Morgunblaðið - 05.05.1990, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAI 1990
23
fltargtiiiÞIafrií
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
ÁgústlngiJónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Breytt afstaða
til kjarnorkuvopna
Hinar nýju aðstæður í
Austur-Evrópu eru nú
teknar að hafa skýr og greinileg
áhrif á ákvarðanir aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins
(NATO) um vamarviðbúnaðinn
í Evrópu. Þetta var staðfest á
aukafundi utanríkisráðherra
bandalagsríkjanna 16 á fundi
þeirra í Brussel á fímmtudag.
Þar samþykktu ráðherramir til-
lögur George Bush Bandaríkja-
forseta um að skammdrægar
eldflaugar Bandaríkjamanna í
Evrópu yrðu ekki endurnýjaðar.
Þá hefur Bandaríkjaforseti
skýrt frá því að hann ætli ekki
að endurnýja 2000 kjarna-
sprengjuhleðslur fyrir stór-
skotavopn í Vestur-Þýskalandi.
Á vettvangi NATO hefur
verið tekist á um framtíð
bandarískra kjamorkuvopna í
Evrópu og hafa þau átök ann-
ars vegar snúist um endurnýjun
vopnanna og hins vegar um
nauðsyn þess almennt að
bandarísk kjamorkuvopn verði
áfram í álfunni. Þótt fallið verði
frá endumýjun þeirra vopna
sem hér hafa verið nefnd, hefur
ekkert enn verið endanlega af-
ráðið um framtíð bandarískra
kjamorkuvopna í Evrópu. Enn
er í gildi sú stefna sem hefur
verið mótuð innan NATO, að
viðræður við Sovétmenn um
fækkun skammdrægra banda-
rískra kjamorkuvopna í Evrópu
hefjist ekki fyrr en tekist hefur
samkomulag um fækkun hefð-
bundinna vopna í álfunni, en
viðræður um það - CFE-við-
ræðumar - fara nú fram í
Vínarborg.
Auðveldast er að átta sig á
rökunum fyrir breyttri afstöðu
NATO-ríkjanna til kjarnorku-
vopna í Evrópu með því að líta
á landakortið í pólitísku ljósi.
Þar til fyrir fáeinum mánuðum
vom ríkin í Austur-Evrópu,
Pólland, Austur-Þýskaland,
Tékkóslóvakía og Ungveija-
land, fylgiríki Sovétríkjanna.
Þar sátu við völd menn sem
áttu allt sitt undir stuðningi
sovéska hersins, þegar þeir
vom sviptir þeim stuðningi
hmndu kommúnistastjómimar
eins og spilaborg í vindhviðu.
Með því að fara út á stræti og
torg í nafni frelsis og lýðræðis
breyttu íbúar þessara landa
þeirri stöðu í öryggismálum í
Evrópu sem myndaðist eftir
síðari heimsstyrjöldina. Austur-
-Evrópuríkin hættu að verða
stuðpúði fynr Sovétríkin í hugs-
anfegum1 áítokum við Vestur-1
lönd og urðu þess í stað stuð-
púði fyrir NATO-ríkin. Viðvör-
unartími vegna hugsanlegrar
árásar að austan lengdist úr
tveimur vikum í marga mánuði
og gamla þörfín fyrir skamm-
dræg kjarnorkuvopn til að
stöðva framrás innrásarhers í
skyndiátökum hvarf.
Atlantshafsbandalagið verð-
ur að laga sig að þessum nýju
aðstæðum eins og þjóðimar
sem mynda það. Bandalagið er
ekki annað en hluti hins
pólitíska og hernaðarlega vem-
leika sem ríkir á hveijum tíma.
Þar ber nú hæst fyrirhuguð
sameining Þýskalands og er að
því stefnt, að hið nýja og öfluga
Þýskaland verði ekki hlutlaust
eins og Sovétmenn hafa viljað
heldur aðili að Atlantshafs-
bandalaginu. Þá er hitt einnig
ljóst, að hin nýfijálsu ríki í
Áustur-Evrópu vilja ekki aðeins
tengjast Vesturlöndum efna-
hagslega með þátttöku í Evr-
ópubandalaginu heldur er ósk
þeirra sú að öryggishagsmunir
þeirra og NATO-ríkjanna falli
saman og verði tryggðir með
sameiginlegum ráðstöfunum.
