Morgunblaðið - 24.07.1990, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRŒXÍUDAGUR 24. JÚLÍ 1990
B 3
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Morgunblaðið/Einar Falur
Hilmar Björnsson, KR, beitir öllum brögðum gegn Birgi Sigfússyni, Stjörn-
unni.
KRáskrið
KR-INGAR eru óstöðvandi um
þessar mundir og í gær lögðu
þeir Stjörnumenn af velli í
ágætum leik í Frostaskjóli.
Það voru reyndar Stjörnumenn
sem hófu leikinn betur og sóttu
þeir meira fyrsta stundarfjórðung-
inn en komust þó lítt áleiðis gegn
sterkri vörn KR. A
Guðjón 11. mínútu kom
Guðmundsson fyrsta marktæki-
skrifar færj leiksins þegar
Rúnar Kristinsson
pijónaði sig í gegnum vörn Stjöm-
unnar. Rúnar var óheppinn og
missti boltann aðeins of langt frá
sér og markvörður Stjörnunnar
náði að handsama hann. Sunnan-
strekkingurinn setti nokkuð mark
sitt á fyrri hálfleikinn en þó gekk
leikmönnum beggja liða furðu vel
að hemja knöttinn og brá fyrir
ágætum samleik, einkum hjá KR-
ingum.
í síðari hálfleik lægði og varð
leikurinn snöggtum betur leikinn
af beggja hálfu. KR-ingar léku þá
oft stórvel saman allt upp að marki
andstæðinganna en náðu ekki að
nýta færin fyrr en á 56. mínútu.
Þá reyndi Gunnar Oddsson send-
ingu frá miðjum velli yfír til hægri,
ætlaða Ragnari Margeirssyni.
Varnarmaður Stjörnunnar náði
knettinum, ætlaði að leika á Ragn-
ar innan eigin vítateigs en Ragnar
hirti knöttinn af tám hans, lék í
áttina að marki og skaut föstum
jarðarbolta hnitmiðað í markhornið.
Við markið drógu KR-ingar sig
nokkuð aftur og lifnaði að sama
skapi yfir Stjörnumönnum. Á 74.
mínútu skaut Ingólfur Ingólfsson
hörkuskoti að marki KR sem Ólafur
Gottskálksson bjargaði í stöng.
Þaðan barst boltinn fyrir fætur
Valdimars Kristóferssonar, skot
hans varið á línu og aftur fékk
Valdimar knöttinn en skaut þá yfir
markið. Þar fór forgörðum besta
marktækifæri leiksins.
KR-ingar léku ágætlega, voru
fljótari á boltann og sterkari í
návígjum. Liðið er greinilega komið
á góðan skrið. Hilmar Björnsson lék
oft ágætlega á hægri kanti og
Ragnar Margeirsson var sterkur í
fremstu víglínu.
Stjörnumenn voru slakir að þessu
sinni og var það reyndar skarð fyr-
ir skildi að það vantaði tvo af mátt-
arstólpum liðsins, Árna Sveinsson
og Magnús Bergs. Sveinbjörn Há-
konarson barðist vel og Ingólfur
Ingólfsson sýndi að hann er góð
skytta. Dómari leiksins var Sæ-
mundur Víglundsson og var hann
mistækur. Virtist hann ekki þekkja
hagnaðarregluna, nema þá kannski
aðeins af afspum.
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 2. DEILD
Sex mörk Fylkis íÁrbæ
Skúli
Unnar
Sveinsson
skrifar
FYLKISMENN yfirspiluðu
Grindvíkinga algerlega í gærkvöldi
þegar liðin mættust á Árbæjarvelli.
Heimamenn skoruðu sex mörk gegn
engu. Guðmundur
Magnússon gerði
bæði mörkin sem
Fylkismenn skoruðu
í fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur var einstefna að
marki Grindvíkinga. Hörður Vals-
son skoraði þriðja mark Fylkis, og
Kristinn Tómasson ljórða markið.
Gunnar Pétursson skoraði fimmta
markið úr vítaspyrnu og Kristinn
bætti því sjötta við.
Breiðablik sigraði Tindastól með
einu marki gegn engu í hlýrri sunn-
an golu á Sauðárkróki í gærkvöldi.
Á þrítugustu og fjórðu mínútu
skoruðu Breiða-
Bjöm bliksmenn úr auka-
Bjömsson spyrnu og var Grét-
skrífar ar steindórsson að
verki. Lokatölurnar
urðu eitt mark gegn engu fyrir
Breiðablik, í leik sem hefði getað
farið á hvorn veginn sem var. Blik-
ar voru meira með boltann, en bar-
átta Tindastólsmanna var mikil og
ef til vill hefðu sanngjörnustu úrslit-
in verið eitt mark gegn einu.
Selfoss sigraði
Selfoss sigraði ÍR í frekar til-
þrifalitlum leik á Selfossvelli í gær-
kvöldi. Júgóslavinn Dervic gerði
eina mark leiksins í byrjun seinni
hálfleiks úr víta-
Sigurður spyrnu eftir að
Jónsson Porca, landi hans,
skrifar hafði verið felldur
innan teigs. I fyrri
hálfleik var jafnræði með liðunum
en í þeim seinni náðu Selfyssingar
undirtökum og sóttu mun meira.
