Morgunblaðið - 24.07.1990, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 24.07.1990, Qupperneq 5
4 B MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. JUU 1990 + MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. JUU 1990 B 5 SUND / MEISTARAMOT ISLANDS 99 Ég er mjög ánægð með árangurínn á þessu stigi“ - sagði Helga Sigurðardóttir, sem vann titilinn besta sundkona mótsins VEÐRIÐ var leiðinlegt, eina ferðina enn, þegar keppt var íhelstu 50 metra sundkeppni ársins — meistaramóti íslands í Laugardals- laug um helgina — og setti óþarft strik í reikninginn. „Það er virkilega tími til kominn að byggð verði 50 metra innilaug í Reykjavík," sagði Óli Þór Gunnlaugsson, þjálfari landsiiðsins. „Tímar eru auðvitað mikilvægir, en þegar sundfólkinu er kalt og vindurinn ýfir vatnsborðið, þá er þetta mjög erfitt," sagði Óli. Auk þess þótti Óla að sund- fólkið, og þó sérstaklega Róm- arfararnir, hefðu ekki lagt nógu hart að sér. „Þau ættu að vera mjög nálægt sínum Conrad bestu tímum núna,“ Cawley bætti hann við. skrifar Einungis tvö, af þeim fimm sem fara til Rómar, voru nærri sínum besta árangri, og hlutu að launum titlana besta sundkona og sundmaður mótsins. Þetta voru þau Helga Sig- urðardóttir (Vestra), sem synti 100 metra skriðsund á 1.00,50, og Arn- þór Ragnarsson (SH), sem synti 200 metra bringusund á 2.26,13. Mótið hófst á föstudaginn, þegar Ragnar Guðmundsson sigraði í 1500 metra skriðsundi á sínum besta tíma á þessu ári, 16.38,56. Ragnar sagðist vera ánægður en hafa vonast til að ná dálítið betri tíma. Hann á íslandsmetið í grein- inni, 15.57,54. Ægiskonan Ingibjörg Amardótt- ir var mjög ánægð með ár»ngur sinn, 9.33,90, vegna þess að hún hafði aðeins æft í 3 vikur fyrir mótið, eftir að hafa lengi átt við veikindi að stríða. Arnar Freyr Ól- afsson, eini íslenski þátttakandinn á Evrópumeistaramóti unglinga í Frakklandi um næstu helgi, olli vonbrigðum, þegar hann synti á 4.56,69 og bæði hann og þjálfari hans höfðu vonasttil að betri árang- ur næðist. Systir Amars Freys, Bryndís, synti næst og sigraði í 100 metra flugsundi á 1.07,58, en syst- ir hennar, Hugrún, á metið í grein- inni, 1.05,37. Ragnheiður Runólfsdóttir synti 100 metra og 200 metra bringu- sund á mun lengri tímum en hún hefur best gert. En bæði hún og þjálfari hennar, Steve Cryer, voru ánægð með þessi sund. „Við erum bara að leika okkur,“ sagði Steve. Þá varð Ragnheiður í öðru sæti í 800 metra fijálsu sundi, grein sem hún tekur yfírleitt ekki þátt í, á tímanum 9.43,40. Þótt Ragnheiður einbeiti sér nú að bringusundinu, á hún enn metið í 100 metra bak- sundi, og þegar hún synti í þeirri grein á SMI, var hún aðeins 72 hundruðustu úr sekúndu frá því að slá það met. „Mér fannst þetta svo auðvelt og varð undrandi á því hvað tíminn var góður,“ sagði hún. Eng- inn sundmaður komst nær því að setja íslandsmet. Eina metið sem sett var á mótinu, var í 4x100 metra boðsundi kvenna. Það var sveit Ægis, skipuð þeim Huldu Rós Hákonardóttur, Helgu Svavarsdótt- ur, Örnu Þóreyu Sveinbjörnsdóttur og Ingibjörgu Arnardóttur, sem bætti fyrra met sveitar Vestra, um 1,63 sekúndur. Magnús Magnússon (Þór) sigraði í 100 metra skriðsundi á 54,56 og á hæla honum kom Gunnar Ársæls- son (ÍA) á 55,23. Gunnar sagðist vera í sjöunda himni yfir þessum tíma, sem fleytir honum í B-hóp landsliðsins. Gunnar sigraði einnig í 100 metra flugsundi á 59,90. Þegar sú keppni fór fram, var þjófstartað, og sökum þess að sund- mennirnir voru ekki stöðvaðir fyrr en eftir 50 metra sund, voru þeir jireyttir þegar keppnin var endur- tekin 10 mínútum síðar. „Það voru miklir möguleikar á að slá 59,90 metið, hefðu umsjónarmennirnir sinnt sínu starfi." Þessi setning