Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.07.1990, Blaðsíða 8
HANDKNATTLEIKUR / FRIÐARLEIKARNIR I SEATTLE Áupp' hafs- reK LEIKUR íslendinga og Júgó- slava á sunnudaginn bar þess greinilega merki að báðar þjóð- ir eru að yngja upp lið sín — nánast að byrja upp á nýtt. Eru staddar á upphafsreit. Mikið var um mistök í sóknarieik iið- anna, varnirnar voru hins vegar mun betri, svo og markvarslan. Skapti Hallgrímssort skrifar frá Seattle Íslendingar byijuðu á að leika 5-1-vörn en það gekk greinilega ekki upp. Júgóslavar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins, í bæði skiptin af línu eftir að þeir höfðu galopnað íslensku vörnina. Þorbergur þjálfari skipaði sínum mönnum þá strax að breyta í flata vörn og eftir það var allt annað upp á teningnum. Geir, Júlíus og Gunn- ar voru firna sterkir á miðju varnar- innar og Guðmundur Hrafnkelsson í banastuði í markinu. Varði nokkr- um sinnum úr dauðafæri en það var sóknarleikurinn sem brást — hvað eftir annað sáust misheppnað- ar sendingar, fjórum sinnum voru dæmd skref á íslenska liðið í fyrri hálfleik og mörg skot fóru forgörð- um. Staðan í hálfleik var 8:5 fyrir Júgóslavíu og þess má geta að þriðja mark lslands kom er rúmar 20 mínútur voru búnar! Upphafsmínútur síðari hálfleiks lofuðu góðu, sóknin var skárri og Island komst í fyrsta skipti yfir, 9:8, er átta og hálf mínúta var lið- in. En það var líka í eina skiptið — allt fór á sama veg í sókninni og áður og Júgóslavar sigruðu. Jafn- tefii hefði þó alls ekki verið ósann- gjarnt, og 10 sekúndum fyrir leiks- lok lokuðu sovésku dómararnir, að því ert virtist, augunum fyrir broti er Júlíus var kominn í gegn. En ekki þýðir að deila við dómarann; tapið var ekki þeim að kenna. Enginn náði sér á strik í sókn- inni nema Konráð Olavson, sem kom inn á fyrir Jakob í vinstra hornið. Skoraði úr öllum fjórum skotum sínum; glæsileg mörk úr horninu og var öiyggið uppmálað. Geir stóð sig einnig nokkuð vel í sókninni en skytturnar voru slakar. Júlíus gerði eitt glæsilegt mark utan af velli og Héðinn var langt frá sínu besta. Gerði ótrúleg mis- tök. Strax í byrjun var tvisvar dæmd skref á hann og það virtist slá Héðin út af laginu. Hann og Júlíu? skiptust á að leika hægra megin í sókninni, Oskar var þar einnig um tíma. Magnús Sigurðs- son, eina örvhenta skyttan í hópn- um, kom inn á um stund í þá stöðu en er greinilega ekki tilbúinn í slag- inn. Júgóslavneska liðið er allt skipað ungum leikmönnum sem ekki hafa verið á stórmótum með a-liði þeirra fyrr. Geir Sveinsson átti ágætan leik gegn Júgóslövum. Mjög óánægður! - sagði ÞorbergurAðalsteinsson, þjálfari „Ég er mjög óánægður með þetta. Skytturnar voru ragar og við skoruðum aðeins eitt mark utan af velli allan leikinn. Það má segja að liðið hafi verið skyttulaust í þessum leik og þegar svo er eigum við enga möguleika. Við verðum að gera sex til sjö mörk utan af velli,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari, við Morgunblaðið eftir að ísland hafði tapað fyrsta leik sínum á Friðarleikunum hér í Seattle, 17:18, gegn Júglóslavíu á sunnudag. Skapti Haiigrimsson skrifar frá Seattle Nei, þjálfarinn var ekki ánægð- ur, enda ekki ástæða til. „Geysilega sterkar skyttur hafa verið okkar styrkur gegnum árin. Nú koma mörkin úr homum, af línu, eft- ir hraðaupphlaup. Skytturnar em í aukahlutverkum en horna- og línumenn í aðalhlutverk- um. Það er mjög