Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 5
4 B B 5 MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞRHXJUDAGUR 13. MARZ 1990 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990 HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Sovétmenn bestir - en við meistarar, sagði Bengt Johansson, þjálfari heimsmeistara Svía BENGT Johansson, þjálfari Svía, var jarðbundinn eftir að lið hans hafði tryggt sér heimsmeistaratitilinn í handknattleik á laugardag með 27:23 sigri gegn Ólympíumeisturum Sovét- manna. „Markmið okkar var að tryggja okkur sæti á Ólympíu- leikunum í Barcelona 1992. Það tókst og gott betur, en þegar komið var í úrslitaleikinn var ekki um neitt annað að ræða en sigra. Sovétmenn eru bestir, en við erum meistarar." um eftir tækifærunum og nýtum þau betur en mótherjarnir," sagði þjálfarinn. Rétt hugarfar Svíar komu með réttu hugar- fari í leikinn. Þeir trúðu á sjálfa sig, trúðu að þeir væru bestir. Hveiju marki fögnuðu þeir rétt eins og titillinn væri í höfn, áhorf- endur voru vel með á nótunum og hrifust með. „Sænska liðið er hið eina, sem hefði getað þetta,“ sagði Anders-Dahl Nielsen, lands- Svíar voru vel að sigrinum komnir. Þeir voru betri í leiknum — dagsformið gildir. „Af hverjum 10 leikjum við Sovét- menn gætum við sigrað í þremur og þetta var einn þeirra. Við töpuð- um fyrir þeim í haust og það er alltaf erfítt að eiga við Sovétmenn, en þegar á hólminn var komið vissum við að við gætum lagt bjöminn að velli. Við lékum okkar sænska leik, bið- Steinþór Guðbjartsson skrífar frá Prag liðsþjálfari Dana við mig. „Hugar- farið hjá Svíum er þannig.“ Svíar voru orðnir langeygðir eftir þessum eftirsóttasta titli í handknattleik, en þeir uðu heims- meistarar 1954 og 1958. „Svía sætta sig aðeins við að vera best- ir,“ sagði Staffan Holmqvist, að- stoðarþjálfari. „Þegar dæmið hef- ur ekki gengið upp á úndanfönum árum hafa menn fussað og sveiað og sagt að handboltinn hefði nú verið mun betri hérna í gamla daga. Nú þagna þær raddir og handboltinn á eftir að rísa hátt í Svíþjóð. Við erum í mikilli sam- keppni við aðrar greinar, en titill- inn vekur áhuga og handboltanum verður veitt meiri eftirtekt. Við eflumst á allan hátt, en það sem skiptir mestu er að við fáum fleiri til að æfa og það skiptir mestu upp á framtíðina að gera.“ „Svona er lífið" Anatolíj Evtutsjenko, þjálfari Sovétmarina, lét ósigurinn ekki raska ró sinni. „Það er gott að hafna í verðlaunasæti. Eftir tap eru allir sorgmæddir, en menn gera mistök og verða að lifa við þau. Við vorum með góða stöðu, en þá fóru mínir menn sér of óðs- lega, einkum Tutsjkín og Atavin, og munar um minna. En svona er lífíð og þegar frá líður verða menn að taka tapi sem hverju öðru hundsbiti." Þjálfarinn sagðist hafa trúað á sigur lengst af, „en við spiluðum of mikið inn á miðjuna, það geng- ur ekki og þegar fjórar mínútur voru eftir játaði ég mig sigraðan." Morgunblaðiö/Júlíus Björn Jilsen, fyrirliði Svía, hefur lengi staðið í eldlínunni. Hann hampar hér krystalsvasa sem meistaramir til eignar. Mikil gleoi í Svíþjóð MIKIÐ var um að vera á Arlanda-flugvellinum í Stokk- hólmi þegar sænska landsliðið í handknattleik kom heim f rá Tékkóslóvakíu á sunnudaginn með heimsmeistaratitilinn. Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svía, tók á móti sænsku landsliðsmönnunum. Forráðamenn sænska hand- knattleikssambandsins eru yfir sig ánægðir með árangur sinna manna, sem er mikil lyftistöng fyr- ^■■■H 'r handknattleikinn Frá í Svíþjóð. Leikmenn Þorbergi sænska liðsins Aðalsteinssyni fengu sem svarar til lSvto°ð 400 þús. ísl. kr. í bónus fyrir gullið í Tékkóslóvakíu og ljóst er að sænska sambandið fær allt að 100 millj. ísl. kr. í kass- ann á næstu tveimur árum, vegna árangurs sænska liðsins á HM. Svíar eru í sjöunda himni og segja að varnarleikur sænska landsliðsins hafi verið hornsteinninn að sigrin- um og einnig góð markvarsla. Allir þrír markverðir sænska liðsins vörðu mjög vel. Svíar hafa verið að þróa varnarleiksaðferð sína í tíu ár, en engin önnur þjóð leikur varn- arleik eins og Svíar gei-a. Þá vita leikmenn sænska liðsins hvað þeir geta og hvert þeir eru að fara. Þeir reyna ekki hluti sem þeir geta ekki. Þá hefur Bengt Johansson, þjálf- ari Svía, sem tók við landsliðinu eftir Ólympíuleikana í Seoul, komið með nýjar hugmundir. Sænsku leik- mennirnir ráða því sjálfir hvernig þeir leika hveiju sinni og þeir hafa komið með margar hugmyndir. Svíar byggja sóknarleik sinn á leik- fléttum á milli tveggja til þriggja leikmanna, en síðan eru þeir með sóknarkerfi í bakhöndinni, sem allir leikmennirnir taka þátt í. Johansson fór með fimmtán leikmenn til Tékkóslóvakíu og fengu þeir allir tækifæri til að spreyta sig. Johansson hefur yfirumsjón með þremur sænskum landsliðum, sem leika öll sömu leikaðferðina. Þá leika nær öll félagslið í Svíþjóð eins varnarleik og leikinn er í sænska landsliðinu. Johansson hefur náð að virkja alla þá menn sem koma nálægt landsliðinu, þannig að það er stór hópur manna sem vinnur saman sem ein heild. Léttleikinn var látinn ráða ferðinni og leikmenn höfðu gaman af því sem þeir voru að fást við hveiju sinni. Það var stemmning yfir liðinu og á bekknum, þar sem allir kepptust við að hvetja hvern annan. Johansson sagði fyrir HM, að sænska liðið væri á réttri leið og aðeins verðlaunasæti gilti í Tékkóslóvakíu. Hann hafði svo sannarlega rétt fyrir sér. Litlar breytingar Það er ljóst að litlar breytingar verða á sænska landsliðinu fyrir HM í Svíþjóð 1993. Öruggt er að tveir leikmenn hætta nú að leika með liðinu. Það eru þeir Björn Jilsen, sem er 30 ára og Sten Sjö- gren, 32 ára. Þá er enn óljóst hvað Mats Olsson, markvörður, gerir, en hann er 30 ára. Bengt Johansson, þjálfari sænska liðsins, segir að hann eigi ekki aðeins einn eða tvo leikmenn til að taka við stöðu þessara gamal- kunnu leikmanna, heldur getur hann valið úr þremur til fjórum leik- mönnum í hveija stöðu. Flestir leikmenn sænska liðsins eru á besta aldri. Magnús Wisland- er er 26 ára, Ola Lindgren 26 ára, Staffan Olsson 25 ára og Erik Hajas 27 ára, svo einhveijir leik- menn sænska liðsins séu nefndir. Fyrir keppnina var talað um að Svíar léku í léttari milliriðlinum, en þegar upp er staðið þá virðist svo ekki hafa verið. Svíar unnu Sovét- menn í úrslitum. Rúmenar unnu Júgóslava í keppninni um þriðja sætið. Tékkar lögðu A-Þjóðveija að velli í keppninni um sjöunda sætið og Frakkar unnu íslandinga í keppninni um níunda sætið. Allar sigurþjóðirnar léku i milliriðli með Svíum. Undarlegt val ákeppnisstað AÐ VEUATékkóslóvakíu sem keppnisstað fyrir HM er ótrú- legt. Aðbúnaður