Morgunblaðið - 23.03.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.03.1990, Blaðsíða 12
12 MORGÚNBLÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1990 Ferðavinningur í hundana Af viðskiptum mínum við Úrval-Utsýn og Knút Óskarsson eftir IUuga Jökulsson í litskrúðugum auglýsingabækiingi ferðaskrifstofunnar Utsýnar (sem nú mun heita Úrval-Útsýn) eru sólar- iandafarar glaðir, ánægðir og sól- brúnir; starfsfólkið traustvekjandi og skín af því hjálpsemi og góðvild; for- stjórinn sjáifur eins og klettur í haf- ipu og vili hvers manns vanda leysa. Ég ætla að segja hér eina sögu sem er því miður öðruvisi. Veturinn 1987-88 vildi svo til að ég var valinn í lið Reykjavíkur sem tók þátt í spurningakeppni Sjón- varpsins, Hvað heldurðu?, sem Ómar Ragnarsson stjórnaði af mikilli rögg- semi. Þetta var mest til gamans og framan af leiddi enginn okkar Reyk- víkinga hugann að verðlaunum, þótt starfsfólk Sjónvarpsins hafi verið að pískra um það sín á milli að reynt yrði að hafa verðlaunin óvenju glæsi- leg, til dæmis bíl eða utanlandsferð. Svo var það tilkynnt í undanúrslitum að ferðaskrifstofan Útsýn hefði af fádæma rausnarskap heitið sigurveg- urum ferðavinningi að upphæð 100 þúsund krónum hveijum, og svo stór- kostlegur þótti þessi vinningur að á þessu var tönnlast sýknt og heilagt í hveijum þætti upp frá því. (Síðan hefur mér að vísu verið tjáð, og það af sölustjóra Úrvals-Útsýnar, að þeg- ar ferðaskrifstofur „gefa“ vinninga af þessu tagi sé oftastnær alls ekki um gjöf að ræða, heldur kaupi keppn- ishaldari ferðirnar en þá væntanlega með einhveijum afslætti gégn auglýs- ingunni sem skrifstofan fær.) Þegar á hólminn var komið, í úrslitaþáttinn í Stykkishólmi í apríl 1988, höfðu ýmsir aðrir aðilar heitið sigurvegur- um verðlaunum, til dæmis átti sigur- liðið að fá ferð um Breiðafjarðareyj- ar, helling af harðfiski og sitthvað fleira, en þessi verðlaun voru öll felld niður að kröfu forstjóra Útsýnar sem mættur var á staðinn til að afhenda ferðavinninga sína; ekkert mátti skyggja á Útsýn og þá auglýsingu sem fyrirtækið ætlaði að fá út úr þessari keppni og sínum myndarskap. Nema hvað, við Ragnheiður Erla og Guðjón unnum • í keppninni (og Flosi var náttúrlega sér á báti í sinni óformlegu keppni) og því hugði ég gott til glóðarinnar að komast nú til útlanda í frí. Að vísu uppgötvaði ég fljótlega að ég ætti ekki hægt með að komast af landi brott á árinu 1988, en á miðanum sem Helgi Magnússon, þáverandi forstjóri Útsýnar, afhenti okkur í Stykkishólmi var kveðið á um að ferðin skyldi farin á því ári. Ég talaði því við hann og spurði hvort nokkuð væri því til fyrirstöðu að ferð- inni yrði frestað fram á næsta ár. Hann taldi það lítið mál og bað reynd- ar ekkert um að það fyrirkomulag yrði fært inn á miðann úr Stykkis- hólmi; sjálfur hafði ég heldur ekki sinnu á því, enda taldi ég orð standa, svona oftast nær. í fyrra hugðist ég síðan skreppa í hálfan mánuð til Portúgals og var farinn að leggja drög _að þeirri ferð með starfsmönn- um Útsýnar þegar aftur kom eitt- hvert babb í bátinn og ég sá fram á að ekki kæmist ég heldur með góðu móti þetta árið. Því talaði ég að nýju við starfsfólk Útsýnar og spurði hvort ekki mætti enn fresta ferðinni um eitt ár og fékk þau svör að ekkert væri því til fyrirstöðu. Að vísu var mér bent á að eftir því sem ég fre- staði ferðinni lengur minnkaði vinn- ingurinn að verðmæti, því ekki tíðkaðist að framreikna vinninga sem miðaðir væru við ákveðna upphæð og hundrað þúsund kallinn