Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 1
L R A
LANDS
N N
1990
■ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL
BLAD
HANDBOLTI / SPANN
Bidasoa stöðv-
aði Barcelona
ALFREÐ Gíslason og samherjar í Bidasoa stöðv-
uðu sigurgöngu Barcelona um helgina. Þegar 24
sekúndur voru eftir og staðan jöfn, 20:20, varði
markvörður Barcelona. Hann flýtti sér um of, sendi
beint á Bogdan Wenta, sem þakkaði fyrir sig, gaf
aftur inná línuna og sigurmarkið kom rétt áður
en flautað var til leiksloka. Alfreð Gíslason (7/1)
og Wenta (8) voru í sérflokki hjá Bidasoa. Vujovic
(5/5) var markahæstur hjá gestunum, sem léku
20 leiki í röð án taps. Við sigur Bidasoa vænkað-
ist staða Kristjáns Arasonar og Teka, sem sigraði
Arrate og er nú aðeins stigi á eftir Barcelona, en
níu umferðir eru eftir. Kristján Arason (8/3) og
Melo (9/4) áttu góðan leik, er Teka vann Arrate
29:26. Geir Sveinsson og Atli Hilmarsson gerðu
sitt markið hvor fyrir Granollers, en Massip (7/2)
var markahæstur er liðið tapaði, 20:21, á útivelli
gegn Michelin.
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
KNATTSPYRNA / BRETLAND
Clough tilbúinn að
greiða 10O millj.
fyrir Guðmund
BRIAN Clough hjá Nottingham Forest
er tilbúinn að greiða milljón pund eða
um 100 milljónir kr. fyrir Guðmund
Torfason, miðherja St. Mirren. Frá
þessu er greint í Daily Express i gær.
„Félögin hafa rætt saman, en það hefur
ekkert verið talað við mig. Ég á hins
vegar eftir tvö ár af samningnum við
St. Mirren, sem er mjög góður, og það
þarf mjög gott tilboð til að ég íhugi að
breyta enn einu sinni til,“ sagði Guð-
mundur við Morgunblaðið í gær.
Guðmundur skoraði með skalla á 24.
mínútu og gaf samheijum sínum í St.
Mirren tóninn gegn Celtic á' laugardag. St.
Mirren, sem er í næst neðsta sæti, hafði ekki
skorað í síðustu sex leikjum, en 3:0 sigur á
laugardag gaf ekki rétta mynd af gangi leiks-
ins — yfirburðirnir voru mun meiri.
Guðmundur, sem missti af síðustu fjórum
leikjum vegna meiðsla, átti mjög góðan leik,
lagði upp þriðja markið og átti m.a. tvö stang-
arskot, fékk ýmist 8 eða 9 í einkunn hjá
skosku dagblöðunum og var alls staðar valinn
maður leiksins, sem var í beinni útsendingu
sjónvarps.
„Þetta var mjög gott hjá okkur og góð
auglýsing fyrir mig og liðið. Það var þýðingar-
mikið að skora, en ég held að ég sé ekkert
á förum frá félaginu. Þetta er gott lið, mikið
betra en staðan segir til um, og ég geri ráð
fyrir að gera nýjan samning í vor.“
Haft var eftir Tony Fitzpatrick i Daily
Express að allt yrði gert til að halda Guð-
mundi. „Við getum ekki látið hann fara og
það er engin ástæða til að óttast, því hann
er ánægður hjá okkur. Ef við ætlum að vera
í hópi fjögurra efstu liða næsta tímabil, verð-
um við að halda leikmönnum eins og Guð-
mundi.“
kom inn í liðið
að nýju um
helgina eftir
fjögurra leikja
hlé vegna
meiðsla og
skoraði fyrsta
markið gegn
Celtic.
Morgunblaðið/Einar Falur
Meistari tvö ár í röð
Axel Nikulásson varð íslandsmeistari með ÍBK og hampaði þess-
um glæsilega íslandsbikar annað árið í röð.
„Búinn að bíða
allt of Iengi“
- sagði Guðni Guðnason, -fyrirliði KR,
eftir sigur á íslandsmótinu
„ÉG var búinn að bfða lengi
eftir þessum — allt of lengi,“
sagði Guðni Guðnason, fyr-
irliði KR, við Morgunblaðið
eftir að hann hafði hampað
íslandsbikarnum íkörfu-
knattleik á laugardag.
Vesturbæjarliðið varð þar
með íslandsmeistari í bolta-
íþrótt karla í fyrsta skipti í ell-
efu ár — síðan að körfuknatt-
leikslið vann þennan saman titil
síðast, 1979.
Guðni varð bikarmeistari með
KR 1984, „en þessi sigur er
miklu skemmtilegri vegna þess
að maður átti meiri þátt í hon-
um,“ sagði fyrirliðinn. „Mark-
mið okkar í vetur var að gera
betur en í fyrra. Það tókst. Það
sem við höfum umfram Suður-
nesjaliðin er að við erum mjög
sterk liðsheild — þeir byggja
meira á einstaklingum. Ég hafði
á tilfinningunni í dag, ogjafnvel
í leiknum í Keflavík, að þeir
hefðu sætt sig við tap. Þeir voru
alltaf á eftir okkur,“ sagði
Guðni.
Nánar/ B4
HANDKNTTLEIKUR: FH-INGAR STANDA VEL AÐ VÍGI / B2