Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 1
1990 ÍWorgjtt»iMaS»íb ■ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ BLAD HEIMSLEIKAR FATLAÐRA Olafur Eiríksson setti heimsmet Hefurfengið þrjú gull í sundi á Heimsleikum fatlaðra ÓLAFUR Eiríksson setti heims- met í sínum f lokki í 200 metra skriðsundi á Heimsleikum fatl- aðra í Assen í Hollandi í gær, þegar hann synti á 2.13,21 mín. og fékk þriðju gullverðlaun sín á mótinu. Geir Sverrisson hafnaði í 15. sæti í þessu sama sundi. Lilja M. Snorradóttir keppti í 200 metra skriðsundi í gær og varð í öðru sæti, á tímanum 2.35,05. Islendingamir kepptu í hlaupi og sundi um helgina. Á laugardaginn keppti Ólafur í 200 metra fjórsundi og varð fjórði (2.37,59); Halldór Guð- bergsson varð fimmti í 200 metra skriðsundi (2.39,35); Rut Sverrisdóttir keppti í 200 metra skriðsundi og varð í sjötta sæti (3.07,47); Lilja M. Snorra- dóttir varð sjöunda í 200 metra fjór- sundi (3.07,79); Geir Sverrisson varð í 14. sæti í 200 metra fjórsundi (2.51,40). Á sunnudaginn varð Lilja í 2. sæti í 100 metra baksundi (1.22,30) og hún varð einnig í 2. sæti í 50 metra skrið- sundi (33,07). Rut Sverrisdóttir varð önnur 100 metra flugsundi (1.26,10); Sigrún Pétúrsdóttir varð fimmta í 50 metra baksundi (1.31,35); Ólafur Eiríksson varð sjötti í 50 metra skrið- sundi (28,89); Halldór Guðbergsson varð sjöundi í 100 metra flugsundi (1.19,28). Þá keppti Haukur Gunnars- son í 200 metra hlaupi og varð í þriðja sæti á 26,50 sek. Arnór Guðjohnsen með Anderlecht í úrslitaleik Evrópukeppninnar í vor. '■ Amór metinn á 150 milljónir ARNÓR Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá Anderlecht segir að allt sé í lausu lofti varð- andi framtíð sína í Belgíu, en samningar hafa ekki tekist með honum og stjórn And- erlechts. Hann segist ætla heim til íslands takist samningar ekki á næstu dögum. 4T Eg efast um að það gerist nokkuð úr þessu r enda orðið mikið kapphlaup um tíma að íránast að hjá öðru liði. Nú er aðeins um einn mánuður þar til deildarkeppnin hefst í flestum lönd- um og er raunar þegar hafin í Frakklandi. Nú er bara að bíða og sjá til, annars kem ég heim til að æfa,“ sagði Arnór. Arnór sagði að hann gæti ekki æft með liðinu vegna reglna sem kveða á um að enginn leikmaður geti byijað að æfa nema að hafa skrifað undir samning fyrir 22. júlí. „Þetta er mjög bagalegt því ég verð að halda mér í formi ef eitthvað skyldi koma upp á,“ sagði Arnór. Hann sagði að Anderlecht gæti alltaf sett upp verð fyrir<§ig sem áhugasöm lið réðu ekki við og haldið þannig í sig. Anderlecht metur Arnór á 140-150 milljónir kr. Bæði NUrnberg og Bayern Uerdingen sýndu Arnóri áhuga í júnímánuði og taldi hann ekki útilokað að eitthvað gæti gerst í þeim málum. „Ætli ég æfí ekki með Stjörnunni ef ég kem heim, eins og síðast þegar ég var í fríi heima,“ sagði Arnór. HANDKNATTLEIKUR Bandaríska lands- liðið í 1. deild í Tékkóslóvakíu! Bandaríska landsliðið tekur þátt í tékknesku 1. deildinni í hand- knattleik næsta vetur. Þetta hljóm- ar ef til vill nokkuð undarlega, en er þó engu að síður sannleikur. Þar sem enginn deildar- keppni á sér stað í Bandaríkjunum hef- ur liðið verið saman í Colorado Springs og æft svo mánuðum skipt- ir, og getur nánast ekkert leikið nema að það fari til Evrópu. Þang- að verður haldið í langa keppnisferð í haust, leikið í Danmörku og víðar og síðan á heimsleikum stúdenta í Hollandi. Skapti Hallgrimsson skrifar frá Seatlle Þess má geta að þjálfari Banda- ríkjamanna er Tékkinn kunni Vojtech Mares, sem hefur þjálfað landslið Tékka og margir muna hann sem einn besta hornamann handboltasögunnar. Hann hefur komið því í kring að landsliðið fær að keppa sem gestur í 1. deildinni í heimalandi hans, síðari hluta deildakeppninnar þar í vetur. „Við komum til með að spila 24 leiki. Stigin úr leikjum okkar telja þannig að um alvöru keppni verður að ræða. Leikmenn mínir geta því öðl- ast mjög dýrmæta reynslu með þessu,“ sagði Mares í samtali við Morgunblaðið í Seattle. Bandaríkjamenn stefna að því að komast á Ólympíuleikana í Barc- elona 1992. Eitt lið verður þar frá Ameríku — Bandaríkin eða Kúba, og Bandaríkjamenn ætla greinilega að leggja allt í sölurnar til að búa lið sitt sem best undir leikinn um ólympíusætið, en hann fer fram á Kúbu eftir því sem Mares sagði. Þess má geta að enginn bandarísku landsliðsmannanna kynntist íþrótt- inni fýrr en um tvítugt — þeir eru allir körfuboltamenn sem tókst að „plata“ yfir í handbolta ... Jafnt gegn Tékkum! Bandaríkjamenn léku við Tékka í handboltamótinu á Friðarleikun- um í gærkvöldi og lauk viðureign- inni með jafntefli, 20:20. Áður töp- uðu heimamenn 33:16 gegn Sovét- mönnum. Tékkar og Japanir gerðu 25:25 jafntefli og Sovétríkin unnu Japan 37:19. í b-riðli unnu Júgósla- var íslendinga 18:17 og Spánn vann Suður-Kóreu 28:23. ■ Friðarleikarn- ir / B3, B7 og B8 Sveiflan var í lagi hjá Úlfari Jónssyni. GOLF / NORÐURLANDAMOTIÐ „Með því betra hjámér“ - sagði ÚlfarJónsson, sem varð í 2. sæti Þetta er með því betra hjá mér og ég spil- aði betur en á Evrópumeistaramótinu,“ sagði Úlfar Jónsson við Morgunblaðið eftir að hafa hafnað í 2. sæti á Norðurlandamótinu i golfi, sem fram fór í Osló í Noregi um helgina. Ölfar fór samtals á 291 höggi, en Per Magnebrandt, Svíþjóð sigraði á 288 höggum. Karen Sævars- dóttir fór á 312 höggum og varð í 3. sæti hjá konunum. „Ég fór þijá góða hringi og strangar æfingar að undanförnu skiluðu sér í bættri sveiflu," sagði Úlfar, sem fór síðasta hringinn á fjórum undir pari eða 68 höggum. „Mér hefur gengið vel að undanförnu. Nú gekk flest upp og ég er mjög ánægður með árangurinn — hann eykur sjálfs- traustið fyrir Landsmótið." íslenska karlasveitin varð í neðsta sæti á mót- inu, en kvennasveitin í næst neðsta sæti. MEISTARAMÓT SSLANDS í SUIMDI / B4 - B5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.