erfitt að byggja upp liðið þannig. Við verðum að vera með sterkar skyttur, því þá fá aðrir leikmenn þau tækifæri sem þeir þurfa. Nú bíður andstæðingur- inn bara aftur á línu — þarf ekki að fara út á völlinn á móti skyttun- um, en við förum ekki á taugum. Við verðum að byggja þetta upp, ég hef sagt áður að sumarið verður notað til að prófa. Átján Ieikmenn hafa þegar verið prófaðir og við höldum áfram. En auðvitað er það markmið að vinna leiki, þrátt fyrir að við séum að prófa okkur áfram. Þess vegna er ég svekktur — ég þoli ekki að tapa!“ Hræddir . Þorbergur sagði stöðugleika vanta í liðið. „Strákarnir virtust hræddir og það er eitthvað alveg nýtt hjá íslenskum landsliðsmönn- um. Sjálfstraust, vilji og ákveðni hafa verið í fyrirrúmi undanfarin ár. En þetta tímabil gengur yfir. Við gefum þessu tíma í sumar, spil- um marga landsleiki í desember og janúar og þá breytist þetta von- andi. Það háir okkur líka í sam- bandi við leikkerfi að hafa ekki sterka örvhenta skyttu. Kristján Arason kemur inn seinna í vetur og þá breytist það.“ Vörnin góð En það voru vissulega ljósir punktar í leiknum — flata vörnin gekk vel mestan hluta leiksins. „Já, vörnin var mjög góð. Við prófuðum 5-1 vörn en það var út í hött. Við erum einmitt í vandræðum með hver á að spila fyrir framan í þeirri vörn. Þorgils Óttar gerði það sl. sex ár ásamt Alfreð Gíslasyni en nú er enginn til að taka við. Enginn nógu sterkur til að skila þessu hlutverki í alþjóðlegum leikjum. I kvöld urð- um við að spila 6-0 vörn en síðan verður það að þróast eins og ann- að. Það eru margir veikir hlekkir í keðjunni. Ég hef þó trú á þessu, en strákarnir verða líka að hafa trú á því sjálfir að þeir geti gert það sem þeir eiga að gera.“ GeirSveinsson: vonbrigði „ÉG SKAL viðurkenna að vörnin stóð sig nokkuð vel, en ég viður- kenni á móti að sóknarlega séð var þetta júgóslavneska lið ekki sterkur andstæðingur. í liðið vant- ar marga góða leikmenn og þess vegna varð ég fyrir miklum von- brigðum með að við skyldum ekki ná að sigra," sagði Geir Sveins- son. Geir sagðist telja að íslenska liðið hefði átt að vinna leikinn með 3-4 marka mun. „Það er engin spurning að sóknarleikurinn var mjög slakur, tæknileg mistök [skref, ruðningur og misheppnaðar sendingar] voru tólf til 15, fyrir utan misheppnuð skot. Mér fannst menn vera ragir, hvort sem hræðslu er um að kenna eða einhveiju öðru. Ég skil ekki hvers vegna. Ég vissi ekki fyrirfram hveijir myndu spila fyr- ir Júgóslavíu en þegar óg sá leikmenn- ina koma inn á fylltist ég trausti og fannst að okkur ætti að takast að sigra; hvað þá þegar við fórum að spila á móti þeim. En því miður gekk sóknar- leikurinn ekki betur upp en þetta. Það kostaði að við unnum ekki leikinn. Það er svolítið langt í land hjá okkur í sókn- arleiknum en hann getur lagast um leið og menn verða herskáir, sem vant- aði algjörlega í dag. Ef skytturnar gera það ekki erum við í erfiðri stöðu.“ Þar sem íslenska liðið er að byija að leika 6-0-vöm, sagði Geir að sérstök áhcrsla hefði verið lögð á hana á æfing- um að undanförnu. „Og það skilaði sér í kvöld. Við byijuðum að vísu á 5-1- vörn, af því að við héldum að skyttur þeirra væru öflugri en þær voru. Nafna- listinn benti. til þess en svo kom allt annað lið í ljós enda breyttum við vöm- inni strax eftir að þeir höfðu gert tvö mörk og eftir það áttu þeir í miklum erfiðleikum.