Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990 KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRSLITAKEPPNIÍSLANDSMÓTSINS Gullinn bjarmi yfir Vesturbæ Fyrsti Islandsmeistaratitillinn í boltaíþrótt karla síðan 1979 bættist í glæsilegt verðlaunasafn KR-inga GULLNUM bjarma sló á himin- inn yfir Vesturbæ Reykjavíkur og Seltjarnarnes síðari hluta dags á laugardag — að minnsta kosti íaugum KR-inga. Og hjörtu þeirra hafa örugglega slegið hraðar en undanfarin ellefu ár. íslandsbikar í bolta- íþrótt karla bættist í glæsilegt safn KR-veldisins ífyrsta skipti síðan 1979. Körfuboltamenn félagsins fögnuðu þá sigri, og aftur nú. Þeir unnu Keflvikinga í þriðja leiknum í röð, nú á heimavelli sínum á Seltjarnar- nesi. Lokatölur urðu 80:73. Skapti Hallgrímsson skrlfar KR-ingar hafa leikið vel í vetur. Töpuðu aðeins tveimur leikjunrf í deildinni og eru verðugir meistar- ar. Þeir renndu sér á glæsilegan hátt í gegnum úr- slitakeppnina; byij- uðu á því að sigra Grindvíkinga í tveimur leikjum og síðan íslandsmeistara Keflvíkinga í þremur. Næsta örugglega. Það verður þó að segja Keflvíkingum til málsbóta að leikir þeirra í undan- úrslitunum voru erfiðari — þeir mættu Njarðvíkingum þrívegis, síðast á föstudegi og fyrsti leikurinn gegn KR var strax mánudeginum á eftir. Þreyta hefur hugsanlega setið í þeim, en hvað sem því líður voru KR-ingar betri þegar á hólm- inn kom. Það hefur verið sérstaklega gam- an að fylgjast með KR-ingum upp á síðkastið. Þeir leika mjög skyn- samlega, vömin er sterk með Sovét- manninn Kovtoúm sem besta mann, hann ver ófá skotin og hirðir fjölda frákasta í hveijum leik. Það er Ijóst að KR-ingar tóku rétta ákvörðun þegar þeir ákváðu að fara að ráðum þjálfara síns og fá Kovtoúm til Iiðs- ins. Sovétmaðurinn er fyrirmyndar leikmaður, mótmælir aldrei dómi, hvetur samheija sína til dáða frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu, leikur vel í vörninni sem fyrr segir og er öruggur í sókn. Annar Ieik- maður sem kom til KR fyrir tíma- bilið er Páll Kolbeinsson. Hann kom heim eftir námsdvöl í Bandaríkjun- um og er álíka mikill fengur og Sovétmaðurinn. Geysilegur hraði Páls, knattleikni og næmt auga fyrir samleik hefur gert mótheijum hans erfítt fyrir að undanfömu. Drengurinn hefur verið í miklum ham; stjómað sóknarleik liðsins eins og herforingi og skorað fallegar körfur. Guðni Guðnason og Matthías Einarsson em báðir geysilega góðir varnarmenn og ómetanlegir í sókn. Geta tekið sig til og skorað hvaðan sem er þegar á ríður. Fimmti mað- ur í byijunarliði KR er Axel Nikul- ásson. Odrepandi baráttukraftur og viljastyrkur Axels hefur smitað út frá sér, hann gefst aldrei upp og er frábær liðsmaður. A bekknum var svo Birgir Mikaeisson, og er satt að segja ekki ónýtt að hafa slíkan skiptimann. Hann hafði verið daufur í leikjunum á undan en kom af bekknum á laugardag og stóð sig geysilega vel. Langþráður bikar Morgunblaðið/Einar Falur Sigri fagnað Guðni Guðnason, fyrirliði KR, með íslandsbikarinn glæsilega sem hann og fleiri meðlimir Vesturbæjarstórveldisins voru búnir að bíða eftir í langan tíma. Gleði KR-inga var gífurlég þegar dró að myndinni fær Ungveijinn Lazlo leikslokum og eftir að flautað var til leik; Nemeth, þjálfari íslandsmeistaranna, flug Láras Árnason og Hörður Gauti Gunnarsson Iéku minna en gerðu góða hluti og eru menn framtíðar- innar. Einstaklingarnir hjá KR eru góð- ir og liðsheildin sem þeir mynda frábær. Kéflvíkingar mættu ein- faldlega oljörlum sínum að þessu sinni — urðu að játa sig sigraða. Þeir hafa mjög góðum leikmönnum á að skipa, Guðjóni Skúlasyni, Fal Harðarsyni, Einari Einarssyni, Magnúsi Guðfinnssyni, Nökkva Má Jónssyni