Morgunblaðið - 23.03.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.03.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990 Seltjarnarnes: Minnihluta- flokkarnir sameinast um firamboð ÁKVEÐIÐ hefiir verið að stofna Bæjarmálafélag Selljarnarness. Undir merkjum þess ætla Al- þýðuflokkur, Alþýðubandalag, Borgaraflokkur, Framsóknar- flokkur, óháðir og að öllum líkind- um Kvennaiisti að bjóða sameigin- lega fram í sveitarstjórnarkosn- ingunum í maí, að undangengnu opnu prófkjöri. Unnið hefur verið að þessu sam- eiginlega framboði undanfarnar vikur. Arnþór Helgason, sem á sæti í undirbúningsnefnd að stofnun bæjarmálafélagsins, sagði við Morgunblaðið að stefnt væri að opnu prófkjöri helgina 6-7. apríl. Auglýst verði eftir þátttakendum í prófkjörið um næstu helgi og fram- boðsfrestur renni út 28. mars. Sjálfstæðisflokkur hefur meiri- hluta í bæjarstjórn Seltjarnarness, með 4 fulltrúa af 7. Alþýðubandalag hefur 2 fulltrúa og Framsóknar- flokkur 1. Amþór sagði að minni- hlutaflokkarnir tveir hefðu upphaf- lega rætt um sameiginlegt framboð en orðið sammála um að ná þyrfti breiðari samstöðu um það framboð. Nú hefði það tekist og eindrægni verið ríkjandi á fjölmörgum fundum sem haldnir hefðu verið um þetta mál. Á fundi sl. þriðjudag var skipuð undirbúningsnefnd að stofnun bæj- armálafélagsins, framkvæmda- nefnd fyrir prófkjörið og málefna- hópur sem á að skila lista yfir þau málefni sem lögð verða til grund- vallar framboðsins. 'Stefnt er að því að kynna málefnalistann um næstu helgi. Stöð 2 læsir allri dagskrá ÖLL dagskrá Stöðvar 2, þar á meðal fréttir, verður send út læst frá og með 10. apríl næst- komandi. í fréttatilkynningu frá stöðinni segir að hingað til hafi hún sent út um 13.000 klukkustundir dag- skrárefnis og þar af hafi 3.000 klukkustundir verið sendar út ótruflaðar og án endurgjalds. Þá segir að stöðin hafi sett sér það markmið, sem nú sé í höfn, að 70% þeirra sem næðu útsendingum stöðvarinnar væru áskrifendur að dagskrá hennar, og í framhaldi af því sé dagskránni læst. Rýminc hefst 0HITACHI larsala í dag ! Sjónvörp, myndbandstæki, hljómtæki, örbylgjuofnar ITT INIOKIA 4 Sjónvörp SNOW&IP abc Kæliskápar Heimilistæki RONf sllNG KRIN LUNNI EDAiyil EM/l IIIM VI0 r KAIVl L £ 1^1 U IVl ÞAÐ ERALLTA FULLU /// Hinn eini og sanni Stórútsölumarkaður, Bíldshöfða 10, Fjöldi fyrirtækja - gífurlegt vöruúrval ASTEINAR - Hljómplötur - kasettur ★SAUMAUST - Alls konar efni AKARNABŒk - Tískufatnaður herra og dömu ★SKŒÐl - Skófatnaðui ★BOGART/GARBC - Tískufatnaður ★BLÓMAUST - Blóm og gjafavörur ★HUMMEL - Sportvörur alls konar ★ STÚDÍÓ - Fatnaður ★ SAMBANDID - Fatnaður á alla fjölskylduna ★MÆRA - Snyritvörur - skartgripir ★ VINNUFATABÚÐIN - Fatnaður ★THEODÓRA - Kventískufatnaður ★PARTY - Tískuvörur ★SPARTA - íþróttavörur ★BOMBEY - Barnafatnaður ★Versl. KAREN - Barnafatnaður, undirföt o.fl. ★SMÁSKÓR - Barnaskór ★X OG Z - Barnaföt Bætum við vörum daglega! Myndbandahorn -Fríttkaffí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.