Morgunblaðið - 13.05.1990, Blaðsíða 1
HEIMILI
Fjarfestlng
í íbúóarhns-
næði jölii
og stöóug
FÁRMUNAMYNDUN ííbúð-
arhúsnæði hefur verið
nokkuð stöðug undanfarin 10
ár eins og súluritið hér til hlið-
ar sýnir, en allar tölur þar eru
á verðlagi 1989. Mest varð hún
1980 eða rúml. 13,3 millljarðar
kr. Arið eftir lækkaði hún í 12
miiljarða kr., en jókst svo aftur
næsta ár og nam þá 13,2 millj-
örðum kr. Arið 1983 lækkaði
fjármunamyndunin í 12 millj-
arða kr., en hækkaði svo að
nýju næsta ár og nam þá 13,2
milljörðum kr. Næstu tvö ár á
eftir fór hún lækkandi og varð
11,4 milljarðar kr. 1985 og að-
eins 9,8 milljarðar kr. 1986 og
hefur ekki verið minni á sl. 10
árum. Síðan fór hún hækkandi
á ný og nam 11,2 milljörðum
kr. 1987. Undanfarintvö ár
hefur fjármunamyndunin verið
jöfn og stöðug eða rúml. 12,4
milljarðar kr. bæði árin.
Fjárfesting hefur verið mun
meiri í íbúðarhúsnæði en at-
vinnuhúsnæði undanfarin ár,
en fjárfesting t. d. í skrifstofu-
og verzlunarhúsnæði hefur far-
ið ört minnkandi á sama tíma.
Fjárfesting f íbúðarhúsnæði
hefur líka haldið hlut sínum
gagnvart ýmsum atvinnugrein-
um. Þannig hefur fjárfesting f
landbúnaði farið minnkandi og
sömu sögu er að segja um fjár-
festingu í fiskiskipum og
vinnslu sjávarafurða.
Garðhú§
handa
börnum
FRAMUNDAN eru vonandi
sólríkir og mildir dagar, þar
sem garðurinn verður mikill
vettvangur ekki sízt fyrir börn-
in. í dag fjallar Bjarni Ólafsson
um, hvernig smíða megi lítið
hús úti í garði handa börnun-
um. Það á að vera 120 cm á
lengd, breiddin 90 cm og vegg-
hæðin 68 cm en hæðin upp á
mæni 115cm.
Bjarni segir, að hús af þessu
tagi geti veitt börnum margv-
fslega möguleika til hugmynd-
aríkrar sköpunar og ómældar
gieðistundir. Sjálfsagt er að
mála húsið að utan sem innan,
því að börn hafa ánægju af lit-
um. Litirnir mega vera hreinir
og skærir en vanda beri vai li-
tanna. _
2
Geldinganes
IIKIL byggð á eftir að rísa
I f Geldinganesi, sem verð-
ur fframtíðinni eitt helzta bygg-
ingasvæði Reykvíkinga. í viðtali
hér í blaðinu í dag fjallar Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arfulltrúi um hugmyndasam-
keppnina um skipulagningu
Geldinganessins, en úrslit
hennar voru kunngerð ekki alls
fyrirlöngu.
Vilhjálmur telur líklegt, að á
Geldinganesi verði 6000-7000
manna byggð auk atvinnu- og
hafnarsvæðis. — Það er skoð-
un mfn, að samkeppnin um
Geldinganes hafi tekizt afar
vel, segir Vilhjálmur. — Það
bárust margar ágætar tillögur
og ég tel tvímælalaust, að
byggt verði á þeim, þegar að
því kemur, að gert verði deili-
skipulag fyrir Geldinganes.