Með hliðsjón af þeirri varkámi
sem NATO-ríkin kjósa að sýna
Sovétstjóminni vegna sjálf-
stæðiskrafna Eystrasaltsríkj-
anna er ekki líklegt að þau vilji
ganga hratt fram í því að hrekja
sovéska herinín frá ríkjunum í
Austur-Evrópu, en brottflutn-
ingur hans hlýtur að vera for-
senda fyrir aðild þjóðanna þar
að vestrænu varnarsamstarfí.
Líkur benda til þess að við-
ræðurnar innan ramma ráð-
stefnunnar um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu (RÓSE) beri
þann árangur að komið verði á
fót fastri stofnun á vegum
ríkjanna í austri og vestri til
að ijalla um hin víðtæku mál-
efni, sem þar em á dagskrá.
Með því fengju ríkin í austri
og vestri fastan vettvang til að
geta ráðið ráðum sínum með
skipulegum hætti. Þar með
yrðu mótaðar nýjar forsendur
til að skapa stöðugleika í Evr-
ópu eftir hrun kommúnismans.
Ný stofnun kemur hins vegar
ekki í veg fyrir þörf ríkja til
að gæta öryggis síns og það
munu þau gera áfram með
svæðisbundnum bandalögum
eins og Atlantshafsbandalaginu
og fælingarmáttur kjarnorku-
vopnanna verður áfram stað-
reynd í heimsstjómmálum, þótt
hlutverk þeirra breytist í ein-
wwhi mmhiúm.)0U rwj
ENGIN VERÐBOLGA
- ALLT SKRIFAÐ
eftir Þorstein
Pálsson
Efnahags- og framfarastofnunin
(OECD) hefur sent frá sér nýja
skýrslu um stöðu efnahagsmála á
íslandi. Athugasemdir stofnunar-
innar eru um margt athygli verðar.
Alvarlegust er sú aðvörun, að hér
muni að öllu óbreyttu ríkja stöðnun
á lokaáratug aldarinnar meðan aðr-
ar þjóðir sækja fram.
Þjóðarsátt 1986
Það er álit Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar, að þjóðarsáttin
svokallaða frá 1986 hafi veikt við-
brögð við þeirri miklu og skjótu
uppsveiflu í efnahagslífínu er varð
á þeim árum. En þegar sáttin var
gerð voru _ráð flestra, að rétt væri
og nauðsynlegt að gera tilraunina.
Eftir á að hyggja geta sérfræð-
ingar ugglaust haldið því fram að
óráðlegt hafí verið af minni hálfu
sem fjármálaráðherra að verða við
tilmælum þáverandi forsætisráð-
hen-a og forystumanna launþega
og atvinnurekenda að minnka tekj-
ur ríkissjóðs til þess að greiða fyrir
þessari frægu þjóðarsátt sem þá
var gerð á vinnumarkaði og allir
voru sammála um.
Hún veikti sannanlega stöðu
ríkissjóðs. Enginn sá fyrir hversu
mikii uppsveiflan yrði og þá snöggu
kreppu sem kom í kjölfarið. Það sem
allir töldu vera árangursríkt meðal
gegn verðbólgu reyndist þegar til
lengri tíma er litið heldur auka
þenslu.
Fróðlegt er að rifja upp afstöðu
Alþýðubandalagsins til viðfangs-
efna efnahagsstjórnar þegar þjóð-
arsáttin var gerð. Krafa þess var
meiri kauphækkanir og meiri
ríkisútgjöld og þar af leiðandi meiri
þensla. Alþýðuflokkurinn vildi auka
ríkisútgjöldin um 500 milljónir
króna á verðlagi þess árs.
Forystumenn þessara fiokka eru
því ekki rétt vaxnir til þess að taka
dómarasæti í dag. Á þessu ári er
veruleg uppsveifla vegna batnandi
ytri skilyrða og hallinn á ríkissjóði
verður þrátt fyrir allar skattahækk-
anirnar a.m.k. sex milljarðar króna.