var höfð eftir þjálfara Gunnars, sem var afskaplega reiður vegna þess sem hann kallaði „slæmt skipulag." Arnþór Ragnarsson (SH), séhi nú æfir í Danmörku, sigraði í 100 metra bringusundi á 1.08,20 og í 200 metra bringusundi á 2.26,13. Hann sagðist vera ánægður með þennan árangur, í ljósi þess að hann er kvefaður og átti erfitt með að anda. Færeyska liðið sigraði einungis í einni grein, 200 metra baksundi kvenna, sem Durita Djurhuus vann, á 2.36,33. „Þetta er nærri mínu besta,“ sagði hún. má Morgunblaöið/Einar Falur Þau fara til Rómar. Frá vinstri, Ragnar Guðmundsson, Ragnheiður Runólfsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Arnþór Ragn- arsson, Magnús Ólafsson og Óli Þór Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari. Heimsbikarkeppnin í Róm næst á dagskrá í apríl á þessu ári lagði SSÍ fram nýja áætlun í því skyni að árangur keppenda geti orðið betri. í áætluninni er gert ráð fyrir að bestu sundmönnum íslands verði skipt ítvo hópa, A og B, ílandsliðinu. Til þess að komast í annan hvorn hóp- inn, þurfa sundmennirnirað ná áveðnu lágmarki, sem í mörgum tilvikum er hærra en íslandsmet. Amóti sem háð var í Dan- mörku, setti Arnþór Ragnars- son tvö ný met, og náði þar með lágmarkinu í hóp A. Hann synti 100 metra bringusund á 1:06,11 (eldra met 1:07,61) og 200 metra bringu- sund á 2:24,33 (eldra met 2:25,95). Nú eru því 6 sundmenn í hóp Á: Magnús Ólafsson (Þór), Arnþór Ragnarsson (SH), Ragnar Guð- mundsson (Ægi), Eðvarð Eðvarðs- son (SFS), Helga Sigurðardóttir (Vestra) og Ragnhéiður Runólfs- dóttir (ÍA). Öll munu þau taka þátt í Heimsbikarkeppninni í Róm, nema Eðvarð, sem telur sig ekki vera í nógu góðri þjálfun., I hóp B eru tímamörkin auðveld- ari viðfangs. Fimm sundmenn eru í þeim hópi, og nýjasti meðlimurinn er Gunnar Ársælsson (ÍA). Iiann náði mjög góðum árangri í 100 metra skriðsundi, þar sem hann varð í öðru sæti á tímanum 55,23 og bætti þar með árangur sinn um 1,42 sekúndur. Eðvarð Þór Eðvarðsson, sem náði bestum árangri íslendinga á Ólympíuleikunum 1988, var langt frá sínu besta, þó svo að tími hans í 100 metra baksundi sé sá besti sem hann hefur náð á þessu tíma- bili. Landsliðsþjálfarinn, Óli Þór Gunnlaugsson, sagðist vera mjög vonsvikinn með að Eðvarð hefði ekki æft og einnig með að hann skyldi ekki vera meðal þeirra sem fara til Rómar. Hann bætti því við að tími væri til kominn að Eðvarð tækist á við hlutina og skipaði sér aftur á bekk með fremstu sund- mönnum landsins. Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir úr Ægi og þjálfari hennar, Richard Kursch, voru ánægð með árangur hennar um helgina. Sérstaklega 200 metra flugsundið, þar sem hún var aðeins 3 sekúndum frá því að slá 12 ára gamalt íslandsmetið. Helga Sigurðardóttir (Vestra) sagði um tíma sinn, 1.00,50, í 100 metra skriðsundi: „Mig langar til að slá metið 58,87 á mótinu í Róm og ég er mjög ánægð með árangur minn á þessu stigi undirbúnings- ins.“ Allt íslenska sundfólkið mun nú taka sér verðskuldað 6 vikna hlé frá sundi, nema auðvitað fimm- menningarnir sem halda til Rómar, en þeir munu halda æfíngum áfram uns þeir fara til Ítalíu þann 1. ágúst. Síðan verða þeir eina viku enn við æfingar og undirbúning fyrir stærstu 50 metra keppnina í Evrópu á þessu ári. Fimm Færey- ingar á Sund- meist- ara- mótinu Fimm sundmenn frá Færeyjum tóku þátt í Sundmeistaramóti íslands. Þjálfari þeirra, Aksel Haraldsen, var mjög ánægður með sína menn og munu þrír þeirra halda til Heimsbikar- keppninnar í Róm. Þessir þrír æfa allir í Banda- ríkjunum allt árið um kring og eru okkar bestu sundmenn,“ sagði Aksel og bætti við: „Eg varð mjög hissa á að sjá hversu oft sundfólkið þjófstartaði og skildi aðra keppend- ur eftir í köldum næðingnum." Honum fannst að dómarinn hefði mátt vera strangari. Þá var hann einnig undrandi yfir því, að ekki skyldi keppt í 200 metra skriðsundi og 200 metra fjórsundi. „En það var gott að koma með keppendur hingað á Sundmót ís- lands. Þessi keppni er mátulega erfið fyrir okkur," sagði Aksel. ví-.'