Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 3
B 3
MORGUNBLAÐED IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Morgunblaðið/Bjarni
Arna Steinsen, fyrirliði Fram, hampar hér sigurverðlaununum, en Framstúlk-
ur hlutu í gærkvöldi sjöunda íslandsmeistaratitilinn í röð.
Enn einn titill í höfn
Framstúlkur tóku í gærkvöldi við
sigurverðlaunum Islandsmóts-
ins eftir glæsiiegan sigur gegn KR.
Þetta var síðasti leikurinn í 1. deild
kvenna í vetur og
var vel við hæfi að
mótið endaði á enn
einum stórsigri
Fram. Að þessu
sinni unnu þær andstæðingana
41:12!
ítfúmR
FOLK
■ RAFMAGNIÐ fór af salnum í
nýja FH-húsinu kl. 16:24 og kom
aftur kl. 16:56. Leikurinn átti að
byija kl. 16:30, en hófst ekki fyrr
en kl. 17:04 vegna þessa.
■ JAKOB Sigurðsson, fyrirliði
Vals, afhenti Guðjóni Árnasyni,
fyrirliða FH, blómvönd fyrir leik
vegna nýja hússins.
■ JÓN Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, afhenti FH 20 bolta
að gjöf í hálfleik. Hann sagði að
boltarnir ættu að vera til upp-
byggingar unglingastarfsins en sú
hefð hefði skapast að að gefa við-
komandi félögum, sem reistu ný
hús, bolta að því_ tilefni.
■ ÞORGILS Óttar Mathiesen,
þjálfari og leikmaður FH, var valinn
Iþróttamaður FH. Þetta var til-
kynnt í leikslok og fékk Óttar bik-
ar afhentan.
íslandsmeistaratitill Framstúlkn-
anna er sá sjöundi í röð, en alls
hefur liðið unnið 14 sinnum síðustu
20 ár. Guðríður Guðjónsdóttir, stór-
skytta úr Fram, er markadrottning
íslandsmótsins að þessu sinni með
181 mark, en næst henni er Sigur-
björg Sigþórsdóttir, KR, með 157
mörk.
■ Úrslit/B 6
1.DEILD KARLA
Grótta
niður?
ALLT útlit er fyrir að Grótta
falli í 2. deild. Eftir góða byrjun
gegn KR í gær datt allur botn
úr leik liðsins og KR-ingar kaf-
sigldu þá.
KR var undir lengst af fyrri
hálfleiks en breytti stöðunni
undir lok hans úr 6:8 í 14:10. í
síðari hálfleik réð liðið ferðinni,
staðan var orðin
SkúliUnnar 23:12 eftir 10
■Sveinsson mínútur og Gróttu-
skrifar menn játuðu sig
sigraða.
KR-ingar léku vel. Bestir hjá
þeim voru Leifur, Páll og Stefán
auk þess sem Sigurður og Jóhannes
léku vel. Halldór var sá eini sem
var góður hjá Gróttu.
Katrín
Friöriksen
skrifar
SUND / INNANHÚSSMEISTARAMÓT ÍSLANDS
Magnús Már, Bryndís og Arnar
Freyr Ólafsbörn stálu senunni
SYSTKININ Magnús Már,
Bryndís og Arnar Freyr Ólafs-
börn voru að öðrum ólöstuðum
þau sem stálu senunni á Meist-
aramóti íslands í sundi sem
lauk í Vestmannaeyjum í gær.
Magnús Már keppti ífjórum
greinum og vann þær allar,
Bryndís varð tvöfaldur meistari
og sá yngsti, Arnar Freyr, vann
ein gullverðlaun, ein silfur og
tvenn bronsverðlaun og setti
þrjú piltamet. Kvennasveit
Ægis setti tvö íslandsmet á
mótinu, 14x100 og 4x200 metra
skriðsundi. Ragnheiður Run-
ólfsdóttir náði ekki að setja
íslandsmet.
Magnús Már Óláfsson, HSK,
vann flest gullverðlaun á
mótinu og sigraði í öllum þeim
greinum sem hann keppti í. Magnús
sagði í samtali við
Sigfús Morgunblaðið að
Gunnar hann hafi verið
Guömundsson ejnna hræddastur að
ná ekki að vinna 50
ÉfÚMR
FOLK
■ ÍSLAND og Bandaríkin hafa
leikið þijá landsleiki knattspyrnu.
1978 gerðu þjóðirnar markalaust
jafntefli á^ Laugardalsvelli, en
1955 vann ísland 3:2 á Melavellin-
um. Þá gerði Þórður Þórðarson
eitt mark, en Gunnar Guðmanns-
son hin tvö, þar af annað með skoti
af um 35 m færi og skömmu síðar
hafnaði knötturinn uppi í vinklinum.