Of seint brugðist við
Samstarfsflokkur okkar sjálf-
stæðismanna í ríkisstjórn 1983-87,
Framsóknarflokkurinn, var andvíg-
ur því að innleiða markaðsákvörðun
vaxta til þess að örva sparnað og
stuðla að auknu jafnvægi. Fyrir þá
sök var brugðið of seint við á því
sviði efnahagsstjórnar. Einmitt
þetta atriði er eitt af höfuðgagnrýn-
isefnum í nýrri skýrslu Efnahags-
og framfarastofnunarinnar um Is-
land.
Það er líka vert upprifjunar nú,
að árið 1988 var gengi krónunnar
ekki breytt eins og þörf krafði
vegna andstöðu Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins eftir verulegt
verðfall á erlendum mörkuðum og
fall Bandaríkjadollars.
Sá ágreiningur leiddi ekki einasta
til stjómarslita heldur jók hann
mjög á vanda útflutningsframleiðsl-
unnar. Fyrir vikið varð kaupmátt-
arrýrnunin meiri en þurft hefði að
vera, ef gengið hefði verið Ieiðrétt
haustið 1988. Og víst er að atvinnu-
leysið hefði orðið minna.
Þannig má finna fjölmörg dæmi
um það hvernig sambræðslustjórnir
margra ólíkra flokka leiða til þess
að réttar ákvarðanir eru ekki tekn-
ar á réttum tíma og viðbrögð verða
of lin og seinvirk. Þetta er því sár-
grætilegra sem ætla má að miklu
meiri samstaða um meginstefnu og
aðgerðir í efnahagsmálum sé úti á
meðal fólksins í landinu en í þingsöl-
um.
Skýrslan og steftia
Sjálfstæðisflokksins
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins og þingflokkur mörkuðu nýja
fijálslynda stefnu í efnahags- og
atvinnumálum síðastliðið haust.
Henni hefur verið fylgt eftir í mál-
flutningi og tillöguflutningi á Al-
þingi.
Athyglisvert er að margt af því
sem Efnahags- og framfarastofnun
segir í skýrslu sinni að brýnast sé
að gera er í fullu samræmi við þessa
stefnumörkun. Talsmenn ríkis-
stjórnarflokkanna hafa á hinn bóg-
inn kosið að túlka hana á þann veg
að ætla má að þeir hafí lesið hana
eins og sá í neðra les Biblíuna.
Efnahags- og framfarastofnunin
telur til að mynda óhjákvæmilegt
að íslandi tengist fijálsum fjár-
magnsviðskiptum Evrópubanda-
Þorsteinn Pálsson
„En alvarlegustu stað-
reyndirnar sem við
stöndum frammi fyrir
eru þær vísbendingar
sem fram koma í
skýrslu Eftiahags- og
framfarastoftiunarinn-
ar að á næstu árum eða
áratug verði hér að
óbreyttum aðstæðum
stöðnun og oflítill hag-
vöxtur til þess að við
getum fylgt öðrum
þjóðum efftir í framfara-
sókn. Þetta er dómur-
inn um afleiðingar af
eftiahagssteftiu vinstri
flokkanna.“
lagsins til þess að auka hagkvæmni
í dreifingu fjármagns og bæta jafn-
vægi í hagþróuninni. Sjálfstæðis-
menn hafa flutt þingsályktunartil-
lögu um þetta á Alþingi í vetur en
henni hefur verið hafnað af stjórn-
arflokkunum. Sérstaklega er at-
hyglisvert að Alþýðuflokkurinn sem
mikið talar um þessi efni skuli sitja
frest þegar í byijun þessa stjórnar-
samstarfs með því að stofna milli-
færslu og styrkjasjóði af ýmsu tagi.
Slíkir sjóðir leysa engan vanda nú
fremur en fyrir þremur áratugum
þegar Islendingar héldu að þeir
hefðu sagt skilið við þau vinnu-
brögð.
Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir
20 milljarða króna tilfærslum í
formi styrkja, lána, skulbreytingar
og gjafapeninga.
