Morgunblaðið - 05.05.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAI 1990
19
SPRON í Breiðholti:
Sýning verka
Katrínar
Agústsdóttur
Sparisjóður Reykjavíkur o g
nágrennis mun opna myndlistar-
sýningu í útibúinu í Álfabakka 14,
Breiðholti, sunnudaginn 6. maí
kl. 14—17. Sýnd verða verk eftir
Katrínu Ágústsdóttur.
Katrín Ágústsdóttir er fædd í
Reykjavík 11. ágúst 1939. Hún
stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskólann auk náms við
Handavinnudeild Kennaraskóla ís-
lands og námsferða til Danmerkur
og Finnlands. Katrín hefur lagt
stund á textíl og vatnslitamynda-
málun á undanförnum árum.
Myndefnið sækir Katrín aðallega
í húsaþyrpingar, t.d. í Reykjavík
og íslensk landslag. Á sýningunni
í SPRON er myndefnið nokkuð úr
Breiðholtshverfinu og umhverfi
þess svo og nokkrar landslags-
stemmur.
Sýningin er sölusýning og mun
standa yfir til 31. ágúst nk. og
verður opin frá mánudegi til föstu-
dags frá kl. 9.15—16.00.
Röng dagskrá
Vegna mistaka birist röng dag-
skrá Rásar 1 og Rásar 2 í dagskrár
blaði Morgunblaðsins fyrir sunnu-
dag og laugardag. Rétta dagskrá
er að finna í blaðinu í dag og á
morgun. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
EVRÓPUSÖNGVAKEPPNIN í Zagreb, Júgóslavíu, 5. maí 199C
atkvæði/' /^///////////$///// / // /// - mmiM/iMmMmMm/mm ik
1. Spánn Bandido
2. Grikkland Boris Skopo
3. Belgía Macedomienne
4. Tyrkland Gozlerinin hapsideyim
5. Holland Ikwil alles met je dellen
6. Lúxemborg Quand je te reve
7. Bretland Give a little love ...
8. ÍSLAND EITT LAG ENI\I
9. Noregur BrandenburgerTor
10. ísrael Shara Berechhovot
11. Danmörk Hallo, hallo
12. Sviss Musik klingt in die ...
13. V-Þýskaland Frei zu Leben
14. Frakkland White and black blues
15. Júgóslavía Hajde da ludujeno
16. Portúgal Ha sempre alguem
17. írland Somewhere in Europe
18. Svíþjóð Som en wind
19. Ítalía Insieme: 1992
20. Austurríki Keine Mauern mehr
21. Kýpur Milas Poli
22. Finnland Fri
Söngvakeppnin ferfiram íkvöld
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu fer fram í Zagreb í Júgóslavíu
í kvöld. Þetta er í 35. sinn sem keppnin er haldin. 22 þjóðir taka þátt
í keppninni að þessu sinni. Framlag íslands verður Eitt lag enn eftir
Hörð G. Ólafsson við texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Flytjend-
ur eru hljómsveitin Stjórnin og söngvararnir Sigríður Beinteinsdóttir
og Grétar Örvarsson. Bein útsending frá keppninni hefst í Sjónvarpinu
klukkan 19 í kvöld. Atkvæði verða greidd í lokin og hér með fylgir
seðill til að færa atkvæðatölur inn jafnóðum.
B Y K O
B R E I D D
i gjilfnov h 'li'i/ii; filjjrf ít/o'ujJA .unif
óulörí h fi9 jmærf IliJifiieiin
■nHHHnaB
A .ÍST23ÍÍ oVS.O