yrði þess vegna æ verðminni. (100 þúsund krónur í apríl 1988 myndu nú vera eitthvað rúmlega 140 þúsund, svo dæmi sé tekið.) Þetta fannst mér ansi skítt, því ég gat ekki betur séð en að ef ferðaskrifstofa splæsir sem svarar hundrað þúsund krónum í vinning eitt árið hljóti hún að geta staðið við það ári eða tveimur árum seinna, þótt krónurnar séu ef til vill orðnar nokkru fleiri. En þetta lét ég GOÐAR VETRARVÖRUR FRÁ ARCTIC CAT Töskur Samfestingar Hanskar Einnig mjöggott úrval aukahluta Allt lietta og mlklu meira BIFREIÐAR & LaNDBÚNADARVÉLAR HF. Ármúla 13 - 108 Reykjavik - S1 681200 El 1 Suðurlanúslnaiil 14 samt kyrrt liggja í bili. Svo var það nú eftir áramótin að ég og mín litla flölskylda ætluðum loks að nota okkur þennan góða vinn- ing og fara í frí til útlanda, enn var Portúgal' efst á vinsældalistanum. Útsýn hafði þá breyst í Úrval-Útsýn með nýjum eigendum en það hvarfl- aði ekki einu sinni að mér að það skipti nokkru máli, ég hugsaði sem svo að nýir eigendur hefðu auðvitað ekki bara keypt eignir fyrirtækisins og sambönd, heldur og skyldur þess, svo sem cins og þá að ég kæmist til útlanda í frí. En það virðist hafa verið leiður misskilningur. Óbreyttir starfsmenn Útsýnar bentu mér á að tala við nýja forstjórann, sem Knútur heitir Óskarsson, þar eð vinningurinn væri að verða tveggja ára gamall, og ég gerði það bláeygur í framan. Ég held að ég ýki ekkert þó ég segi að forstjórinn nýi hafi undireins verið eins og snúið roð í hund. Hann bytj- aði strax að tala um það að nú væru komnir nýir eigendur til sögunnar og hann vissi ekki til að þeir hefðu skuld- bundið sig á þennan hátt. Ég benti honum á það sem að ofan greinir, hvort þeir hefðu ekki keypt skuld- bindingar Útsýnar eins og annað, og jú, ég heyrði ekki annað en hann yrði um síðir að fallast á það. En þá hengdi hann hatt sinn á annað smáat- riði, sem sé það að ég fann ekki leng- ur í fórum mínum miðann góða frá Stykkishólmi, þar sem stóð svart á hvítu að ég ætti inn ferðavinning hjá Útsýn. Þetta hafði ekki verið ýkja virðulegur miði svo ég hef greinilega ekki tekið það nógu hátíðlega að passa upp á hann, en nú mátti á Knúti skilja að það skipti höfuðmáli hvort hvort ég gæti reitt fram mið- ann, ekki hvort ég hefði á sínum tíma unnið þessa ferð, sem varð næstum aukaatriði í máli hans. Hann sagði að miðinn hefði verið eins og hver önnur ávísun og glatað fé ef hún týndist og gaf meira að segja í skyn að ég hefði vel getað farið í ferðina fyrir tveimur árum, eða gefið hann einhveijum öðrum, og væri nú að reyria að svindla út aðra ferð. Ég er maður ákaflega seinþreyttur tii vandræða svo ég benti manninum bara á að hana gæti sem hægast gengið úr skugga um að ég_ hefði ekki farið í neina ferð á vegum Útsýn- ar síðustu tvö árin, né heldur hefði ég gefið ferðina öðrum, enda var tek- ið skýrt fram er vinningurinn var afhentur að hann væri bundinn okkur vinningshöfunum og engum öðrum, og þar á ofan gæti hann líka séð það í sínum plöggum að aldrei hefði nokk- ur maður framvísað þessum fræga miða á skrifstofu Útsýnar og viljað fara í sólarlandaferð. Sömuleiðis var samlíkingin við ávísun og glatað fé alveg út í hött því eins og allir vita má fella ávísanir úr gildi og end- urnýja þær ef sannað er að þær hafa hvérgi verið innleystar. Ég spurði því Knút hvort hann hlyti ekki að eiga afrit af miðanum í hirslum sínum, úr því hann var svona mikilvægur, og séð þar að ég hefði í raun og sannleika unnið þessa ferð, en væri ekki að ijúga að honum eða reyna