Aætla má að gjaldþrot milli-
færslusjóðanna verði nær 5 millj-
örðum króna við lok kjörtímabilsins
að ári. Það er hinn óleysti vandi
hefðbundinna vinstristjómarað-
ferða.
Til viðbótar hafa nú verið sett
íslandsmet tvö ár í röð, í söfnun
erlendra skulda. Þær eru nú hærra
hlutfall af landsframleiðslu en
nokkru sinni fyrr.
Þessi vinstri stjórn lifír eins og
aðrar slíkar eftir kenningunni: eng-
in verðbólga: Allt skrifað.
Vaxandi miðstýring og
geðþóttastjórn
Á flestum sviðum gætir tilhneig-
ingar til aukinnar miðstýringar. í
skipulagsmálum á að færa vald frá
sveitarfélögum til ríkisins. í hús-
næðismálum er markvisst stefnt frá
séreignastefnunni í skandinavískt
leiguíbúðakerfi.
Við höfum um alllangan tíma
búið við tvöfalt hagkerfi þar sem
atvinnuvegir landsbyggðarinnar
hafa verið háðir miðstýringu og
sjóðavaldi en atvinnulíf þéttbýlisins
notið meira frelsis. Núverandi ríkis-
með hendur í skauti.
Erlent áhættufé til að auka
fjölbreytni í atvinnulífi
í skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar er lögð mikil áhersla
á að ný löggjöf verði sett er miði
að því að auka fjárfestingu erlendra
aðila í öðrum greinum en sjávarút-
vegi í þeim tilgangi að nýta erlent
áhættufé til þess að auka fjöl-
breytni í atvinnulífínu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur flutt
viðamikið frumvarp til nýrrar lög-
gjafar á þessu sviði. Stjórnarflokk-
arnir fást ekki einu sinni til þess
að taka það til umræðu á þessu
þingi.
Afhám ríkiseinokunar
í bankakerfinu
í skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar kemur ennfremur
fram að nauðsynlegt sé að hverfa
frá ríkisrekstri í bankakerfinu og
að dregið verði úr sjálfvirkum ríkis-
ábyrgðumí opinbera sjóðakerfinu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur einn-
ig flutt frumvarp um þetta efni á
þessu stigi. Alþýðuflokkurinn hefur
viðurkennt að nauðsynlegt sé að
breyta bönkunum til þess að aðlaga
fjánnálakerfið að nýjum aðstæðum.
En vegna andstöðu í tveimur
stjórnarflokkanna situr þetta mál
fast og alþýðuflokksmenn þora ekki
að ljá frumvarpi sjálfstæðismanna
atfylgi sitt.
Vandamálum skotið á frest
Að hætti gamaldags vinstri
stjómar var vandamálum skotið á
stjórn hefur dýpkað þesa gjá í stað
þess að brúa hana.
Dómurinn um vinstri stefiiuna
Að undanförnu hafa ýmsar ytri
aðstæður gengið í haginn. Aðilar
vinnumarkaðarins lögðu ríkisstjórn-
inni til nýjan efnahagsgrundvöll
með djörfum kjarasamningum.
Bandaríkjadalur hefur aukist að
verðgildi og verðlag á erlendum
mörkuðum hefur hækkað langt
umfram björtustu vonir manna.
Af þessum ástæðum hefur rekst-
ur útflutningsatvinnugreinanna
skánað. Og viðskiptahalli er ekki
jafn mikill vegna þess að kaupmátt-
arrýrnunjn hefur eðlilega haft þær
afleiðingar í för með sér að almenn-
ingur hefur ekki haft efni á inn-
kaupum í sama mæli og áður.
En alvarlegustu staðreyndirnar
sem við stöndum frammi fyrir eru
þær vísbendingar sem fram koma
í skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar eða á næstu árum
eða áratug verði hér að óbreyttum
aðstæðum stöðnun og of lítill hag-
vöxtur til þess að við getum fylgt
öðrum þjóðum eftir í framfarasókn.
Þetta er dómurinn um afleiðingar
af efnahagsstefnu vinstri flokk-
anna.