“ Islenska liðið átti að spila gegn Spáni í nótt, aðfaranótt þriðjudags, og sagði Geir að það yrði prófraun. „Ef við ætl- um að sýna hvað í okkur býr þá eigum við að gera það gegn Spáni. Þetta spánska lið er mjög gott,“ sagði Geir við Morgunblaðið á sunnudagskvöld, er Spánveijar voru að vinna öruggan sigur á skemmtilegu liði Suður-Kóreu. ■ ÞAÐ gerist ekki í hveijum landsleik að enginn annar en Geir Sveinsson skori fýrstu 20 mínú- turnar. Þannig var það þó gegn Júgóslavíu — Geir gerði tvö fyrstu mörkin og það þriðj'a kom ekki fyrr en eftir 20. mínútu, er Jakob skor- aði úr horni. ■ EINAR Þorvarðarson, aðstoð- armaður Þorbergs Aðalsteinsson- ar, og markvarðaþjálfari landsliðs- ins, fer á markmannsþjálfaranám- skeið til Svíþjóðar í haust á vegum sænska handboltasambandsins. ■ EINAR Vilhjálmsson keppir í spjótkasti í dag á Friðarleikunum. Einar var meðal áhorfenda á leik íslands og Júgóslavíu á sunnudag- inn. ■ MARGIR Islendingar eru bú- settir hér í Seattle og komu nokkr- ir tugir þeirra á leikinn við Júgó- slavíu. Islenska liðið var dyggilega stutt; „áfram ísland" hljómaði um höllina og litlum íslenskum fánum var óspart veifað. ■ JAKOB Sigurðsson var sá eini af handboltamönnunum sem hafði komið áður til Seattle. Hann var skiptinemi hér í háskólanum um þriggja mánaða skeið fyrir nokkr- um árum. ■ HANDBOLTI er mjög lítið kunnur í Bandaríkjunum. „Hand- ball“ er reyndar til en það er allt önnur íþrótt, þar sem bolti er sleg- inn í vegg — veggtennis. Til að- greiníngar er handknattleikur kall- aður „team handball“ og virðist íþróttin satt best að segja falla í góðan jarðveg hjá þeim sem á ann- að borð leggja leið sína á leikina. ■ „ÞETTA er miklu skemmti- legra en ég reiknaði með.“ „Frábær íþrótt.“ „Eg sé ekki eftir að koma hingað.“ Setningar á borð við þess- ar hafa heyrst í íþróttahöllinni þar sem handboltakeppnin fer fram. Fólk á öllum aldri virðist skemmta sér vel, þó svo það skilji reglurnar ekki til hins ýtrasta. En mikið er spurt, og menn eru fljótir að læra. Svo virðist sem íþróttin gæti náð fótfestu hér vestra, eftir viðtökum almennings að dæma. ■ HANDBOLTINN er ein þeirra greina sem fara fram nánast í mið- borg Seattle. Þar er risastórt úti- vistarsvæði, skemmtigarður og verslunarsvæði; Seattle Center. I einu homi garðsins er íþróttahúsið þar sem handboltakeppnin fer fram. SUND Dreymdi heimsmetið BANDARÍKJAMAÐURINN Mike Barrowman bætti heimsmetið í 200 metra bringusundi um 1,36 sekúnd- ur á opnunardegi Friðarleik- anna. Hann synti vegalengd- ina á 2.11,53 sekúndum en gamla heimsmetið, sem hann átti sjálfur, var 2.12,89. Jafnir í öðru sæti urðu Bandaríkja- maðurinn Kirk Stackle og Spánverjinn Sergio Lopez á 2.12,24, báðirsyntuá skemmri tíma en gamla heimsmetið. Stackle var fyrstur að snúa eftir 50 metra og var sek- úndubroti á undan Barrowman um miðbik sundsins. Þá náði Barrowman forystunni sem hann hélt út sundið. „Ég átti von á metinu. Mig dreymdi að ég synti á 2.11,50 sekúndum," sagði Barrowman. Hann hefur æft undir stjórn ung- verska þjálfarans Jozsef Nagy undanfarin tvö sumar ásamt Sergio Lopez. „Við erum góðir vinir. Við erum aðeins haturs- menn ofan í lauginni," sagði Barrowman um Lopez. Lopez kvaðst ekki hafa orðið fyrir von- brigðum þótt hann hefði beðið lægri hlut fyrir Barrowman. „Ég vissi að ég myndi synda mjög vel. Ég sló heimsmet og það næg- ir mér,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.