. • . ■ AM& .. •; ; *• t ■■■ s,«. -í 5j jswnwiJlá Morgunblaðið/Einar Falur Ragnheidur Runólfsdóttir var nokkuð frá sínu besta í bringusundinu, en var ánægð með árangurinn. „Við erum bara að leika okkur," sagði Steve Cryer, þjálfari sunddrottningarinnar. Amar Freyr Ólafsson á Evrópumeistaramótið Ragnheiður Runólfsdóttir verðlaunuð iyrir besta afrek tímabilsins Arnar Freyr Ólafsson (Þór) fór í gær til Dunkirk í Frakklandi, þar sem hann mun taka þátt í Evr- ópumeistaramóti unglinga. Þar taka þátt strákar á aldrinum 16 og 17 ára og stúlkur 14-15 ára. Upprennandi sundstjörnur á al- þjóðavettvangi. Á mótum sem þessu nást oft bestu tímar árs- ins í Evrópu. Amar Freyr, sem er 17 ára gam- all, mun taka þátt í 200 metra og 400 metra fjórsundi. Þar þurfa keppendur að synda með fjórum ólík- um aðferðum í réttri röð, flugsund, baksund, bringusund og frjálst sund. Keppendur þurfa því að vera góðir í öllum greinunum fjórum og þess má geta, að þetta er ein erfiðasta keppn- isgreinin í sundi. Arnar Freyr náði lágmarki til þátt- töku í mótinu þegar hann synti 400 metra fjórsund á tímanum 4:41,64 í 25 metra laug á móti IMl í apríl. (Svarar til tímans 4:47,84 í 50 metra laug). íslandsmetið er 4:50,63, sett af Eðvarð Eðvarðssyni árið 1987, en Arnar Freyr á góða moguleika á að setja nýtt íslandsmet í Frakklandi. Hann átti möguleika á því á Sund- móti íslands nú um helgina, en synti þá á 4:56,69 og var mjög óánægður með það: „Ég bjóst við að ná betri árangri." Þjálfari hans og móðir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, var honum sammála. Arnar fékk ekki tækifæri til að synda 200 metra fjór- sund, vegna þess að einhverra hluta vegna er sú grein ekki á dagskrá Sundmeistaramótsins. Ragnheiður verðlaunuð Ragnheiður Runólfsdóttir var sérs- taklega verðlaunuð á mótinu fyrir besta árangur Íslendings á keppn- istímabilinu. Hún varð í 5. sæti í 100 m bringusundi á Evrópumótinu á Spáni í desember s.l., fékk tímann 1:10,78. ÞRIÞRAUT / ISLANDSMOTIÐ Haukur og Bima fyrstu íslandsmeistaramir HAUKUR Eiríksson, Svalbarðs- eyri,og Birna Björnsdóttir, Garðabæ, urðu fyrstu íslands- meistararnir í þríþraut, en fyrsta landsmótið var haldið við Hrafnagil í Eyjafirði um helgina. Keppendur komu víðs vegar af landinu og er Ijóst að áhugi á þessari íþrótt er mjög vaxandi. Keppnin fór þannig fram að fyrst voru syntir 750 metrar, þar á eftir stukku menn á reiðfáka sína og hjóluðurílO km og að lokum voru 5 km hlaupnir. í karlaflokki voru 20 keppendur og voru gönguskíða- menn mjög áberandi í þeim hópi. Fyrstur með sund- sprettinn var Hugi Harðarson, sem sýndi mikla keppnishörku, því dag- inn áður hafði hann dottið á æfingu og farið úr lið á einum fingri. Á reiðhjólinu stakk hins vegar Einar Jóhannesson alla keppendur af sér og var með tæplega eina og hálfa mínútu í forskot á Huga og tvær Anton Benjamínsson skrifar Birna Björnsdóttir mínútur á Hauk Eiríksson, þegar hlaupið tók við. Haukur sýndi hins vegar mikla hörku og náði þeim Einari og Huga, þegar hlaupið var hálfnað, og tók síðan forystuna sem hann hélt alla leið og kom í mark 5 sek. á undan Huga. Einar kom síðan þriðji í mark, rúmri mínútu á GOLF / OPNA BRESKA MEISTARAMOTIÐ Draum- ur allra golf- leikara - sagði Nick Faldo eftir sigurinn NICK Faldo sigraði á Opna breska meistaramótinu ígolfi, sem fram fór í St. Andrews nú um helgina. Þetta