ÍR-ingar áttu þó skyndisóknir, sem
sköpuðu hættu við mark Selfoss. Á
síðustu mínútu leiksins voru ÍR-
KNATTSPYRNA/ 1.DEILD KVENNA
Sigur og tap
hjá KA-stúlkum
KA-stúlkur láku tvo leiki í
Reykjavík um helgina. Fyrri
leikurinn var við KR á laugar-
dag og þar sigruðu gestirnir
2:1. Á sunnudag vann síðan
Valur KA 5:1 á Hlíðarenda.
Hjördís Úlfarsdóttir kom KA-
stúlkum yfir gegn KR með
glæsilegu marki beint úr auka-
spyrnu snemma í fyrri hálfleik.
Helena Ólafsdóttir jafnaði fjótlega
fyrir KR og var staðan 1:1 í leik-
hléi. Sólveig Haraldsdóttir { KA
fótbrotnaði illa eftir að hafa lent í
samstuði við Sigríði Pálsdóttur
markvörð KR. I stað Sólveigar kom
Tinna Guðmundsdóttir inná og
skoraði hún sigurmark Akureyrar-
liðsins.
Öruggt hjá Val
Valsstúlkur byijuðu leikinn gegn
KA með látum og gerðu þijú mörk
gegn engu fyrstu fimmtán mínú-
turnar. Þær rauðklæddu bættu
fjórða markinu við fyrir leikhié, en
í síðari hálfleik skoraði hvort lið
eitt mark. Guðrún Sæmundsdóttir
gerði tvö mörk fyrir Val, þaraf
annað úr víti. Sirrý Haraldsdóttir,
Bryndís Valsdóttir og Ingibjörg
Jónsdóttir gerðu sitt markið hver.
Fyrir KA skoraði Eydís Marinós-
dóttir.
ingar nálægt að jafna eftir horn-
spyrnu, en Selfyssingar náðu naum-
lega að bægja hættunni frá.
Bestur í liði Selfoss var Páll
Guðmundsson og Kristján Halldórs-
son var bestur í liði IR.
Víðismenn unnu sinn fyrsta
deildarsigur á Keflvíkingum í gær-
kvöldi.Fyrra mark Víðismanna
skoraði Grétar Einarsson á 36.
^■1 mínútu eftir góða
Frímann sendingu frá bróður
Ólafsson sínum Daníel Ein-
skrífar arssyni. Steinar
Ingimundarson
bætti seinna marki Víðismanna við
á 65. mínútu. Víðisliðið var mjög
jafnt í leiknum og góð barátta var
í liðinu. Daníel Einarsson var þó sá
klettur sem flestar sóknarlotur
Keflvíkinga strönduðu á. Keflavík-
urliðið náði sér einfaldlega ekki á
strik í leiknum og olli vonbrigðum.
Rögnvaldur
Þórðarson
skrifar
Ólafsfirðingar byrjuðu leik sinn
gegn nágrönnunum á Siglufirði með
látum. Sóttu nær stanslaust fyrstu
25 mínúturnar og Kristján Karlsson
í marki KS hafði í
nógu að snúast. En
síðan snerist dæmið
við og heimamenn
tóku leikinn í sínar
hendur fram til hlés. Leiknum lauk
með jafntefli, einu marki gegn einu,
og voru bæði mörkin gerð í fyrri
hálfleik.
Ólafsfirðingar skorðuðu á tíundu
mínútu og var Hörður Benónýsson
var þar að verki. Eftir þetta sóttu
KS-ingar í sig veðrið. Hafþór Kol-
beinsson jafnaði metin fyrir KS á
43. mínútu, eftir að Þorvaldur
markvörður Leifturs missti boltann
frá sér.
Seinni hálfleikur var daufur mið-
að við lætin í þeim fyrri og lítið um
færi.
FRJALSIÞROTTIR
Guðrún Norðuiianda-
meisfari í grindahlaupi
GUÐRÚN Arnardóttir úr
UMSK varð Norðurlanda-
meistari unglinga í 100 metra
grindahlaupi, á tímanum
14,11,á Norðurlandameist-
aramóti unglingaliða, sem
haldið var í Bergen nú um
helgina.
•4T
Atta íslenskir unglingar héldu
til keppni á mótinu, sem er
árviss viðburður. Flestir íslensku
þátttakendanna bættu sinn per-
sónulega árangur.
Þuríður Ingvarsdóttir (HSK)
keppti einnig í 100 metra grindar-
hlaupinu og varð í 8. sæti. Guðrún
varð síðan í 6. sæti í 100 metra
hlaupi, á 12,53. Einar Einarsson
(Ármanni) varð fimmti í 100
metra hlaupi, á 10,95, og i 200
metra hlaujpi varð hann sjöundi,
á 22,83. I 1500 metra hlaupi
kvenna varð Fríða Rún Þórðar-
dóttir (UMSK) í sjötta sæti, á
tímanum 4.34,10, og í 800 metra
hlaupi kom hún einnig sjötta í
mark, á 2.14,61. Helena Omars-
dóttir (FH) varð í sjöunda sæti í
400 metra grindahlaupi, á 62,91.
