Morgunblaðið - 05.05.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAI 1990
3í
Kveðjuorð:
Sigríður Þorsteins-
dóttir sjúkraliði
Ég hef augu mín til fjallanna.
Hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar.
(Úr Davíðssálmum)
Við samstarfsfólk Sigríðar á
deild A-2 á Borgarspítala viljum
minnast hennar og þakka fyrir
kynni og vináttu um áraraðir.
Hljóð og háttvís vann hún með
okkur, vann verk sín hávaðalaust.
Ráðþrota stöndum við þegar alvar-
legir sjúkdómar herja. Við hjúkr-
unarfólk eigum ávallt erfitt með að
sætta okkur við vanmátt okkar.
Sjálfsagt mest þegar einhver úr
okkar röðum á í hlut. Hjálp mín
kemur frá Drottni. Höfum það að
leiðarljósi í minningu um góðan vin.
Páskum er nýlokið. Upprisuhátíð.
Við vonum og biðjum að heimkoma
vinar okkar verði björt. Þjáningin
burtu tekin. Friður í sál. Náðar-
faðmur Drottins opinn.
Við biðjum algóðan Guð að
styrkja dætur, tengdasyni og
barnabörn í þeirra sorg.
„Því hvað er það að deyja annað
en standa nakinn í blænum og
hverfa inn í sólskinið. Og hvað er
að hætta að draga andann annað
en að frelsa hann frá friðlausum
öldum lífsins. Svo hann geti risið
upp í mætti sínum og ófjötraður
leitað á fund Guðs síns.“
(Kahlil Gibran.)
Blessuð sé minning Sigríðar Þor-
steinsdóttur.
Samstarfsfólk deild A-2,
Borgarspítala.
Helga Hermanns-
dóttir - Minning
Fædd 5. júní 1927
Dáin 24. apríl 1990
í dag, laugardaginn 5. maí, er
til moldar borin frá Hólakirkju í
Saurbæjarhreppi Helga Hermanns-
dóttir sem lést í Sjúkrahúsinu á
Akureyri þann 24. apríl sl. Með
þessum fátæklegu orðum langar
mig til að minnast Helgu, móður
minna æskufélaga, og sannrar öðl-
ingskonu.
Við vorum oft nokkuð fyrirferð-
armiklir piltarnir í litla bænum í
Grænuhlíð þar sem Hegla og Krist-
ján þjuggu á þeim tíma sem ég var
að vaxa úr grasi í Gnúpufelli. Það
var alveg sama á hveiju gekk,
ævinlega gat Helga hlegið sínum
milda hlátri og gert gott úr öllu,
þegar flestir aðrir hefðu notað önn-
ur vinnubrögð við að siða okkur
til. Mér er einnig minnisstæð sú
mikla hlýja sem var Helgu svo eig-
inleg, og kom ósjálfrátt fram þegar
eitthvað bjátaði á.
í byijun þessa árs átti ég þess
kost að vera Helgu lítillega til að-
stoðar þegar hún þurfti að leita
læknis í Reykjavík. Það var því
miður mitt síðasta tækifæri til að
endurgjalda allt hið góða og já-
kvæða sem Helga gaf mér, sem og
öllum öðrum sem hún umgekkst á
lífsleiðinni. Ég minnist Helgu með
kærleika.
Friðfinnur K. Daníelsson
Úr nýjustu mynd Regnbogans, „Helgarfrí með Bernie“
Regnboginn:
„Helgarfrí með Bernie“
REGNBOGINN hefiir hafið sýn-
ingar á grínmyndinni „Helgarfrí
með Bernie“. I aðalhlutverkum
eru Andrew McCarthy og Jon-
athan Silverman. Leikstjóri er
Ted Kotcheff.
„Vinnufélagarnir ungu og metn-
aðargjörnu, Larry og Richard, upp-
götva að einhver hefur svikið fé út
úr fyrirtækinu sem þeir vinna hjá.»