Þeirri alvarlegu þróun, sem blas-
ir við í þessu efni verður ekki snúið
við nemameð frjálslyndri efnahags-
stefnu. Úrræðin sem Efnahags- og
framfarastofnunin bendir á eru flest
þau sömu og sjálfstæðismenn hafa
verið að beijast fyrir á Alþingi.
Tíminn lýsir því yfir í gær að þar
á bæ sé öllum hugmyndum af því
tagi hafnað. Það blasir því við
stöðnun, ef ekki tekst að koma
ríkisstjórninni frá. Og þetta er
íslenskur veruleiki á sama tíma og
aðrar þjóðir taka stór stökk fram á
við í sókn til betri lífskjara.
Höfundur er formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Fimm námsmenn
hljóta Námustyrk
Landsbanka IsLands
FIMM námsmenn hlutu i gær styrki frá Landsbanka íslands að upp-
hæð 100.000 krónur hver og voru þeir aíhentir við hátíðlega athöín
í Háskóiabíói. Styrkveitingin er liður í þeirri starfsemi Landsbank-
ans að styðja við námsmenn og ýmsa menntastarfsemi, segir í frétt
frá bankanum. Upphaflega var ráðgert að veita tvo styrki en alls
bárust á annað hundrað umsóknir og var því ákveðið að fjölga þeim
í fimm. Allir námsmenn í framhaldsskólum og framhaldsnámi erlend-
is sem eru í „Námunni", námsmannaþjónustu Landsbankans, geta
sótt um þessa styrki.
Þeir sem styrkina hlutu eru Svala
Sigurðardóttir og Sólveig Ásá
Ámadóttir sem báðar stunda nám
í Háskóla íslands, Alexander Kr.
Smárason sem stundar doktorsnám
í læknisfræði við háskólann í Ox-
ford, Gísli Gylfason vélskólanemi
og Hlín Pétursdóttir sem stundað
hefur nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og er nú á leið til fram-
haldsnáms í Þýskalandi.
Dómnefnd skipa Sverrir Her-
mannsson bankastjóri, Eyjólfur K.
Síguijónssön,'formaður bankaráðs
Landsbankans, Kristín Rafnar,
starfsmaður á markaðssviði, dr.
Gylfí Þ. Gíslason, fyrrverandi ráð-
herra, og Kristrún Heimisdóttir,
formaður Félags framhaldsskóla-
nema. Ingólfur Guðmundsson er
ritari dómnefndar. Sverrir Her-
mannsson segir að stefnt sé að því
að bankinn veiti styrkina jöfnum
höndum til nemenda í háskóla- sem
og tækni- og listanámi. Næsta
styrkveiting verður að ári og sagð-
ist Sverrir vilja hvetja nemendur til
að fylgjast með tilkynningu um-
Morgunblaðið/Þorkell
Námsmennirnir sem hlutu Námustyrk Landsbankans, 100 þúsund krónur hver, frá vinstri: Svala Sigurðar-
dóttir, Sólveig Ása Árnadóttir, Auður Alexandersdóttir móðir Alexanders Kr. Smárasonar, sem staddur
er erlendis, Gísli Gylfason og Hlín Pétursdóttir.
styrkveitingu og sækja um því allt
framhaldsskólanám væri styrk-
hæft.
„Náman“ er sérstök þjónusta við
námsmenn 18 ára og eídri. Ýmsir
þjónustuþættir bankans, svo sem
einkareikningur, VISA-kort, náms-
lokalán, Kjörbók og fleira eru settir
-saman f-pakka sem er -sérfitakle,
sniðinn að þörfum námsmanna.
Við athöfn í Háskólabíói, þar sem
Námustyrkirnir voru afhentir,
kynnti Sverrir Hermannsson
bankastjóri nýjungar Námunnar,
slagorða- og hugmyndasamkeppni
sem hleypt hefur verið af stokkun-
um og sérstaka „Námuviku" sem
aoáimsmláijl uaaitöl
verður haldin dagana 7. til 11. maí
og fer fram í Vesturbæjarútibúi
Landsbankans. Þar geta nemendur
kynnt sér alla þætti Námunnar.