og Sandy Anderson, svo aðalmennirnir séu nefndir, en þeim var ekki ætlaður íslandsbikarinn þetta árið. Sigur KR-inga var öraggur í síðasta leiknum. Keflvíkingar náðu foiystu snemma í leiknum en fljót- lega komst heimaliðið yfir og gaf lítið eftir. Keflvíkingar náðu reynd- ar að jafna strax í upphafi síðari hálfleiks en KR-ingar voru ekki lengi að komast yfir á ný og höfðu leikinn raunar alltaf í hendi sér. Gæði leiksins voru ekki þau sem liðin eiga að geta boðið upp á, en það skipti ekki höfðumáli. Liðin, sérstaklega KR-ingar, sýndu stór- skemmtileg tilþrif á köflum, en síðan fór allt úr böndunum inn á milli. En KR-ingar gleymdu því fljótt þegar flautað var til Ieiksloka, fögnuðurinn var gífurlegur — lang- þráður draumur varð að veruleika. KR-IBK 80:73 Iþróttahúsið á Seltjarnamesi, úrslitakeppnin í körfuknattleik — 3. leikur — laugardaginn 7. apríl 1990. Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 8:10, 10:13, 16:16, 20:16, 27:19, 31:21, 40:27, 43:36, 45:40, 50:50, 52:43, 56:46, 62:50, 67:53, 71:55, 75:61, 78:70, 80:73. Stig KR: Páll Kolbeinsson 15, Axel Nikulásson 15, Guðni Guðnason 14, Birgir Mikaels- son 14, Anatolíj Kovtoúm 10, Matthías Einarsson 10, Hörður Gauti Gunnarsson 2. Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 15, Sandy Anderson 14, Einar Einarsson 11, Magnús Guð- fmnsson 11, Falur Harðarson 9, Nökkvi Már Jónsson 7, Sigurður Ingimundarson 4, Ingólfur Haraldsson 2. Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Bergur Steingrímsson. Aliorfendur: Um 600. „Vömin skipt- ir öllu máli“ - segirAnatolíj Kovtoúm, Sovétmaður- inn í meistaraliði KR ANATOLÍJ Kovtoúm, Sovét- maðurinn íliði meistara KR, hélt ró sinni sem fyrr eftir að titillinn var íhöfn. „Þegar í haust var ég sannfærður um að við myndum sigra, því við leikum besta varnarleikinn. Vörnin skiptir öllu máli.“ Steinþór Guðbjartsson skrifar Kovtoúm, sem er fyrsti Sovét- maðurinn til að verða ís- landsmeistari í einhverri grein íþrótta, átti stóran þátt í sigri KR enda besti varnar- maðurinn í deild- inni. Hann varð Sovétmeistari með Stroitel Kiev í fyrra og íslandsmeistari með KR í ár. „Eg hef unnið til allra verð- launa sem hægt er í körfubolta í Sovétríkjunum, en þetta er þriðji meistaratitillinn, var einnig meist- ari með CSKA Moskva og svo með Kiev í fyrra. Þetta er ótrú- legt, en körfubolti er mitt líf og takmarkið er ávallt að gera sitt besta og hampa titli." Kovtoúm sagði að körfuboltinn í deildinni hefði tekið framförum frá síðasta keppnistímabili. „Ég hef séð leiki frá úrslitakeppninni í fyrra á myndbandi og þeir voru ekki eins góðir. Boltinn er á mun hærra plani nú og öll liðin eru betri, en við erum bestir.“ Sovétmaðurinn hældi samheij- um sínum. „í hópnum eru margir ungir leikmenn, sem eru mjög efnilegir og eiga framtíðina fyrir sér. Annars era strákarnir líkam- lega sterkir, við höfum æft vel og það skiptir miklu máli. Vörnin var góð og hefur lagast með hverj- um leik. Það var ekkert álag á okkur fyrir síðasta leikinn. Við gerðum okkur grein fyrir mikil- vægi hans og vorum staðráðnir í að halda áfram á sigurbraut, ljúka dæminu. Leikurinn var erfiður, ekki góður sóknarlega, en vörnin hjá okkur stóð fyrir sínu og mér líður vel.“ Kovtoúm sagðist ekki vita hvert framhaldið yrði. Hann ætti eftir að ræða við íjölskyldu sína í Sim- feropol í Sovétríkjunum og færi þangað á næstunni. „Kannski kem ég aftur. Ég kann mjög vel við KR og Reykjavík, en við verð- um að sjá til.“ Stoltir feðgar Kolbeinn Pálsson, formaður Körfuknattleil vitað ánægður með það — sjálfur fyrrum á einn leikmanna KR þegar hann afhenti klefanum á eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.