var slæmur, skipulagningin fyrir neðan all- ar hellur og þjónusta við fréttamenn litil sem engin. Landsliðið bjó á tuttugu hæða hóteli í Bratislava. Tvær pólskar lyftur sáu um að flytja gesti til herbergja sinna og menn lærðu fljótt að LogiBergmann gera ráð fyrir Eiðsson 15-20 mínútum í skrífar. hveija ferð. Her- bergin voru þröng og óvistleg, maturinn slæmur og þjónustan lítil sem engin. Blaðamenn fengu aðstöðu sem fékk hárin á höfði þeirra til að rísa. „Fréttamiðstöðin" í Brat- islava skartaði einu telefaxtæki, símar voru fáir og lélegir, og tölu- legar upplýsingar voru seinar að berast. Aðstaðan í Prag var litlu skárri. Þar hafði verið byggt yfír fimleikagryfju og þegar einhver yfir kjörþyngd gekk inní salinn, lék allt á reiðiskjálfi. Þar voru telefaxtækin tvö ogjafnvel nokkr- ir símar sem þjóðminjavörður hefði gefíð mikið fyrir. Þá var blaðamönnum boðið upp á hand- knúnar ritvélar sem voru líklega allar eldri en undirritaður. Blaða- menn frá þjóðum Vestur-Evrópu mótmæltu á hveijum degi en svar- ið var alltaf það sama: „Við ráðum ekki við kerfíð". Jafnvel Pólveij- um, sem eiga ekki góðu að venj- ast í fjarskiptamálum, var nóg boðið. Starfsfólkið var allt af vilja gert til að hjálpa og gerði hvað það gat, en tungumálaörðugleikar settu strik í reikninginn. Fáir töluðu ensku, nokkrir þýsku en margir aðeins tékknesku. Á hótelunum lokaði símkerfið á miðnætti og ef reynt var að hringja til íslands gerðist það ótrúlega oft að „það virtist bara enginn vera við“. Á veitingastöðum var nóg af lausum borðum en þó ekki hægt að fá borð. Þau voru bara fyrir hópa. Það voru að vísu engir slíkir væntanlegir en þannig voru regl- umar og þeim var fylgt. Svíþjóð - Sovétríkin 27:23 íþróttahöllin í Prag, úrslitaleikur heimsmeistarakeppninnar í handknattleik, laugárdaginn 10. mars 1990. Gangur leiksins: 1:0, 1:3, 2:4, 3:5, 3:7, 7:9, 9:9, 10:10, 11:12, 11:14, 15:14, 17:17, 19:17, 20:18, 22:18, 23:19, 24:20, 24:22, 26:22, 27:23. Mörk Svíæ Magnus Wislander 6, Per Carlén 4, Bjöm Jilsen 4, Staffan Olsson 4, Erik Hajas 3, Ola Lindgren 3, Pierre Thorsson 2 og Johan Eklund 1. Varin skot: Mats Olsson 12, Tomas Svensson 1/1. Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Sovétmanna: Alexander Tútsjkín 11, Andrej Tjúmentsev 3, Júrí Nesterov 2, Mikhaíl Jakímóvíts 2, Andrej Tsjepkín 1, Alexander Karsakevíts 1, Valerí Gopín 1, Víatsjeslav Atavin 1 og Konstantín Shavarov 1. Varin skot: Andrei Lavrof 13/1, Igor Kustov 4. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Jug og Jeglig frá Júgóslavíu. Dæmdu ágætlega en voru heldur á bandi Svía. Áhorfendur. 10.200. Allir á bandi Svía SVÍAR áttu hug og hjörtu nær allra þeirra 10.200 áhorfenda, sem voru á úrslitaleiknum í Prag á sunnudaginn. Talið var að um 1.000 Svíar hafi verið á bekkjunum, en aðrir voru einn- ig á þeirra bandi. Astæðan er tvíþætt. I fyrsta lagi eru Sovétmenn almennt Iangt því frá að vera vinsælir á meðal Tékka. Sem dæmi, þá voru þrumur og eldingar í Prag á föstudag og spurði ég Tékka hvort svona veður væri algengt og hvernig á því stæði. „Ætli sé ekki verið að hrekja Rússana í burtu,“ sagði vinurinn. Hin ástæðan er sú að Svíar léku Steinþór Guðbjartsson skrífar frá Prag í sjöunda himni Sænsku heimsmeistararnir voru vita- skuld í sjöunda himni eftir sigurinn á Sovétmönnum, sem