í viðurkenningarskyni býður yfir-
maður þeirra, Bernie, þeim til helg-
ardvalar í stórglæsilegu sumarhúsi
sínu á Long Island. Félögunum
þykir mikið til koma að fá að blanda
geði við allt fína fólkið og ekki spill-
ir fyrir að draumastúlka Richards,
Gwen, er þar Iíka. En þegar vinirn-
ir tveir koma til sumarhússins upp-
götva þeir sér til hrellingar að
Bernie er iátinn. En gleðskapurinn
er að byija og félagarnir vilja alls
ekki missa af öllu fjörinu, svo þeir
■ SÝNING á vatnslitamyndum
ellir Þór Ludwig Stiefel stendur
nú yfir á Mokkakaffí við Skóla-
vörðustíg í Reykjavík. Sýningin ber
yfirskriftina Reykjavíkurmyndir og
stendur hún til 28. maí. Mokka-
kaffi er opið kl. 9.30-23.30 alla
daga nema sunnudaga, en þá er
opið kl. 14.00-23.30.
láta bara sem ekkert hafi í skorist.
En það hefur óvæntar og spreng-
hlægilegar afleiðingar," segir í frétt
frá kvikmyndahúsinu.
■ KVENFELAG Langholtssafn-
aðar verður með kaflisölu sunnu-
daginn 6. maí eftir messu til styrkt-
ar minningarsjóði frú Ingibjargar,
fyrstu prestfrúr við Langholts-
kirkju. Við andlát hennar stofnuðu
ástvinir hennar og velunnarar
minningarsjóð, sem ætlað var það
hlutverk að styðja kirkju og menn-
ingarmál innan prestakallsins og
einnig þá er standa höllum fæti í
lífinu í borginni okkar. Fjár tii sjóðs-
ins er aflað með sölu minningar-
korta, fijálsum framlögum og svo
árlegri kaffisölu kvenfélags safnað-
arins. Auk þess að styrkja gott
málefni gefst fólki kærkomið tæki-
færi til þess að eiga saman ljúfa
stund í kirkjumiðstöðinni í Lang-
holtinu eftir samfélag guðsþjón-
ustunnar. Einnig er tilvalið fyrir þau
sem ætla að njóta H-moll messu
Bachs í flutningi Langholtskórsins
kl. 16 að fá sér kaffi og gera þann-
ig tónleikaferðina að hátíðardegi
fjölskyldunnar.
Sr. Þórhallur Heimisson
Tryggjum framhald kvik-
myndagerðar á Islandi
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp
að lögum um Kvikmyndastofnun Is-
lands, sem ætlað er að bæta stöðu
íslenskrar kvikmyndagerðar. Frum-
varpið er því miður ekki líklegt til
að skila tilætluðum árangri, því þar
er gert ráð fyrir framlagi, sem trygg-
ir gerð aðeins einnar kvikmyndar á
ári.
Reynsla síðustu tíu ára sýnir, að
kvikmyndagerð getur ekki þrifist
nema hér séu framleiddar að
minnasta kosti íjórar kvikmyndir á
ári.
Nái telquákvæði frumvarpsins
fram að ganga óbreytt, er stutt í
það, að íslensk kvikmyndagerð legg-
ist niður fyrir fullt og allt.
Tekjur Kvikmyndasjóðs voru upp-
haflega ákvarðaðar söluskattur af
sýningum kvikmyndahúsa. Rök-
semdin var sú, að íslenskar kvik-
myndir þyrftu að keppa við sýningar
á erlendum myndum og því rétt að
ÚR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
Reiðhjól og hjólreiðar
Vorið er sá árstíini þegar
reiðhjólin eru tekin úr
geymslu. Mest ber á tápmiklu
ungu hjólreiðafólki. Stundum
má ekki mikið bera út af hjá
því svo illa fari. Til þess að
draga megi úr likum á að svo
verði fylgja hér á eftir nokkr-
ar leiðbeiningar, sem nauð-
synlegt er fyrir lijólreiðafólk
að hafa í huga.
Búnaður, s.s. hemlar, ljósker,
glitaugu, bjalla og lás, þarf að
vera í fullkomnu lagi. Þá er
mælt með viðvörunarstöng og
góðu endurskini á öll reiðhjól.
Ekki má skilja reiðhjól eftir á
almannafæri nema hafa áður
læst því og þannig gengið frá
því að ekki trufli eða valdi hættu
fyrir umferð.