■ LANDSLIÐ heimamanna lék
þtjá leiki í undankeppni HM á vell-
inum. Bandaríkin unnu Jamaika
5:0, Costa Rica 1:0 og tryggðu sér
þátttökurétt í úrslitum HM í fyrsta
sinn síðan 1950 með 1:0 sigri gegn
Trinidad & Tobago í nóvember s.l.
■ ÞETTA var eini leikur Banda-
ríkjamanna í miðvesturríkjum fyrir
HM. Liðið heldur nú til austur-
strandarinnar, þar sem nokkrir leik-
ir eru á dagskrá, en farið verður
til Ítalíu 26. maí.
■ HORNABOLTALIÐ St. Louis
er mun þekktara heldur en nokkurt
knattspyrnulið í borginni. Fyrir
tveimur árum sáu tæplega 2,9 millj-
ónir heimaleiki liðsins. Heimavöllur-
inn, sem er í eigu Anheuser-Bush
fyrirtækisins, var opnaður 1966 og
síðan hafa meira en 60 milljónir
mætt þar á viðburði eða fleiri en
íbúar samanlagt í Missouri-, Illi-
nois-, Iowa-, Kansas-, Arkansas-,
Oklahoma-, Indiana-, Kentucky-,
Tennessee-, Ohio- og Nebraska-
ríki í Bandaríkjunum.
■ ÞÓRÓLFUR Beck lék með St.
Louis Star 1967 og var fyrirliði
liðsins.
■ ÍSLENSKI hópurinn kemur
heim í dag, nema hvað Valsmenn-
irnir fóru beint til Bretlands til
liðs við félaga sína og FH-ingarnir
fóru til Portúgal, þar sem silfurlið-
ið undirbýr sig fyrir komandi átök.
Magnús Már Ólafsson
metra skriðsundið. Hann var þokka-
lega ánægður með þá tíma sem
hann fékk og var sérstaklega án-
ægður með að komast niður fyrir
59 sekúndur í 100 metra flug-
sundi, sem hann sagði hafa verið
orðið tímabært.
Arnar Freyr, bróðir Magnúsar,
setti þijú piltamet. Fyrst í 400
metra fjórsundi, synti á 4.41,64
mín. og bætti eldra metið um 8,84
sek og var tími hans vel undir lág-
marki fyrir Evrópumeistaramót
unglinga. Síðan tvíbætti hann pilta-
metið í 100 metra skriðsundi, fyrst
í undanrásum og síðan í úrslitum.
Arnar Freyr sagðist ekki hafa átt
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu mátti sætta sig við 4:1
tap gegn Bandaríkjamönnum í
St. Louis á sunnudag. „Þetta
var slakur leikur hjá okkur,
einkum í vörn og á miðjunni,
sérstaklega í fyrri hálfleik,"
sagði ión Gunnlaugsson,
landsliðsnefndarmaður, við
Morgunblaðið.
Bandaríkjamenn gerðu þijú
mörk með skalla, þar af tvö
af þremur fyrir hlé, en Pétur Pét-
ursson minnkaði muninn úr víta-
spyrnu á 85. mínútu.
Heimamenn réðu gangi leiksins
lengst af og unnu öll skallanávígi.
von á svona góðum tíma í 400
metra fjórsundi. „Ég stefndi að vísu
á að bæta piltametið og komast í
B-hóp [landsliðsins]," sagði þessi
ungi og efnilegi sundmaður. Systir
þeirra, Bryndís, var einnig at-
kvæðamikil á mótinu. Hún vann
tvenn gullverðlaun og tvenn silfur-
verðlaun.
Ragnheiður Runólfsdóttir frá
Akranesi varð þrefaldur íslands-
meistari, en náði ekki að setja Is-
landsmet eins og hún hafði vonast
eftir. Hún synti 100 metra bringu-
sund á 1.11,30 mín. og var 0,64
sek. frá meti sínu. Tími hennar í
200 metra bringusundinu var
2.34,05 mín. og í loks synti hún
200 metra fjórsund á 2.08,14 mín.
Ragnheiður sagði í samtali við
Morgunblaðið að hún væri ekki í
nógu góðu stuði til að setja Is-
lands- eða Norðurlandamet í 100
og 200 metra bringusundi. Hún
sagðist hafa opnað sundið í 100
metrunum of hægt til að ná að slá
metið. „Tímamunurinn hér og í
Bandaríkjunum hefur einnig sitt að
segja,“ sagði Ragnheiður sem kom
til landsins frá Alabama á fímmtu-
dag.
■ Úrslit / B6
íslenska liðið fékk sitt fyrsta horn
á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks,
en fékk tvö góð marktækifæri, þeg-
ar staðan var 0:0.
