Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 25

Morgunblaðið - 26.08.1990, Side 25
C 25 Við kveðjum Birnu í þökk og virð- ingu. Góð kona er gengin. Blessuð sé minning hennar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Breim) Gyða og Maggi Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Mig langar að minnast hennar með fáeinum orðum. Ég kom inn á heimili þeirra sæmdarhjóna, Birnu og Helga, aðeins 12 ára gömul, sem vinkona dætra þeirra. Mér var strax tekið opnum örm- um og var heimili þeirra sem mitt annað heimili um langan tíma. Bima var glæsileg kona, glaðleg og geislandi. Hún bar sterka per- sónu, og var einstaklega falleg og vönduð kona. Hjónaband þeirra var afar far- sælt. Milli þeirra ríkti gagnkvæm ást og virðing. Ég á Birnu margt að þakka, og get ég fullseint þakkað þann hlýhug sem þau hafa ætíð sýnt mér. Ég og fjölskylda mín vottum Helga, börnum þeirra og öðmm aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Hjördís Ström Mánudaginn 27. ágúst verður borin til hinstu hvíldar elskuleg vin- kona, Birna Þórðardóttir. Ég man ætíð þegar ég sá Birnu í fyrsta sinn. Þá var ég stödd á Hverfisgötunni hjá Guðmundu frænku minni, þegar Helgi sonur hennar kom heim með Bimu kær- ustuna sína. Fallegri stúlku hafði ég aldrei augum litið. Við nánari kynni lærðist mér að hún bjó yfir ekki síðri fegurð í hjarta. Ég þakka elsku Birnu minni allt sem hún hefur verið mér og mun sakna hennar sárt. Hún gaf mér allt sem góð vinkona gat veitt, vin- áttu og kærleika. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hjóta skalt. (V. Briem.) Elsku Helga, börnum, barna- börnum og öðrum ættingjum og vinum votta ég mína dýpstu samúð. Heba Árnadóttir Ég kynntist Birnu 1977, bjó hún þá á Langholtsveginum. Með okkur tókst strax mikill og góður kunn- ingsskapur sannra vina, ég trúði henni fyrir mínum málum. Bima var mikil morgunmann- eskja og þótti mér mjög gaman að rabba við hana. Ég átti margar Blómastofa Fríöfinm Suöurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öllkvöld til kl. 22, - einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. % MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1990 mjög góðar stundir með Birnu og einkum þá á laugardags- og sunnu- dagsmorgnum, en á þessum ámm drukkum við kaffi og reyktum fjöld- ann allan af sígarettum. Það var ekki rabbað um stjórnmálaástandið eða hvernig ætti að leysa vanda heimsbyggðarinnar, heldur um ýmsa hluti úr hinu daglega lífi, og þá var brosað að hinu broslega. Birna var mikil húsmóðir og átti sérlega fallegt og smekklegt heim- ili. Hún kom mér fyrir sjónir sem mikil athafnamanneskja, sama hvað var. Það var algengt að sjá hana vera að leysa upp málningu af gluggum og öðru slíku, því að allt varð að hafa réttan lit, og síðan að mála í réttum lit. Hún var líka mikil hannyrðamanneskja, ávallt að sauma eitthvað fyrir jól, voru það hinir ýmsu jólasveinar, grýlur og leppalúðar, og fyrir páska ýmsar páskafígúrur. Alltaf með eitthvað á milli handanna. Birna var heimakær og ekki gat ég séð að henni fyndist gaman að ferðast um landið. Henni fannst vegirnir leiðinlegir og hún hafði óbeit á sveit vegna slæmrar reynslu sinnar af dvöl í sveit sem ung stúlka. Aftur á móti hafði hún gam- an af að ferðast til útlanda og var mikill undirbúningur vegna brott- farar og heimkomu. Ég hitti Birnu í Árbæjarapóteki í maí síðastliðnum. Ekki gat ég séð að neitt amaði að henni þá, hún brosti eins og henni var lagið og var hress að vanda. En í júlí síðast- liðnum fékk ég skilaboð um að koma að heimsækja hana á Landa- kotsspítala sem ég og gerði, sá ég þá að eitthvað meira en lítið var að. Ég átti tal við Helga og sagði hann mér að hún væri með þennan slæma og jafnvel ólæknandi sjúk- dóm sem dró hana á svo skömmum tíma til dauða. Ég votta Helga og fyölskyldu hans mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ragnar Guðmundsson Það var í keilunni sem okkar vin- skapur byrjaði. Við kynntumst smám saman í Öskjuhlíðinni, bæði við æfingar og keppni. Hvört heldur það var á æfingum eða í keppni, reyndum við alltaf að leiðbeina hvor annarri ef illa gekk og samfagna þegar vel gekk. Það eru orðin rúm- lega 5 ár síðan þetta byijaði og við vorum fáar konurnar í fyrstu, en þeim fjölgaði smám saman þó svo að sumar stoppuðu stutt. Én við vorum nokkrar sem héldum ákveðið áfram fullar áf áhuga, þó svo að árangur væri misjafn, og var Birna í þessum hópi. Stundum var hótað að selja kúlu og skó, þegar