Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 8
i
IPROntR
Jftaxgtntlfói&ift
JUDO / OPNA BRESKA MEISTARAMOTIÐ
„Þettagekk
vonum framar"
Verðlaunahafar í þungavigt á opna breska meistaramótinu. Frá vinstri:
Bjarni Friðriksson, Douilet, Gordon og Bemewald.
„ÞETTA gekk vonum framar
og ég er ánægður með annað
sætið því þetta var mjög sterkt
mót og kemur næst á eftir Evr-
ópumóti að styrkleika. Ég
keppti í þungavigt og var lang
léttastur í flokknum — 95 kg,“
sagði Bjarni Friðriksson, júdó-
kappi úr Ármanni, sem glímdi
til úrslita á opna breska meist-
aramótinu í London á sunnu-
dag.
Bjarni glímdi þrjár glímur áðui
en hann komst í úrslit og vann
þær allar á ippon, fyrst tvo Breta
og síðan Finna. I úrslitum mætt
hann Douilet frá Frakklandi, sem
er 2,10 metrar á hæð og vegur 120
kg. Bjarni hélt lengi í við hann, eða
þar til ein mínúta var eftir af lo-
tunni. Þá sagðist Bjarni hafa tekið
áhættu sem varð honum að falli.
„Ég hugsaði meira um að verjast
framan af og hefði líklega getað
haldið út lotuna, en ákvað að freista
þess að ná honum niður. Hann náði
þá að sigra á ippon.“
Sigurður Bergmann úr Grindavík
keppti einnig í þungavigt og stóð
sig vel, hafnaði í 7. sæti af 20 kepp-
endum. Hann tapaði fyrstu
glímunni fyrir Harry Van Berne-
vald frá Belgíu, en fékk síðan upp-
reisnarglímu og vann þá Belga og
síðan Frakka á ippon. Hann tapaði
svo naumlega fyrir Elvis Gordon frá
Bretlandi í keppni um 5. sætið.
Gordon, sem varð Evrópumeistari
1988, hafnaði í 3. sæti ásamt Belg-
anum, Bernevald. Þess má geta að
Sigurður Bergmann kom til London
frá Kaupmannahöfn þar sem hann
tók þátt í Norðurlandamóti lög-
reglumanna í júdó. Þar sigraði hann
í þungavigt og varð annar í opnum
flokki, tapaði fyrir Carsten Jensen
frá Danmörku, sem er þekktur júdó-
maður.
Hinn ungi og efnilegi Freyr Gauti
Sigmundsson frá Akureyri, sem
keppti í -78 kg flokki, vann Breta
á ippon í fyrstu glímu, en tapaði
síðan fyrir Frakka með því að stíga
út fyrir völlinn.
Guðlaugur Halldórsson frá Akur-
eyri, sem keppti í -86 kg flokki,
tapaði fyrir Frakka í fyrstu umferð,
en fékk því uppreisn. Hann mætti
þá Belga og tapaði naumlega.
Alls voru 400 keppendur sem
tóku þátt í mótinu frá 15 þjóðum.
Reuter
IMick Faldo mátar græna jakkann.
Faldo
hélt
titlinum
Nick Faldo tókst það sem fæst-
ir áttu von á; að sigra í banda-
rísku meistarakeppninni (Masters),
annað árið í röð, þrátt fyrir að
standa illa þegar níu holur voru
eftir. Hann sigraði Raymond Floyd
í bráðabana, eftir mjög góðan enda-
sprett, og varð þarmeð annar kylf-
ingurinn í sögu keppninnar til að
klæðast græna jakkanum tvö ár í
röð.
Faldo, sem tryggði sér sigur með
pútti af átta metra færi, sagði að
þetta væri án efa sætasti sigur sinn:
„Stóru mótin eru það sem alit snýst
um og þetta var það stærsta," sagði
Faldo. „Ég vissi að Floyd myndi
ekki gefa eftir og þetta var erfitt
mót. Það gerir sigurinn sætari,"
sagði Faldo.
Floyd sló í vatn á síðustu holunni
og þarmeð voru sigurvonir hans úr
sögunni en fram að því hafði hann
haft undirtökin. „Ég hitti boltann
vel og var viss um að hann færi
vel inná. En þegar ég leit upp var
hann kominn til vinstri og ég vissi
að þetta var vonlaust," sagði Fioyd,
sem sigraði í keppninni 1986.
Margir af sterkustu kylfingum
heims náðu sér ekki á strik á mót-
inu og Greg Norman og Sandy
Lyle lentu t.d. í þeirri framandi
aðstöðu að sitja eftir þegar kepp-
endum var fækkað á þriðja degi.
■ Úrslit B/6
HANDKNATTLEIKUR / SVIÞJOÐ
„Ólrúleg stemmning í Linköping
áí
Það er ótrúleg stemmning hér
í Linköping, eins og við séum
að verða heimsmeistarar. Það er
löngu uppselt á næsta leik og
menn gera sér góðar vonir um
að við náum meistaratitlinum
enda kom sigurinn í Drott mjög
á óvart,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, þjálfari íslenska lands-
liðsins og leikmaður með Saab,
eftir sigur á Drott í fyrsta leik
úrslitakeppninnar um sænska
meistaratitilinn í handknattleik.