Bo Johansson gerði tvær breyt-
ingar í byijun seinni hálfleiks. Har-
aldur Ingólfsson kom inná fyrir
Pétur Arnþórsson og Kristinn R.
Jónsson fyrir Pétur Ormslev, en
annars léku eftirtaldir:
Bjarni Sigurðsson, Ingvar Guð-
mundsson, Alexander Högnason,
Sævar Jónsson, Viðar Þorkelsson,
Pétur Arnþórsson (Haraldur Ing-
ólfsson), Pétur Ormslev (Kristinn
R. Jónsson), Bjarni Jónsson, Rúnar
Kristinsson, Kjartan Einarsson og
Pétur Pétursson.
IÞROTTAHREYFINGIN / STYRKIR
Áskorun frá ÍSÍ
Frumvarp til laga um stofnun
afreksmannasjóðs íslenskra
íþróttamanna hefur vakið ánægju
innan íþróttahreyfingarinnar.
Framkvæmdastjórn ISÍ sendi frá
sér eftirfarandi ályktun:
„Fundur framkvæmdastjómar
Í.S.Í. haldinn 5. apríl 1990, lýsir
fyllsta stuðningi sínum við tilgang
framkomins frumvarps Inga
Björns Albertssonar og Hreggviðs
Jónssonar um stofnun afreks-
mannastjóðs íslenskra íþrótta-
manna.
Jafnframt er lýst stuðningi við
framkomið stjórnarfrumvarp um
stofnun „Launasjóðs stórmeistara
í skák“.
Framkvæmdastjórn íþrótta-
sambands íslands skorar því á
hæstvirta alþingismenn úr öllum
þingflokkum að ljá báðum þessum
málum liðveislu og sýna þannig
vilja Alþingis í verki gagnvart
þeim sem fram úr skara og varpa
ljóma á nafn íslands um víða ver-
öld með frammistöðu sinni og
afrekum.
Leggur framkvæmdastjómin
áherslu á að slíkir afreksmenn eru
einna athyglisverðustu fulltrúar
(sendiherrar) landsins á hveijum
tíma á erlendri grund.“
KNATTSPYRNA / LANDSLEIKUR
Slakt í St. Louis
BLAK / BIKARURSLIT KARLA
„Sýndum að við vorum einfaldlega betri“
Við áttum von á að KA-menn
myndu mæta sterkari til leiks,
en við sýnum það í leiknum að við
vorum einfaldlega betri. Við hleypt-
um KA aldrei í
Guömundur gang. .Okkar lið er í
Þorsteinsson toppæfingu um
skrifar þessar mundir og
það hefur mikið að
segja,“ sagði Leifur Harðarson, fyr-
irliði Þróttar, eftir að lið hans hafði
lagt KA að velli, 3:0, í úrslitaleik
bikarkeppninnar á Húsavík
Fyrir leikinn höfðu menn búist
við jöfnum og spennandi leik
tveggja öflugra liða, en raunin varð
önnur. Það var eins og KA-menn
næðu sér aldrei upp úr startholun-
um, en að sama skapi voru Þróttar-
ar sprækir.
Fyrsta hrinan gaf góð fyrirheit
um spennandi leik. Þróttarar höfðu
frumkvæðið framan af, en KA tókst
að komast í 14:12 og átti góða
möguleika á að klára hrinuna, en
lánleysið var algjört. Þróttarar gáf-
ust aldrei upp, sýndu mikið keppnis-
skap og náðu að sigra hrinuna
í annarri hrinu gekk móttaka
KA-manna illa og sóknir liðsins
urðu ekki eins beittar fyrir vikið.
Þróttarar nýttu sér það út í ystu
æsar og unnu 15:12. Með tvær
hrinur í forskot var þetta aldrei
spurning, pressan var öll KA meg-
in. KA byijaði þó vel í þriðju hrinu
og komst í 11:6, en síðan var allt
stopp og gamla Þróttaraseiglan fór
að segja til sín. Lokahrinan fór
15:12 fyrir Þrótt, sem fagnaði sigri
í bikarkeppninni í níunda sinn.
KA átti ekki góðan dag að þessu
sinni, hávörnin var slök og Þróttar-
ar áttu auðvelt með að koma sókn-
um sínum í gegn. Þróttarar sýndu
hins vegar ágætan leik á köflum
og voru mun stöðugri í leik sínum,
þegar mikið lá við og uppskáru
samkvæmt því. Hjá KA stóðu þeir
Hafsteinn Jakobsson og Haukur
Valtýsson sig best. Hjá Þrótti voru
þeir Jón Ámason og Einar Þór
Ásgeirsson sterkir og Sveinn
Hreinsson var KA hávörninni erfið-
ur.