Gylfi Þ. Gíslason afhenti síðan
styrkina. í Iokin söng Hlín Péturs-
dóttir styrkþegi við undirleik Kryst-
,ynu Cortesi n i o-u n i ,w oai u j ,i
I h§n9! JifilgiBta u BjJsd jþ nifiisí
BORGARSTJÓRN REYKJAVÍKUR
Borgar-
stoftianir
noti endur-
unninn hrein-
lætispappír
HALLUR Magnússon, vara-
borgarfúlltrúi Framsóknar-
flokksins, lagði fram tillögu á
borgarstjórnarfundi um að
borgarstofnanir noti endurunn-
inn óbleiktan hreinlætispappír
og aðrar hreinlætisvörur, sem
ekki séu skaðlegar náttúrunni.
Tillögunni var vísað til borgar-
ráðs.
í greinargerð með tillögunni
segir, að ýmsar hreinlætisvörur
innihaldi efni, sem séu mjög skað-
Ieg náttúrunni. Jafnframt skipti
miklu í baráttunni gegn mengun,
að endurunnar vörur séu notaðar
í sem mestum mæli.
Katrín Fjeidsted, formaður
heilbrigðisráðs borgarinnar, lagði
til að tillögunni yrði vísað til borg-
arráðs, enda væru þar til meðferð-
ar tillögur svipaðs efnis. Var sú
málsmeðferð samþykkt sam-
hljóða.
Tillög'ii um
flutning'
flugvallar-
ins vísað firá
BORGARSTJÓRN vísaði á
fundi sinum á fímmtudag frá
tillögu Guðrúnar Ágústsdóttur,
Alþýðubandalagi, um flutning
Reykjavíkurflugvallar. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður skipulagsncfndar, sagði
að tiilagan virtist einkum sett
fram til að draga athyglina fra
borgarmálunum almennt og því
vandræðaástandi sem hijáði
flokk Guðrúnar og skylda
flokka.
í tillögu Guðrúnar Ágústsdótt-
ur var gert ráð fyrir að efnt yrði
til atkvæðagreiðslu meðal borg-
arbúa, samhliða sveitarstjórnar-
kosningum í vor, um framtíðar-
nýtingu Vatnsmýrarsvæðisins,
þar sem nú er Reykjavíkurflug-
völlur.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
flutti frávísunartillögu frá borgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins við
tillögu Guðrúnar. Vilhjálmur
sagði meðal annars að ákvörðun
um að leggja niður Reykjavíkur-
flugvöll krefðist ítarlegrar athug-
unar og umfjöllunar, bæði af hálfu
ríkisins og borgarinnar. Um mikla
fjármuni væri að tefla og auk
þess hefði enn ekki verið hægt
að benda á heppilega staðsetningu
fyrir nýjan innanlandsflugvöll,
þrátt fyrir umfangsmiklar athug-
anir. Tillaga Guðrúnar virtist
einkum sett fram í þeim tilgangi,
að reyna að draga athyglina frá
borgarmálum almennt og því
vandræðaástandi sem hijáði flokk
hennar og aðra skylda flokka.
Fjölgnn
ferða SVR í
miðbænum
til athugunar
BORGARSTJÓRN fól sljórn
Strætisvagna Reykjavíkur að
kanna möguleika á að ljölga
strætisvagnaferðum milli
Hlemms og Lækjartorgs. Þetta
var ákveðið á borgarstjórnar-
fundi á fimmtudag.
i —ri.il iniil.LjJI i i.n .
Borgarfulltrúar minnihluta-
flokkanna lögðu fram tillögu um
að koma á fót sérstakri miðbæjar-
leið á vegum SVR. í greinargerð
var vísað til þess að nú væri að-
eins einn vagn í ferðum, sem
flytti fólk frá Hlemmi niður
Laugaveg að Lækjartorgi og sam-
tökin Gamli miðbærinn hefðu ein-
dregið óskað eftir því að sú þjón-
usta yrði aukin.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði að nú væri sérstök miðbæ-
jarleið fyrir hendi, en ástæða
væri til að skoða, hvort auka
mætti þjónustu Strætisvagnanna
hvað þetta varðaði. Lagði hann
til að stjórn SVR yrði falið að
gera kostnaðaráætlun í málinu,
sem skilað yrði til borgarráðs. Var
sú tillaga hans samþykkt sam-
hljóða.