Saab sigraði 25:20 á útivelli og
Þorbergur gerði 6 mörk og var
valinn maður leiksins.
Saab hafði yfirhöndina allan
leikinn og í leikhléi var staðan
12:9, Saab í vil. Munurinn varð
mestur sjö mörk, 24:17, og sigur-
inn öruggur. Þorbergur gerði
fjögur mörk á fyrstu 20 mínútum
leiksins og var tekinn úr umferð
eftir það.
„Drott er með mun betra lið
en við vorum ákveðnir og sýndum
mikla baráttu. Það er nú líka svo
að maður eflist við mótlæti og
fjögur þúsund áhorfendur, sem
allir voru á móti okkur, hjálpuðu
bara til,“ sagði Þorbergur.
Liðin mætast að nýju á morgun
á heimavelli Saab í Linköping.
íþróttahúsið tekur 2.400 áhorf-
endur og er löngu uppselt á leik-
inn. Saab á þó í nokkrum vand-
ræðum. Sænski landsliðsmaður-
inn Pierre Thorsson handarbrotn-
aði í leiknum um helgina og önn-
ur skytta liðsins, Pólverjinn
Dzuba, leikur ekki með vegna
meiðsia. Þorbergur sagðist engu
að síður vera bjartsýnn enda á
h'eimavelli og gera sér vonir um
að enda ferilinn sem sænskur
meistari.
faém
FOLX
■ GJJÐNI Bergsson lék vel í
Nottingham, þegar _ Tottenham
vann 3:1. Þorvaldur Örlygsson lék
ekki með Forest.
■ BRIAN Clough hefur aldrei
gengið eins illa með lið sitt og nú.
Nottingham Forest hefur tapað
sex af síðustu sjö leikjum og farið
úr þriðja í 11. sæti.
■ NEVILLE Southall lék 450.
leik sinn á ferlinum og hélt upp það
með því að veija vítaspyrnu frá
Simon Barker á síðustu mínútu.
Hann tryggði Everton þar með 1:0
sigur gegn QPR.
■ TONY Cottee skoraði úr víta-
spyrnu, 11. mark hans í síðustu 12
leikjum og það 150. á ferlinum.
■ ROB Hindmarch gerði sjálfs-
mark og það nægði Coventry til
að vinna Derby 1:0. Þetta var
fyrsta tap Derby gegn Coventry
í þijú ár.
■ GARY Stevens fótbrotnaði í
leik Rangers og Aberdeen á
sunnudag. Læknir Rangers sagði
að sennilega gæti Stevens ekki
leikið með Englendingum á Hm
vegna þessa.
ENGLAND / UNDANÚRSLIT BIKARKEPPNINNAR
Davíð sigraði Golíat
Crystal Palace í úrslit í fyrsta sinn
„ÞETTA var á við sjálfsmorð.
Við vorum betri, en leikur
þeirra var skipulagðari, einkum
í aukaspyrnum, og þeir unnu á
því,“ sagði Kenny Dalglish eftir
óvæntan 4:3 sigur Crystal
Palace gegn Liverpool í undan-
úrslitum ensku bikarkeppninn-
ar. „Það er gott fyrir knatt-
spyrnuna, þegar úrslitin fara
ekki alltaf eftir bókinni," sagði
Steve Coppell hjá Palace, sem
er í fallhættu í 1. deild.
Crystal Palace tapaði 9:0 fyrir
Liverpool í deildinni í vetur og
fæstir áttu von á að liðið ætti
nokkra möguleika gegn efsta liði
deildarinnar og núverandi bikar-
meisturum á Villa Park í Birming-
ham. Vonir þeirra bjartsýnustu
dvínuðu, þegar Ian Rush skoraði á
14. mínútu, en Mark Wright jafn-
aði í byijun seinni hálfleiks og Gary
O’Reilly kom Lundúnarmönnum
yfir eftir 70 mínútur. Bikarmeistar-
amir gerðu tvö mörk á tveimur
mínútum; Steve McMahon jafnaði •
og Barnes skoraði úr umdeildri víta-
spyrnu. En Palace gafst ekki upp,
Gray jafnaði áður en venjulegur
leiktími var út og því var fram-
lengt. Alan Pardew gerði sigur-
markið á 109. mínútu.
Manchester liðin, Manchester
United og Oldham gerðu 3:3 jafn-
tefli eftir framlengdan leik og
mætast aftur á morgun. United
náði forystunni tvisvar, en 2. deild-
ar liðið jafnaði. Bryan Robson og
Neil Webb skoruðu fyrir United, en
þeir hafa ekki fengið tækifæri í
marga mánuði vegna meiðsla.
Oldham leikur til úrslita í deildar-
bikarnum, mætir Nottingham For-
est á Wembley 29. apríl. Annar leik-
ur á Wembley er ekki úr sögunni,
en til þess verður Iiðið að sigra
nágrannarisann. Úrslitaleikurinn
verður 12. maí.
■ Úrslit / B6
Reuter
Alan Pardew fær blíðar móttökur hjá samherjum sínum eftir að hafa gert
sigurmark Crystal Palace gegn Liverpool.