var annar sigur Faldos á „stórslemmu11 golfmóti í ár, en enginn golf- leikari hefur sigrað á tveim slíkum mótum síðan árið 1982. Faldo tók lífinu með ró á sunnudaginn og var kátur: „Að sigra í St. Andrews, á degi eins og þessum, er svo sannarlega einstakt. Það er draumur allra golfleikara." Faldo var fimm höggum á undan næsta manni, Payne Stewait frá Bandaríkjúnum. Þegar keppni hófst á sunnudaginn, var Stewart fimm höggum á eftir Faldo, og hafði minnkað muninn í tvö högg þegar sex holur voru eftir. En hann sprakk á limminu. Faldo lék fyrstu holuna á sunnu- daginn á einu höggi undir pari (fugli), fékk skolla á fjórðu holu og síðan fugl á fímmtu holu. En eftir að hafa farið næstu sjö holur á pari, var forskot hans á Stewart komið niður í tvö högg, því sá bandaríski fór fimmtu, sjöttu, tíundu og tólftu holu á einu undir pari. Stewart var einu yfir pari á 13. holu og sömu leiðis síðustu tvær holurnar, á meðan Faldo fór þá 15. á einu undir og sautjándu holuna á einu yfir. Árangur Faldos á síðasta keppnisdegi var 71 högg, eitt undir pari. Samanlagt skor Faldos var 270 högg, 18 undir pari, sem er sex höggum betra en fyrrum besti árangur á Opna breska á St. Andrews, sem Spánverjinn Steve Ballesteros náði árið 1984. Fyrstu þijá dagana hafði Faldo leikið á 67, 65 og 67. eftir sigurvegaranum. „Þetta var fyrst og fremst mjög j gaman — en ég segi ekki að þetta hafi ekki verið erfitt líka,“ sagði Haukur. „Eftir að ég var búinn að draga þá Einar og Huga uppi á hlaupunum var ég nokkuð öruggur með að hafa þá, en þó stóð þetta nú tæpt.“ * „Stífnar á hjólinu" í kvennaflokki voru keppendur 5 talsins og sýndu þátttakendur að keppni í þríþraut er ekki síður fyrir konur en karla. Birna Björnsdóttir, landsliðskona í sundi, tók forystu strax í sundinu og hélt henni örugg- lega alla leið í mark. Ásta Ásmunds- dóttir varð í 2. sæti og Bryndís I. Stefánsdóttir í því þriðja. „Þetta var frekar erfitt,“ sagði Birna. „Sérstaklega var það þó hlaupið sem var erfitt því maður stífnar svo á hjólinu." Birna sagðist hafa hlaupið og hjólað síðustu vikur en að öðru leyti ekkert búið sig • sérstaklega undir mótið, en þetta var í fyrsta sinn, sem hún keppir í þríþraut. Reuter Nick Faldo smellir kossi á gripinn, sigurlaunin (auk dálaglegrar peninga-» summu) fyrir sigurinn í Opna breska meistaramótinu. Þetta var í annað sinn sem Faldo sigrar á Opna breska meistaramót- inu. Hann sigraði einnig í Muirfield árið 1987, og þetta er fjórði stóri titillinn á ferli hans. í apríl síðast- liðnum sigraði hann á Bandaríska meistaramótinu. Mark McNulty, frá Zimbabwe, átti besta skor sunnudagsins, 65 högg, og skaust þar með upp að hlið Stewaits með heildarskorið 275. Einu höggi á eftir þeim komu Ian Woosnam fra Wales og Jodie Mudd frá Bandaríkjunum. Stiga- hæsti golfleikari heims, Ástralinn Greg Norman, lauk síðasta degi á 69 höggum og lauk keppni á 11 höggum undir pari og varð í sjötta sæti. Bandaríkjamaðurinn Tim Simp- son var eini keppandinn sem náði því að fara holu í höggi. Hann náði þeim árangri á 11. braut sem er 155 metra löng. Faldo lék af öryggi og aðeins einu sinni, keppnisdagana ljóra, lenti kúla hans í sandglompu. Hann sagðist líta á sjálfan sig sem einn af bestu golfleikurum heimsins. „Jamm, það er mér nær að halda, eftir undanfarin fjögur tímabil," sagði hann. „Ég hef sigrað á fjórum stórmótum og sá fyrsti í langan tíma til að vinna tvö slík á einu ári.“ Hann hrósaði leiðbeinanda sínum, David Leadbetter, og ekki síður kylfusnót sinni, Fanny Sunes- son. Hann játaði að hafa verið svo spenntur fyrir síðustu umferðina, að hann hefði vart getað komið hádegismatnum niður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.