Finnbogi Gylfason (FH) varð sjötti
i 800 metra hlaupinu, á 1.57,64.
Þóra Einarsdóttir (UMSE) keppti
í hástökki og varð í sjöunda sæti,
stökk 1,70 metra. Bjarki Viðars-
son (HSK) keppti í kúluvarpi og
kringlukasti og varð i sjöunda
sæti í báðum greinum. Kúlunni
varpaði hann 14,11 metra, en
kringlunni öllu lengra, eða 35,20
metra.
■ SOVÉTMENN urðu sigurveg-
arar í liðakeppni í fimleikum á Frið-
arleikunum í Tacoma i Washing-
ton. Þeir hlutu 176,50 stig af 180.
í öðru sæti varð lið Bandaríkjanna
með 172,55 stig og Kínverjar hlutu
bronsverðlaun með 172,35 stig.
Fjórir keppendur frá hverri þjóð
reyndu með sér í liðakeppninni og
besti árangur þriggja keppenda
hvers liðs skar úr um stigafjölda
þess.
■ DAVE Mora, 26 ára maraþon-
hlaupari, sem var valinn í banda-
ríska landsliðið á síðustu stundu,
vann öllum á óvart maraþonhlaup
Friðarleikanna á laugardag. Hánn
setti persónulegt met og hljóp vega-
lengdina á 2.14,49. Mora náði for-
ystunni af Tansaníumanninum
Robert Naali þegar sex km voru
að endamarki. í öðru sæti varð
Sovétmaðurinn Nikilai Tabak.
Zoya Ivanova, Sovétríkjunum,
varð sigurvegari í maraþonhlaupi
kvenna á tímanum 2.34,38 sekúnd-
um.
■ SOVÉSKU fimleikakappamir á
Friðarleikunum, með Vitalíj
Tsjerbo í broddi fylkingar, unnu
einnig gullverðlaun í öllum keppnis-
greinum í einstaklingskeppninni á
sunnudag. Kínveijinn Guo Linyao
og Bandaríkjamaðurinn Lance
Ringnald deildu þó efsta sætinu
með Sovétmönnum í keppni á tvíslá
og svifrá. Tsjerbo, sem er, 18 ára,
vann gullverðlaun í stökki. Hlaut
einkunnina 9,92. Auk þess unnu
Sovétmenn gullverðlaun fyrir gólf-
æfmgar, æfingar á bogahesti og í
hringjum.
I RODION Gataullin frá Sov-
étríkjunum stökk 5,92 metra í
stangarstökki og vann gullverðlaun
í þeirri keppnisgrein. Þetta er hæsta
stökk ársins utanhúss.
■ SÚRÍNAMBÚINN Anthony
Nesty, sem skaut Bandaríkjamann-
inum Matt Biondi ref fyrir rass í
200 metra flugsundi á Ólympíuleik-
unum í Seoul, endurtók afrek sitt
á Friðarleikunum á sunnudag.
Taugaveiklaði Nesty, eins og
hann er nefndur, kvaðst aldrei hafa
verið jafn taugaveiklaður fyrir
keppni. „Ég gat varla beðið eftir
því að keppnin hæfist og var við
að væta buxurnar af eftirvænt-
ingu,“ sagði Nesty.
■ KANADAMAÐURINN Paul
Willianis vann gull i 5.000 metra
hlaupi. Við verðlaunaafhendinguna,
þegar leika átti þjóðsönginn, bilaði
hljóðkerfið og Williams varð að
gera sér að góðu fagnaðarhróp
áhorfenda þegar hann veifaði sigur-
verðlaununum.
■ 25 ÁRA gamall maður frá Se-
attle setti allt á annan endann við
Mount Baker þar sem siglinga-
keppni Friðarleikanna fer fram.
Hann staðhæfði að myndavélataska
sem hann hafði meðferðis innihéldi
dínamít. Sprengjusveit lögreglunn-
ar var kölluð á vettvang en í ljós
kom að í töskunni var aðeins mynd-
bandstökuvél. Maðurinn var engu
að síður ákærður fyrir tiltækið.
■ BANDARÍKJAMENN urðu í
þremur efstu sætunum í 100 metra
spretthlaupi kvenna. Carlette Gu-
idry vann á tímanum 11,03 sekúnd-
um, tveimur hundraðshlutum úr
sekúndu á undan löndum sínum
Sheila Echols og Michelle Finn.
í 400 metra hlaupi kvenna sigraði
Kúbverjinn Ana Quirot á 50,34
sekúndum. J amaikamaðurinn
Winthrop Graham vann gullverð-
laun í 400 metra grindahlaupi á
48,78 sekúndum.