Kaupum á
Iðnó haftiað
TILLÖGU frá Elínu G. Ólafs-
dóttur um að Reykjavíkurborg
kaupi Iðnó var vísað frá á fúndi
borgarstjórnar. Davíð Oddsson,
borgarsljóri, sagði að sér virtist
tillagan óþörf, með hliðsjón af
því að málið væri til sérstakrar
meðferðar í menntamálaráðu-
neytinu.
Elín G. Ólafsdóttir sagðisttelja,
að borgin ætti að kaupa Iðnó til
að varðveita húsið undir lista-
starfsemi af ýmsum toga. Borgar-
stjóri sagðist geta tekið undir það
sjónarmið Elínar, að mikilvægt
væri að húsið nýttist áfram í þágu
menningar- og félagsstarfs. Hins
vegar væri tillöguflutningur henn-
ar óþarfur, enda væri málið til
sérstakrar meðferðar í mennta-
málaráðuneytinu og Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra
hefði lýst því yfir, að hann myndi
tryggja, að ekki yrði „menningar-
slys“ við Tjörnina.
Virðisauka-
skatti á vinnu
skólafólks
mótmælt
JÓNA Gróa Sigurðardóttir, for-
maður atvinnumálanefiidar
Rcykjavíkur, kynnti í borgar-
stjórn ályktun nefndarinnar,
w / gi 'PjJl ij.ii .i'i't",RJ.i'T'.r 'a'ii*
þar sem mótmælt er álagningu
24,5% virðisaukaskatts á launa-
greiðslur til skólafólks í sumar.
. í ályktuninni segir, að atvinnu-
málanefnd telji óviðunandi að fyr-
irsjáanlegur atvinnuvandi skóla-
fólks á sumri komanda verði auk-
inn, með þvi að leggja 24,5% virð-
isaukaskatts á launagreiðslur
þess, að viðbættu 30% álagi vegna
skrifstofukostnaðar og annarrar
umsýslu í tengslum við sumar-
störfin. Fyrir Reykjavíkurborg
sem launagreiðanda jafngildi
þetta 31,85% álagi á launagreiðsl-
ur til skólafólksins.
í ræðu sinni í borgarstjóm
sagði Jóna Gróa, að það væri
óheppilegt ef álagning virðisauka-
skatts á starfsemi sveitarfélaga
yrði til þess að draga úr mætti
þeirra til að leysa atvinnuvanda
skólafólks og koma um leið í veg
fyrir, að unnt yrði að ráðast í
brýn verkefni á sviði umhverfis-
mála.
Borgin efni
til fræðslu
um umhverf-
ismál
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
samþykkti tillögu ft-á Júlíusi
Hafstein, formanni umhverfís-
málaráðs, um að borgin efiii til
fræðslu og kynningar á um-
hverfismálum í framhaldi af
„Degi jarðar“, sem haldinn var r
í siðasta mánuði.
Tillaga Júlíusar hljóðar svo: „1
framhaldi af „Degi jarðar“, þann
22. apríl síðastliðinn samþykkir
borgarstjórn að við gerð næstu
fjárhagsáætlunar verði gert ráð
fyrir fjárveitingu til fræðslu og
kynningar á umhverfisvemdar-
málum almennt. Umhverfísmála-
ráði verði falið að móta tillögur
og kostnaðaráætlun vegna þessa
og skulu tillögurnar ná til sem
flestra þátta umhverfismála.“
í greinargerð með tillögunni
segir meðal annars, að nauðsyn
sé að efla vitund manna varðandi
umhverfismál með öflugu
fræðslu- og kynningarátaki.
Markmið tillögunnar sé að gera
„Dag jarðar“, sem Reykjavíkur-
borg hafði frumkvæði að í apríl,
að upphafi nýrrar sóknar í þeim -
efnum.