Hjólreiðafólk sem á samleið á
að hjóla í einfaldri röð ög virða
reglur um umferð sem og aðrir
vegfarendur.
Óheimilt er að flytja farþega
á reiðhjóli. Þó má vanur hjól-
reiðamaður, sem orðinn er 15
ára, flytja barn yngra en 7 ára
á reiðhjóli enda sé barninu ætlað
miða framlag til Kvikmyndasjóðs við
aðsókn að eriendum kvikmyndum.
Nú hefur aðsókn að kvikmyndahús-
um dregist saman og í staðinn bæst
við nýtt dreifíngarform, þ.e. leiga
myndbanda. Þess vegna er eðlilegt,
að í endurskoðuðum lögum um kvik-
myndir bætist virðisaukaskattur af
leigu myndbanda.
Það er skilyrði þess, að frumvarp-
ið um Kvikmyndastofnun tryggi
framhald kvikmyndagerðar á íslandi.
Ágúst Guðmundsson form.
Samtaka íslenskra kvikmynda-
framleiðenda. Kristín Jóhannes-
dóttir form. Samtaka kvik-
myndaleikstjóra. Þorsteinn
Jónsson form. Félags kvik-
myndagerðarmanna.
(Undirskriftir féllu niður í blaðinu
í gær, er athugasemd þessi var birt.
Biðst blaðið velvirðingar á þessum
mistökum.)
sérstakt sæti og þannig um búið
að því stafi ekki hætta af hjóla-
teinunum. Nauðsynlegt er að
vanda mjög val slíkra sæta.
Þrátt fyrir 7 ára aldurslág-
mark á reiðhjólum mælir lög-
reglan ekki með því að börn
yngri en 9 ára.hjóli einsömul á
vegum þar sem vænta má um-
ferðar vélknúinna ökutækja.
Mörg slysanna verða þegar
börnin hjóla út á umferðargö-
turnar.
Hjólreiðamaður er illa varinn
ef óhapp hendir. Þá getur góður
og léttur hjálmur komið að
gagni auk þess sem hann veitir
skjól fyrir veðri og vindum.
Hjólreiðamaður á aldrei að
flýta sér um of. Hann á alltaf
að gefa sér góðan tíma til að
komast á milli staða, líta vel í
kringum sig og fara varlega.
Æskilegt er að hjólreiðafólk
noti gangstéttir og götustíga
þar sem slíku er til að dreifa,
alveg sérstaklega þar sem um-
ferð vélknúinna ökutækja er
þung. Ekki má gleyma að sýna
gangandi vegfarendum þar
fyllstu tillitssemi.
+
Eiginkona mín,
ANNA ÁRNADÓTTIR
frá Þverá,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð.
Kjartan V. Haraldsson og fjölskylda,
HQnefoss, Noregi.
Innilegar þakkir fyrir alla vinsemd og hlýhug við andlát og útför
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
KARENAR GESTSSON.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim, sem veittu henni umönn-
un í langvarandi veikindum hennar. Kærar kveðjur.
Hjalti Gestsson,
Margrét Hjaltadóttir, Kristján Guðmundsson,
Ólafur Hjaltason, Steinunn Ingvarsdóttir,
Unnur Hjaltadóttir, Friðrik Páll Jónsson,
Gestur Hjaltason, Sólveig Ragnheiður Kristinsd.
og barnabörnin.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐVEIGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Ánahlið 6, ,
Borgarnesi.
Jónas Gunnlaugsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og
ömmu,
INGIBJARGAR G. ÞÓRÐARDÓTTUR,
Hrafnistu,
Reykjavík.
Magnús S. Magnússon, Guðbjörg M. Gunnarsdóttir,
Gunnar H. Magnússon, Elísabet Eyjólfsdóttir,
Jón H. Magnússon,
Magnús H. Magnússon, Sissel S. Magnússon,
Ingibjörg Ósk Birgisdóttir.
+
Innilegt þakklæti færum við öllum þeim, er auðsýndu okkur sam-
úð og vinarhug vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
KRISTÍNAR UNNAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Brekkustíg 3a,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunardeild Vífilsstaða-
spíta.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.