEIKUR: SVÍAR FENGU 400 ÞÚS. KRÓNUR í BÓNUS / B5