að hafa af fyrirtækinu fé, eins og hann lét liggja milli línanna. Hann viðurkenndi að sjálfsagt ætti hann þetta afrit og gæti fundið það við tækífæri en hélt áfram að malda í móinn og fullyrti sem fyrr að ég „væri í vondum málum“ úr því ég hefði ekki lengur undir höndum frumrit miðans. Satt að segja hélt ég að það hefði bara staðið eitthvað illa í bólið hjá Illugi Jökulsson „Eini mögnleikinn til þess að ég kæmist í ferðina,sagði sendiboð- inn frá Úrvali-Útsýn, . væri sá að fyrri eigend- ur, sem hefðu leyft mér að fresta ferðinni — þá væntanlega Helgi Magnússon eða þeir sem hann var fulltrúi fyrir — að þeir borguðu ferðina eða drægju hana frá söluverði ferðaskrifstofunnar. Hér ætla ég að setja þrjú uþphrópunar- merki!!!“ forstjóranum þennan dag og datt ekki annað í hug en allt færi vel að lokum og við gætum farið að sleikja páskasólina í Portúgal eins og hugur- inn stóð til. Að vísu gekk mér furðu illa að ná tangarhaldi á forstjóranum næstu vikurnar, til þess að ganga frá málinu, en beið þolinmóður meðan hann rótaði í skjalaskápum sínum í leit að miðanum. Mér datt í hug að útvega mér myndband af úxslits- þættinum í Stykkishólmi og færa honum, svo hann mætti sjá að ég hefði vissulega unnið ferð hjá fyrir- tæki hans, en taldi það satt að segja móðgun við fullorðinn mann sem áreiðanlega vildi þrátt fyrir allt reyn- ast mér hið besta, svo ég hætti við það. En að lokum gafst ég upp á biðinni, enda leið óðum að páskum, og fór því og talaði við starfsfóik Útsýnar og vildi fara að koma ferð- inni á hreint. Óbreyttir starfsmenn tóku mér ljúfmannlega, sögðu að vísu sem fyrr að vinningurinn yrði ekki framreiknaður, sem mér fannst jafn skítt og áður, en þar sem það væri heldur óvenjulegt að vinningsferðum af þessu tagi væri frestað svona lengi vildu þeir ekki taka ábyrgð á að skrá mig og mitt fólk endanlega í ferðina, heldur þyrftu þeir blessun sinna yfir- manna. Sem fyrr var ekki nokkur leið að ná í Knút Óskarsson svo ég talaði við sölustjóra Úrvals-Útsýnar, Önnu Guðnýju Aradóttur, og hélt eftir það samtal að nú væri loksins hægt að ganga frá málinu. Hún tók mér sem sé ákaflega vel, kannaðist ekki við málið en taldi það bersýni- lega ekki svo vont sem forstjórinn, og var meira að segja farin að ráð- leggja mér á hvaða hóteli væri rétt- ast að gista. Einhveijar vöflur voru að vísu á henni um það hvort vinning- urinn góði væri svokallaður almennur ferðavinningur, og ég gæti farið hvert sem ég vildi, eða hvort hann hefði verið bundinn leiguflugi Útsýnar og ég gæti því aðeins farið á þá staði sem Útsýn (og nú Úrval-Útsýn) flygi til á hveijum tíma. Þetta ætlaði hún að kanna og hafa síðan samband við mig og ég fór kátur vel af fundinum með henni, enda taldi ég að ef allt um þryti og vinningurinn dæmdist gilda aðeins á leiguflugleiðum Úr- vals-Útsýnar (sem ekki flýgur til Portúgals fyrr en í sumar), þá mætti ugglaust finna annan stað þar sem hægt væri að eyða páskunum. Voru nú jafnt hinir yngstu sem elstu með- limir ijölskyldunnar harla glaðir og allir fóru að hlakka til. Anna Guðný má eiga það að hún brást skjótt við. Tveimur dögum eftir að ég talaði við þana var hringt til okkar frá Úrvali-Útsýn, það var að vísu ekki hún sjálf og hvað þá heldur forstjórinn heldur ein hinna brosandi stúlkna í auglýsingabæklingnum, sem bar okkur þau stuttu og iaggóðu skilaboð að Anna Guðný hefði tekið málið upp á fundi hjá fyrirtækinu og niðurstaðan orðið sú að ég ætti ekki lengur inni neina ferð hjá fyrirtæk- inu. Punktum, basta. Miðinn