allir — nema sennilega Svíar sjálfir — töldu örugga með títilinn. Hér hafa þeir fengið gull- peninga sína og brosa sínu breiðasta, þrír af bestu mönnum Svía í leiknum. Frá vinstri: Mats Olsson markvörður, línumaðurinn Per Carlén og loks Magnus Wislander, en hann varð markahæstur Svía með sex mörk í úrslitaleiknum. skemmtilegan hándbolta, leik, sem áhorfendur kunnu að meta. Leik- gleðin var slík að áhorfendur gátu ekki annað en tekið þátt og gerðu það, svo um munaði. Stemmningin var engu lík og þegar heimsmeistararnir hlupu sig- urhring með fána, sem á stóð „vel- komin á HM í Svíþjóð 1993“, ærð- ist allt af fögnuði. Morgunblaðið/Júlíus Leikgleðin hjá Svíum var geysileg. Þeir fögnuðu hveiju með miklum tilþrifum og hvöttu hver annan til dáða. Hér fagna Magnus Wislander (3) og Staffan „Faxi“ Olsson marki. Leikgleðin rédi úrslitum“ - sagði sænski línumaðurinn snjalli Per Carlén Morgunblaðið/Júlíus Gullfaxi Staffan „Faxi“ Olsson var kjörinn besti maður úrslitaleiksins. Hér er hann á flugi fyrir framan sovésku vörnina. „Vert aðéger I besta liðinu“ - sagði Sovétmaðurinn Alexander Tútskjín, besti leikmaður keppninnar PER Carlén lék mjög stórt hlut- verk í sigri Svía í heimsmeist- arakeppninni. Hann byrjaði mjög vel en meiddist og um tima var talið ólíklegt að hann yrði með í úrslitaleiknum. En hann hélt áfram og barátta hans og kraftur dreif sænska liðið áfram. etta var skemmtilegur leikur og við höfðum gaman af því að spila. Við vissum að við gætum sigrað en þyrftum að hafa fyrir því og ég held að leikgleðin hafi ráðið úrslitum," sagði Carlén. „Munurinn var kannski sá að okkur langaði til að verða heimsmeistarar en Sovét- menn aðeins að skila vinnu sinni. í þeirra augum var þetta vinna en fyrir okkur miklu, miklu meira,“ sagði Carlén, og bætti við: „Úrslitin í dag eru í raun sigur fyrir hand- boltann. Þau sýna að ekki er hægt að búa til eitthvert ofurlið sem eng- inn getur sigrað,“ sagði hann. Stórkostlegt „Þetta var einfaldlega stórkost- legt. Við náðum frábærum leik og ég fann það strax að við áttu mögu- ieika á sigri, þrátt fyrir erfiða byij- un,“ sagði Ola Lindgren, leikstjórn- andi sænska liðsins. „Það væri raunhæft að vinna tvo til þrjá af tíu leikjum við Sovétmenn. Þeir eru líklega bestir en við vorum ákveðn- ir í að sigra, þó ekki væri nema bara fyrir sænsku áhorfenduma,“ sagði Lindgren. „Ótrúlegt" Mats Olsson, sem varði fnjög vel að vanda í úrslitaleiknum og lokaði rparkinu á mikilvægum augnablik- um, var að vonum mjög ánægður með titilinn. „Eg trúi þessu ekki. Það er ótrúlegt að þetta hafí gerst," sagði Olsson er hann kvaddi blaða- mann Morgvnblaðsins á flugvellin- um í Prag. „Við sýndum okkar besta á réttum tíma, og það er gaman að sjá árangur, en ég veit ekki hvenær ég átta mig fyllilega á þessu.“ Alexander Tútsjkín var kjörinn besti ieikmaður heimsmeist- arakeppninnar og kom það fæstum á óvart. Hann er gríðarlega skot- fastur og öruggur og ekkert lið hefur náð að stöðva hann. Hann átti þó í erfíðleikum með sænsku vörnina í úrslitaleiknum en gerði þrátt fyrir það 11 mörk. Ég veit ekki hvað gerðist en ég veit að ég er í besta liði heims,“ sagði Tútskjín í samtali við Morgun- blaðið. „Við hefðum átt að vinna en lékum illa. Af hveiju veit ég ekki, kannski voru það taugarnar og það var erfitt að leika