verst gekk, en áhuginn var of mikill til þess að til þeirra aðgerða væri grip- ið, enda meira sagt í gríni en alvöru. Birna varð Reykjavíkurmeistari kvenna í keilu 1986, og keppti ásamt fleiri íslenskum keilurum á Norðurlandamóti í Danmörku 1988. • Birna var vel studd í keilunni, því Helgi eiginmaður hennar og Ingimundur sonur hennar voru líka með frá upphafi. Það er erfitt að trúa því að hún Birna sé dáin. Það eru rétt um 3 mánuðir síðan hún var síðast að keppa í keilu og á spítalanum tal- aði hún um hvað hún hlakkaði til að koma aftur, þegar henni batn- aði. En það fór á annan veg. Birnu verður sárt saknað, ekki bara sem góðs keilara, heldur einn- ig sem alveg yndislegrar persónu. Minningin um Birnu, okkar ynd- islegu vinkonu, mun ávallt lifa með okkur. Elsku Helga, Inga, Rósu og Þóru vottum við okkar dýpstu sam- úð. Solla, Dóra, Björg, Denna, Oddný og kveðja frá Höbbu í Orlando. Svo gengur allt að Guðs vors ráði, gleði og sorgin skiptast á. Þótt vinur hnigi lík að láði og logi tár á hrelldri brá. Þá huggar eitt, sem aldrei brást: Vér aftur siðar munum sjást. (Kristján Jónsson) Ég vil með fáum orðum minnast Birnu Þórðardóttur. Hún háði þunga og hetjulega baráttu við erf- iðan sjúkdóm og hefur nú fengið frið. Ég kynntist Bimu snemma í vor, á fallegu heimili þeirra hjóna í Hafnarfirði, þar sem mér var tekið opnum örmum. Kynni okkar voru stutt, en jákvæður lífsvilji og styrk- ur í veikindum hennar, veittu mér mikið. Nú þegar dregur að hausti og hún hefur kvatt, á ég margar góðar minningar; minningar um góða konu sem mér munu. aldrei úr minni líða. Svana LEGSTEIIMAR GRANÍT - MARMARI Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður, pósthólf 93, símar 54034 og 652707. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS GUÐMUNDSSON fyrrverandi blómasali, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 28. ágúst kl. 13.30. Margrét Erlendsdóttir, Sigurlína Magnúsdóttir, Grétar Hrafn Harðarson, Magnús Haukur Magnússon, Valborg Kjartansdóttir, Stefanía Magnúsdóttir, Jón Sigurjónsson og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma, BIRNA ÞÓRÐARDÓTTIR, Glitvangi 31, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 27. ágúst kl. 15.00. Helgi G. Ingimundarson, Rósa Helgadóttir, Þóra Helgadóttir, Ingimundur Helgason, Svanhildur Pétursdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, AXELS BLÖNDALS, læknis. Sigrún Blöndal, Hannes Blöndal, Ester Kaldalóns, Guðrún Blöndal, Haukur Þorsteinsson og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGRÚNAR Á. EIRÍKSDÓTTUR, Laufásvegi 34. Guð blessi ykkur öll. Dætur, stjúpbörn, systkini og aðrir aðstandendur. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, GUÐBJARGAR BENEDIKTU KRISTINSDÓTTUR, Vesturgötu 6, Ólafsfirði. Gylfi Jóhannsson, Kristinn S. Gylfason, Fanney Jónsdóttir, Stefán Veigar Gylfason, Sigríður Svansdóttir, Steinunn S. Gylfadóttir, Ruth Gylfadóttir, Víðir B. Björnsson, Alda A. Gylfadóttir, Smári Sigurðsson og barnabörn. + Af heilum hug þökkum við sýndan kærleik, vináttu og stuðning í veikindum, við fráfall og útför GUNNARS ÁKA SIGURGÍSLASONAR bifvélavirkjameistara, Nesbala 32, Sérstakar þakkir til lækna og annars starfsfólks Landspítalans, heimahlynningar Krabbameinsfélags Islands og stjórnarfélagsins fyrir ómetanlega aðstoð, Oddfellowreglunni fyrir kærleik og stuðn- ing og sýnda vináttu, sömuleiðis Lionsklúbbnum Eið. Ásdis Hafliðadóttir, Linda Björk Gunnarsdóttir, Nina Kristín Gunnarsdóttir, Arnfríður Tómasdóttir. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför RAGNARS HALLGRÍMSSONAR, Nesvegi 45, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. KristínTh. Hallgrímsdóttir, Hallgrimur S. Hallgrímsson, Gísli Hallgrímsson, Sveinn B. Hallgrírhsson, Kristján Hallgrímsson, Gunnar Hallgrfmsson, Helga Hallgri'msdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Ásgeir Hallgri'msson, Helgi Már Alfreðsson, Hrefna Andrésdóttir, Jóhanna J. Jóhannsdóttir, Alfreð Hafsteinsson, Rósa Marteinsdóttir og frændsystkini. + Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR, Safamýri 65, Reykjavík, sem lést 6. ágúst. Sérstakar þakkir sendum við læknum og hjúkr- unarfólki deildar 11-E á Landspítalandum fyrir frábæra hjúkrun. María Á. Einarsdóttir, Trausti Ólafsson, E. Sverrir Einarsson, Sigrún Theresa Einarsdóttir, Guðbjörg Einarsdóttir, Valdimar Valdimarsson, Ágúst Einarsson, Hanna Valdís Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.