marg- nefndi hafði loksins komið í leitirnar og þar stóð, eins og allir vissu frá byijun, að ferðina ætti ég að fara árið 1988. Nú þegar forstjórinn, Knútur Óskarsson, hafði að því er virtist ekki lengur neitt til að hengja sig á, þá greip hann þetta ártal feg- ‘ins hendi og það þótt ég hefði fyrir löngu verið búinn að útskýra fyrir honum að ég hefði í tvígang fengið leyfi stjórnenda fyrirtækisins til að fresta ferðinni, og honum hefði þá ekki dottið í hug að gera sérstakar athugasemdir við það. Eini möguleik- inn til þess að ég kæmist í feyðina, sagði sendiboðinn frá Úrvali-Útsýn, væri sá að fyrri eigendur, sem hefðu leyft mér að fresta ferðinni, þá vænt- anlega Helgi Magnússon eða þeir sem hann var fulltrúi fyrir, að þeir bor- guðu ferðina eða drægju hana frá söluverði ferðaskrifstofunnar. Hér ætla ég að setja þtjú upphrópunar- merki!!! Nú. Ekki förum við til Portúgals með hækkandi sól og þar fór nú vinn- ingurinn giæsilegi fyrir lítið. Sannast að segja er ég svo standandi bit á þessari framkomu að ég veit ekki almennilega hvaðan á mig stendur veðrið. í fyrsta lagi er maður látinn koma fram eins og betlari sem er að sníkja sér sólarlandaferð, í stað þess að auðvitað ætti ferðaskrifstofan að standa kurteislega við sínar skuld- bindingar, burtséð frá öllum eigenda- skiptum sem koma mér og öðrum viðskiptavinum náttúrlega ekkert við. í öðru lagi er viðskiptavinur greini- lega ekki rétta orðið þegar forstjóri þessi á í hlut, ekki úr því að hann telur sig ekki geta grætt neitt á mér, því auglýsinguna út á rausnar- skap sinn er fyrirtækið löngu búið að fá og það voru meira að segja aðrir menn sem högnuðust á henni! Kannski viðskiptaóvinur væri nær lagi í augum Knúts Óskarssonar, eða sníkjudýr, því það fór auðheyrilega mjög í taugarnar á honum að þurfa að sinna þessu erindi og í því engin óskapleg gróðavon. Sannleikurinn er væntanlega sá einn að Knútur tímir ekki að standa við vinningsgjöfina, eins og honum ber þó skilyrðisiaust, hélt ég. Nema það sé siður hans og helsta skemmtun i lífinu að niður- lægja fólk. Ég ætla að minnsta kosti rétt að vona að ekki sé komið_ svona fram við alla þá sem leita til Úrvals- Útsýnar, en get eiginlega ekki ráð- lagt nokkrum manni að láta á það reyna. Höfundur er rithöfundur og útvarpsmnður í Reykjavík. Mál Þorgeirs Þorgeirssonar tekið fyrir hjá Mannréttindanefhd Evrópu MUNNLEGUR málflutningur í máli Þorgeirs Þorgeirssonar rit- höfundar gegn íslenska ríkinu fór fram hjá Mannréttindanefiid Evrópu í Strassborg 14. mars sl. Þorgeir kærði islenska ríkið til Mannréttindadómstólsins vegna dóms yfir honum fyrir að hafa ritað tvær greinar í Morgun- blaðið um lögregluofbeldi. Að sögn Þorsteins Geirssonar ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu- neytinu varðar málið 6. og 10. grein. mannréttindasáttmálans, þ.e. um rétt á sanngjarnri málsmeðferð og rétt til fijálsrar tjáningar. Nefndin fjallaði um hvort kæran væri hæf til umfjöllunar hjá dóm- stólnum og hefur ákveðið að taka hanan til nánari umfjöllunar. Þor- steinn Geirsson sagði að ekki væri hægt að segja fyrir um hvort málið verði lagt fyrir Mannréttindadóm- stólinn fyrr en niðurstaða nefndar- innar liggur fyrir. Þorgeir Þorgeirsson flutti mál sitt sjálfur fyrir Mannréttinda- nefndinni ásamt lögmanni sínum Tómasi Gunnarssyni, en af hálfu íslenska ríkisins fluttu Þorsteinn Geirsson og Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður málið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.