gegn þess- ari vörn. Þá voru dómararnir slakir og Svíum hliðhollir," sagði Tútsjkín. Hann sagðist vera þokkalega ánægður með frammistöðu sína í keppninni, fram að úrslitaleiknum. „Ég nýtti ekki skotin og tapaði boltanum of oft. En svona er hand- bolti, það er ekki alltaf sigur,“ sagði Tútsjkín. ■ ANDINN í landsliðshópnum er yfirleitt mjög góður þrátt fyrir að á ýmsu gangi og á milii manna ganga ýmiskonar skot. Verði mönn- um á í messunni fá þeir að finna fyrir því og það fékk Jú- líus Jónasson að reyna. I síðasta tölu- blaði íþróttablaðsins er viðtal við Júlíus og félögum hans í landsliðinu fannst hann heldur fáklæddur á forsíðumyndinni. „Ég vissi að ég myndi fá eitthvað og um leið og blaðið kom út byijaði skothríðin. Þegar ég mætti á æfíngu heyrði ég klið í salnum og svo byijaði það á fullu,“ sagði Júlíus sem nú geng- ur undir nafninu Julio. ■ STEN Sjögren hefur ákveðið að hætta í sænska landsliðinu. Hann er 33 ára gamall og hefur leikið um 200 landsleiki. Sjögren leikur með Lugi og var þar með Jóni Hjaltalín Magnússyni, for- manni HSÍ, en hann lék með liðinu 1969-77. „Hann var að byrja hjá liðinu sem smástrákur þegar ég var að hætta,“ sagði Jón. ■ ÍSLENSKU landsliðsmennirnir fengu blómvönd frá Grunnskólan- um á Reyðarfirði við komuna til Islands. ■ ÍSLENDINGAR fengu ein verðlaun í heimsmeistarakeppninni, þrátt fyrir að hafa lent í 10. sæti. Það var fyrir að vera prúðasta lið keppninnar með 54 brottvísanir. Júgóslavar voru grófastir með 80 brottvísanir og voru þrívegis útilok- aðir. ■ ÞAÐ getur stundum verið erf- itt að drepa tímann á ferðum með landsliðinu og strákarnir styttu sér stundir við að horfa á Stöðina ’90. Liðið var tvær vikur í ferðinni og þættimir ekki margir og því voru landsliðsmennirnir næstum því bún- ir að læra þættina utanað og Ragn- ar Reykás fékk mikla samkeppni. ■ ÞAÐ GEKK ekki þrautarlaust að afhenda verðlaunin eftir úrslita- leikinn. Ervin Lanc forseti IHF flutti ræðu en hún heyrðist illa því túlkurinn yfírgnæfði hann. Þá vakti það furðu að Svíarnir fengu ekki styttuna sem fylgir heimsmeistara- titlinum fyrr en seinna um kvöldið og tóku aðeins við kristalsvasa í höllinni. ■ JUAN Antonio Samanranch, forseti alþjóða ólympíunefndinar- innar, leit við í Prag og sat þar blaðamannafund. Hann horfði þó ekki á úrslitaleikinn heldur flaug strax af stað til Rómar. ■ MATURINN í Tékkóslóvakíu þótti ekki sérlega góður og þegar liðið millilenti í London fóm nær allir niður í bæ til að borða. Pizza Hut og MacDonalds voru vinsæl- ustu staðirnir og þótti mönnum gott að fá „vestrænan mat“ eftir langa bið. ■ JULIAN Duranona frá Kúbu var markahæsti leikmaður keppn- innar með 55 mörk úr 80 skotum. Þar af voru 20 vítaköst. Sovétmað- urinn Alexander Tútsjkín kom næstur með 52 mörk úr 102 skot- um, þaraf 12 vítaköst. Alfreð Gíslason var 15. í röðinni með 32/14 mörk úr 70 skotum. Kristján Arason gerði 24 mörk úr 49 skot- um og Bjarki Sigurðsson 20 mörk úr 32 skotum. ■ PETER Hofman var með bestu nýtingu markvarða í keppninni, varði 51,1% skota ,sem á markið komu. Alexandru Buligan, mark- vörður Rúmena, varði 44,1% og var kjörinn besti markvörðurinn í keppninni. Guðmundur Hrafn- kelsson var með 31,8% nýtingu og Einar Þorvarðarson 26,4%. Logi Bergmann skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.